Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Vladímír Zhírínovskíj var neitað um vegabréfsáritun til Þýskalands Hótaði Þjóðverjum með þriðju lieimsstyij öldinni Bonn, Moskvu. Reuter. RUSSNESKI þjóðernisöfgamaðurinn Vladímír Zhírínovskíj hótaði um helgina að tortíma Þýskalandi í þriðju heimsstyijöldinni kæmist hann til valda í Rússlandi. Lýsti hann þessu yfir eftir að þýsk sljórn- völd höfðu neitað honum um vegabréfsáritun til landsins. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sagði í viðtali á sunnudag, að ófriðurinn á Balkanskaga og uppgangur þjóðernisöfgamanna í Rússlandi sýndu, að Þjóðveijum væri nauðsynlegt að halda uppi öflugum vörnum. Túpolev-154 þota fórst í Rússlandi Eldur kom upp í öllum hreyflum Moskvu. Reuter. BRENNANDI rússnesk þota af gerðinni Túpolev-154 fórst í gær á freðnum ökrum í Síberíu og létust allir sem um borð voru, 120 manns. Fregnum bar ekki saman um hvort hún hefði splundrast á flugi eða brotnað í lendingu. Flugvélin var í eigu flugfélagsins Baikal Air. Þotan var í áætlunarflugi frá írk- útsk í Síberíu til Moskvu en það er um fimm stunda flugferð. Um borð voru að minnsta kosti 16 út- lendingar, níu Þjóðverjar, fjórir Kín- veijar, Austurríkismaður, Indveiji og Japani. Talsmaður ríkisstofnunar sem fjallar um flugslys sagði að svo virt- ist sem þotan hefði splundrast á flugi. Flugstjóri Tú-154 þotunnar hefði skýrt frá því að eldur væri laus í einum þriggja hreyfla þotunn- ar skömmu eftir flugtak í borginni írkútsk við Bajkalvatn. Er hann hefði ætlað að snúa við til borgar- innar hefði eldur kviknað í hinum tveimur einnig. Alexander Kamentskíj, formaður almannavarna írkútsk, sagði það ekki rétt vera að þotan hefði splundrast á flugi, heldur hefðu flugmennirnir orðið að nauðlenda vegna bilana. Hefði þotan brotlent á snævi þöktum akri rétt við þorpið Mamoníj, 15 km frá írkútsk. Flug- vélin hefði runnið í snjónum og hringsnúist þar til hún rakst á pen- ingshús og háspennustaura, þá hefði hún brotnað í sundur og eldur kviknað. Staðnæmdist brakið 300 metra frá þorpinu. Orsakir ókunnar Óljóst er hvers vegna kviknaði í hreyflum þotunnar. Rússneskar farþegaflugvélar eru mjög gamlar og vegna rekstrarörðugleika eiga flugfélög erfitt með að kaupa vara- hluti og eldsneyti. Jafnan er tals- vert áhætta tekin og flugvélar of- hlaðnar af fólki og vörum, bæði vegna eldsneytisskorts og til að ná sem mestum afrakstri úr hverri ferð. Eggin eru ftjóvguð með sæði karlsmanns og síðan er þeim komið fyrir í leginu. Fyrir nokkru urðu miklar deilur er það fréttist að konur á sextugs- og sjötugsaldri hefðu lát- ið koma frjóvguðum eggjum úr öðr- um konum fyrir í legi sínu til að geta alið böm þótt þær væru löngu komnar úr barneign. Frönsk stjórn- völd sögðust í gær ætla að leggja til bann við því að aðferðin yrði not- uð þegar konur yfir barneignaaldri Zhírínovskíj brást ókvæða við þegar þýsk yfirvöld neituðu að veita honum vegabréfsáritun en hann var þá staddur í Sofia í Búlg- aríu. Þýska blaðið Welt am Sonntag segir og vitnar í trúnaðar- skýrslur frá þýska sendiráðinu í Sofia, að Zhírínovskíj hafi hótað Þjóðveijum þriðju heimsstyijöld- inni og „algerri tortímingu"; að 300.000 rússneskir hermenn verði sendir aftur til Austur-Þýskalands