Morgunblaðið - 24.12.1993, Side 36

Morgunblaðið - 24.12.1993, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. „Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð“ Flestir landnámsmenn voru heiðnir, það er ásatrúar. Nokkrir voru þó kristnir, eins og Ásólfur alskikk, Auður djúp- úðga, Ketill fíflski í Kirkjubæ, Örlygur gamli á Esjubergi og fleiri. Ketill og Örlygur eru taldir hafa reist kirkjur á jörð- um sínum. Fleira ýtti undir landnám hér en ofríki Haralds hárfagra, Noregskonungs, þótt það væri þungt á metum. Nefna má landþrengsli í Noregi og á Vest- urhafseyjum, þar sem norrænir menn höfðu sezt að en Keltar voru fyrir, brottrekstur víkinga úr Dyflinni um 900, aukin sigl- ingatækni þjóða í norðanverðri Evrópu og landkostir hér. Án- ing norrænna manna á Bret- landseyjum leiddi til þess að þaðan kom keltneskt fólk út hingað í bland við norræna menn, sumt ánauðugt. Þetta írska/keltneska fólk var vafa- laust kristið. Það má telja öruggt, í ljósi framansagðs, að kristin trú hefur lifað í landinu frá fyrstu byggð, þótt landsmenn væru flestir heiðnir fram undir árið þúsund. Þá er og víst talið að kristnir einsetuménn, írskir (Papar), hafí lagt leið sína út hingað þegar á sjöundu og átt- undu öld. íslendingar lögtaka síðan kristinn sið á Alþingi við Öx- ará, að því að talið er árið 1000. Sunnlendingar og Norðlending- ar voru skírðir í Reykjalaug í Reykjadal en Vestlendingar í Lundarreykjadal. Kristnitakan árið eitt þúsund er farsælasta löggjöf í gjörv- allri Islandssögunni og hefur mótað íslenzkt samfélag allar götur síðan. Þess munu fá dæmi, ef nokkurt, að þjóð hafi sem heild lögtekið kristinn sið á þann hátt sem hér var gert. Það styttist nú mjög í þúsund ára afmæli kristnitökunnar og er undirbúningur hátíðahalda þegar hafínn, bæði af hálfu Alþingis og þjóðkirkjunnar. Það er þó ekki hið sagnfræði- Iega bakland kristni í landinu sem hæst ber á helgum jólum, heldur fæðing frelsarans í mannheim; barnið, sem lagt var í jötu í Betlehem á hinum fyrstu jólum. Lúkas segir um atburð- inn í Betlehem: „En í sömu byggð voru hirð- ar út í haga og gættu um nótt- ina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði í kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðum. Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Hafið þetta til marks. Þér munuð fínna ungbarn reifað og lagt í jötu ..." Það er fæðing Jesúbarnsins í mannheim sem við minnumst á helgum jólum, sem eru enn í dag, nærri tveimur árþúsund- um síðar, helzta hátfð fjöl- skyldna, barna og kærleikans í veröldinni. Kristur komst svo að orði um börnin, samkvæmt frásögn Lúkasar: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: hver sem ekki tekur við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. “ Á helgum jólum eigum við að opna líf okkar fyrir Jesú- barninu, leyfa því að „fæðast“ inn í hugarheim okkar og sálar- líf; móta tilveru okkar og við- horf. Á helgum jólum eigum við að upplýsa börn okkar um Krist, sem er vegurinn, sann- leikurinn og lífíð. Við eigum að leyfa ungviðinu að koma til Krists í jólasiðum heimilanna, í uppeldi barnanna, í fræðslu skólanna og á vegum kirkjunn- ar, og vama þeim þess eigi. Við eigum alla daga en ekki sízt á þeirri hátíð, sem senn hefst, að hugleiða þá staðhæf- ingu hans, sem jólin eru helg- uð, að það sem við, hvert og eitt, gjörum hans minnsta bróð- ur í daglegri breytni okkar, orðum og athöfnum, það gjör- um við og honum. Við þurfum ekki að leita langt yfir skammt að einmana, sjúkum eða þurf- andi sem við getum lagt lið. Við höfum og alla burði til að rétta hjálpandi hendur til fjærstu heimshorna; til að deila hlýju og velvild með náungum okkar - í birtunni frá honum, sem er ljós heimsins. Kristur, sem lýsti upp dauð- ann með lífsins ljósi, mælti til lærisveina sinna: „Leyfið börn- unum að koma til mín.“ Við erum öll börnin hans. Við eig- um á helgum jólum að safnast saman við fótskör' hans og lofa skapara himins og jarðar. Megi sú lífssól, sem Kristur er, rísa í hugum okkar, lífi og breytni, hrekja burt kuldann og myrkrið, og vekja okkar innri mann til nýs vors og gró- anda. Með þeim orðum óskar Morgunblaðið lesendum sínum og landsmönnum öllum gleði- legra jóla. # m # Morgunblaðið/Kcistinn Heim um jolm FLUGLEIÐIR flugu til Patreksfjarðar í gær en ófært var þangað í fyrradag. Myndin var tekin þegar fólkið steig um borð í skammdegissólinni í gær. Ovenjuvel gekk að flytja fólk og böggla Allir komast ferða sinna fyrir jólin FLUTNINGAR fólks fyrir jólin hafa gengið óvenjuvel, enda gott ferða- veður að undanförnu. í gærmorgun lokuðust þó vegir um tíma vegna skafrennings og flug tafðist en það komst fljótlega í lag. Talsmenn flutningafyrirtækja bjuggust í gær