Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
UM HELGINA
KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur aðventutónleika á sunnudag-
inn.
STÓRSVEIT Reykjavíkur spilar í Ráðhúsinu á laugardaginn.
LEIKBRÚÐULAND frumsýnir á laugardag leikinn Jólasveinar
einn og átta.
Tónlist
Píanótríó í Bú-
staðakirkju
Tónleikar verða haldnir í Bústaða-
kirkju sunnudaginn 5. desember kl. 17
þar sem leikin verða píanótríó eftjr
Bruch, Beethoven og Mendelssohn.
Flytjendur á tónleikunum eru Auður
Hafsteinsdóttir fíðluleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari og Mona
Sandström píanóleikari.
Aðventutónleikar
Kvennakórs Reykja-
víkur
Kvennakór Reykjavíkur heldur að-
ventutónleika sunnudaginn 5. desem-
ber og hefjast þeir kl. 17 í Hallgríms-
kirkju. Einsöngvarar á tónleikunum
verða Elín Ósk Óskarsdóttir, Guðrún
Stefánsdóttir og Jóhanna Þórhallsdótt-
ir. Hljóðfæraleikarar á tónleikunum
verða Monika Abendroth, sem leikur á
hörpu, Dýrleif Bjarnadóttir, leikur á
flautu, og Svana Víkingsdóttir, leikur
á orgel. Bjöllusveit Laugarneskirkju
mun einnig leika undir stjóm Ronalds
-V. Turner.
Stórsveit Reykjavíkur
í Ráðhúsinu
Stórsveit Reykjavíkur heldur tón-
leika í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardag-
inn 4. desember kl. 17. Söngvarar með
Stórsveitinni á þessum tónleikum eru
þau Linda Walker og Ragnar Bjama-
son. Hljómsveitarstjóri er Sæbjöm
Jónsson trompetleikari.
Évgení Onegín í
Óperuklúbbnum
Á vegum Óperuklúbbs Styrktarfé-
lags íslensku óperannar verða í vetur
haldnar óperasýningar af mynddiskum.
í óperaklúbbnum verður næstkom-
andi sunnudag kynnt óperan Évgení
Ónegin eftir Pjotr Tsjajkovskíj, en
þessa ópera mun íslenska óperan ein-
mitt ta'ka til sýninga um jólin. Um er
að ræða leikna kvikmynd af óperanni,
en söngur og önnur tónlist er af hljóð-
upptöku sem Georg Solti stjórnaði fyr-
ir Decca með þátttöku kórs og hljóm-
sveitar óperahússins í Covent Garden
í London.
Óskabörn
Sönghópurinn Óskabörn skemmtir
gestum Leikhúskjallarans á föstudags-
og laugardagskvöldum_. Óskabörn eru
leikaramir Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, Hinrik Ólafsson, Maríus Sverris-
son og Sóley Elíasdóttir en píanóleikari
þeirra er Aðalheiður Bjamadóttir. Á
sunnudagskvöldum eru það svo ópera-
söngkonurnar Margrét Jóhanna Pálma-
dóttir, Margrét Eir og Jóhanna Þór-
hallsdóttir sem syngja negrasálma og
jólalög við píanóleik Karls Olgeirssonar.
Hörpuleikur í Hafnar-
borg
Sunnudaginn 5. desember kl. 20
verða tónleikar Triós Reykjavíkur í
Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnaríjarðar.
Tríó Reykjavíkur skipa þau Halldór
Haraldsson píanóleikari, Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari og Gunnar
Kvaran sellóleikari. Gestir á tónleikun-
um verða Elísabet Waage hörpuleikari
og Guðrún S. Birgisdóttir flautuleikari.
Jólatónleikar Tón-
skóla Sigursveins
Nemendur almennrar deildar Tón-
skóla Sigursveins í einleik og samleik
halda jólatónleika í Norræna húsinu
laugardaginn 4. desember kl. 14.
Sunnudaginn 5. desember verða jóla-
tónleikar í Hraunbergi kl. 13, þar sem
nemendur almennrar deildar í einleik
og samleik ieika og jólatónleikar í
Langholtskirkju kl. 15, þar sem forskól-
amir, blásara- og strengjahópar, blokk-
flautusveit, þverflautusveit o.fl. leika.