og kröfur um gífurlegar stríðssk- aðabætur verði gerðar á hendur Þjóðveijum. Talsmaður þýska utanríkisráðu- neytisins vildi ekki staðfesta frá- sögnina í Welt am Sonntag en sagði, að viðbrögð Zhírínovskíjs sýndu enn einu sinni, að hann væri „ekki viðræðuhæfur". Oflugar hervarnir nauðsyn „Ef við lítum í kringum okkur, kemur í ljós, að ástandið í öryggis- málum er viðsjárvert og hefur ekki batnað," sagði Kohl, kanslari ættu í hlut og svipuð tillaga hefur verið borin upp á þingi Ítalíu. Siðanefnd BMA, breska lækna- sambandsins, mun koma saman í næsta mánuði til að fjalla um notkun fóstureggjanna en talsmaður hennar, Stuart Horner, sagði að nefndin hefði þegar í reynd samþykkt að mæla með því að leyft yrði að nota fóstrin með áðurnefndum hætti. „Markmið þessarar tækni er ekki að læknar geti leikið Guð,“ sagði Horner. „Ætl- Þýskalands, í viðtali við útvarps- stöð í Berlín á sunnudag og nefndi sérstaklega stríðið á Balkanskaga og mikið fylgi við Zhírínovskíj í þingkosningunum í Rússlandi. Hann sagði þó, <að mikils aðhalds yrði gætt í framlögum til varnar- mála vegna fjárlagahallans en vís- aði á bug kröfum stjórnarandstöð- unnar um mikinn niðurskurð. „Þýski herinn mun fá það, sem hann þarfnast," sagði Kohl en við- talið við hann var tekið áður en Welt am Sonntag skýrði frá yfir- lýsingum Zhírínovskíjs. Zhírínovskíj sagði í viðtali við 2x2-sjónvarpsrásina í Moskvu á sunnudag, að vændishús í Vestur- Evrópu væru jfirfull af rússnesk- um konum. „Eg var í Vestur-Evr- ópu og þvílík skömm. Öll vændis- húsin voru yfirfull af rússneskum konum. Til hvers höfum við alið upp dætur okkar. Á hálfu þriðja ári hefur Rússland breyst í svínas- tíu, sem hrekur ungt fólk út í vændi. Þessu verður að snúa við strax,“ sagði Zhírínovskíj. unin er að aðstoða lítinn hóp kvenna í traustum hjónaböndum sem ekki geta eignast börn vegna þess að þær geta ekki sjálfar framleitt egg eða fengið egg hjá öðrum konum“. Hann sagði nauðsynlegt að setja siðareglur um notkun fóstranna áður en tæknin yrði til reiðu en það gæti orðið innan tveggja ára. Sérstök, opinber stofnun er úr- skurðar í málum sem tengjast gervi- fijóvgun og fósturfræði mun koma saman næsta sumar en ekki er víst að stuðningur BMA muni nægja til að leyfið verði veitt. Fulltrúi stofnun- arinnar sagðist skilja vel að margir fylltust óhug, hann benti einnig á að slá þyrfti föstu fyrirfram hver teldist lagalega séð móðir barns sem yrði til með þessum hætti. Breskir þingmenn hafa verið harðorðir og spurt hvemig börnum yrði við ef þeim yrði sagt að móðir þeirra hefði aldrei verið til. Fjölmiðlar benda á að miklar laga- og siðferðilegar flækjur gætu komið upp. Vilja hvít börn Á Ítalíu var skýrt frá því að kona frá „Þriðjaheimslandi" hefði fætt barn eftir að hafa látið ftjóvga egg hvítrar konu með sæði eiginmanns hinnar fyrrnefndu, sem er hvítur og koma því fyrir í eigin legi. ítalska ríkisútvarpið sagði konuna telja erf- itt fyrir kynblending að alast upp í landi þar sem nær allir séu af sama kynþætti. Heilbrigðismálaráðherra Ítalíu, Maria Pia Garavaglia, hvatti til þess að sett yrðu lög til að stöðva aðgerðir af þessu tagi, ekki mætti líta á börn eins og hveija aðra neyslu- vöru sem framleidd væri eftir þörf- um. Bresk, þeldökk