Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐURB/C 3. tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Moskvu. Reuter. ZVIAD Gamsakhurdia, fyrrverandi forseti Georgíu, svipti sig lífi á gamlársdag og tók þann kost heldur en að falla í hendur óvinum sínum. Hafði rússneska fréttastofan ínterfax þetta eftir eiginkonu hans í gær en georgíska innanríkisráðuneytið segir það rangt. Gamsakhurdia hafi ekki stytt sér aldur, heldur verið skotinn í Grosníj í Suður-Rússlandi. Manana, eiginkona Gamsak- hurdia, sagði í gær í Grozníj, höf- uðborg rússneska sjálfstjórnarhér- aðsins Tsjetsjníja, að maður sinn hefði svipt sig lífi í Vestur-Georgíu þar sem hann stóð fyrir uppreisn gegn stjórninni í Tbilisi og Edúard Shevardnadze, leiðtoga Georgíu, síðastliðið haust. Hefði hann frem- ur kosið dauðann en vera handtek- Fischer af- þakkar 350 milljónir BOBBY Fischer hefur hafnað til- boði um fimm milljónir dala, jafnvirði 350 milljóna króna, í verðlaunafé fyrir skákeinvígi sem fyrirhugað er á milli hans og skákkonunnar Judit Polgar, að sögn spænska skákblaðsins Jaque. Móðir skákkonunnar, Clara Polg- ar, staðfesti þetta í samtali við blað- ið. „Þetta er rétt. Breskt áfengisfyr- irtæki bauð þessa fjárhæð. Við vor- um hlynnt þessu, en Fischer er ósveigjanlegur þegar auglýsingar um áfengi og tóbak eru annars vegar.“ Clara Polgar bætti við að verið væri að semja um önnur tilboð en ekkert hefði verið ákveðið enn. mm Gamsakhurdia inn. Blaðafull- trúi Gamsakhur- dia í Grozníj sagði, að hann hefði gefið út sérstaka yfirlýs- ingu áður en hann fyrirfór sér þar sem hann sagði, að með dauða sínum vildi hann mótmæla núverandi stjórn í Georgíu. Þessi frétt hefur ekki verið stað- fest en talsmaður innanríkisráðu- neytisins í Tbilisi sagði, að sam- kvæmt heimildum þess hefði verið skotið á Gamsakhurdia þegar hann kom til Grosníj frá Georgíu 30. desember og hefði hann síðan lát- ist af sárum sínum í gær. Sagði talsmaðurinn, að yfirlýsingin um sjálfsmorðið væri líklega áróðurs- bragð, sem ætlað væri að stappa stálinu í stuðningsmenn Gamsak- hurdia í Georgíu. Enn aðrir draga í efa að Gamsakhurdia sé látinn. Indíánar í uppreisnarhug Reuter MEXÍKÓSKI flugherinn gerði loftárásir í gær á stöðv- ar uppreisnarmanna í suðurausturhluta Mexíkó en jafn- vei er talið, að nokkur hundruð manna hafi fallið í átökum þeirra við stjórnarherinn frá því uppreisnin hófst fyrir sex dögum. Uppreisnarmenn, bændur af indíánaættum, lögðu undir sig nokkra bæi en eru nú flestir flúnir til fjalla. Hér eru stjórnarhermenn að leggja til atlögu við þá skammt frá borginni San Cristobal de Las Casas. Sjá „Bjóða uppreisnarmönnum ...“ á bls. 26. Rússar bregðast hart við NATO-umsókn Litháa Vara við hemaðar- legnm óstöðugleika Moskvu, Prag. Reuter. RÚSSAR brugðust skjótt og hart við umsókn Litháa um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO, og sögðu að stækk- un bandalagsins svo langt í austur gæti valdið pólitískum og hernaðarlegum óstöðugleika í Mið- og Austur-Evrópu. Lítii áhrif á varn- ir á norðurslóðum „OKKUR er ekki fullkunnugt um niðurstöður samninga íslendinga og Bandaríkjamanna og getum því ekki sagt mikið um þær,“ sagði Erik lanke, blaðafulltrúi Torolfs Reins aðmíráls, yfirmanns norska heraflans, er hann var inntur viðbragða í Noregi við niðurstöðu varnarviðræðna íslenskra og bandarískra stjórnvalda. „Út af fyrir sig kemur þetta ekki á óvart, með tilliti til breyttra umsvifa eftir lok Kalda stríðsins. Við vissum að einhver samdráttur yrði og eitthvað af þessu sem þú nefnir hefur verið í umræðunni á fyrri stigum málsins," sagði Ianke þegar honum voru