Morgunblaðið - 24.12.1993, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
55
GIBSON ER MAÐURINN
ANDLITSLAUSI
Jólamynd Regn-
bogans, Maður
án andlits eða
„The Man Witho-
ut a Face“, er
fyrsta myndin
sem liinn vinsæli
ástralski leikari
Mel Gibson leik-
stýrir en hún
segir frá ungum
dreng sem ving-
ast við mann í
litlum smábæ,
sem er utangarðs
í bæjarsamfélag-
inu því hann hef-
ur hroðaleg
brunasár í andlit-
inu. Hún var
frumsýnd sam-
tímis í Regnbog-
anum og í Borg-
arbíói á Akur-
eyri. Önnur jóla-
mynd Regnbog-
ans er ævintýra-
myndin Til vest-
urs.
§Gibsonmyndin er gerð eftir
sögu Isabelle Holland sem ger-
ist á sjöunda áratugnum. Aðrir
kvikmyndagerðarmenn höfðu
>“H sýnt bókinni áhuga með bíó-
r1") mynd í huga áður en hún
komst í hendur kanadíska rit-
V,^ höfundarins Malcolm MacR-
QQ ury. Fyrir þremur árum las
h—p- Gibson kvikmyndahandrit
/—4 hans og leist vel á en hann
Ohafði þá um tíma verið að leita
að rétta verkefninu fyrir sig
m að leikstýra.
Gibson segir löngunina til að
r leikstýra „svona læðast að
manni“ með tímanum en hann virð-
ist líta á Mann án andlits á svipaðan
hátt og Hamlet, sem hann lék í und-
ir stjóm Franco Zeffirellis; ekki sem
tækifæri til að slá sig til riddara í
Hollywood eða lykilatriði í þróun
hans sem leikara og listamanns held-
ur miklu frekar áhættulítið tækifæri
til að blaka örlítið vængjunum.
Til að byija með hafði hann í
hyggju að létta aðeins vinnuálagið
með því að leika ekki í myndinni.
Hann reyndi að fá William Hurt til
að taka að sér hlutverk hins brennda
en það gekk ekki. Hann sló því til
enda naumur tími til stefnu. Því
hefur alltoft og við ýmis tækifæri
Ný Shakespearemynd; úr Ys og þys út af engu eftir Kenneth Branagh.
ÍSLENSKT TAL, ADDAMS OG
SHAKESPEARE
í Háskólabíói eru þrjár jólamyndir; bandaríska gamanmyndin Addams-
fjölskyldugildin, sem einnig er sýnd í Sagabíó, danska fjölskyldumynd-
in Krummarnir með íslensku tali og Shakespearemynd Kenneths Bra-
naghs, Ys og þys út af engu.
Brunninn Gibson; úr jólamynd Regnbogans.
verið haldið fram að Gibson sé
myndarlegasta Hollywoodstjarna
samtimans en svo virðist sem hann
vilji reyna að draga úr þeirri ímynd.
I síðustu mynd eltist hann um 50
ár og nú leikstýrir hann sjálfum sér
með hálft andlitið í rúst.
Hann segist hafa lært eitt og
annað hjá þeim leikstjórum sem
hann hefur unnið með í gegnum
árin; hjá George Miller („Mad Max“)
lærði hann svolítið um spennu, hjá
Richard Donner(„Lethal Weapon")
léttleika í frásögninni og hjá Peter
Weir (,,Gallipoli“) listfengi. „Og ég
lærði heilan helling hjá Steve Miner
(„Forever Young“) því þegar við
unnum saman vissi ég að ég færi
fljótlega að leikstýra og spurði hann
óteljandi spurninga um grundvallar-
atriði sem maður þarf að vita.“
Önnur jólamynd Regnbogans er
írska ævintýramyndin„Into the
West“ eða Til vesturs. Hún segir
af tveimur drengjum sem stinga af
á töfrahesti í átt til vestursins og
fara Gabriel Byrne og eiginkona
hans, Ellen Barkin, með aðalhlut-
verkin. Leikstjóri er Mike Newell
en handritshöfundur er Jim Sheri-
dan, sem gerði „My Left Foot“ og
hefur nýlokið við „In the Name of
the Father" með Daniel Day-Lewis.
pq
3
o
Framhaldsmyndin um Addams-
fjölskylduna rekur frekari ævin-
týri hinnar undarlegu og myrku
fjölskyldu sem lifir fyrir allt sem
öðrum finnst slæmt, óþokkalegt
og illkvittið. Nú segir af því
þegar nýr Addam kemur í heim-
inn (hann fæðist með yfír-
_ skeggl), Fester frændi er dreg-
inn á tálar af morðkvendi og
bömin era send í sumarbúðir
og snúa þar öllu á annan end-
ann. Sama leikaraliðið fer með
Khlutverk Addamsfjölskyldunnar
og í fyrri myndinni; Raul Julia
og Angelica Huston eru höfuð fjöl-
skyldunnar, Morticia og Gomez, Chri-
stopher Lloyd er hinn búkmikli Fest-
er og Christina Ricci og Jimmy Work-
man leika bömin. Joan Cusack leikur
tálkvendið. Leikstjóri er sem fyrr
Barry Sonnenfeld.
