Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 Viðræðum frestað VIÐRÆÐUR ísraela og Palest- ínumanna í Ósló og Versölum um framkvæmd friðarsamkomu- lags frá í september lauk ekki í gær og verður fram haldið eftir jól. Talsmaður PLO sagði árang- ur hafa náðst. Hafna afsögn Bossis FORYSTA Norðursambandsins á Ítalíu hafnaði í gær afsögn Umbertos Bossis flokksleiðtoga sem bauðst til að víkja þar sem nafn hans hefur verið nefnt í tengslum við spillingarmál. Mestur vöxtur í Bretlandi HAGVÖXTUR verður mestur í Bretlandi af Evrópulöndum á þessu ári og sagði John Major forsætisráðherra að framundan væri langt tímabil stöðugs hag- vaxtar og lágrar verðbólgu. Ríkissjóður í ógöngum SVISSNESKA fjármálaráðu- neytið sagði í gær að halli á fjár- lögum ríkisins árið 1993 yrði átta milljarðar franka, jafnvirði 390 milljarða króna. Sagði í til- kynningu ráðuneytisins að ríkis- sjóður hefði ratað í miklar ógöngur. Laun vagn- sljóra lækka BlLSTJÓRAR strætisvagna í Kaupmannahöfn hafa samþykkt að stytta vinnuvikuna sem þýðir að 80 af 500 vagnstjórar, sem myndu ella missa vinnuna við einkavæðingu fyrirtækisins, halda starfí. Vinna bílstjórar þijár vikur og verða í fríi þá Qórðu og fá þá sem nemur 80% af atvinnuleysisbótum. Lækkar kaup þeirra um 400 danskar krónur á mánuði. Michael Jackson heldur fram sakleysi sínu í sjónvarpi Sag’ðnr eiga aftur- kvæmt sem söngvarí Los Angeles. Reuter, The Daily Telegraph. LÖGFRÆÐINGAR popp- stjörnunnar Michaels Jack- sons sögðu í gær að honum hefði tekist sérlega vel upp í sjónvarpsávarpi sem hann flutti á miðvikudag. Þeir spáðu því að hann myndi eiga afturkvæmt sem söngvari. Jackson las fjögurra mínútna yfirlýsingu í beinni sjónvarpsút- sendingu um gervihnött frá bú- garði hans í suðurhluta Kaliforníu. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjáir sig opinberlega um ásakanir þess efnis að hann hafi misnotað 13 ára dreng kynferðislega. Jackson sagði að lögreglan hefði skoðað og ljósmyndað nakinn líkama hans, meðal annars kyn- færin. Hann lýsti skoðuninni sem „mest auðmýkjandi þrekraun ævinnar" og kvað ásakanirnar á hendur sér „algjöran tilbúning". Jackson sagði að lögreglan hefði verið að leita að mislitun, blettum, útbrotum eða öðrum merkjum um litaraftssjúkdóm sem hann er haldinn. Hermt er að drengurinn hafi lýst merkjum um sjúkdóminn á kynfærum Jacksons og öðrum líkamshlutum. „í leitarheimildinni sagði að ég hefði engan rétt til að hafna rann- sókninni eða Ijósmynduninni og ef ég væri ekki samvinnufús yrði það notað gegn mér sem vísbend- ingu um sekt,“ sagði Jackson. Lögfræðingur poppstjörnunnar sagði leitina „svívirðilega" og kvaðst óttast að ljósmyndirnar yrðu seldar fjölmiðlum. Jackson sagði fjölmiðlana „ótrú- Iega hræðilega“ og sakaði þá um að hafa velt sér upp úr ásökunum VELSLEÐAR Skoðaðu mesta úrval landsins í sýningarsal okkar eða hringdu og við veitum þér allar upplýsingar Ski-doo Formula Mach 1 '93, 2513 km 780.000,- Ski-doo Formula Plus '93 0 km 690.000,- Ski-doo Formula Plus XTC '92 5000 km 585.000,- Ski-doo Formula Mach 1 M10'92 0 km Tilboö Ski-doo Formula Mach 1 '91 4700 km 550.000,- Ski-doo Formula MX '91 2000 km 450.000,- Ski-doo Formula MX LT '88 13.000 km 280.000,- Ski-doo Safari LE '93 0 km 490.000,- Ski-doo Escapade '89 4000 km 300.000,- Ski-doo Scout '90 - Tilboð Ski-doo Scout '90 - Tilboö Ski-doo Safari GLX '91 2400 km 420.000,- Ski-doo Blizzard '82 - 120.000,- A.C. Wild Cat 700 '92 1700 mil. 630.000,- A.C. Wild Cat 650 '90 2600 mil. 430.000,- A.C. Wild Cat 650 '88 3500 mil. 280.000,- A.C. El Tigre EXT '89 5100 mil. 330.000,- Polaris SP 500 '91 2000 mil. 480.000,- Polaris 650 '91 3500 míl. 580.000,- Polaris Indy Trail '91 950 mil. 430.000,- Polaris Long írack '87 2000 mil. 195.000,- Yamaha Exciter '90 - 460.000,- Yamaha Exciter '91 1852 km 520.000,- Yamaha Phazer '92 1750 km 510.000,- Yamaha SRV '86 8000 km 270.000,- QÍSU . IÓNSSON HF . Reuter Jackson ber af sér kynferðisglæp MICHAEL Jackson flytur yfirlýsingu sína í beinni sjónvarpsútsend- ingu frá búgarði sínum, Neverland Valley, þar sem hann bar af sér ásakanir um kynferðislega misnotkun á 13 ára dreng. drengsins, sem enginn fótur væri fyrir. Hann kvaðst aðeins sekur um að hafa reynt að gleðja böm út um allan heim og „njóta í gegnum þau þeirrar bernsku sem ég varð af“. „Ég er líka sekur um að hafa trúað því sem Jesús sagði um börnin: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því þeirra er himnaríki.