tjáð helstu efnisatriði samkomulagsins; um fækkun F-15 flugvéla og lokun SOSU S-kafbátaeftirlitskerfisins og fjarskipta- og miðunarstöðvar- innar í Rockville. „Það er of snemmt að segja eitthvað ákveðið um áhrif samn- inganna á norskar varnir eða stöðu varnarmála á norðurslóðum. Ég held þó að segja megi að áhrif- in séu óveruleg. Við höfum vissar áhyggjur af þróun mála í Rúss- landi í ljósi niðurstöðu þingkosn- inganna í fyrra mánuði en-ef að- stæður breyttust yrði mögulegt að auka varnarviðbúnað á norður- slóðum mjög hratt, einkum á ís- landi. Þangað má senda flugvélar á nokkrum klukkutímum," sagði Erik Ianke. Vjatsjeslav Kostikov, talsmaður rússnesku stjórnarinnar, sagði það mikið áhyggjuefni hversu ákaft Lit- háen og önnur fyrrverandi komm- únistaríki í Mið- og Austur-Evrópu sæktust eftir aðild að NATO. Það kvað hann kalla á „árvekni" af hálfu Rússa. Kostikov sagði að Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hefði áhyggjur af hugsanlegri stækkun NATO í austur og vænti þess að Ieiðtogar aðildar- ríkjanna mörkuðu skýra stefnu í þessu máli á fundi þeirra á mánudag í næstu viku. „Forsetinn hefur áhyggjur af því að stækkun banda- lagsins, sem fái ný aðildarríki við rússnesk landamæri, skapi neikvæð viðbrögð almennings í Rússlandi," sagði talsmaðurinn. „Slíkt myndi ala á óæskilegum viðhorfum á meðal almennings og innan hersins, og það gæti skapað hernaðarlegan og póli- tískan óstöðugleika." Eistlendingar og Lettar ætla að bíða Stjórnvöld í Lettlandi og Eistlandi sögðust sátt við ákvörðun Litháa en tóku fram að þau myndu ekki fara að dæmi þeirra að svo stöddu. Rúss- neskir hermenn eru enn í Lettlandi og Eistlandi og þau hafa einnig átt í deilum við stjórnina í Moskvu vegna meintra brota á réttindum rússneska minnihlutans í Eystrasaltsríkjunum. Skjót og hörð viðbrögð Rússa við umsókn Litháa beinir athyglinni að vanda Atlantshafsbandalagsins, sem áður hafði fengið aðildarumsóknir frá Tékkum, Pólvetjum, Ungveijum og Slóvökum. Á meðal þeirra gætir vaxandi ótta við að NATO hafni umsóknum þeirra. Fyrir hálfu ári var almennt talið að leiðtogar NATO-ríkjanna myndu greiða fyrir inngöngu ríkjanna fjög- urra á fundinum á mánudag. Þegar Borís Jeltsín heimsótti Tékka og Pólveija í ágúst kvaðst hann ekki vera andvígur aðild þeirra að NATO. Nokkrum vikum síðar, að því er virt- ist vegna þrýstings frá rússneska hernum, sagði Jeltsín hins vegar að rússneska stjórnin gæti ekki sætt sig við stækkun NATO í austur. Mið-Evrópuþjóðirnar telja að með því endurskoða afstöðu sína eftir kúvendingu Jeltsíns sé NATO að veita Rússum neitunarvald í málum sem varða fyrrverandi leppríki þeirra. Finnar vilia að- Mað EB Astæðan sögð ótti við Zhírínovskíj Helsinki. Frá Lars Lundsten, frétta- ritara Morgunblaðsins. SIGUR þjóðernisöfgamanna í Rússlandi er talinn hafa valdið því, að nú er meiri- hluti Finna hlynntur aðild að Evrópubandalaginu, EB. Samkvæmt nýrri Gallup- könnun segjast 53% kjósenda vera samþykk aðildinni en 47% eru henni andvíg. Fylgi við aðild Finn- lands að Evr- ópubandalag- inu minnkaði allt síðasta ár en eftir kosn- ingarnar í Rússiandi 12. desember snerist sú þróun við. í könnuninni nú var í fyrsta skipti spurt eins og spurt verður í þjóðaratkvæðagreiðsi- unni um EB í nóvember, hvort svarið væri já eða nei við aðild. Þess vegna var ekki um að ræða neina óákveðna. Menntað borg- arfólk er yfirleitt hlynnt EB- aðild en rúmlega 90% bænda eru á móti henni. Þá er ungt fólk mun hrifnara af henni en það, sem komið er yfir miðjan aldur. Zhírínovskú' Deilt um dauða Gamsakhurdia
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.