Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 Um hugleiðingar Erlu eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson Maðurinn er alltaf að leita. Frá því að bamið fálmar í fyrsta sinn með vörunum eftir nærandi brjóstinu og þar til gamlinginn tekur síðustu andköfin er líf mannsins stöðug leit, ein endalaus kynnisför um jörðina til að leita svölunar á þrám sínum. Við leitum líkamlegrar slökunar af ýmsu tæi, við reynum á margvíslegan hátt að skapa okkur öryggiskennd og slökkva óttann sem fylgir okkur eins og skugginn á ferð okkar, við sækjumst ákaft eftir ást og virðingu samferðamannanna og flest okkar hafa auk þess meðfædda þrá til að skapa eitthvað á eigin spýtur, yrkja lífinu einhvem óð eins og til að þakka skaparanum fyrir þann lífsanda sem hann blés í vit okkar í upphafi vega. Sambýli mannanna á jörðinni er undirlagt af þessari leit. Sölukerfí okkar, peningakerfíð, samgöngumar, heilbrigðiskerfíð, framleiðslan, uppfmningamar, bæk- umar, plötumar, auglýsingamar, iðnaðurinn, lögreglan, herinn og stnðið, allt kemur þetta af því að maðurinn er í stöðugri leit til að slökkva eitthvað sem ólgar innra með honum. Hér á Vesturlöndum höfum við kosið að gera jólin að mestu söluhá- tíð ársins. Þá auglýsa þeir sem eru að selja leitandi fólki eitthvað til að svala þrám sínum. Þá kemur mikill fjörkippur í verslunina, framleiðend- umir losna við lagerana, neytendurn- ir eignast fullt af hlutum sem þeir áttu ekki áður og kaupmennimir hagnast á því að hafa milligöngu um viðskiptin. Og allt er þetta sjálfsagt gott og blessað úr því að við viljum hafa þetta' svona. Gallinn er bara sá að stundum hef ég á tilfínningunni að það séu ekki alltaf bestu hlutimir sem mest eru auglýstir og neytand- inn fái því örlítið skekkta mynd af því hvað sé til og þó einkum og sérí lagi hvað sé honum fyrir bestu. Ég hef til dæmis fundið einn hlut sem ég veit ekki til að sé nokkurs staðar auglýstur en hefur engu að síður orðið mér kærari en flest annað „Gallinn er bara sá að stundum hef ég á til- finningunni að það séu ekki alltaf bestu hlut- irnir sem mest eru aug- lýstir og neytandinn fái því örlítið skekkta mynd af því hvað sé til og þó einkum og sér í lagi hvað sé honum fyr- ir bestu.“ af því sem ég hef getað keypt. Það eru spólumar hennar Erlu Stefáns- dóttur. Þær em fjórar og heita Hugleið- ingarErlu 1-4. Undirtitlar em Siök- un jarðlíkama, temjum tiifmnmgar, Vekjum hugann og Styrkjum hug- ann. Á spólunum má heyra til þessar- ar skyggnu konu þar sem hún leið- beinir við að slaka á og kyrra hug- ann, hlý og gefandi röddin leiðir hlu- standann burt frá áreitum þessarar ókyrrn efnisveraldar. Tvær þær fyrstu em tengdar á þann hátt að þær byggja á sama efninu, Erla leiðir þann sem hlustar Ragnar Ingi Aðalsteinsson með sér í ferð burt frá líkamanum yfir í nýjan heim þar sem hugleiðslan felst svo í því að byggja musteri til að hugleiða í. Musterið er byggt í fjómm áföngum, einn á hvorri hlið hvorrar spólu. Eftir að hlýða á báðar spólumar er húsið fullbúið. Á hinum tveimur em leiðbeiningar um það hvernig eigi að slaka á efnis- líkamanum og kyrra hugann og til- fínningalífið. Oft hefur þvf verið haldið fram bæði í gamni og alvöru að maðurinn sé það sem hann hugsar og segir. Athuganir vísindamanna benda til að margt sé til í þessu. Sumir sál- fræðingar (t.d. Albert Ellis) hafa haldið því fram að afstaða manna til lífsins fari að miklu leyti eftir því hvað þeir segi sjálfum sér, eða hvers konar hugsanir þeir tengi daglegum viðburðum. Nú er víða (t.d. í félags- sálfræðinni) verið að kanna áhrif hugsana á líkamiegt og andlegt heilsufar og bendir margt til að tengslin þama á milli séu miklu meiri en áður hafði verið haldið. Samkvæmt þessu skiptir máli hvað við hugsum og segjum. Ferð með Erlu Stefánsdóttur um heim sem maður skapar sjálfur sjálfum sér til heilla er því ekki einhver einskisverð ímyndun heldur fullkominn raun- veruleiki sem orkar á líf okkar, heilsufar og hamingju. Tónlistin sem leikin er undir og á milli talþáttanna er eftir Hilmar Om Hilmarsson. Hún er yndisleg, minnir á sjávamið eða kliðandi læk upp til fjalla. En ég kann ekki að ritdæma tón- list. Ég ætla heldur ekki að ritdæma þetta verk Erlu að öðru leyti. Til þess skortir mig faglega kunnáttu. Með þessum greinarstúf vil ég aðeins þakka þessari góðu konu fyrir henn- ar verk. Og mér fyndist ósanngjamt þegar ég hef fundið slíkar perlur að segja ekki frá því öðrum sem kynnu að vera að leita svipaðra hluta og ég. Höfundur er rithöfundur. LOTT® Aðaltölur: 2 4 12, Vinn ngstölur miðvikudaginn:j 22. des. 