Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 25 Kristjáni Jóhannssyni veitt ný viður- kenning Akureyrarbæjar, bæjarlykill Kemur við hjartað í mér KRISTJÁNI Jóhannssyni tenór- söngvara var veittur bæjarlykill Akureyrar í móttöku sem Bæjar- syórn Akureyrar hélt honum og eiginkonu hans, Siguijónu Sverr- isdóttur til heiðurs í gær. Um er að ræða nýja viðurkenningu og er Kristján sá fyrsti sem hlýtur iykil að Ákureyrarbæ. Viðurkenningin er veitt Kristjáni fyrir frábæra frammistöðu á sviði sönglistar. „Þessi lykill er til marks um hug okkar Akureyringa til þín, Kristján, og fylgja honum kveðjur og ámaðar- óskir,“ sagði Hallór Jónsson bæjar- stjóri á Akureyri er hann afhenti Kristjáni bæjarlykilinn. „Jafnframt fylgir þessum lykli að þú ert sérstak- ur aufúsugestur hvenær sem þú getur því við komið og við viljum gjarnan fá að vita af ferðum þínum um þess- ar slóðir sem oftast. Það er einlæg ósk okkar að þér takist að vera sem allra lengst á toppnum og sem flestir fái notið þinna einstæðu hæfiteika." Bæjarlykill Akureyrar er hannað- ur af Kristinu Guðmundsdóttur gull- smið á Akureyri. Hann er úr siifri, áletraður og hvílir á grágrýtissteini með áletraðri silfurplötu. Eiginkonu Kristjáns, Siguijónu Sverrisdóttur var færð næla eftir Margréti Jóns- Bæjarlykill BÆJARLYKILL númer 1, ný við- urkenning sem ekki hefur verið veitt áður l\já Akureyrarbæ. dóttur listamann á Akureyri til minn- ingar um komuna til Akureyrar. Hrærður „Ég á ekki orð til, ég er mikið hrærður. Þetta kemur við hjartað í mér,“ sagði Kristján um viðurkenn- ingu Akureyrarbæjar, en viðurkenndi aðspurður að vissulega kæmi sjaldan fyrir að hann yrði orðlaus. Kristján lauk lofsorði á hönnun bæjarlykils- ins, sagði að gripurinn væri virkilega fallegur og hann myndi fá veglegan sess á heimilinu. Áfengisauglýsing- ar birtar í Lífsmarki TVÆR áfengisauglýsingar eru birtar i nýútkomnu Lífsmarki, blaði sem AKO-last/POB á Akur- eyri gefur út og dreift er ókeypis á öll heimili í Eyjafirði og á Húsa- vík auk þess sem það liggur frammi í söluturnum víða í kjör- dæminu. Annars vegar er ákveðin rauðvínstegund auglýst í blaðinu og hins vegar bjór sem nýkominn er á markaðinn. Bannað er að auglýsa áfengi á Islandi. Önnur auglýsingin er frá Viking Brugg þar sem Thule í hálfs lítVa umbúðum er auglýstur, en um er að ræða 5% sterkan bjór. Fyrirtækið framleiðir ekki lengur léttöl, en slíkt öl er heimilt að auglýsa. Þá er í auglýsingu frá Bautanum greint frá því að boðið sé upp á rauð- vínið Beaujolais Nouveau á veitinga- staðnum og helstu kostir þess tíund- aðir í auglýsingunni. Elías I. Elíasson sýslumaður á Akureyri sagði að bannað væri að auglýsa áfengi í íslenskum fjölmiðl- um. Hann sagði síðdegis í gær, að ■ HAUKVR Halldórsson, for- maður Stéttarsambands bænda, Halldór Blöndal, landbúnaðarráð- herra, og Eiður Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Kjarnafædis, að- stoða viðskiptavini Hagkaups á Akureyri við val á íslenskum land- búnaðarvörum, milli klukkan 17 og 19 í dag. engin kæra hefði borist. Þröstur Haraldsson ábyrgðarmað- ur Lífsmarks sagði að um mistök hefði verið að ræða. HREIN HÚÐ HREINSAR HÚÐINA INNANFRÁ HREINSIKÚR (TÖFLUR) FYRIR ÓHREINA, BÓLÓTTA HÚÐ OG UNGLINGAHÚÐVANDAMÁL Náttúrulegt efni ásamt andlitssápu. Fæst hjá: Árbjæjarapóteki, Blómavali, Fjarðarkaupum, Heilsu, Heilsuvali, Heilsubúðinni, Heilsuhorninu, Kornmarkaðnum, Mosfellsapóteki, Sjúkranuddstofu Sillu o.fl. Sendum í póstkröfu. BÍÓ-SELEN UMBOÐIÐ SÍMI 76610___ NÝ MÚSIK Á LÆGRA VERÐI VINSÆLDALI Sala í plötuverslunum vikuna 22.