Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994
fclk f
fréttum
STJÖRNUR
Barbra Streisand heldur í tón-
leikaferðalag
Barbra Streisand kom fram á
tvennum tónleikum í Las Veg-
as nú um áramótin fyrir fullu húsi.
Hlaut hún um 20 milljónir dollara
fyrir uppákomumar. Meðal gesta
var móðir Bill Clintons, Virginia
Clinton Kelley, Andre Agassi náinn
vinur Barbrö og allmörg þekkt
Hollywood-andlit. Þótti Barbrö tak-
ast svo vel upp að hún hyggur á
tónleikaferðalög á næstunni til
nokkurra borga auk þess sem til
greina kemur að taka upp tónleika
í New York fyrir sjónvarp.
Barbra sagði í viðtali við blaðið
Daily Variety að hún hafí svo sem
ekki verið full sjálfstraust að koma
fram eftir svo langa Qarveru, en
hún hafi virkilega notið sín síðara
kvöldið. Þá segir blaðið einnig að
Michael Jackson hafi verið meðal
tónleikagesta og að hann hafi heim-
sótt leikkonuna baksviðs eftir tón-
leikana.
Barbra sem komin er á sextugs-
aldur lætur ekki staðar numið við
tónleikana heldur er hún með tvö
handrit í vinnslu: „The Mirror Has
Two Faces“ og „The Normal He-
art“. Sjálf hyggst hún leika aðal-
hlutverkið í fyrra verkinu og leik-
stýra þeim báðum.
Hættu að veifa. Þetta er bara venjulegur togari.
COSPER
£rj,B
cCCÞ
c
COSPER.
Sljörnusveit o g sel-
skinnsjakki
Jon Hendricks í selskinnsjakkan- Morgunbiaðið/Einar Faiur
um og með skyggnishúfi í stíl J°n Hendricks á sviðinu í Blue Note, ásamt dótturinni Michele og
fyrir utan hinn kunna jassklúbb saxófónleikaranum Benny Golson.
Blue Note í New York.
DJASS
Einn þeirra menningarviðburða
sem hvað mesta athygli hafa
vakið í New York nú um jólin er
tónleikaröð djasssöngvarans góð-
kunna Jons Hendricks í djasskúbbn-
um Blue Note. Hendricks, sem kalla
má „íslandsvin" eftir tónleika hans
í Háskólabíói fyrir tveimur árum,
hefur komið þar fram ásamt kunn-
um hljóðfæraleikurum, svokallaðri
„Stjörnusveit" sinni. Til gamans
má geta þess að þegar hann mætir
í hús er hann ætíð klæddur svörtum
íslenskum selskinnsjakka með húfu
í stíl frá Eggerti Jóhannssyni feld-
skera.
Selskinssjakkinn er þannig til
kominn, að þegar Hendricks kom
til íslands sá hann flík sem Eggert
hafði hannað og saumað úr sel-
skinni og hreifst mjög af. Hann
pantaði svartan jakka, sem hann
klæðist öllum stundum. Hann lét
ekki þar við sitja heldur bað Egg-
ert einnig um að búa til fyrir sig
hatt og skyggnishúfu úr selskinni.
Hann er svo ánægður með höfuðföt-
in að hann segist helst ekki taka
þau ofan nema þegar hann sefur.
Tónleikarnir í sviðsljósinu
Mikið hefur verið skrifað um tón-
leikaröð Jons og Stjörnusveitarinn-
ar. Þótt valinn maður sé þar í hverju
rúmi eru blásarnir fjórir vafalaust
kunnastir; þeir Clark Terry, Al
Grey, Benny Golson og Red
Holloway. Dóttir Jons, Michele,
kemur einnig fram, en hún er söng-
kona búsett í París. Á efnisskrá eru
lög úr ýmsum áttum; nokkur eftir
Hendricks sjálfan og önnur eftir
höfunda á borð við Louis Jordan,
Horace Silver og Theolonius Monk,
en Jon og allir blásararnir störfuðu
um einhvern tíma með þeim síðast-
nefnda.
Jon Hendricks hefur í mörg ár
veri í hópi dáðustu djasssöngvara
og er iðulega kallaður konungur
„scats“ en „scat“ er það kallað þeg-
ar söngvarar í djassi stæla hljóð-
færi í söng sínum og setja orð við
þekkt djasslög. Hann hefur unnið
með mörgum kunnustu djassleikur-
um síðustu áratuga og starfað með
þekktum söngtríóum. Söngurinn
hefur verið hans lifibrauð alla tíð.
Meira að segja á unglingsárunum
hélt hann uppi allri fjölskyldu sinni,
en þau voru 15 systkinin!
LEIKARAR
„Jókerinn“ Cesar
Romero látínn
[ eikarinn Cesar Romero sem
var almenningi einna kunn-
astur fyrir hlutverk sitt sem Jó-
kerinn í sjónvarþsmyndunum um
Batman lést í Kaliforníu 2. jan-
úar, 86 ára að aldri. Hann lék í
fjölda sjónvarps- og kvikmynda,
einkum á fyrri hluta aldarinnar.
Meðal þekktra mynda frá síðári
áratugum má nefna „The Americ-
ano“ árið 1954 þar sem hann lék
á móti Glenn Ford, „Madigan’s
Millions" árið 1967 með Dustin
Hoffman og „Ocean’s Eleven"
árið 1960 ásamt þeim Frank Sin-
atra, Dean Martin og Sammy
Davis Jr.
Cesar Romero
Keuter
Reuter
Barbra Streisand kom
fram á tveimur tónleik-
um um áramótin og er
hún sögð hafa 20 millj-
ónir dollara upp úr því.
Kveðst hún ætla að láta
3,5 milljónir dollara
renna til hinna ýmsu
góðgerðarmála.
Michael Jackson var
meðal þeirra sem
hlýddu á Barbrö Streis-
and syngja á tónleikun-
um. Hér er hann á leið-
inni á tónleikana í fylgd
lífvarða.
DANSSKOLI HERMANNS RAGNARS
Innritun
nýrra
nemenda
er hafin
Byrjendaflokkar fyrir alla aldurshópa.
Framhaldsflokkar á öllum aldri og stigum.
Nemendur sem voru fyrir jól mæta á sömu
stöðum og sama tíma og var fyrir áramót.
Endurnýjun skírteina á skrifstofunni.
Kennsla hefst mánudaginn 10. janúar.
Kennslustaðir: Faxafen 14 og Frostaskjói fyrir Vesturbæinga.
Skrifstofan er opin í Faxafeni 14 daglega frá kl. 13-19.
Innritun ísímum 687480 og 687580 allan daginn frá kl. 10.
Gestakennararnir Allan Tornsberg og Vibecke Toft verða hjá
okkur síðar í þessum mánuði.
Dansinn erfyriralla fjölskylduna og ódýrt tómstundagaman.