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING n68,6 1 34.839.000,- ETS 5 af 6 EÆ+bónus 0 436.566,- 5 af 6 4 85.754,- H 4af6 292 1.868,- ra 3 af 6 Cfl+bónus 1.094 214,- Vinninnur fúrtil: PanmerkuF 31 38 40 BÓNUSTÖLUR 2?)(§)(g) Heildampphæð þessa viku: 36.398.154,- álsl.: 1.559.154,- LUKKULINA 99 10 00 • TEXTAVARP 451 BtRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVJLLUR PHIUPS Litasjónvarp með 14"skjá Helga K Martinsdóttir, Löngumýri 22a, 210 Gbee., s: 656124 PHIUPS Örbylgjuofn Anna Kristjánsdóttir, Birkigrund30, 200 Kópav., s: 43759 PHIUPS Ferðaútvarp meðgeislaspilara Sigrún Pálsdóttir, Safamýri 34, 108 Rvík., s: 32928 Ó. Johnson dr Kaaber óskarykkur gleðilegra jóla ogþakkarykkur þátttökuna í bakstursleiknum. MORGUNBLAÐINU hefur borizt athugasemd frá Magnúsi Hreggviðs- syni stjórnarforrnanni Fróða í tilefni yfirlýsingar Lúðvíks Geirssonar formanns Blaðamannafélags íslands, sem birt var í blaðinu í gær og telur Magnús nauðsynlegt að gera eftirfarandi athugasemdir: „Formaðurinn segir fróðlegt að vita hvort starfsmönnum Fróða hafi verið gefíð tækifæri á að ákveða launahækkun sér til handa. Því er til að svara að svo hefur verið. Það launakerfi sem fyrirtækið starfar eftir hefur verið unnið í samráði við starfsmenn og þeir hafa átt fram- kvæðið að breytingum á því kerfi sem m.a. hefur leitt til launahækkana. Varðandi 8% lækkun til þeirra sem selja Fróða efni til birtingar væri vert fyrir formanninn gera saman- burð á því sem Fróði greiðir eftir Geiáladiákadtandur TEG: FLAGGE mikið úrval ö&mfifi kúíýöqH Suehirlanddbraut 5V Bláa bú.iinu v/Faxafen riírni 682866 lækkunina við það sem aðrir aðilar sem kaupa slíkt efni greiða. Formað- urinn kæmist þá væntanlega að því að sá samanburður yrði greinarhöf- undum hagstæður. Hugleiðingar formannsins um vinnuréttindi starfsmanna Fróða hf. sýna að hann hefur ekki kynnt sér þau mál mikið og kýs hann nú að blanda öðra fyrirtæki inn í þá um: ræðu. Hvort einhveijir félagar í BÍ eða aðrir tapa Qármunum í viðskipt- um við önnur fyrirtæki er ekki og getur ekki verið Fróða viðkomandi. Aðalatriðið hjá Fróða er að búa í sátt við viðskiptaaðila sína, hvort sem þeir eru félagar í BÍ eða aðrir og reyna að standa í skilum með skuld- bindingar sínar. Af síðustu málsgrein í yfírlýsingu formannsins má marka að hann hafí ekki lesið svar Fróða við ályktun stjórnar Blaðamannafélagsins gaum- gæfílega. í því var ekki sagt að BÍ hefði „á engan hátt barist gegn upp- töku virðisaukaskatts á blöð og bæk- ur“, heldur að æskilegt hefði verið að félagið hefði veitt meiri og kröft- ugri aðstoð en það gerði. Formanni Blaðamannafélags Islands virðist líka ókunnugt um það að stjórnarfor- maður Fróða gerði það sem í hans valdi stóð að efla samstöðu gegn lestrarskattinum. Um það hafa margir vitneskju þótt þáð virðist hafa farið fram hjá formanni BÍ. Þá er vert að upplýsa formanninn um það að þótt Fróði hafi valið þann kosta að auglýsa bækur sínar í sjón- varpi mun fyrirtækið ekki eyða meira í auglýsingar en aðrir útgefendur gera. Bókaskatturinn kemur ekki minna við Fróða en aðra, en einstak- lega góðar viðtökur við útgáfubókum fyrirtækisins munu auðvelda því að standa við skuldbindingar sínar bæði gagnvart starfsmönnum og öðrum. Það er mér óljúft. að vera að munn- höggvast við formann Blaðamanna- félags íslands og er ekki gert nema vegna þess að hann fer ekki með rétt mál í greinargerð sinni og álykt- unum. Því vonast ég til að óskir um gleðileg jól geti orðið mín síðustu orð í þessu máli. Magnús Hreggviðsson. Fyrirtæki okkar verður lokað mánudaginn 27. desember, vegna júlaleyfis starfsmanna. eieðileglól! B R Æ Ð U R N X R E§9 ORMSSONHF Lágmúla 8. Slmi 38820 Athugasemd Fróða við ^ yfirlýsingu formanns BI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.