Danska fjölskyldumyndin
Krummarnir er fyrsta talsetta leikna
bíómyndin frá því Ronja ræningja-
dóttir var frumsýnd árið 1986. Með
aðalhlutverkin í talsetningunni fara
Jóhann Ari Lárusson, Sólveg Arnar-
dóttir, Edda Heiðrún Backman, Jó-
hann Sigurðarson, Sigurður Skúla-
son, Ari Matthíasson, Gísli Halidórs-
son, Róbert Arnfinnsson, Jón Börkur
Jónsson og Rós Þorbjarnardóttir.
Þýðandi er Ágúst Guðmundsson en
Þorbjörn Á. Erlingsson sá um leik-
stjórn og framkvæmdastjórn tal-
• •
OLD SAKLEYSISINS
EFTIR SCORSESE
ÞAÐ URÐU margir undrandi þegar þeir heyrðu að bandaríski
leikstjórinn Martin Scorsese, þekktastur fyrir grimmúðlegar sam-
félagslýsingar úr nútímanum eins og „Taxi Driver“, „Raging
Bull“ og „Goodfellas“, ætlaði að gera mynd eftir ástarsögu Edith
Wharton sem gerðist á síðustu öld. Öld sakleysisins heitir hún og
er nú jólamynd Stjörnubíós.
Undrunin kom til vegna þess
að Scorsese er þekktur fyrir
allt annað en að láta bendla sig
við nítjándu aldar ástarsögu.
Vinur hans og handritshöfund-
ur, Jay Cocks, hat'ði gefið hon-
um söguna árið 1980 og Scor-
sese heillaðist af henni. Það tók
hann reyndar nokkur ár að
komast til að lesa hana en þeg-
ar það var búið vildi hann ólm-
ur kvikmynda söguna. „Það
t * sem snart mig í bókinni," er
iyj haft eftir leikstjóranum, „var
hin áleitna tilfínning fyrir miss-
inum. Þetta er ástarsaga og ást milli
fólks hvort sem hún gengur upp eða
ekki er öllum sameiginleg." ^
Saga Wharton gerist á meðal há-
aðalsins í New York á áttunda ára-
tug síðustu aldar og fjallar um New-
land Archer, unnustu hans, May
Welland, og frænku hennar, greifynj-
una Ellen Olensku. Ellen kemur frá
Evrópu til Bandaríkjanna þar sem
§
O
hjónaband hennar er í rúst en
fær að fínna það í New York að
hjúskaparstaða hennar hefur
gert hana allt að því útlæga úr
heimi hinna súperríku. Newland
Archer telur sig knúinn til að
koma henni til hjálpar en í leið-
inni verður hann yfir sig ástfang-
inn af greifynjunni svo nú er
frarntíð hans stefnt í voða.
írski leikarinn Daniel Day-
Lewis fer með aðalhlutverkið í
myndinni, Newland Archer.
Michelle Pfeiffer leikur greifynj-
una og Winona Ryderleikur unn-
ustu Archers. Aðrir leikarar sem
fram koma í myndinni eru Richard
E. Grant, Geraldine Chaplin, Mary
Beth Hurt, Stuart Wilson (sem lék
illfyglið í Nonna og Manna), Jonat-
hans Pryce og Robert Sean Leonard.
Kvikmyndatökumaður er Þjóðveijinn
Michael Ballhaus, gamall tökumaður
Fassbinders. )
„Martin og ég töluðum heilmikið
setningarinnar. Krummarnir er
byggð á barnabókum danska rithöf-
undarins Thöger Birkeland og er hún
fyrsta myndin sem gerð er eftir sög-
um hans. Krummafjölskyldan sam-
anstendur af föður, móður og þrem-
ur börnum og barnið í miðið, hinn
11 ára gamli Mads, er sögumaður
myndarinnar. Hann á stórusystir
sem er 14 ára og þar með óþolandi
í sinni sífelldu ástarsorg. Yngsti
meðlimurinn er eins og hálfs árs
drengur að nafni Grunk, sérlega
þroskaður. Faðirinn er kennari við
skólann sem Mads gengur í, sem
líka er óþolandi, og móðirin er að
læra hvernig kenna má smábörnum.
Leikstjóri er Sven Methling.
