Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
ÐRÉFAÐINDI
OG MÖPPUR
fæst í öllum betri
ritfangaverslunum
Viltu auka þekkingu þína:
Öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í
fjölmörgum greinum, fýrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri.
Innritun á vorönn fer fram dagana 4.-6. jan.
kl. 8.30-18.00 og 7. jan. kl. 8.30-16.00.
í boði verða eftirfarandi áfangar:
Bókfærsla
Bókmenntir
Danska
Enska
Farseðlaútgáfa
fslenska
Skattabókhald
Stærðfræði
Stjómun
Sölu- og markaðsfræði
Tölvubókhald
Tölvufræði
Landafræði og saga fslands Tölvunotkun
Líffræði Verslunarréttur
Milliríkjaviðskipti Vélritun
Ritun Þjóðhagfræði
Ritvinnsla Þýðingar
Saga Þýska
Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman
og láta mynda eftirtalin prófstig:
• Prófaf bókhaldsbraut
• Próf af ferðamálabraut
• Próf af skrifstofúbraut
• Verslunarpróf
• Stúdentspróf
Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar
fást á skrifstofú skólans, Ofanleiti 1.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Minninfr
Ove Stenroth
Mánudaginn 13. desember sl. varð
Ove Stenroth fil.kand. bráðkvaddur
á heimili sínu í Kaupmannahöfn, 57
ára að aldri. Skyndilegt fráfall hans
bar að mitt í önnum ævistarfs hans
sem norræns embættismanns; hann
átti þennan morgun eins og oft áður
að reifa mál á stjómarfundi Norræna
menningarsjóðsins. Fjölmennur hóp-
ur vina og samstarfsmanna fyrr og
nú, víðs vegar um Norðurlönd, varð
harmi sleginn við fráfall hans.
Ove Stenroth fæddist 6. desember
1936 í Dalsbruk í Finnlandi, þar sem
foreldrar hans ráku vel þekkta versl-
un um margra ára skeið. Hann lauk
stúdentsprófi við menntaskóla í
Ekenás 1955. Að lokinni herþjónustu
hóf hann nám við háskólann í Hels-
ingfors með sagnfræði sem aðal-
grein. Fil.kand.-prófi lauk hann 1965
og merk lokaritgerð hans um sýslu-
menn í Kimito á 18. öld birtist í
tveimur greinum í tímaritinu Genos.
A háskólaárunum var hann einn af
þeim fámenna hópi sænskumælandi
stúdenta sem haustið 1962 stóð að
stofnun stúdentafélagsins Historic-
us, en það lifir enn góðu h'fi. Formað-
ur þess félags var hann árin
1967-69.
Starfsferill hans hófst í Ríkis-
skjalasafninu þar sem hann starfaði
1965-68. í Ríkisskjalasafninu komst
hann í kynni við þá traustu embættis-
mannahefð sem þar var að finna,
bæði í starfsanda stofnunarinnar
sjálfrar og í þeirri arfleifð sem safn-
inu var falin til varðveislu. Þessi
hefð átti einkar vel við Ove Sten-
roth, hann lifði sig inn í hana og
varð raunar persónugervingur hins
besta í sænsk-fínnskri embættis-
mannahefð; óhlutdrægni, nákvæmni,
stundvísi, öruggrar dómgreindar.
Starfshæfni hans átti þó brátt eft-
ir að njóta sín á allt öðrum vett-
vangi, í norrænni samvinnu. Hann
hafði lengi haft mikinn áhuga á nor-
rænum málefnum og sá áhugi jókst
er hann sótti fyrsta norræna nám-
skeiðið fyrir sagnfræðistúdenta sem
haldið var í Uppsölum 1966. Þetta
námskeið, sem frægt er orðið, beindi
mörgum þátttakendanna inn á braut
norrænnar samvinnu, bæði í hugsjón
og framkvæmd. Ove Stenroth réðst
árið 1968 til starfa hjá Norðurlanda-
ráði sem ritari menningarmálanefnd-
ar þess, fyrsti nefndarritari ráðsins
í fullu starfi og þar með að vissu
leyti mótandi um starfshætti. Starfs-
tími hans hjá Norðurlandaráði var
atburðaríkt tímabil norrænni sam-
vinnu, þá voru átökin um Nordek á
döfinni, Helsingfors-sáttmálinn var
endurnýjaður og norræni menningar-
málasamningurinn gerður 1971.
Eins og kunnugt er hafði þetta í
för með sér að stofnað var til Nor-
rænu ráðherranefndarinnar með
tveimur skrifstofum. Menningar-
málaskrifstofan í Kaupmannahöfn
var sett á laggirnar 1972 og eðlilegt
var að leitað væri til manns með
hæfni Ove Stenroths í því sambandi.
Hann var í fyrsta starfsmannahópn-
um sem frá ársbyijun 1972 vann
undir forystu Magnus Kulls að upp-
byggingu hinnar nýju skrifstofu og
menningarsamstarfsins. A vissan
hátt var þar með skipt um sjónar-
horn, hann fluttist af þingmanna-
vængnum yfir á ríkisstjórnavæng
samvinnunnar.
Ove Stenroth hélt tryggð við
RÐU
LÉTTA
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
DÖGUMt
dæstu
námskeið
8. og 9.
janúar
620700
Áhugahópur um almenna dansþátttoku á Islandi
hringdu nuna
Nýtt!
Bókhaldsnámskeið
36 klst.
Ókeypis hugbúnaður innifalinn
STOFNUN FYRIRTÆKIS,
BÓKHALDSLÖG
SKIL OG INNHEIMTA
YIRÐISAUKASKATTS
BÓKFÆRSLA RAUNHÆFS
VERKEFNIS í TÖLVU
AFSTEMMINGAR, FRÁGANGUR,
UPPGJÖR
Leiöbeinandi: Katrín H. Árnadóttir, viðskiptafræöingur.
Mörg stéttarfélög og starfsmenntunarsjóðir styrkja þátttöku
félagsmanna sinna f námskeiðinu.
Sveigjanleg greiðslukjör.
Upplýsingar og innritun er hjá
Viðskiptaskólanum
sími 624162