Enskir lútusöngvar
og íslensk þjóðlög
Tónleikar verða í anddyri Þjóðminja-
safns íslands sunnudaginn 5. desember
kl. 17.15. Efni tónleikanna eru lútu-
söngvar, Sverrir Guðjónsson (kontra-
tenór) og Snorri Om Snorrason (lúta)
koma fram. Auk enskra lútusöngva frá
endurreisnartíma hefur Snorri Om út-
sett íslensk þjóðlög fyrir lútuna.
Myndlist
Halldór Ásgeirsson í
Listasafni ASI
Laugardaginn 4. desember kl. 16
mun Halldór Ásgeirsson opna myndlist-
arsýningu í Listasafni ASI við Grensás-
veg. Sýningin ber heitið „Hraunum-
myndanir" og er það tilvísun í efnið
og þróun þess sem listamaðurinn vinn-
ur út frá.
Listiðnaðarsýning í
Kringlunni
Hópur listamanna verður með list-
iðnaðarsýningú í Kringlunni næstu
daga. Listamennirnir, sem era 19,
verða á staðnum og sýna verk sín og
vinnubrögð við listmunagerðina. Á sýn-
ingunni era skartgripir, postulín, gler-
munir, leirmunir, hlutir úr tré, þráða-
leggir, blómaskreytingar, skúlptúrar
og vatnslitamyndir.
Sýningin stendur frá fimmtudegi til
sunnudags.
Ríkey í Café Milano
Myndlistarkonan Ríkey Ingimundar-
dóttir opnar sýningu á nýjum postulíns-
lágmyndum og olíuverkum laugardag-
inn 4. desember í Café Milano.
Anna Þóra í Nýlista-
safninu
Anna Þóra Karlsdóttir hefur sýnt
undanfamar vikur flókateppi úr ís-
lenskri ull í Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3b.
Sýning Önnu Þóra verður opin dag-
lega frá kl. 14-18 en henni lýkur 5.
desember.
Sýning á silkislæðum
Þóra Björk Schram textílhönnuður
heldur sýningu á silkislæðum laugar-
daginn 4. desember milli kl. 14 og 18
á vinnustofu sinni, Bræðraborgarstíg 7.
Hafnfirskir listadagar
í desember verða Hafnfirskir lista-
dagar haldnir á kaffihúsinu „Café Roy-
ale“, Strandgötu 28.
Sunnudaginn 5. desember lesa upp
höfundarnir Stefán Júlíusson, Guðrún
Helgadóttir, Ámi Ibsen, Aðalsteinn
Ásberg, Finnur Torfi og Kristín Óttars-
dóttir, Jóhanna Linnet syngur og Guðni
Guðmundsson leikur undir. Dagskráin
hefst kl. 21.
Málverkasýning í
Borgarnesi
Ingvar Þorvaldsson opnar málverka-
sýningu í Félagsbæ í Borgarnesi föstu-
daginn 3. desember kl. 21. Sýningin
er opin laugardag, sunnudag og mánu-
dag kl. 14 til 18. Á sýningunni eru
vatnslitamyndir og olíumyndir. Þetta
er sölusýning og henni lýkur á mánu-
dagskvöld, 6. desember.
Jólahelgin í Bergvík
Glerblástursverkstæðið í Bergvík á
Kjalarnesi heldur jólasölu á útlitsgöll-
uðu gleri nú um helgina.
Opið verður laugardag kl. 10-17 og
sunnudag kl. 10-15.
Elín Magnúsdóttir í
Listhúsinu
Elín Magnúsdóttir myndlistarkona
opnar sýningu á stórum og smáum
vatnslitamyndum í fremri sal Listhúss-
ins laugardaginn 4. desember.
Sýningin stendur til 24. desember.
Opnunartími er sem hér segir: Mán.-
fös. kl. 9.30-18, laugard. kl. 10-18
og sunnud. kl. 14-18.
Sigurbjörn Jónsson í
Galleríi Borg
Laugardaginn 4. desember opnar
Sigurbjörn Jónsson sýningu á nýjum
olíumyndum í Galleríi Borg við Austur-
völl. Á sýningunni núna eru olíuverk
sem unnin eru á síðustu mánuðum,
eingöngu fígúratív málverk.
Sýningin verður opnuð laugardaginn
4. desember kl. 16. Tómas R. Einars-
son, Sigurður Flosason og Ómar Ein-
arsson munu leika létta djasstónlist við
opnunina.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
12-18 og frá kl. 14-18 um helgar, en
henni lýkur 16. desember.
