Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
l.tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikið umrót í s-afrískum stjórnmálum
Jóhannesarborg. The Daily Telegraph.
NOKKRIR af liðsmönnum skæruliðahers Afríska þjóðarráðs-
ins, ANC, í Suður-Afríku hafa gengið til liðs við Þjóðarflokk
F.W. de Klerks forseta og bera við óánægju með stefnu.blökku-
mannasamtakanna. Segja liðhlauparnir m.a. að mönnum af
þjóðerni Xhosa sé hampað á kostnað annarra en talsmenn ANC
fullyrða að mennirnir hafi skipt um flokk í von um að hagnast
á því fjárhagslega. Meðal liðhlaupanna eru þrír fyrrverandi
liðsforingjar.
Skæruliðar ANC voru liðsmenn
hernaðararms ANC, Umkhonto we
Sizwe, sem nefnt er MK í daglegu
tali og er vitað að allmargir þeirra
hafa gengið í Þjóðarflokkinn og
Lýðræðisflokkinn sem annars er
flokkur miðjumanna úr röðum
hvítra. Það var Þjóðarflokkurinn
sem ýtti aðskilnaðarstefnunni,
apartheid, úr vör skömmu eftir
stríð.
The CityPress, eitt af dagblöðum
svertingja í Jóhannesarborg, skýrði
frá liðsflóttanum á sunnudag og
staðfesti þar með upplýsingar frá
talsmönnum Þjóðarflokksins. Meðal
nýrra liðsmanna flokksins er Sidney
Ramasodi, félagi í sérsveitum MK,
einnig Joe Nxumalo og Vronda
Banda, sem báðir sátu árum saman
í fangelsi á Robben-eyju vegna
starfa sinna fyrir MK. Xhosa-mað-
urinn Nelson Mandela, leiðtogi
ANC, afplánaði fyrstu árin af 27
ára fangavist sinni á eyjunni.
Banda er nú framkvæmdastjóri
deildar Þjóðarflokksins í Sow'eto,
helsta hverfi svertingja í Jóhannes-
arborg. Hann sagði þremenningana
hafa skipt um flokk vegna þess að
ANC hefði enga raunhæfa stefnu
í efnahagsmálum. „Ég óttast að
þeir steypi landinu okkar út í til-
raunir sem byggja á stefnu annarra
þjóða og geri út af við efnahag-
inn.“ Hvítir S-Afríkumenn óttast
margir að kommúnistar muni hafa
mikil áhrif á efnahagsstefnu ANC
og hefja þjóðnýtingar- og ríkisaf-
skiptastefnu til öndvegis. Er Banda
var spurður hvernig honum fyndist
að vinna með fyrrverandi kvölurum
sínum svaraði hann: „Þetta er nýr
Þjóðarflokkur."
Fulltrúi Þjóðarflokksins gaf í
skyn að ein af ástæðunum fyrir
klofningnum væri þjóðaerjur innan
MK auk óánægju með að samtökin
hefðu svikið loforð um að greiða
skæruliðum sem snúið hafa heim
úr útlegð, fé sem eyrnamerkt hafði
verið til stuðnings þeim.
Reuter.
Aukið ofbeldi
MARGIR óttast að pólitískt ofbeldi muni færast mjög í aukana í Suður-Afríku eftir því sem dregur nær
fyrstu lýðræðislegu kosningunum í landinu, sem haldnar verða í apríl. Þúsundir hafa fallið í innbyrðis
átökum blökkumanna á undanförnum árum. Á myndinni má sjá lögreglumenn fjarlægja lík manns sem
skotinn var til bana af mönnum er keyrðu hjá í bifreið.
PLO hafnar skilmálum
Israela fyrir viðræðum
Túnisborg. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO, hafnaði í gær kröfu Israela um að fyrirhugaðar friðarvið-
ræður þeirra færu fram á grundvelli umdeildra tillagna, sem
komu fram í samningaviðræðum PLO og ísraela í Kaíró í vik-
unni sem leið. „Við höfnum skilmálum ísraela og við bíðum
eftir svörum þeirra við breytingum okkar á tillögunum,“ sagði
Suleiman Najab, sem á sæti í framkvæmdastjórninni, eftir fund
hennar í gær. „ísraelar bera ábyrgðina á því að viðræðurnar
hafa stöðvast.“
Framkvæmdastjórnin ræddi
skilaboð frá ísraelsstjórn um að
hún myndi ekki hefja friðarviðræð-
ur að nýju nema á grundvelli til-
lagnanna. ísraelar segja að samn-
ingamenn PLO hafi samþykkt til-
lögurnar í viðræðunum í Kaíró en
Yasser Arafat, leiðtogi samtak-
anna, hafi snúist gegn þeim.
