Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 J ólaskákþrautir Skák Margeir Pétursson JÓLAHELGIN er stutt í ár og því við hæfi að jólaskák- þrautirnar séu ívið léttari en venjulega. Dæmin eru valin fyrst og fremst með það í huga að lausnirnar séu skondnar fremur en erfiðar. í þetta sinn eiga þau því að vera viðráðanleg fyrir alla sem á annað borð kunna skákreglurnar. Það eina sem þarf er að gefa sér góðan tíma og nálgast viðfangsefnið með opnum huga, því í skák- dæmum gilda oft ekki venju- leg lögmál manntaflsins. Fyrsta dæmið er léttast en síðan þyngjast þau koll af kolli. Ekki má gleyma því að það er líka þáttur í að leysa skák: dæmi að fínna bestu vömina. í fyrsta dæminu virðist jafntefli blasa við, en hvítur nær snjallri vendingu sem þvingar fram hróksvinning eða mát. Með drottningu gegn stökuni hrók er staðan léttunnin. Annað dæmið er eftir þekktan rússneskan skákdæmahöfund, Gleb Nikolajevitsj Zakhodíakin (1912-1982). Hann þurfti ekki mikinn efnivið til að búa til lag- legar þrautir, naut sín best sem „miniatur“ höfundur og hér er ágætt dæmi þess. Næstu tvö dæmi eru bæði sögð hafa komið upp í tefldum skákum og er ekk( ástæða til að efast um það. í því þriðja STÖÐUMYND I hótar svartur 1. — Hxh6+ og að vekja síðan upp drottningu með skák. Samt nær hvítur að vinna. í því fjórða virðist hvítur STÖÐUMYND III vera með gertapaða stöðu, því svörtu peðin eiga stutt eftir til að verða að nýrri drottningu og kapphlaupið er tapað fyrir hvít. Samt tekst honum að bjarga sér í jafntefli. Síðustu tvö dæmin eru bæði eftir einn allra snjallasta skák- dæmahöfund sögunnar, Leóníd Kubbel frá Sánkti Pétursborg (1891-1942). Hann var annar í röð þriggja bræðra sem allir STÖÐUMYND V 1. O. Stritchek 1967 Hvítur leikur og vinnur. 2. Zakhodiakin 1967 STÖÐUMYND II Hvítur leikur og vinnur. 4. J.G. CampbelI-N.N. STÖÐUMYND IV Hvítur mátar í þriðja leik. 6. L. Kubbel 1905 STOÐUMYND VI abcdtlgh Hvítur leikur og vinnur. 3. Keminsky-N.N. 1903 a b c d • I 0 h Hvítur leikur og heldur jafn- tefli. 5. L. Kubbel 1923 a b c d • I g h Hvítur mátar í fjórða leik. fengust við gerð skákdæma. Leóníd og yngri bróðir hans lét- ust báðir í umsátrinu um Len- íngrad, eins og heimaborg hans var nefnd á valdatíma kommún- ista. Hann var afar fjölhæfur höfundur, samdi bæði tafllok og mátþrautir, alls um 3.300 dæmi.\ í fimmta dæminu er auðvelt að finna mát í fjórum leikjum, en það er beðið um mát í þrem- , ur og lausnarleikurinn kemur skemmtilega á óvart. Sjötta dæmið birti Kubbel á unglings- árum sínum, var aðeins 15 ára. Það sést á snjallri lausninni að snemma beygist krókurinn. Heimildir: Björn Nielsen og Alfred Christensen: Alt om Skak, Odense 1943, í uppnámi, 2. árgangur 1902, dr. Ingimar Jónsson: Alfræðibókin um skák, A-Ö, Reykjavík 1988, Ýmsir sovéskir höfundar: Shakh- matnyi enzyklopedísjevskí slovarj, Moskvu 1990, G. Nadareishvili, J. Akobia: Mat v’eljúdi, Tbilisi 1990. Skákmót milli jóla og nýárs: Að venju eru skákmót fyrir- huguð á milli jóla og nýárs: Taflfélag Reykjavíkur held- ur jólahraðskákmót sitt dagana 27.-28. desember og hefst taflið kl. 20 báða dagana í félagsheim- ili TR að Faxafeni 12. Teflt verð- ur í riðlum, 5 mínútna hraðskák- ir. Fyrra kvöldið fara fram undanrásir en seinna kvöldið úrslit. Skákfélag Akureyrar heldur jólahraðskákmót sitt þriðjudag- inn 28. desember kl. 20 i félags- heimilinu, Þingvallastræti 18. Taflfélag Kópavogs er með jólahraðskákmót sunnudaginn 26. desember kl. 14 í félagsheim- ilinu Hamraborg 5. Gleðilegjól! VILTU LITA BETUR UT? Ráðleggingar frá sérfræðingum No7 Það sést alltaf ef þú færð ekki nægan svefn, sama hvað mikið meik-up þú setur á þig. Rannsóknir gerðar í Ameríku sýna að þeir, sem eru svefnlausir, líta mun verr út en aðrir, sem fá reglu- legan 8-9 tíma svefn. Ef þú lítur illa út, þrátt fyrir nægan svefn, getur það stafað af stressi. Gefðu þér tíma, þó ekki sé nema í 10 mínútur, til að slaka á og gera það sem þig langar til. Ellimerki! Hvort sem þú líður fyrir þreytu eða stress eru áhrifin á andliti þínu hin sömu. Húðfrumur deyja hraðar og húðin verður þurr og slæm. Fínar hrukkur myndast í kringum munn og augu. Olíumyndun getur aukist og skapað bólur. ____ Fegrunarheilræði Þarftu að hressa upp á útlitið?