Leiklist
Sögusvuntan í Gerðu-
bergi
Laugardaginn 4. desember kl. 14
verður forsýning á nýju jólaleikriti Sög-
usvuntunnar í Gerðubergi. Það fjallar
um 13. jólasveininn. Sögusvuntan er
eins manns brúðuleikhús Hallveigar
Thorlacius, sem er höfundur verksins,
en leikstjóri err Guðrún Ásmundsdóttir.
Á eftir brúðuleikhúsinu verður slegið
upp bamaballi.
Smiður jólasveinanna
í Tjarnarbíói
Smiður jólasveinanna er nýtt íslenskt
jólaævintýri með söngvum fyrir börn á
öllum aldri. Höfundar era Pétur Eg-
gerz og Ingvi Þór Kormáksson.
Leikarar eru Alda Arnardóttir,
Bjarni Ingvarsson, Pétur Eggerz og
Stefán Sturla Siguijónsson. Utsetning
tónlistar er í höndum Vilhjálms Guð-
jónssonar en Pétur Eggerz annast leik-
stjórn.
Sýnt verður í Tjarnarbíói alla sunnu-
daga til jóla og hefjast sýningarnar kl.
14.
Leikbrúðuland frum-
sýnir Jólasveinar einn
og átta
Leikbrúðuland frumsýnir ævintýra-
leikinn Jólasveinar einn og átta á Frí-
kirkjuvegi 11 laugardaginn 4. desem-
ber kl. 15.
Leikurinn er saminn af Jóni Hjartar-
syni, sem jafnframt er leikstjóri. Erna
Guðmarsdóttir gerði brúðurnar. Bryn-
dís Gunnarsdóttir hannaði leiktjöld og
skuggabrúður. Bryndís og Helga Steff-
ensen gerðu búninga. Ema, Bryndís,
Helga og Þórunn Magnea Magnúsdótt-
ir stjórna brúðunum. Níu þekktir leik-
arar ljá brúðunum raddir sínar.
Tónlist við sýninguna semur Magnús
Kjartansson, en lýsingu annast Sigurð-
ur Guðmundsson.
Sýningar verða helgarnar 3. og 4.
og 10. og 11. desember. Síðustu sýning-
ar verða um þrettándann.
Týnda teskeiðin í Þor-
lákshöfn
Leikfélagið í Þorlákshöfn sýnir
Týndu teskeiðina eftir Kjartan Ragn-
arsson. Um 30 manns hafa unnið að
undirbúningi þessarar sýningar, en
leikarar eru Sigríður Garðarsdóttir,
Stefán Pétursson, Gunnur Hafsteins-
dóttir, Jón Ingi Jónsson, Elín Jónasdótt-
ir, Vignir Arnarson, Jóhanna Sveins-
dóttir, Gunnar Sigurðsson, Sævar
Geirsson og Hlynur Hilmarsson.
Leikstjóri sýningarinnar er Signý
Pálsdóttir, fyrrverandi leikhússtjóri á
Akureyri. Hún ber jafnframt ábyrgð á
útliti leikmyndar, en ljósahönnuður er
Benedikt Þór Axelsson.
Frumsýning verður í Grunnskólanum
í Þorlákshöfn föstudaginn 3. desember
kl. 20.30 og önnur sýning verður á
sunnudag á sama stað kl. 16. Síðan
verður farið í leikferð um Suðurland.
Staðfastur o g æðrulaus
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Gylfi Gröndal: ELDHRESS í
HEILA ÖLD 1993.
Þegar Eiríkur Kristófersson hafði
náð þrítugsaldri vildu stjórnvöld
sæma hann fálkaorðu. Ekki leist
Eiríki á að taka svo brátt við slíkri
viðurkenningu. Samur var þó heið-
urinn og sýndi hverrar tiltrúar þessi
ungi maður naut þá þegar. Því þá
átti hann raunar eftir að skila ævi-
starfi sínu mestöllu. í þorskastríðinu
varð hann þjóðhetja. Bretar, sem
virtu sinn navy næst á eftir kórónu
hennar hátignar, tóku á móti honum
eins o g sjóliðsforingja stórveldis þeg-
ar hann steig á skipsfjöl í einu breska
herskipinu. Vopnum var ekki beitt.
Þetta var taugastríð þar sem skjót,
en umfram allt rétt viðbrögð giltu í
hveiju tilviki. Orðið »skipherra« fékk
nýja og ábúðarfyllri merking.
