Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
RAÐA UGL YSINGAR
I Dagvist barna
Greiðslur til foreldra
vegna barna á aldrinum tveggja og hálfs
árs til fjögurra og hálfs árs sem ekki nýta
leikskólaþjónustu á vegum Reykjavíkur-
borgar eða aðra dagvistarþjónustu styrkta
af Reykjavíkurborg.
Á fundi borgarstjórnar hinn 16. desember
sl. voru samþykktar eftirfarandi reglur:
1. Greiðsluár skiptist í fjögur þriggja mánaða
tímabil. Útborganir fara fram mánuði síð-
ar en hverju tímabili lýkur, í fyrsta sinn
1. maí 1994.
2. Samkvæmt reglum þessum hafa þeir for-
eldrar rétt á greiðslum sem eiga börn er
verða tveggja og hálfs árs á viðkomandi
tímabili og skulu greiðslurnar standa að
óbreyttum forsendum þar til börnin ná
fjögurra og hálfs árs aldri.
3. Greiðslur með hverju barni skulu nema
þeirri upphæð, sem ákveðin er í fjárhags-
áætlun hverju sinni sem rekstrarstyrkur
fyrir hvert barn á einkaleikskóla og nemur
nú kr. 6.000 á mánuði.
4. Sækja þarf sérstaklega um greiðslur fyrir
hvert tímabil á þar til gerðum eyðublöð-
um. Umsókn verður að berast eigi síðar
en viku eftir að greiðslutímabili lýkur.
Til þess að auðvelda væntanlegum umsækj-
endum að staðfesta vilja sinn til þess að
gerast aðilar að þessu nýja fyrirkomulagi,
hefur verið ákveðið að taka við pöntunum á
upplýsingum og umsóknareyðublöðum í
síma Dagvistar barna 27277. Eyðublöð verða
síðan send út en þeim ber að skila eigi síð-
ar en viku eftir að greiðslutfmabili lýkur,
þ.e. fyrir 7. apríl 1994, fyrir fyrsta tímabilið.
Hringið í síma 27277 og óskið eftir að fá
frekari upplýsingar og/eða umsóknareyðu-
blað. Vinsamlegast gefið upp nafn og heimil-
isfang ásamt kennitölu umsækjanda og
barns eða barna sem sækja á um greiðslu
fyrir.
Dagvist barna.
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðn-
um á árinu 1994.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361
30. september 1977 er tilgangur sjóðsins
„að veita styrki til stofnana og annarra aðila,
er hafa það verkefni að vinna að varðveislu
og vernd þeirra verðmæta lands og menning-
ar, sem núverandi kynslóð hefurtekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðs-
ins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til nátt-
úruverndar á vegum Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðs-
ins skal renna til varðveislu fornminja,
gamalla bygg^nga og annarra menningar-
verðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöf-
unarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang
hans, og komi þar einnig til álita viðbótarstyrk-
ir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum
verði viðbótarframlag til þeirra verkefna, sem
styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga
úr stuðningi annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fýrri hluta komandi
árs. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrú-
ar 1994. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykja-
vík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðs-
stjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma
(91)699600.
Reykjavík, 29. desember 1993.
Þjóðhátíðarsjóður.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Tilkynning
til eigenda Gullbóka
Hinn 1. janúar 1994 verður sú breyting á
reglum Seðlabanka íslands um verðtrygg-
ingu sparifjár, að heimild til verðtryggingar
innstæðna á óbundnum sparireikningum
nær aðeins til óhreyfðra fjárhæða á hverju
ári, en til þessa hefur verið heimilt að verð-
tryggja óhreyfðar innstæður á hvorum árs-
helmingi fyrir sig. Innstæður, sem ekki full-
nægja þessu skilyrði, bera nafnvexti.
Innstæður á Guilbókum falla undir framan-
greindar reglur. Til þessa hefur verðbótum
og/eða vöxtum verið bætt við innstæður á
Gullbókum tvisvar á ári, en vegna breyttra
reglna verða þessar færslur nú að miðast
við heilt ár. Frá og með árinu 1994 verður
verðbótum og/eða vöxtum því bætt við inn-
stæður á Gullbókum 31. desember ár hvert.
30. desember 1993.
Búnaðarbanki íslands.
Rannsóknastyrkur
úr Minningarsjóði
Bergþóru Magnúsdóttur
og Jakobs J. Bjarnasonar
Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar
styrki úr ofangreindum sjóði.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er til-
gangur hans:
1. Að styrkja kaup á lækninga- og rann-
sóknatækjum til sjúkrastofnana.
2. Að veita vísindamönnum í læknisfræði
styrki til framhaldsnáms eða sjálfstæðra
vísindaiðkana.
