Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994
Hafnarbíó kaupir eignir þrotabús Hótels Norðurlands
Kröfum að upphæð 100
milljónir kr. lýst í búið
HEILDARKRÖFUR sem lýst var í þrotabú Hótels Norðurlands við
Geislagötu á Akureyri námu tæplega 101 milljón króna. Gert er ráð
fyrir að skrifað verði undir samning um kaup hlutafélagsins Hafnar-
bíós hf. á hótelinu innan skamms.
Frestur til að lýsa kröfum í búið
rann út skömmu fyrir áramót, en
Mikið tjón
af völdum
vatnsflóðs
MIKIÐ Ijón varð í bókabúðinni
Eddu í miðbæ Akureyrar um ára-
mótin af völdum vatnsflóðs og
var í gær enn verið að hreinsa
upp og þurrka eftir flóðið.
Slökkviliðið var tvívegis kallað
út í húsnæði í miðbænum til að
dæla burt vatni.
Arnþór Björnsson, eigandi bóka-
búðarinnar Eddu, sagði að allt hefði
verið á floti er að var komið og
ökkladjúpt vatn í kjallara hússins.
Mikið tjón varð bæði á húsnæði og
eins skemmdist mikið af bókum,
tímaritum og öðrum vörum í versl-
uninni. Arnþór sagði að um heilmik-
ið tjón hefði verið að ræða en það
hefði ekki nákvæmlega verið metið
enn. Hann bjóst við að í nokkra
daga enn yrði unnið að því að
hreinsa upp.
Hitinn tekin af
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði að orsök þessa
óhapps væri að skrúfað hefði verið
fyrir hitann til hússins og þá frosið
í kaldavatnslögninni, en í hláku
skömmu fyrir áramót hefði frost-
tappinn þiðnað, og leiðslan farið í
sundur með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Slökkvilið aðstoðaði einnig við að
dæla vatni úr kjallara í blómabúð-
inni Laufás í miðbæ Akureyrar, en
þar varð að sögn Tómasar Búa ekki
mikið tjón.
fyrsti skiptafundur í búinu verður
19. janúar næstkomandi. Hreinn
Pálsson skiptastjóri þrotabús Hótels
Norðurlands sagði að enn hefði
hann ekki tekið afstöðu til allra
krafna sem bárust en að stærstum
hluta lægi fyrir að þær yrðu sam-
þykktar.
Hafnarbíó kaupir
Heildarkröfurnar í búið námu
100,7 milljónum króna, þar af voru
veðkröfur upp á tæpar 76,5 milljón-
ir króna. Forgangskröfur námu
tæplega 1,2 milljónum króna, kröf-
ur utan skuldaraðar voru um 10
milljónir króna og almennar kröfur
um 13 milljónir.
Að sögn Hreins hefur verið
ákveðið að ganga að tilboði Hafnar-
bíós hf. í eigur þrotabúsins og bjóst
hann við að skrifað yrði undir samn-
inga þess efnis næstu daga. Hafn-
arbíó hf. er í eigu Jóns Ragnarsson-
ar eiganda Hótels Arkar í Hvera-
gerði og veitingamanns á Hótel
Valhöll á Þingvöllum.
Hótel Norðurland varð gjaldþrota
síðasta haust. Flugleiðir og Flugfé-
lag Norðurlands áttu stærstan hluta
hótelsins, en rekstur þess hófst árið
1989. Húsið er á þremur hæðum
og í því eru 28 tveggja manna her-
bergi, lítill fundarsalur og veitinga-
salur fyrir um 60 manns.
Aðalfundur Skipstj óraf élags Norðlendinga
Aflamiðlim verði
settar starfsreglur
Á AÐALFUNDI Skipstjórafélags Norðlendinga, sem haldinn var fyrir
skömmu, var samþykkt að beina því til utanríkisráðherra að stjórn
Aflamiðlunar verði settar skýrar starfsreglur til að fyrirbyggja misvís-
andi leyfisveitingar eða geðþóttaákvarðanir varðandi útflutning á ísuð-
um fiski í gámum á erlenda markaði. Brýnt sé að reglurnar séu aug-
lýstar og öllum viðkomandi kunnar og jafnframt að skipum verði
ekki mismunað í leyfisveitingum eftir veiðum.
Þetta kemur fram í ályktun sem
samþykkt var á 75. aðalfundi Skip-
stjórafélags Norðlendinga sem hald-
in var fyrir áramót. Á fundinum lét
Halldói- Hallgrímsson fyrrverandi
skipstjóri af formennsku í félaginu
að eigin ósk, en hann hafði gegnt
formannsstörfum síðastiiðin 10 ár.
Við tók Þorbjörn Sigurðsson skip-
stjóri á Múlabergi ÓF 32 í Ólafsfirði.
Varaformaður félagsins er Árni
Bjarnason stýrimaður og afleysinga-
skipstjóri á Akureyrinni EA 110.
A fundinum var einnig samþykkt
að skora á stjórnvöld að heimila
skráningu fiskiskipa í íslenska skipa-
skrá, þó þau hafi ekki veiðiheimildir
innan 200 sjómílna fiskveiðilögsögu.
