Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 Þijú óhöpp á Reykja- nesbraut Vogum. LÖGREGLUNNI í Keflavík var tilkynnt um þrjá árekstra á Reykjanesbraut í gærmorgun, en þá var blindhríð og hálka. Tólf mínútur yfír átta var til- kynnt um árekstur tveggja bíla í Kúagerði sem komu úr gagnstæð- um áttum. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á sjúkrahús vegna eymsla í fótum. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar og voru fjar- lægðar með dráttarbíl. Um sjöleytið varð þriggja bíla árekstur á Voga- stapa sem varð með þeim hætti að bifreið festist í skafli. Þá kom bif- reið sem stöðvaði fyrir aftan hana og að lokum kom þriðja bifreiðin og keyrði á aftari bifreiðina sem lenti síðan á fremsta bílnum. Þriðja tilkynningin, sem lögregl- unni barst, var-um árekstur í Kúa- gerði en þegar lögreglan kom á staðinn voru allir famir burt. - E.G. Morgunblaðið/Rax Á LEIÐ TIL BYGGÐA Kuldagallar frá Max og Sjóklæðagerð vinsælir hjá ungu kynslóðmm Framleiðendumir anna hvergi nærri eftirspum JÓLAFLÍKURNAR sem virðast gera mesta lukku hjá unga fólkinu eru svokallaðir kuldagallar frá Max og Sjóklæðagerðinm. Verk- smiðjurnar hafa ekki haft undan að framleiða nú fyrir jóhn. Þvi brugðu framleiðendur Max-gallanna t.d. á það ráð að selja gjafa- bréf, þ.e.a.s. fólk getur keypt ígildi galla, sem framleiddur verður eftir jól. Gjafabréfin sem selzt hafa skipta nú þúsundum og segir forstjóri Max hf. að starfsfólk fataverksmiðjunnar verði „með sveittan skallann“ út allan janúarmánuð að framleiða upp 1 pantan- ir. Sömu sögu er að segja frá Sjóklæðagerð Islands hf. Þar hafa menn hvergi nærri undan við framleiðsluna, að sögn Fjölnis Bjöms- sonar sölustjóra. Fjölnir sagði að fyrst hefði orð- ið vart við auknar vinsældir í ung- lingastærðum fyrir um fjórum árum. Taldi hann að það hefðu verið unglingar í dreifbýli sem fóru fyrst að klæðast göllunum en síðan tóku borgarbörnin við sér. Mest er selt yfir vetrartímann en síðustu ár hefur salan rokið upp fyrir útihátíðir. Fýrst var eingöngu um vinnugalla að ræða en nú hef- ur sniðinu verið breytt lítilsháttar. Minnst er framleitt fyrir 10 ára og kosta þeir um 9 þús. kr. úr búð en stærri gallar kosta um 12.500 kr. Sló í gegn í fyrra Sigmundur M. Andrésson for- stjóri Max sagði í samtali við Morgunblaðið, að Max-gallinn hafí fyrst slegið í gegn meðal unga fólksins í fyrra og nú fyrir jól hafi eftirspurn aukizt mjög því að gallarnir eru vinsælir til jólagjafa. „Við sem framleiðum gallann erum sérstaklega ánægðir með þetta, ekki sízt vegna þess að unga fólkið er með þessu að velja íslenzka framleiðslu og vegna þess að gallinn er heilsusamlegur, af- skaplega hlýr í misjöfnum vetrar- veðrum." Frá 1. desember hefur eftirspumin verið gífurleg og hafa gallar verið framleiddir svo þús- undum skiptir. Nú eru seld gjafa- bréf orðin það mörg, að starfsfólk- ið „mun sitja með sveittan skall- ann út janúarmánuð við fram- leiðsluna," sagði Sigmundur. Tískufatnaður Gallinn sló í gegn fyrst í fyrra, er unglingamir fóm að líta á hann sem tízkufatnað ungu kynslóðar- innar. Síðan þá hefur og komið á Leigjendur grunaðirum innbrot og skemmdir BROTIST var inn í íbúð við Þórs- götu í Reykjavík laust eftir mið- nætti í fyrrinótt, miklar skemmdir unnar á íbúðinni og m.a. sófasetti hent út um glugga út í garð. Eig- andi íbúðarinnar grunar tvo fyrr- um leigjendur sína, menn um tví- tugt, um að vera valda að verk- inu. Hann hefur átt í erjum við þá eftir að hann sagði þeim upp leigunni og segir þá hafa hótað að vinna skemmdir á íbúðinni. Maðurinn sagði leigjendunum upp nýlega vegna vanskila og eftir það lenti hann í átökum við þá sem lauk með því að annar leigjandinn nef- brotnaði. Síðan hafa mennimir að sögn leigusalans hótað hefndum og skemmdum á íbúðinni og af ótta við þær hafði