Breski leikarinn og leikstjórinn
Kenneth Branagh skaust upp á
stjörnuhimininn með kvikmyndaútg-
áfu sinni á Hinriki V eftir William
Shakespeare og leitaði aftur í smiðju
skáldsins þegar hann kvikmyndaði
„Much Ado About Nothing" eða Ys
og þys út af engu, þriðju jólamynd
Háskólabíós en hún verður frumsýnd
á annan í jóium. Branagh var tvo
mánuði að kvikmynda Ys og þys í
þorpi einu í Toscana á Ítalíu. Með
aðalhlutverkin fara þekktir banda-
rískir leikarar eins og Michael Kea-
ton, Denzel Washington, Keanu Ree- ’
ves og Robert Sean Leonard en að
auki fara Branagh sjálfur og kona
hans, Emma Thompson, með stór
hlutverk. Leikstjórinn vildi síður að
leikaraliðið ætti eitthvað sameigin-
legt með „hinum fjarlæga, fagur-
rómaða leikhúsrembingi", sem hon-
um finnst einkenna Shakespeare-
uppfærslur. „Shakepeare er fyrir
plánetuna alla, ekki einhvern útnára
hennar,“ sagði hann.
Bíóborgin; sífellt vakándi löggur í gamanspennumyndinni Aftur á vakt- ■
inni.
ENN Á VAKTINNI
Jólamynd Bíóborgarinnar er gamanspennumyndin Aftur á vaktinni
eða „Ánother Stakeout“, framhald myndarinnar Á vaktinni („Stake-
out“) eftir John Badham, með Richard Dreyfuss og Emilio Estevez í
aðalhlutverkum. Fleiri þekktir leikarar koma fram í myndinni eins
og Cathy Moriarty, Rosie O’Donnell og Dennis Farina.
Önnur öld, aörlr tímar; Day-Lewis og
Pfeiffer í hlutverkum sínum í myndinni
Öld sakleysisins.
um myndina áður en við byijuðum
að kvikmynda," er haft eftir Day-
Lewis, „og mjög lítið eftir það, sem
er frábært." Leikarinn var síðast í
Síðasta Móhíkananum og þar á iind-
an lék hann í Vinstri fætinum. „Það
hvarflaði ekki að mér eitt andartak
að ég ætti eftir að vinna með Scor-
sese,“ segir hann, „en samt var það
stærsti draumur minn.“ i
Fyrri myndin náði miklum vin-
sældum þegar hún var frum-
sýnd árið 1987 en hún sagði
C _)) frá lögreglumönnum tveimur
semsettirvoruíaðvaktaheim-
ili ungrar konu sem hafði verið
í tygjum við nýsloppinn fanga.
í nýju myndinni leikur Cathy
Moriarty vitni alríkislögregl-
unnar gegn mafíunni í Seattle.
Mafían reynir að myrða hana
og hún lætur sig hverfa en lög-
reglan lætur vakta þá staði sem
hún gæti hugsanlega Komið á þ.á m.
sumarvillu í eigu Dennis Farina.
Þangað er löggunum Dreyfuss og
Estevez stefnt til að vakta villuna
og í þetta sinn hafa þeir saksóknara
með sér sem Rosie O’Donnell leikur
og hund hennar, sem er til sífelldra
vandræða. Einnig kemur Madeleine
Stowe; kærasta Dreyfuss úr fyrri
myndinni við sögu, þótt hennar sé
hvergi getið í kreditlista, en hún leik-
ur enn kærustuna sem nú er lang-
þreytt orðin á sambúðinni við Dreyf-
uss. Samvinnan á milli lögreglu-
mannanna og saksóknarans ier sér-
lega stirð til að byija með ^n mýk-
ist þegar á líður og sífellt styttist í
bardaga við mafíuna.
John Badham er afkastamikill
leikstjóri með fjölda mynda að baki.
Hann er fæddur í Bretlandi árið
1939 og hóf feril sinn í sjónvarpi
áður en hann gat sér nafn með
myndinni frægu „Saturday Night
Fever“ árið 1977. Hann hefur feng-
ist við gerð afþreyingamynda hin
síðustu ár en gerði þó eina alvarlega
og ágæta mynd eftir þekktu leikriti
sem sett var upp í Iðnó á sínum tíma,
Er þetta ekki mitt líf?
Leikferli Richard Dreyfuss má
skipta í tvö tímabil. í hinu fyrra, sem
varði mestallan áttunda áratuginn,
var hann í hverri myndinni á fætur
annarri og var aðalleikari Stevens
Spielbergs á tímabili í Ókindinni og
Nánum kynnum af þriðju gráðu áður
en hann hreppti Óskarinn fyrir „The
Goodbye Girl“ árið 1978. í byijun
níunda áratugarins fór að halla und-
an fæti en hann náði sér á strik og
snéri aftur til kvikmyndanna af end-
urnýjuðum krafti í gamanmynd Paul
Mazurskys, „Down and Out in Be-
verly Hills“ árið 1986.
I