“ Ég lít alls ekki á mig sem guð, en ég reyni að vera guði líkur í hjarta mínu.“ Breskar tvíburasyst- ur vekja athygli 2}/i mörk við fæðingu London. The Daily Telegraph. EFTIR nokkrar vikur fær Emma Hughes að yfirgefa fæðingarspítalann í Glasgow þar sem hún fæddist í byrjun septem- ber en tvíburasystir henn- ar, Amy, verður að dvelja þar eitthvað lengur. Syst- urnar eru einhver minnstu börn sem fæðst hafa og haldið lífi, voru aðeins um 2 Vz mörk við fæðingu. Systurnar, sem fæddust hálfum þriðja mánuði fyrir tímann, verða undir læknis- hendi næstu tvö árin og ekki er enn hægt að fullyrða að þær nái eðlilegum þroska. Læknarnir, sem hafa notað mörg þúsund vinnustundir í að leysa öll þau vandamál sem komið hafa upp, eru þó von- góðir um árangur. Þeir hafa orðið að kljást við margs kon- ar sýkingar og krónískan lungnasjúkdóm sem stafar af því að lungun voru lítt þroskuð þegar systurnar komu í heim- inn. Reynt hefur verið að líkja eins vel eftir aðstæðum í móð- urkviði og kleift er en þrátt fyrir alla tækni nútímans er ekkert sem getur miðlað súr- efni og næringu jafn vel og naflastrengurinn. Annar vandi er hitastigið. Líkami barnanna var búinn undir að starfa við Iíkamshita en læknar og hjúkrunarfólk gátu ekki starf- að með eðlilegum hætti í 37,4 gráðu hita. BOdshöfði 14 112 Reykjavík Jólasteikin verkar eins og fíkniefni á heilann Lundúnum. The Daily Telegraph. ÞAÐ er flókin efnastarfsemi í heilanum sem ræður því hvort menn blða í ofvæni eft- ir jólasteikinni eða hafa áhyggjur af ofáti og fleiri aukakílóum. Viðteknu viðhorfin eru þau að hungurtilfinning manna ráðist einkum af skynfærunum; menn fá vatn í munninn þegar þeir sjá gimilegar ijúpur bomar á borð, fínna ilminn og gæða sér á fyrsta bitanum. Matarlystin ræðst þó fyrst og fremst af því hvernig heilinn túlkar skilaboð frá maganum og hormónum í blóðinu til að laga matarvenjurnar að næringarþörf líkamans. Sarah Leibowitz, prófessor við Rocke- feller-háskóla í New York, hefur fundið vísbendingar um að mannslíkaminn hafí margvísleg- ar matarlanganir, sem ráðist af næringarþörf hans. Næringarefnin í jólasteikinni verka sem fíkniefni á heilann, samkvæmt Leibowitz. Menn hafa lengi gert sér grein fyrir að óskýr greinarmunur er á matvælum og fíkniefnum, eins og sjá má af dýrum sem em fíkin í að sleikja steinefnalög og þunguðum kon- um sem verða sólgnar í furðulega blöndu af matvælum til að tryggja að ófædd börnin fái nægjanlega næringu. Leibowitz kynnti nýlega niður- stöður rannsóknar sem sýna að tvö efni, taugapeptíð Y og galan- ín, verka á sérstök svæði heilans til að örva löngunina í fítu ann- ars vegar og kolvetni hins vegar. Þegar Leibowitz og starfs- bræður hennar komu þessum efnum í heila rottna jók taugap- eptíð Y löngun þeirra í kolvetni og galanín olli ofneyslu fitu. Flest bendir til þess að efnafræðilegir eiginleikar mannsheilans séu svipaðir að þessu leyti, þar sem magn þessara efna er óeðlilega mikið í þeim mönnum sem hneigj- ast til ofáts. Þegar magn þessara efna í heilanum var aukið olli það þrál- átu ofáti, meiri fituneyslu og aukinni þyngd. „Því meira sem við borðum af fitu því meira vilj- um við,“ sagði Iæibowitz. Vís- indamennirnir komust einnig að þeirri niðurstöðu að of lítið af fitu eða kolvetni í fæðunni leiði til mikillar löngunar í þessi efni til að bæta skortinn upp. Hin ýmsu næringarefni full- nægja einnig lönguninni mismik- ið - auðveldara er að borða of mikið af fitu eins og í ijómaís en af kolvetni í kartöflum, og menn eiga miklu hægara með að borða of mikið af kolvetni en prótíni. Leibowitz segir að lyf sem draga úr starfsémi taugapeptíðs Y og galaníns í heilanum geti minnkað matarlystina. Henni hefur einnig tekist að hafa áhrif á lystina með því að breyta gena- starfseminni í heilanum. Nokkur lyljafyrirtæki keppast nú við að þróa lyf sem breyta áhrifum þessara efna og gæti sú vinna leitt til Iyfja sem draga úr lystinni og koma í veg fyrir ofát. ■ I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.