Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
61
Rögnvaldur Bjami
Haraldsson, Patreks-
firði — Minning
Fæddur 10. ágúst 1927
Dáinn 25. desember 1993
Þú sem harmi þrunginn stynur
og þreytist undir byrði kífs
treystu því að inn tryggi vinur
er tímum ræður hels og lífs
þín mun græða sorgarsárin
og sérhvert þerra harma-tár.
(KJ.)
Jólahátíð var í garð gengin, gleði,
friður og fögnuður var alls ráðandi
hjá fjölskyldum bræðranna, sem
höfðu alltaf svo gott samband sín
á milli, aldrei leið sú vika að ekki
væri hringt og haft samband. Bjart-
sýnin og vonin voru allsráðandi á
þessum dögum eftir árs stríð við
veikindi og var Rögnvaldur á bata-
vegi og hafði aldrei verið bjartsýnni
en nú. Hringing símans eftir stuttan
svefn aðfaranótt 25. desember er
boðaði að Rögnvaldur væri dáinn
var því ógnvekjandi. En við þökkum
fyrir að heima í firðinum sínum
fékk hann að vera hjá ástvinum
síðustu vikurnar og deyja þar.
Rögnvaldur var sonur hjónanna
Jóhönnu Sveinsdóttur og Haralds
Jónssonar er búsett voru lengst af
í Hringsdal í Arnarfirði, bæði dáin,
og þar áttu systkinin þrjú sín
bemskuár. Þegar sest var niður og
rifjaðar voru upp æskuminningar
leitaði hugurinn ætíð þangað,
margs var að minnast og var dalur-
inn engu líkur að fegurð.
Systkinin eru Gíslína, búsett á
Dvalarheimili aldraðra í Borgar-
nesi, Steinar, búsettur í Keflavík,
og fóstursystir Guðrún, búsett í
Reykjavík.
Eiginkonu sinni Valgerði Sveins-
dóttur kynntist Rögnvaldur á Pat-
reksfirði og hafa þau ætíð búið
þar, lengst af á Brunnum 15. Einn
son eignuðust þau, Svein, búsettan
á Patreksfirði. Hann er kvæntur
Gróu Bjarnadóttur.
Rögnvaldur stundaði sjómennsku
framan af ævi en síðustu áratugi
vann hann hjá fyrirtækinu Odda
við veiðarfæragerð. Hann kynntist
snemma sjómennsku og harðri lífs-
baráttu, og voru trúmennskan og
dugnaður honum í blóð borin, enda
kominn af sterkum breiðfirskum
ættum í báða ættleggi.
Kæri mágur minn og vinur, með
þessum fátæklegu orðum vil ég
minnast þín og þakka allar ógleym-
anlegu stundir á ykkar gestrisna
og fallega heimili, einnig stundirnar
sem ég og bróðir þinn áttum með
ykkur Völlu sumarið 1992 hjá dótt-
ur okkar í Hollandi. Oft varst þú
búinn að tala um að koma með
okkur þangað. Það rættist og þökk-
um við það, ásamt fleiri sumarfríum
er við nutum saman hér heima á
ýmsum fögrum stöðum.
Elsku Valla mín, Sveinn og Gróa,
við ásamt dætrum okkar, tengda-
sonum og barnabörnum biðjum al-
góðan Guð að styrkja ykkur og
styðja í ykkar miklu sorg.
Camilla og Steinar.
Fjalar Richards-
son — Minning
Fæddur 1. mai 1969
Dáinn 27. desember 1993
Eftir ánægjulega jóiadaga í
faðmi fjölskyldunnar, þar sem allir
litu björtum augum á framtíðina
og biðu með eftirvæntingu eftir að
nýtt ár gengi í garð, kom það sem
þruma úr heiðskíru lofti að heyra
lát Fjalars. Engan óraði fyrir því
að svo stórt skarð yrði höggvið í
fjölskylduna svo snöggt. Þrátt fyrir
ungan aldur bjó Fjalar yfir mikilli
lífsreynslu og lifði hratt. Hann átti
tvö ung börn með fyrrverandi sam-
býliskonu sinni Svanhvíti Yngva-
dóttur, þau Friðrik og Lilju Mar-
gréti, og reyndist dóttur Svanhvít-
ar, Erlu Fanný, sem besti faðir.
Samskipti fjölskyldunnar á nýlið-
inni aðventu voru góð og náin og
skilja því eftir góðar minningar um
góðan dreng. Má þar til dæmis
nefna ferð bræðranna og lítilla
frænda á Langjökul sem heppnaðist
svo vel að strax voru lögð drög að
fleiri slíkum á nýju ári.
Mestur harmur er kveðinn að
foreldrum Fjalars sem hafa þurft
að bera þungar sorgir, börnum hans
sem ekki fá að njóta samvista við
föður sinn og systkinum sem sjá á
eftir góðum bróður og vini. Guð
gefi öllum styrk til að takast á við
framtíð án Fjalars.
Á sofinn hvarm þinn
fellur hvít birta
harms míns.
Um hið veglausa haf
læt ég hug minn fljúga
til hvarms þíns.
Svo að hamingja þín
beri hvíta birtu
harms míns.
(Steinn Steinarr)
Unnur, Vignir og strákarnir.
ERFIDRYKKJUR
frá kr. 850-
ími620200
PERLAN
Þvottavél C-581
14 þv.kerfi, 800 sn. vinda
VERÐ ÁÐUR 56.400,-
PFAFF
BORGARTÚNI 20
Sími626788
PFAFF EKKI BARA SAUMAVÉLAR
Upplýsingar um
umboðsaðila
hjá Gulu línunni