Fundurinn taldi brýnt hagsmunamál
sjómanna og þjóðarinnar allrar að
veiðireynsla íslenskra skipstjórnar-
manna af úthafsveiðum nýtist ís-
lendingum einum en ekki þeim þjóð-
ríkum sem leyfa þægindaskráningu
skipa og gætu þess vegna öðlast
óverðskuldað veiðirétt á alþjóðahaf-
svæðum með dyggri aðstoð íslenskra
fiskimanna. Þá skoraði aðalfundur-
inn á þingmenn Norðurlands að beita
sér fyrir tafarlausri afgreiðslu þyrlu-
kaupamálsins.
Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail VaU Vail Vail Vail Vail VaU VaU VaU
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. <
E.
býður upp ó stórkostiega skíðaferð til <
Klettafjalla ó stærsta skíðasvæði -
Bandaríkjanna, Vail, Colorado. L
Farið verður 17. febrúar og komið til baka »
4. mars. Innifalið í verði er flug til Denver, <
ferðir milli flugvallar og gististaðar,
gisting í íbúðum, sem eru í um 5-7 mín. -
gangfæri fró lyftunum, og íslensk |
fararstjórn. »
Verð á mann: <
139.900, -miðað við 2í 2ja herb. íbúð ~
129.500, - miðað við 3 í 2ja herb. íbúð &
124.300,- miðað við 4 í 2ja herb. íbúð |
135.900, - miðað við 4 í 3ja herb. íbúð |
130.500, miðað við 5 f 3ja herb. íbúð <
126.800,- miðað við 6 í 3ja herb. íbúð ~
Flugvallarskattur (2.480 kr.) er ekki innifalinn. s
GUDMUNDAR JÓNASSONAR HF. <
Borgartúni 34, sími 683222
Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vail Vaii Vail Vail Vail Vail Vail Vail
jkriiM: ' ®Jki T3 Mwwmi m u ímI - 1 lJéj a;“ ;
íiSBWWI H fipn -jjjjj 1 _ tHmm
Morgunblaðið/Rúnar Þór
í flugstöðinni
MIKIL örtröð var á Akureyrarflugvelli í gær, 9 ferðir voru farnar
milli Akureyrar og Reykjavíkur og þá voru einnig farnar 9 ferðir
á vegum Flugfélags Norðurlands til ýmissa áfangastaða félagsins.
18 ferðir frá Ak-
ureyrarflugvelli
ALLS flugu Fokkervélar Flugleiða 9 ferðir milli Akureyrar og Reykja-
víkur í gær og þá voru einnig farnar 9 ferðir til ýmissa áfangastaða
á vegum Flugfélags Norðurlands, en ekki viðraði til flugs á sunnudag,
2. janúar. Það var því mikil örtröð um tíma á Akureyrarflugvelli, en
með þessum tíðu ferðum náðist að flytja alla farþega sem áttu bókað far.
Bryngeir Kristinsson vaktstjóri
Flugleiða á Akureyrarflugvelli
sagði að fjölmargir farþegar hefðu
farið í gegnum flugstöðina á þess-
um annasama degi og mest var um
að vera í gærmorgun, en þá lentu
5 Fokkervélar á vellinum með stuttu
millibili. Fyrsta vélin lenti 9.15 og
síðan hver af annarri og um hádegi
höfðu 5 vélar lent á vellinum. Síð-
asta ferð var í gærkvöld og þá höfðu
verið flognar 9 ferðir milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur, en straumur-
inn lá suður. Um 440 farþegar fóru
frá Akureyri til Reykjavíkur og
rúmlega 100 komu að sunnan.
Ekki þurft að senda þotur
Bryngeir sagði að nýju Fokker-
vélamar reyndust vel á annatíma
líkt og var í gær og því hefði ekki
þurft að grípa til þess að senda
þotur eftir farþegum norður eins
og iðulega hefði gerst áður. Um
300 farþegar áttu bókað far suður
2. janúar, en þá var ekki flogið
vegna veðurs.
Flugfélag Norðurlands fór einnig
9 ferðir til ýmissa áfangastaða,
m.a. var tvívegis flogið tii Egils-
staða, ísafjarðar og Vopnafjarðar,
þá var flogið til Kópaskers og Rauf-
arhafnar, Þórshafnar og eins var
flogið frá Húsavík til Reykjavíkur,
fleiri en ein ferð.
Róleg'
áramót
ÁRAMÓTIN voru róleg á
Akureyri, að sögn varð-
stjóra lögreglunnar, en þó
var allmikil ölvun eftir dans-
leiki.
Fimm gistu fangageymslur
lögreglunnar á Akureyri á
nýársnótt, þar af einn sem
tekinn var fyrir meinta ölvun
við akstur. Sá hafði lent í
árekstri við aksturinn og horf-
ið af vettvangi, en náðist
skömmu síðar og var fluttur í
fangageymslu.
Þrjár rúður voru brotnar í
húsum í miðbænum, en að
sögn Árna Magnússonar varð-
stjóra lögreglunnar var allmik-
il ölvun í miðbænum eftir að
dansleikjum lauk.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Ford Explorer XLT 4x4, árgerð ’92 (ekinn 12
þús. mílur), Peugeot 605 SLI, árgerð '90 (ekinn
42 þús. km.), Nissan King Cab SE V6 4 W/D,
árgerð '89 (ekinn 35 þús. mílur) og aðrar bifreið-
ar er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn
4. janúarkl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA