Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
17
Bruggið og peningagræðgin
Hvað er til ráða?
eftir Svein Björnsson
Það er bruggað allsstaðar, í
heimahúsum, bílskúrum og,verk-
smiðjuhúsum.
Hveijir drekka svo þennan
óþvera. Æskan í landinu.
Landinn er seldur á hveiju götu-
horni með ótöldum gróða bruggar-
anna. Enginn veit hverslags vín-
andi þetta er. Gæti verið 30 — 40%
eða allt upp í 90% að styrkleika
eða hálfsoðinn gambri. Það vita
ekki kaupendur, unglingarnir.
Þetta er keypt á plastbrúsum
þannig að innihaldið sést ekki.
Lögreglan er alltaf að taka brugg-
ara og gera upptæk bruggtæki og
það sér ekki högg á vatni. Margir
þessara bruggara hafa verið tekn-
ir margsinnis á stuttum tíma og
lögreglan stendur ráðþrota.
Hve lengi á þetta að ganga
svona? Þessir bruggarar fá litlar
sem engar sektir, sama hversu oft
þeir eru teknir og bruggtækin
hrúgast upp hjá lögreglunni.
Hvað eru yfirvöld að hugsa?
Ætla þeir að bíða eftir að ungling-
ar finnist dauðir í fönn, verði úti
vegna drykkju á þessum óþverra?
Mér finnst að þetta geti ekki geng-
ið svona mikið lengur. Það þarf
skjótar aðgerðir.
Það á að banna smíði brugg-
tækjanna og síðan að sekta dug-
lega þá sem halda áfram að srníða
bruggtækin og brugga. Þeir sem
smíða bruggtækin eiga að fá háar
fjársektir, allt að milljón eða
meira. Einnig eiga að vera miklu
hærri sektir fyrir að selja ungling-
um og hveijum sem er óþverrann.
Það verður að búa til ný lög.
Svona getur þetta ekki gengið
lengur. Það hafa verið sett á lög
af minna tilefni, eða vandamáls.
Það er eiginlega furðulegt að Al-
bingi eða dómsmálaráðuneytið
skuli ekki fyrir löngu hafa gengið
í málið.
Þessi vínmál eru í algjörri vit-
leysu hér á landi. Óhemju verð á
áfengi hjá ÁTVR og þangað kemst
ekki inn fólk undir 20 ára, en 18
ANT
SKRA OG' A
st'aðinn
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Morgunblaðið/Emilía
Sveinn Björnsson listmálari.
„Það á að banna smíði
bruggtækjanna og síð-
an að sekta duglega þá
sem smíða bruggtækin
og brugga. Þeir sem
smíða bruggtækin eiga
að fá háar fjársektir,
allt að milljón eða
meira. Einnig eiga að
vera miklu hærri sektir
fyrir að selja ungling-
um og hverjum sem er
óþverrann.“
ára mega þeir fara inn á veitinga-
hús en fá ekki afgreiðslu á víni.
Allir sjá þessa vitleysu en ekkert
er gert í málunum. Ef létt vín og
bjór væri ódýrara í ÁTVR myndi
þetta strax lagast. Ríkið á eigin-
lega sök á drykkjusiðum þjóðar-
innar.
Á skemmtistöðum unglinga
drekka þeir venjulega allt vín sem
þeir hafa meðferðis, landa, eða
eitthvað annað, og verða svo fljót-
lega dauðadr.ukknir, þegar inn í
skólann eða skemmtistaðina kem-
ur. Þetta væri hægt að laga með
því að selja á vægu verði bjór eða
léttvín á þessum stöðum með tak-
mörkunum fyrir hvern og einn og
í eftirliti kennara eða eftirlits-
manna frá skólunum, eða þeim
stöðum þar sem unglingaskemmt-
anir eru haldnar. Það er ekki
hægt að komast hjá því að ein-
hveijir unglingar drekki eitthvað,
en ef það væri gert í hófi, þá
væri það dálítið annað en þetta
þamb áður en farið inn í dansleik-
ina.
Það kemur auðvitað að því að
bjór verður seldur í öllum matvöru-
búðum og einnig alls konar vín-
föng. Það er ómögulegt að ríkið
sé að græða á vínsölu. Fólk myndi
líka kaupa minna af áfengi í einu,
ef það fengist allsstaðar í verslun-
um og sprúttsalar myndu alveg
hverfa. Það á að leggja niður allar
áfengissölur ríkisins sem allra
fyrst, þá myndi vínmenning fljót-
lega lagast hér á landi.
Höfundur er
rannsóknarlögreglumaður.
Á Hótel Holti verður
opnunartími um
hátíðamar sem hér segir:
Aðfangadagur 24. des. LOKAÐ
Jóladagur 25. des. LOKAÐ
Annar jóladagur 26. des. OPIÐ frá kl. 18.00
Gamlársdagur 31. des. LOKAÐ
Nýársdagur l.jan. OPIÐ frá kl. 18.00
Hótel Holt óskar viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum gleðilegrar
jólahátíðar og farsældar á nýju ári um
leið og við þökkum fyrir ánægjuleg
samskipti á liðnu ári.
I f 11 i 8 Sl L;
WfalJbiJ
CHATEAUX.
Bergstaðastræti 37,
simi 91-25700
flpimsktúbbur Ingólfs
og Ffzrðaskrifstofan príma
&
flfzimsklúbbur Ingólfs og f’prðaskrifstofön príma
bjóða þig vplkominn að kanna ntjjar slóðir 6 ngfu éri:
Karibahaflð og Paradísareyjan Dótninicana - skemmtisigling eða hvíldardvöl - vikulega allt
árið. Fyrirvari 1 -3 mánuðir. - HÓpferð 25. febrúat'.
Mið-Amerika -heillandi heimur Mavanna, Guatemala. El Salvador. Belize. fyrsta könnun
íslensks hóps á þessum litríka parti heimsins, sem er einn hinn fegursti á jörðu með
hitabeltisgróðri, tignarlegum fjöllum ogbláum vötnum.
(páskar 1994 - 25. mars - 10. apríl)
Kína að hætti keisaranna - á fegursta tíma ársins - maí.
Töfrar Italíu - dýrgripir lista og menningar - 12. - 27. ágúst.
Indónesía - fjölbreyttasta, litríkasta og fegursta land Austursins - september.
Hnattreisan 26. október - 27. nóvember - endurtekin vegna fjölda áskorana.
Kenva-Tanzania 9. - 25. nóvember. Hrífandi fögur lönd með stærstu villidýrahjarðir
heimsins. Hver dagur spennandi ævintýri, og í lokin hvíldardvöl á
lúxushóteli við Indlandshaf.