Ævisaga Eiríks skipherra, sem
Gylfi Gröndal hefur nú skráð, er
merkileg fyrir margra hluta sakir.
Söguefnið er mikils háttar. Sögu-
maður hefur náð hundrað ára aldri
þegar sagan er skráð. Þótt mann-
sævin hafi lengst telst svo hár aldur
ávallt til einsdæma. Hitt vekur sýnu
meiri furðu að jafn aldraður maður
skuli enn vera svo vakandi í andan-
um og halda minni sínu og frásagn-
argáfu svo prýðilega sem raun ber
vitni. En hvort tveggja hefur sögu-
manni verið gefið flestum öðrum
fremur, eðlisgreind og skarpleiki,
sem honum hefur auðnast að halda
til hárrar elli. Sagan spannar öldina
til þessa dags. Sögumaður ólst upp
við sjó, og á sjó. í bernsku hans
urðu flestir að notast við opna ára-
báta, bæði til fiskveiða og sam-
gangna á skemmri leiðum. Ungur
réðst hann á skútu. Síðar fór hann
í siglingar. Hann varð togarasjómað-
ur og lenti í Halaveðrinu annálaða
1925 sem sökkti á hafsbotn skipum
og tugum sjómanna. Fram að bví
höfðu togararnir verið taldir svo
öflugir að óveður mundi tæpast
granda þeim á rúmsjó. Halaveðrið
batt hastarlegan enda á þá trú. Þá
réðst sögumaður til landhelgisgæsl-
unnar og starfaði þar upp frá því.
Enda þótt þá hæfist hinn glæsilegi
starfsferill hans eru allar sjóferða-
sögur hans í raun jafnmerkilegar.
Samanlagt eru þær því sem næst
siglingasaga þessarar aldar í hnot-
skurn.
Eiríkur Kristófersson var kominn
á miðjan aldur þegar ratsjáin kom
til sögunnar. Áður urðu skipstjórn-
armenn að treysta á eigin ratvísi.
Eða bara á guð og lukkuna. Með
ólíkindum má telja hve hann var
fundvís á skip í sjávarháska. Sjálfur
þakkar hann það forsjón og hand-
leiðslu. Aðrir mundu kalla það hug-
boð ogdulvitund. Eðajafnvel heppni.
Allt um það leikur ekki vafi á að
trúartraust skipherrans hefur aukið
honum kraft og áræði þegar mest á
reyndi. Við björgun manna úr haf-
snauð lagði hann sig ósjaldan í hættu
— miklu meiri en nokkru sinni í
þorskastríðunum! Höfundurinn,
Gylfi Gröndal, ritar eftirmála þar
sem hann ræðir um munnlega frá-
sagnarlist og segir meðal annars:
Sögumaður þarf að vera ýmsum
eiginleikum gæddur til að geta sagt
vel frá atburðum úr lífi sínu og samt-
íð. Hann þarf að hafa vald á mergj-
uðu og þnitmiðuðu málfari; frásögn
hans þarf að búa yfir spennu og
hrynjandi, myndrænum lýsingum
manna og umhverfis og lifandi sam-
tölum.«
Eiríkur Kristófersson
í raun eiga orð þessi einkar vel
við frásögn Eiríks Kristóferssonar.
Saga hans er jafngagnorð sem hún
er beinskeytt, laus við útúrdúra og
aukaatriði en hvarvetna rökrétt og
samfelld. En góð frásögn útheimtir
ekki aðeins lipurt tungutak, hún
byggist líka á skapstyrk og vilja-
festu, eða sannfæringarkrafti eins
og stundum er sagt._
Meðal alls þess fjolda ævisagna
sem Gylfi Gröndal hefur skráð er
þessi ef til vill hans besta. Hún er
Gylfi Gröndal
viðburðarík og fróðleg. Mannlýsing-
ar allar eru skilmerkilegar og trú-
verðugar. Alvöru og gamansemi er
hæfilega saman blandað. Málfarið
er kjarnmikið eins og talað mál ger-
ist best en jafnframt sniðið að regl-
um þeim sem ritað mál verður óhjá-
kypsmilega að lúta.
í fáum orðum sagt: Frásögn öld-
ungsins, Eiríks Kristóferssonar, er
sögð og skráð af ósvikinni en vel
agaðri lífsgleði. Hún er því bæði
stórfróðleg og skemmtileg.