Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 45 Jól á slökkvistöðinni ENGEST JÓL ÁN ÚTKALLA Ekki gengnr að skilja slökkvistöðina eftir ómannaða yfir jólahátíð- irnar, því þó þetta séu gieðidagar hjá vel flestum, þá er eldhættan sjaldan meiri. Varla nema þá næstu helgi á eftir, á gamlárskvöld og nýársnótt. Alls eru 17 slökkviliðsmenn á hátíðarvaktinni, tveir manna símann, tveir sjúkraflutninga, fjórir halda til í Árbæjarstöð- inni og hinir eru til taks á bílana. Bergsveinn Alfonsson varðstjóri hefur verið innanbúðar í slökkviliðinu í yfir 20 ár og „hefur ekki tölu“ á þeim skiptum sem hann hefur verið vakt yfir jólin. Að þessu sinni er hann á kvöldvakt alla jóladagana. Um áramótin verður hann síðan á vakt bæði á gamlársdag og nýársdag. „Manni finnst þetta hitta ansi oft á, en við vitum hvað bíður okkar, við völdum okkur þetta starf sjálfir og því ekki við hæfi að kvarta. Hvað fjölskyldurnar varðar þá er reynt að aðlaga jólahaldið vakt- inni,“ segir Bergsveinn í samtali við Morgunblaðið. Bergsveinn segir að hann sé svo gamall í hettunni að börn sín séu uppkomin, en í gegnum árin hafi það oft verið erfitt að fara frá þeim til vinnu á þessum helgu dög- um. Hann sjái það í dag hjá yngri félögum sínum að þetta sé ekki sársaukalaust, en endurtekur, að menn hafi valið sér þetta starf. Hins vegar eru vaktaskipti klukkan 7.30 sem gerir mönnum kleift að flýta eða fresta aðeins kvöldverðin- um. Slökkviliðsmennirnir hafa það töluvert jólalegt, húsakynnin eru skreytt og þeir hafa aðgang að útvarpi og sjónvarpi sem senda út mikið jólaefni. Þá er veglegt jóla- hlaðborð í húsinu sem menn hafa aðgang að. En því miður er það sjaldnast svo að þessir menn geti setið yfir sjónvarpinu og hlaðborð- inu án truflunar. Þetta eru þjóðfé- lagsþegnar sérstaklega þjálfaðir til að kljást við einn válegasta gest- inn, eldinn og Bergsveinn segir að það líði ekki jól án útkalla. „Einu sinni var klukkan vart orðin sex er fyrsta útkallið kom. Við vorum að koma inn úr dyrunum í okkar fínustu einkennisfötum er bjallan klingdi. Yfirleitt hefur ekkert ægi- legt borið við á þessum dögum, en ég man þó eftir einu atviki er heilt hús brann með öllu innbúi á aðfangadag. Fjölskyldan hafði brugðið sér í bæinn til að gera síð- ustu útréttingamar og kom heim að rjúkandi rústum. Því miður þá hangir þetta alltaf yfír okkur, þess vegna erum við með átak í gangi Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðmunda Þorleifsdóttir sjúkra- liði hefur bæði upplifað erfiðar og rólegar jólavaktir á spitalan- um. þá borðuðum við jólamatinn. Það gerist gjarnan yfir hátíðir að fólk komi alvarlega veikt inn. Hjartasjúklingar borða þá stund- um hangikjötið sitt og sterka mat- inn og fara ekki vel út úr því. Ég hef líka upplifað mjög rólegt aðfangadagskvöld á spítalanum og hef þá notið þess með sjúklingun- um. Þeir fá sínar heimsóknir og Morgunblaðið/Þorkell Bergsveinn Alfonsson sem hefur það markmið að koma reykskynjurum inn á öll heimili. Það nægir að benda á reynslu fjöl- skyldunnar á Húsavík í vikunni. Þar var það reykskynjari sem vakti heimilisföðurinn og fólkið bjargað- ist naumlega út úr húsinu sem varð alelda á skömmum tíma. Við erum sem sé að selja reykskynjara í Kringlunni og mér dettur ekki í hug betri jólagjöf sem fjölskyldan getur gefíð sjálfri sér. jólagjafír og maður reynir að deila tímanum með þeim. Ég hef nú ekki orðið vör við að þeir séu neitt mjög daprir þótt þeir komist ekki heim, það er eins og að allir séu undir einhverjum öðrum áhrifum á þessu kvöldi. Maður nær yfírleitt mjög vel til fólksins og manni líður vel ef ekkert alvarlegt kemur upp á. Mér finnst mjög gaman að vinna á jólum, það er bara fjölskyldan sem togar í mann. Síðast þegar ég var á vakt vor- um við bara hjónin heima og þá var eiginmanninum boðið í mat til tengdaforeldra sonar okkar, en þar áður sá hann um matinn ásamt elsta syni okkar. Við starfsfólkið reynum að gera allt mjög jólalegt og huggulegt, fáum matinn upp og leggjum á borð fyrir okkur. Ég man að ég kveið því mjög fyrst að vera að vinna á jólunum, en það kom mér á óvart hversu skemmtilegt og gefandi það vár. Ég næstum gleymdi fólkinu heima! Og ekki nóg með það, ég gleymdi sjálfri mér líka, sjúklingarnir áttu hug minn allan. Ef maður er jákvæður og gefandi, fær maður það allt til baka. Ég á örugglega eftir að standa aftur jólavakt og vil gjarnan gera það. Mér finnst líka sjálfsagt að fólk skipti því á milli sín að vinna á aðfangadagskvöld." skipta ? nýárs bjóðum við stórglæsilegu ENSKU orðabók JVERÐI, kr. 7.980 aðrar, nýjar bækur. erð er kr. 10.980, svo heilar 3.000 krónur! ÍSAFOLDAR, AUSTURS 20 dagana milli jóla og nýárs - * ^ískum landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Opnunartími yfir hátíbamar: Abfangadagur opið frá kl. 11-15. Jóladagur lokab. 2. í jólum opið frá kl. 16-02. R <t> • o \=\ 5«* m9 oH w Q Q. DOMINO'S PIZZA 4'» & ÖWI6G \ SIMI 8*12345 GRENSASVEGI 11 • HOFÐABAKKA 1 Tilkynning um útboð markaðsverðbréfa HLUTABREF í íslenska hlutabréfasjóðnum hf. Heildarnafnverö nýs hlutafjár: Kr. 200.000.000,-. Sölugengi á útgáfudegi: 1,15. Fyrsti söludagur: 22. desember 1993. Umsjón meö útboöi: Landsbréf hf. Útboðslýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá Landsbréfum hf. og umboðsmönnum Landsbréfa hf. í útibúum Landsbanka íslands um allt land. ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN H F. ■ LANDSBRÉF HF, Landsbankinn stendur með okkur Suöurlandsbraut 24, 108 Reyk|avík, simi 91-679200, fax 91-678598 Löggilt veröbréfalyrirtæki. Aftili að Verðbréfaþingi islands. I n \detsölublað á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.