við því að þeim tækist að koma fólki til síns heima og farmi á réttan stað fyrir jól. Veðurstofan spáði í gær þokka- legu jólaveðri um allt land. í nótt átti að lægja talsvert og draga úr sjókomu/éljagangi norðanlands. Vindáttin breytist, hæg austlæg átt verður og þykknar upp suðvestan- lands árdegis. Áfram verður frost. Á morgun, jóladag, er spáð suðlægri átt, golu eða kalda og léttskýjuðu norðanlands. Annan í jólum verður allhvöss suðaustanátt og fremur hlýtt. Rigning eða slydda víða um land, einkum þó um sunnan- og vest- anvert landið. Skafrenningur á Holtavörðuheiði Vegna skafrennings tepptust nokkrir vegir í fyrrinótt og gærmorg- un. Vegagerðin ruddi aðalleiðir og var búin að því um hádegið. Holta- vörðuheiði var illfær í gær vegna skafrennings og blindu en umferð var komin í eðlilegt horf um hádegið. Eiríkur Gíslason, veitingamaður í Staðarskála, sagði i samtali við Morgunblaðið um hádegið í gær að mjög hvasst hefði verið um nóttina. Það væri að lygna en enn smá ágöng- ur. Hann sagði að umferðin væri komin í samt lag. Norðurleiðarrútan hefði tafist um þrjú korter vegna skafrenningsins á heiðinni. Eiríkur sagði að umferð væri lítil og sló því fram að svo virtist sem fólk úr Skagafirði og Austur-Húnavatns- sýslu færi að þessu sinni líklega frek- ar til Akureyrar að kaupa inn fyrir jólin en til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum vegaeft- irlits Vegagerðar ríkisins voru allar aðalleiðir ruddar í gær og var ekki vitað annað en umferð gengi vel fyrir sig eftir að Holtavörðuheiði opnaðist. Björn Svavarsson vegaeft- irlitsmaður sagði að mesta umferðin væri milli Reykjavíkur og Akureyrar og því væri bagalegt þegar Holta- vörðuheiði tepptist. Vegagerðar- menn verða að störfum fram að há- degi í dag, aðfangadag. Þeir taka sér frí á morgun og fara aftur af stað á annan í jólum. Umferðin í Reykjavík hefur geng- ið ágætlega, að sögn Hjartar Sæ- mundssonar varðstjóra í lögreglunni, að undanskildum miðvikudeginum þegar 25 árekstrar urðu. í gær var mikil umferð og síðdegis höfðu orðið sex árekstrar frá hádegi. Hjörtur sagði að það færi mikið eftir veðri hvert fólk leitaði, nú virtist fólk fara töluvert á Laugaveginn enda veðrið betra en oft áður fyrir jólin. Flugið gengið vel Innanlandsflug hefur gengið óvenju vel fyrir þessi jól og í gær var útlit fyrir að allir kæmust til síns heima fyrir jólin. Ein flugvél Flug- leiða var veðurteppt á Húsavík í fyrrinótt og raskaði það aðeins þéttri áætlun félagsins í gær. Úr því rætt- ist og voru rúmlega 1000 farþegar fluttir innanlands í gær, að sögn Margrétar Gunnarsdóttur af- greiðslustjóra á Reykjavíkurflugvelli. Flestir fóru til Akureyrar og voru farnar sex ferðir þangað í gær. Flog- ið verður til hádegis í dag, síðasta vélin hefur sig til flugs frá Reykja- vík klukkan 13. Sveinn Ingvarsson afgreiðslustjóri hjá íslandsflugi sagði að flug fyrir jólin hefði gengið óvenjulega vel enda veður gott. Einhveijar tafir urðu þó á flugi í gær en Sveinn bjóst við að flytja hátt í 300 farþega þenn- an dag. Forstjórinn í pakkaafgreiðslunni Gunnar Svein.sson, framkvæmda- stjóri BSÍ, var kominn í pakkaaf- greiðsluna í Umferðarmiðstöðinni í gær. Hann sagði að vel hefði gengið að flytja fólk og farm enda veður óvenjugott í jólaösinni. Stærstu dag- arnir voru í gær og fyrradag þegar á annað þúsund manns fóru hvorn dag um Umferðarmiðstöðina. Þá sagði hann að starfsfólk hefði áætlað að 40 þúsund pakkar væru fluttir með rútunum fyrir jólin. Síðustu bíl- arnir á langleiðunum fóru frá BSI síðdegis í gær en fyrir hádegið í dag Hleðsla HLEÐSLUMENNIRNIR hjá inn- anlandsflugi Flugleiða hafa í nógu að snúast síðustu dagana fyrir jól eins- og aðrir starfsmenn sam- göngufyrirtækj anna. eru ferðir hjá bílunum á styttri áætl- analeiðunum. Það eina sem Gunnar hafði áhyggjur af í gær var að einhverjir matarpakkar lokuðust inni í pakka- afgreiðslunni á Umferðarmiðstöð- inni. Hann sagði að starfsfólkið gerði allt sem það gæti til að koma þeim út. Pakkaafgreiðslan er opin til klukkan 14 í dag og sagðist Gunnar reyndar verða þar lengur ef með þyrfti til að koma út pökkum. Aukning í bögglasendingum Pósturinn hefur runnið vandræða- laust í gegn hjá Pósti og síma, að sögn Rafns Júlíussonar fram- kvæmdastjóra póstmálasviðs. Gott tíðarfar og færð hefur hjálpað mikið til, enda má lítið útaf bregða á þess- um tíma. Talið er að sendar séu 2,5 til 3 milljónir jólakorta á hveiju ári og á annað hundrað þúsund böggla í desembermánuði. Rafn telur að heldur fleiri jólakort hafí verið send nú fyrir jólin en venjulega og merkj- anleg aukning væri í bögglasending- um. Ekki kvaðst hann hafa neinar skýringar á því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.