Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
25
sem ekki er óalgengt í samskiptum
félagsmálaráðuneytisins við Sól-
heima. En það á því miður ekki
eingöngu við um Sóiheima því þeg-
ar stjórn heimilisins átti það eitt
úrræði að senda umboðsmanni Al-
þingis kvörtun vegna skerðingar á
rekstrarframlagi fyrir síðasta ár
svaraði ráðherrann ekki umboðs-
manni Alþingis þrátt fyrir að hann
hafi sent ráðherra ítrekuð tilmæli.
16. desember óskaði stjórn Sól-
heima eftir fundi með ráðherra.
Ráðherrann taldi sig ekki geta hitt
stjórn heimilisins vegna anna en
viðræður fóru fram við ráðuneytis-
stjóra og skrifstofustjóra. Á þeim
fundi las stjórn Sólheima upp bókun
í framhaldi af bréfi sínu 6. desem-
ber þar sem ráðuneytinu var kynnt
ákvörðun stjórnar heimilisins að
fatlaðir heimilismenn á Sólheimum
yrðu á ábyrgð félagsmálaráðuneyt-
isins frá og með 31. desember og
jafnframt var ráðuneytinu gefinn
enn einn fresturinn, eða til næstu
þriggja mánaða, til þess að finna
þeim annan samastað, ganga frá
þjónustusamningi eða semja um
greiðslu vegna dvalar hvers og eins
heimilismanns. Aldrei hefur komið
til greina að hætta starfi fyrir fatl-
aða á Sólheimum né leggja heimilið
niður. Hafði þá ráðuneytið haft
frest til þess að ganga frá þjónustu-
samningi í fimm ár. Sólheimar
munu starfa áfram að málefnum
fatlaðra þótt samkomulag við fé-
lagsmálaráðuneytið takist ekki.
Með hagsmuni heimilisfólks,
starfsmanna og aðstandenda í huga
óskaði stjórn heimilisins eftir því
ítrekað við ráðuneytið að málið yrði
ekki rætt í fjölmiðlum. Við þetta
gat félagsmálaráðherra ekki staðið,
reyndi ráðherrann að koma höggi
á stjórnendur heimilisins með því
að heija umræður í fjölmiðlum um
málið. Eftir viðtal við aðstoðarmann
ráðherra var frétt Ríkísútvarpsins
send út, án þess að leitað hefði
verið staðfestingar stjórnenda Sól-
heima.
Miklar breytingar hafa orðið á
Sólheimum undanfarin ár. Mikið
starf er að baki í uppbyggingu jafnt
á innra sem ytra starfi. Því miður
hefur ekki verið komist hjá erfið-
leikum sem oft fylgja breytingum,
sérstaklega þegar verið er að leggja
niður vistheimili og taka upp sjálf-
stæða búsetu. Allar meiri háttar
skipulagsbreytingar á starfi heimil-
isins eru nú að baki og þar hefur
að undanförnu ríkt mikil samstaða
og einhugur í öllu starfi, jafnt hjá
heimilisfólki og starfsfólki.
íbúar með lögheimili á Sólheim-
um eru nú yfir 80, þar af 40 fatlað-
ir. Sólheimar eru orðnir að fallegu
þorpi í Grímsnesi. Þar lifir fólk
góðu og skapandi lífi við leik og
störf. A þessu ári næst sá merki
áfangi í sögu heimilisins að ljúka
endurbyggingu alls íbúðarhúsnæðis
fatlaðra og verður þá aðstaða fatl-
aðra á Sólheimum ein sú besta sem
kostur er á hérlendis sem erlendis.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur unnið gott starf
í þágu fatlaðra, sem ber að þakka,
en viðhorf hennar og sumra nán-
ustu samstarfsmanna til Sólheima
eru óskiljanleg.
Höfundur er formaður
fulltrúaráðs og
framkvæmdastjórnar Sólheima í
Grímsnesi.
gn KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688055
TIL NOTENDA "IfBáC) M,° PENNA
Nokkuð hefur borið ó eftirlíkingum af
pennum í verslunum.
Ef þú villt vera viss um að þú sért að kaupa
ófalsaða kúlupenna þó skoðaðu
pennana hér til hliðar,
Fró l. janúar 1993 eru allir
pennar merktir hMc)°K'amkí
Ath: eftirlíkingar tMc)*'0
penna eru ekki ódýrari enMJO
%(bíc) or,o,nai pennar
Til að vera viss um %(ms) gæði og
endingu munið útlitið ó Ml 0 pennanum.
^(BÍC) 0,"G,NAL
R. Guðmundsson hf.
Skólavörðustíg 42 • 121 Reykjavík
Sími 91-10485 og 91-11506
Starfsfólk Hagkaups óskar landsmönnum öllum árs og
friðar og þakkar viðskiptin á liðnu ári.
i