kona ól tvíbura á jóladag og hafði hún fengið egg úr hvítri konu en látið fijóvga það með sæði eiginmanns síns sem er af blönduðum stofni. Læknar sögðu að þessi aðferð hefði verið notuð vegna þess að erfitt væri að fá egg úr þel- dökkum konum í landinu. Stuart Horner sagði siðanefndina andvíga þessari notkun á gervifijóvgun, af- leiðingarnar gætu orðið ófyrirsjáan- legar. Heilbrigðismálaráðherra Ítalíu um nýja tækni í gervifijóvgnn Böm verði ekki framleidd eins og neysluvarningur London, Róm. The Daily Telegraph og Reuter. HARÐAR deilur eru í Bretlandi og á ítaliu vegna frétta um að lækn- ar verði innan fárra ára færir um að taka egg úr látnum kvenkyns fóstrum og koma þeim fyrir í legi ófrjórra kvenna svo að þær geti orðið þungaðar. Fóstrin verða úr konum sem ekki hafa viljað ala barnið eða misst fóstrið. Einnig hefur það vakið ugg að tvær þeldökk- ar konur, önnur í Bretlandi en hin á Italíu, hafa fengið egg úr hvít- um konum til að geta alið hvít börn með eiginmönnum sínum. „Lok- ið þessum stórmarkaði fyrir klæðskerasaumuð börn“, sagði stærsta dagblað Ítalíu, La Repubblica. Breskir og ítalskir þingmenn og tals- menn kirkjunnar hafa einnig lýst andstöðu sinni við þessar aðgerðir. Uffe „Dani ársins“ UFFE Ellemann-Jensen, fyrr- verandi utanríkisráðherra Dana, var um áramótin valinn „Dani ársins" í þriðja skipti í röð. Það er Gallup-fyrirtækið sem spurði hóp Dana hvaða maður verðskuldaði sæmdar- heitið og bar Ellemann-Jensen sigur úr býtum eftir harða samkeppni við íþróttamennina Peter Schmeichel og Micael Laudrup. Poul Nyrup Ras- mussen forsætisráðherra varð í fimmta sæti og Margrét Danadrottning í því sjöunda. Strangari agi í breskum skólum BRESKUM kennurum verður fyrirskipað í vikunni að halda uppi strangari aga í skólum landsins, að sögn The Sunday Times. „Sú hugsun að ekki megi refsa börnum er ekki gjaldgeng lengur. Við getum ekki lengur liðið slæma hegð- un í skólum,“ hafði blaðið eft- ir háttsettum embættismanni. Japanir til Bosníu? SÉRLEGUR sendimaður Sameinuðu þjóðanna í fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu, Yasushi Akashi, sagði í gær að hann gæti ekki útilokað þátttöku Japana í friðargæsl- unni í Bosníu og Króatíu. „Ef Evrópuþjóðir geta verið í Asíu ættu Asíuþjóðir að geta farið til Evrópu," sagði hann. Reynolds reynir að tryggja frið ALBERT Reynolds, forsætis- ráðherra írlands, gaf til kynna í gær að hann léði máls á til- slökunum til að koma til móts við kröfur Sinn Fein, stjórn- málaarms írska lýðveldishers- ins, IRA, og koma í veg fyrir að friðarsamkomulag Ira og Breta renni út í sandinn. Umdeild þotukaup í S-Afríku MANGOSUTHU Buthelezi, leiðtogi Zulumanna í Suður- Afríku, sætti harðri gagnrýni um helgina þegar upplýst var að stjórn hans í Kwazulu, sem er skuldum hlaðin, hefði keypt einkaþotu fyrir jafnvirði 750 milljarða króna. „Craxisminn“ burt BETTINO Craxi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu sem varð að segja af sér sem leið- togi Sósíalistaflokksins vegna spillingarmála, hefur orðið fyrir enn einu áfallinu: ákveðið hefur verið að sleppa orðinu „craxismi" úr virtri ítalskri orðabók. Ritstjórinn sagði að „craxisminn" væri liðinn undir lok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.