- End- _______ urbæta andlits- snyrtínguna? - Not- aðu þessar ráðleggingar og hresstu þig upp! Reyndu „hressingarmaska". Boots No7 prótín maski bætir jafnvel erfiðustu húðgerðir. Ertu föl og ræfilsleg? Notaðu meik-up grunn áður en þú meikar þig. Reyndu No7 Tranclucent make-up base, sem inniheldur örfína krist- alla sem fela fínar lílnur og gefa unglegt útlit. Rannsóknir sýna að húðin er undir miklu álagi að hausti, vetri og snemma vors. Slæmt veðurfar, mikill hiti innan dyra og mengun orsaka að ystu húðlögin þorna upp og líta illa út... No7 sérhannað árstíðarkrem Seasonal Skin supplement, leysir þennan vanda. Það læsir inni eigin næringu húðar; bætir og nærir húðina. Að meika yfir illa útlítandi húð lætur hana einungis líta verr út. Leynd- armálið er hvað og hvernig er farðað. Byrjið t.d. með Positive Action næringarmeiki sem inniheldur A vítamín auk náttúrulegra næringar- gjafa og bætir því strax áferð og útlit allra húðgerða. Setjið að lokum No7 glært, pressað púður yfir til að fullkomna áferðina. Vantar þig liti? Prófaðu No7 kinnalit og berðu hann á yfir meik en undir púðrið til að fá matta, fína áferð. Þú getur líka sett örlítinn kinnalit undir augnbrúnir og út með augum til að fríska upp. Leggðu áherslu á augnbrúnir. Ekkert gefur fullkomnara útlit en fal- lega mótaðar augnbrúnir. Burstið þær í fallegan boga, gamall tann- bursti dugar. Dekkið hárin með gömlum maskara, No7 augnbrúnablý- anti eða No7 möttu, brúnu augnskuggunum. Ekki nota eyeliner. Hann lætur einungis þreytt augu líta verr út. Notið frekar augnskugga og berið utan með efra augnloki til að opna augun. Notið alltaf heita brúna lití ekki kalda gráa eða bláa. Veljið No7 Redwood Rose eða Walnut Wip, möttu augnskuggana. Varalitur gerir herslumuninn á þreyttu andliti. Smá litur á vörunum dregur athyglina frá þreytulegu andliti. Veldu perlugljáandi liti sem gefa fallega áferð. Veldu uppáhalds litinn þinn í hinu mikla úrvali No7 varalita. AUGLYSING laþrautir Brids Guðm. Páll Arnarson Lesandinn er í suður í öllum tilvik- um. Þetta eru lykilspilin í löngum sveitakeppnisleik og það veltur á frammistöðunni hér hvemig leiknum lyktar. Sjálft uppgjörið mun fara fram í dagdálki blaðsins eftir jól. (1) Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ Á2 VG865 ♦ Á92 + D1085 Suður ♦ K1083 V1092 ♦ K43 + ÁK2 Vestur Norður Austur Suður — Pass Pass 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 1 grand * Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass * Með svo flata skiptingu er tæplega ástæða til að nefna spaðann, enda viltu ekki að makker breyti í tvö lauf. Útspil vesturs er tígulátta. Hver er áætlunin? (2) Austur gefur; NS á hættu. Vestur ♦ 754 VÁ6 ♦ KG83 ♦ DG92 Suður ♦ DG109 V 953 ♦ D4 ♦ ÁK74 Vestur Norður Austur Suður — — 1 tígull Pass 2 tíglar * Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass * Krafa. Þú spilar út spaðadrottningu, sem sagnhafi tekur á kóng heima og spilar litlu laufi. Það er engin ástæða til að dúkka, svo þú drepur á kónginn og spilar spaðagosa. Sagnhafi á þann slag á ásinn og spilar lauftíu. Taktu við. (3) Suður gefur; AV á hættu. Suður ♦ KG4 V 72 n ♦ ÁK962 ♦ Á83 ><? 0 Gildir tii 15. janúar 1994 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 tígull 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Hvert er útspilið? (4) Vestur gefur, allir á hættu. Norður ♦ K642 VÁD62 ♦ KD7 ♦ Á8 Suður ♦ ÁD5 VK93 ♦ G98 ♦ KD54 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 tígull Pass 3 grönd * Pass 6 grönd Pass Pass Pass * 13-15 punktar. Vestur spilar út spaðagosa, sem þú tekur heima á ás og spilar tígli á kóng- inn, sem heldur. Hvemig viltu halda áfram? (5) Norður gefur; NS á hættu.. Suður ♦ ÁD653 VK92 ♦ 74 ♦ G62 Vcstur Norður Austur Suður — 1 hj^rta t'ass 1 spaði Pass 2 þjörtu Pass ? Hver er sögnin? Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sfmi 67 48 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.