„Það varð ekkert Kaíró-sam-
komulag til,“ sagði Najab. „Þetta
eru ísraelsk drög sem voru lögð
fyrir forystu Palestínumanna."
Amr Moussa, utanríkisráðherra
Egyptalands, kvaðst samþykkur
þessari túlkun á fundinum í Kaíró.
Ráðgert hafði verið að samn-
ingamenn PLO og Ísraela hæfu
viðræður í Taba í Egyptalandi í gær
eða dag um ýmis deilumál sem
koma í veg fyrir að brottflutningur
ísraelskra hermanna af hernumdu
svæðunum geti hafist samkvæmt
friðarsamkomulagi þeirra frá því í
september. Brottflutningurinn átti
að hefjast 13. desember.
Sjö Palestínumenn, sem hafa
beitt sér fyrir breytingum á starf-
semi PLO, skýrðu hugmyndir sínar
fyrir framkvæmdastjórninni og
hvöttu hana til að taka upp lýðræð-
islegri starfshætti. „Við ræddum
leiðir til að bæta starfsemina, koma
stofnunum Palestínumanna í nú-
tímalegra horf og tileinka okkur
lýðræðislegar hefðir,“ sagði einn
stjórnarmannanna.
Blóðugir bardag-
ar í Afganistan
Kabúl. Reuter.
BLÓÐUGIR bardagar geisuðu í tveimur afgönskum borgum í gær,
þriðja daginn í röð. Tugir mauna höfðu fallið og 870 særst í bardögun-
um og fyrrverandi hershöfðingi í her kommúnista lýsti þeim sem upp-
reisn gegn Burhanuddin Rabbani forseta.
Bardagarnir voru milli stjórnar-
hers Rabbanis og liðsmanna Abduls
Rashids Dostums hershöfðingja.
Sprengjur féllu á íbúðahverfi í mið-
borg Kabúl og talsmaður forsetans
sagði að varfærnislega áætlað
hefðu 70 manns beðið bana. Þetta
eru mannskæðustu bardagarnir í
Kabúl í hálft ár og óttast er að
þeir breiðist út næstu daga.
Rauði krossinn skýrði einnig frá
því að harðir bardagar hefðu geisað
undanfarna þijá daga í borginni
Mazar-i-Sharif, höfuðvígi Dostums.
„Við gerðum árásirnar vegna
þess að við viljum breyta stjórnkerf-
inu í Afganistan," sagði Fauzi hers-
höfðingi, yfirmaður hermanna
Dostums í Kabúl.
iveuier.
í rústunum
NAJIBULLAH Pupal, aðstoðarforstöðumaður Kabúlsafnsins, tínir
saman leirmuni úr rústum safnsins, en það eyðilagðist í bardögunum.
Euro Dis-
ney lokað?
París. Reuter.
HLUTABRÉF í Euro Disney
í Frakklandi féllu vebulega í
verði um helgina eftir að
Michael Eisner, stjórnarfor-
maður Walt Disney Co.,
sagði, að hugsanlega yrði
skemmtigarðinum lokað.
Hlutabréf í Euro Disney féllu
strax um 6% við yfirlýsingu
Eisners þótt flestir telji raunar,
að henni hafi fyrst og fremst
verið ætlað að hafa áhrif á lán-
ardrottna Euro Disney, rúm-
lega 60 bankastofnanir. Eisner
sagði í viðtali við franska viku-
ritið Le Point, að allt kæmi til
greina, einnig að loka fyrirtæk-
inu, sem rekið hefur verið með
gífurlegum halla.
Walt Disney Co. á 49% í
Euro Disney og hefur stutt það
hingað til en stuðningnum verð-
ur hætt í vor. Fyrir þann tíma
verður því að semja um skuld-
irnar og finna nýtt fjármagn
eigi fyrirtækið að lifa.
Frammámenn í
ANC til liðs við
Þj óðarflokkinn