Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994 Skop í skammdegi _________Leiklist______________ Bolli Gústavsson Leikfélag Akureyrar: Góðverkin kalla — Átakasaga. Höfundar leikrits, söngtexta og laga: Ár- mann Guðmundsson, Sævar Sig- urgeirsson og Þorgeir Tryggva- son. Leikstjórn: Hlín Agnars- dóttir. Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson. Lýsing: Ingvar Björnsson „Það er ekki auðvelt að vera góður, en það borgar sig,“ segir Jónas formaður Dívansklúbbsins á Gjaldeyri við Ystunöf. Út af þeirri fullyrðingu er lagt í skopleiknum „Góðverkin kalla“, sem LA frum- sýndi að kvöldi 27. desember sl. Sá sem hefur tilhneigingu til þess að leggja út af öllu, sem hann les eða heyrir, myndi telja þetta sérstæða leikverk nokkuð kald- hæðnislega ádeilu á verkaréttlæti. En ljóst er að höfundum er ekki í mun að prédika, heldur að kitla hláturtaugar leikhúsgesta, já, gera þeim glatt í geði og það tekst þeim með hnyttnum vef þar sem hnýfla- lítil ádeila er jafnan skammt und- an. Að vísu virðist framvindan nokkuð óræð í upphafi og getur þá jafnvel veknað sú hugsun að hægt sé að heimfæra eftirfarandi stöku Bjarna frá Gröf upp á þá þremenninga: „Ég er oftast ekkert fyndinn ætli ég mér að vera það, þó í mig ekki vanti vindinn, vitið er bara takmarkað.“ En brátt er sýningin komin á gott skrið og þeir ágætu Þingeying- Aðalsteinn Bergdal. ar, Sævar, Þorgeir og Ármann, reynast síst af öllu merglausir, heldur hafa þeir góð tök á farsíma- smíðinni, enda er húmorinn alls ekki þvingaður fram með áreynslu, heldur geislar hann af ungæðis- legri kæti. Það liggur í loftinu að þeir hafa skemmt sér konunglega við að móta farsann og þá ekki síst semja orðaleikina, sem eru aðall hans. Þar nýtur sín hugkvæmni og þessi rótgróna, þingeyska málkennd, sem þeim er í blóð borin. Þá flett- ast inn í söngvar sem eru leikprýði og sérlega skemmtilega túlkaðir. Það er ástæðulaust að rekja hér söguþráð, en við söguna koma skemmtilega gerðar persónur í dá- litlu kauptúni. Mér skilst að leikar- ar, sem fram koma í sýningunni, hafi verið hafðir í huga er þær voru sniðnar. Af því leiðir, að allir gera vel. Aðalsteinn Bergdal leikur Jónas fyrrum bamakennara og formann Dínasklúbbsins af mikilli virkt. I hlutverkinu er Aðalsteinn reyndar eins og snjöll skopmynd, gervið frábært, og leikur hans í fyllsta samræmi við það. Þá spillir ekki söngfæmi leikarans. Saga Jónsdóttir leikur dulítið bælda og einfeldningslega húsmóð- ur, eiginkonu Jónasar, af kímilegri einlægni og hógværð. Ingibjörg Gréta Gísladóttir leik- ur unga og barnalega hjúkrunar- konu frá Akureyri. Já, einhvern veginn virðast mér höfundar birta kunnugleg viðbrögð í þeirri per- sónu, en þar var kominn fulltrúi frá höfuðstað Norðurlands, sem vill kynnast mannlífl í „litlu plássi“. Ingibjörg Gréta leikur hér sitt fyrsta hlutverk á leiksviði og ber leikur hennar þess nokkur merki, þó vel komist hún frá því að túlka áhuga stúlkunnar á íslenska smá- bænum Gjaldeyri. Rósa Guðný Þórsdóttir leikur Drífu, formann kvenfélagsins Sverðliljunnar, af miklum þrótti. Þetta er sóknarleikur hjá Rósu, óvænt sýnir hún á sér nýja hlið, prýðilegan og svipbrigðaríkan skopleik. Lúðvík, mann Drífu og formann Lóðarísklúbbsins, leikur Sigurþór Heimisson. Túlkar hann löglærðan leiðindapúka af nákvæmni og tekst sannarlega upp í skoplegum tökt- um og úthald skortir hann ekki. Skúli Gautason leikur klofinn persónuleika og eru hamskipti bankastjórans mögnuð í meðferð hans. Þarna birtast til skiptis mis- Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Dofri Hermannsson. kunnarlaus ofbeldismaður (e.k. Frankenstein) og meinlaust góð- menni í einum og sama manninum. Skúla tekst vel. Þá er ekki að spyrja að Sigur- veigu Jónsdóttur í hlutverki Bínu. Sigurveig blæs sannarlega hressi- legu og svipbrigðaríku lífi í þessa viðsjálu kerlingu. Sigurður Hallmarsson leikur Bjöm lækni af hlýju og skilningi, en Dofri Hermannsson fer með hlutverk smiðsins og kvenna- mannsins, Nonna, af snöfurlegu öryggi. Oddur Bjarni Þorkelsson fer með nokkur minni hlutverk og skilar þeim með sóma. Leikstjórinn, Hlín Agnarsdóttir, mótar traustan og hnökralausan heildarsvip á ærslamikið verk, og leikmynd Stígs Steinþórssonar er vönduð og vel við hæfi. Þeir sem hafa gaman af skopi og kæra sig um að komast í gott skap eiga sannarlega nokkurt er- indi í Samkomuhúsið á Akureyri um þessar mundir. Sutnir halda... En rétt er... ... að íslenskur landbúnaður éti upp afrakstur annarra atvinnugreina í landinu. ... að íslenskur landbúnaður skilar þjóðinni tekjum langt umfram útgjöld til landbúnaðarmála. íslensk landbúnaðarframleiðsla er ein meginuppspretta verðmæta á íslandi. Þau verðmæti er unnt að auka á komandi árum. ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.