Rannsóknir á krabbameinssjúkdómum sitja
að jafnaði fyrir um styrkveitingar.
Umsóknum, ásamt ítarlegum greinagerðum,
skal skila til landlæknis, Laugavegi 116, 150
Reykjavík, fyrir 1. mars 1994.
Sjóðsstjórn.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Unnt er að bæta við nokkrum nemendum í
grunndeild í múraraiðn.
Innritun fer fram 4.-7. janúar á skrifstofu
skólans, kl. 9.30-15.00, gegn gjaldi sem er
kr. 10.600,00.
Handslökkvitækja-
námskeið
Dagana 18., 19. og 20. janáur nk. verður
haldið námskeið í eftirliti og viðhaldi hand-
slökkvitækja.
Námskeiðið fer fram í slökkvistöð Keflavíkur
og byrjar kl. 9.
Tilkynna þarf þátttöku í síma 91-25350 fyrir
10. janúar nk. Þátttökugjald er kr. 30.000.
Brunamálastofnun ríkisins.
FJÖLBRAUTASKÓliNH
BREIBHOUI
Námskeið til undirbúnings sveinsprófs í raf-
virkjun verður haldið í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, rafiðnadeild, í janúar og febrúar.
Námskeiðið hefst 10. janúar kl. 18.00.
Innritun er í síma 91-75600 á skrifstofutíma
til 8. janúar nk.
Rafiðnadeild FB.
Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Upphaf skólastarfs
á vorönn 1994
Stöðupróf
Stöðupróf verða haldin í skólanum eftirtalda
daga og hefjast öll kl. 18.00:
I ensku og málfræði þriðjud. 4. janúar.
í þýsku, spænsku og ítölsku miðvikudag-
inn 5. janúar.
í dönsku, norsku og sænsku fimmtudaginn
6. janúar.
í frönsku og stærðfræði föstud. 7. janúar.
Skráning í stöðupróf er á skrifstofu skólans
í síma 685140.
Athygli skal vakin á því, að stöðupróf í erlend-
um málum eru aðeins ætluð nemendum,
sem hafa dvalist nokkra hríð í landi þar sem
viðkomandi mál er talað eða málið talað á
heimili þeirra. Þrófin eru ekki fyrir nemend-
ur, sem aðeins hafa lagt stund á málið í
grunnskóla, hversu góður sem árangur
þeirra þar var.
Þróf í dönsku eru aðeins ætluð nemendum
Menntaskólans við Hamrahlíð og þeim, sem
hyggja á nám við skólann. Próf í málfræði
er ætlað nýnemum í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, sem staðist hafa grunnskólapróf
í íslensku með einkunn 8, 9 eða 10. Standist
þeir stöðuprófið, kemur það í stað kjarna-
áfanga í málfræði, MÁL 102.
Önnur stöðupróf eru einnig opin nemendum
annarra framhaldsskóla.
Kennarafundur
Boðað er til fyrsta kennarafundar annarinnar
mánudaginn 10. janúar kl. 9.
Dagskóli
Nýnemar eru boðaðir í skólann föstudaginn
7. janúar kl. 10. Þeir hitta þá umsjónarkenn-
ara og fá stundaskrár. Aðrir nemendur dag-
skóla fá stundaskrár sínar mánudaginn
10. janúar kl. 13. Athugið að stundaskrár
fást aðeins afhentar gegn framvísun
greiðslukvittunar fyrir skólagjöldum.
Kennsla í dagskóla hefst þriðjudaginn
11. janúar kl. 8.15. Kennt verður skv. töflu
mánudags og þriðjudags og hver kennslu-
stund helminguð.
Öldungadeild
Innritað verður í öldungadeild á vorönn 1994
á skrifstofu skólans 5., 6. og 7. janúar
kl. 9.00-19.00.
Nýnemum er bent á að deildarstjórar verða
til viðtals miðvikudaginn 5. janúar. Námsráð-
gjafar aðstoða við innritun alla dagana.
Kennsla í öldungadeild hefst skv. stundaskrá
mánudaginn 10. janúar.
Rektor.
Frá Flensborgarskólanum
Stundatöflur dagskólanema verða afhentar
miðvikudginn 5. og fimmtudaginn 6. janúar
kl. 9.00-15.00. Nemendurfá þá einnig bóka-
lista og Flensborgarfréttir. Kennsla hefst
skv. stundaskrám föstudaginn 7. janúar.
Innritun í öldungadeild fer fram á skrifstofu
skólans dagana 4.-6. janúar kl. 14.00-18.00.
Kennsla í öldungadeild hefst mánudaginn
10. janúar skv. stundaskrá.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans, sím-
ar 650400 og 50092.
Skólameistari.