-28. nóvember Byssur, rósir og spagetti Sæti Titill Flytjandi Siðast Vikur | 1 Lífið er ijúft Bubbi 1 4 t 2 Spagetti Inicident Guns 'N' Roses XX 0 l 3 Af lífi og sál Kristján Jóhannsson 2 1 ~ 4/ 4 Spillt Todmobile 3 1 4* 5 Hótel Föroyar KK Band 4 2 4r 6 Transdans Ymsir 5 2 t 7 Desember Sigga Beinteins XX 0 4/ 8 Líf Stefán Hilmarsson ó 1 t 9 You ain't here Jet Black Joe XX 0 t 10 Now 26 Ýmsir 17 i l 11 Pearl Jam Pearl Jam 7 6 4* 12 Hunang Ný dönsk 8 2 i 13 The Boysx The Boys 9 6 t 14 Ýkt stöff Ýmsir XX 0 t 15 Heyrðu 2 Ýmsir XX o t 16 Paradísarfuglinn Megas XX 0 t 17 Stuðmenn Stuðmenn XX 0 t 18 Barnabros Ýmsir XX 0 4- 19 The World Is Still Alive Bubbleflies 13 4 t 20 Stuð Páll Oskar Hjálmtýsson XX 0 XX = nýtt inn á lista ai = aftur inn á lista | Guns ’n’ Roses fara beint f annað sæti með lög eftir aðra. Cins og sjá má á íslenska *“popplistanum, topp XX er jólavertíðin komin af stað, því af tuttugu plötum á honum eru sautján íslenskrar ættar og bet- ur að svo væri allan ársins hring hugsa líklega margir. Óvænt við listann er að bandaríska rokk- sveitin Guns ’n’ Roses skýst í annað sæti listans í fyrstu út- gáfuviku og veltir úr því sæti Kristjáni Jóhannssyni, þó Bubbi sitji sem fastast á toppnum. Fyrir vikið færast fjöimargar plötur niðurávið á top tíu , til að mynda Kristján Jóhannsson, eins og áður er að vikið, Todmo- bile, KK Band og Stefán Hilmars- son, en út af topp tíu fara Ný- danskir og The Boys. Nýdönsk á þó líklega eftir að sjást aftur á topp tíu, en slagurinn verður harður eins og sjá má af þeim plötum sem sitja neðar á listan- um, til að mynda safnplötunum Ýktu stöffi og Heyrðu 2. Barna- brosi er og óhætt að spá hærri listastöðu eftir því sem líður að jólum, en erfiðara að spá fyrir um Megasar- og Stuðmanna- söfnin. Páll Óskar Hjálmtýsson sést í fyrsta sinn á lista með plötu sína Stuð, en Bubbleflies virðast á leið út í kuldann, eftir að hafa haldið sér á lista í fjórar vikur. Ógetið er nýliða á topp tíu, Siggu Beinteins, sem á vís- ast eftir að fara hærra með sína fyrstu sólóskífu, Desember, en lætur sér nægja að byrja í sjö- unda sæti, og Jet Black Joe, sem seldust afskaplega vel síðustu vikur fyrir síðustu jól, en plata sveitarinna, You Ain’t There, fer beint í níunda sætið. Spagettírokk Af plötunni í öðru sæti listans er annars það að segja að að á sama tíma og félagarnir í Guns ’n’ Roses voru að taka upp síð- ustu plötur sína, en þeir tóku upp tvær breiðskífur samtímis, Use Your lllusion 1 & 2, hristu þeir fram úr erminni þriðju plöt- una með lögum eftir ýmsa aðra tónlistarmenn sem þeir félagar héldu upp á og gefin var út fyrir skemmstu undir heitinu The Spagetti Incident. Use Your III- usion-plöturnar sönnuðu endan- lega að Guns ’n’ Roses væri ein fremsta rokksveit seinni tíma, þrátt fyrir jóss poppfræðinga víða um heim, því plöturnar hafa selst samtals í 27 milljónum ein- taka. Hljómsveitin hefur og verið á stanslausri tónleikaferð um heiminn til að fylgja plötunum eftir og gengið á ýmsu, en þeirri ferð er lokið núna og segja má að „Spagettíplatan" sé til að setja endapunktinn við það hark um leið og þeir félagar segjast vera að sýna virðingu þeim sveitum og tónlistarmönnum sem komu þeim á bragðið á sín- um tíma. Á plötunni eru lög sem spanna allt frá bresku pönki í bandarískt glitrokk; New Rose frá the Damned, Down on the Farm frá UK Subs, Human Being frá The New York Dolls, Raw Power frá Iggy Pop og Stooges, Ain’t it Fun frá The Dead Boys, Buick Makane frá T Rex, Hair of the Dog frá Nazareth, Att- itude frá The Misfits, Black Leat- her frá Sex Pistols, You Can’t Put Your Arms Arouns a Me- mory frá Johnny Thunders sál- uga og I.Don’t Care About You frá Fear. Ótalið er einkennileg- asta lag disksins, í það minnsta í Ijósi hverjir flytja, því þar flytja Axl og félagar rómantískan ásta- róð, Since I Don’t Have You, sem Skyliners gerðu frægt fyrir 35 árum, og rekur eflaust marg- ur upp stór augu. íslenski popplistinn er unninn af Gallup fyrir Morgunblaðið, Sjónvarpio, Rós 2 og samband hljómpíötuframleiSenda. Islenski popplistinn — TOPP XX — er ó dagskró Sjónvarpsins ó fösludögum og ó dagskró Rósar 2 ó laugardögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.