maðurinn ákveðið að dvelj- ast í íbúðinni um jólin. Hann brá sér frá um miðnætti í fyrrinótt en þegar hann kom afur var búið að bijótast inn, brjóta niður millivegg í íbúðinni og rúðu og fleygja leðursófasetti út um gluggann út í garð. ♦ ♦ ♦--- Nýr dómari við Hæstarétt INGIBJÖRG Benediktsdóttir hér- aðsdómari hefur verið sett dómari við Hæstarétt íslands frá 1. janúar 1994 til 1. ágúst 1994. Dómsmálaráðherra skipar Ingi- björgu að fenginni tillögu Hæstarétt- ar en Þór Vilhjálmsson forseti Hæstaréttar hefur samkvæmt éigin ósk fengið leyfi frá embætti á sama tíma. Þór hefur samkvæmt tillögu ríkisstjómarinnar verið valinn til dómarastarfa við EFTA-dómstólinn. ---------♦ ■•♦—♦-- Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólagjafir saumaðar í janúar SAUMAKONUR hjá Max verða að út janúarmánuð að sauma jólagjaf- ir. Frá vinstri Sigmundur Andrésson forstjóri, Sólbjört Gestsdóttir og Rannveig Halldórsdóttir. markað bamagalli, sem einnig selzt vel, en hann er fyrir böm frá 2ja ára aldri. Unglingagallinn kostar 12.505 krónur, en barna- gallinn 8.169 krónur. Allir þeir gallar, sem framleiddir verða í jan- úar em gallar, sem eðlilega hefðu selzt fyrir jól, ef unnt hefði verið að anna eftirspurn. Rjúpur ill- fáanlegar RJÚPUR voru illfáanlegar í versl- unum i gær og þær fáu ijúpur sem bárust verslunum seldust strax. Kristín Ársælsdóttir verslufíar- sljóri Kjöts og fisks sagði að svo mikið hefði verið spurst fyrir um rjúpur að það hefði farið best á því að hafa sérstakan starfsmann í versluninni til að svara fyrir- spurnum. Kristín sagði að annað slagið hefðu ijúpnaveiðimenn komið og boðið ijúpur til sölu og hefur hún greitt að hámarki 600 kr. fyrir fugl- inn. Hann hefur síðan verið seldur óreittur á 750 kr. með virðisauka- skatti og horfíð úr kjötborðinu á augabragði. Hún sagði að þær tjúpur sem enn fengjust væri verið að selja á allt að 900 kr. í dag Jólasteikin Eins og fíkniefni á heilann 34 Jólahald ________________________ Aldrei fleirí leitað aðstoðar 37 Á jólavaktinni __________________ Jól í flugtumi, á lögreglustöð og á sjúkrahúsi 44 Leiðari__________■______________ „Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð“ 36 AMII.EGT gii? -*r ÍSLæ--*- 'V-' v SSSSáSSISS Menning/Listir Daglegt líf Þ- Jólaleikrit á Akureyri og í Þjóðleikhúsi - ópera á ís- landi og í Finnlandi - bóka- dómar - jólatónleikar ► Ferðamaður í Delhi — Jóla- skreytingar — Heimsókn til fjöl- skyldna og spurst fyrir um jóla- hald - Hótel Burlington í Dublin — Trausti spáir í veðrið. Svefngalsi á Alþingi í sjónvarpi í New York New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. NÁTTHRAFNAR í New York áttu þess kost sl. miðvikudagsnótt að sjá vansvefta þingmenn á Alþingi Islendinga hlæja óstjórnlega undir ræðu Ólafs Þ. Þórðarsonar um skattamál í fréttapistli á ABC-sjónvarpsstöðinni. Stöðin sýndi tíu mínútna frétta- þátt um Islands, unninn upp úr kvöldfréttum Sjónvarpsins, í til- efni af vetrarsólstöðum, en ABC- mönnum lék hugur á að vita hvað væri efst á baugi í nyrstu höfuð- borg heims á dimmasta degi árs- ins. Áhorfendur í New York voru fræddir um annir við þingslit, bruggverksmiðju í Hafnarfirði og strand Bergvíkur í Vaðlavík og fengu að auki að hlýða á hugleið- ingar fréttamanns Sjónvarpsins um sólstöðumar og þörfina fyrir að gera sér dagamun í skammdeg- inu. Þó að New York kalli sig „borg- ina sem aldrei sefur" og AtíC fullyrði að hún sé vinsælasta sjón- varpsstöð andvaka New York-búa er ólíklegt að meira en örfáar þúsundir manna hafi séð íslands- pistilinn á Qórða tímanum á að- faranótt miðvikudags. Þeir sem það gerðu standa þó væntanlega ekki í þeirn meiningu að skamm- degið geri íslendinga þunglyndari en suðrænni þjóðir, eða að minnsta kosti ekki þingmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.