Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Mexíkósk stjórnvöld segja herinn að ná yfirhöndinni í uppreisn smábænda Bjóða uppreisnarmönniim við- ræður en krefjast vopnahlés San Cristobal de las Casas í Mexíkó. Reuter. UPPREISN nokkur hundruð fá- tækra smábænda í suðurhluta Mexíkó hefur kostað 93 mannslíf en talsmenn stjórnvalda fullyrtu í gær að hún væri að fjara út. Stjórnvöld i Mexíkóborg buðu uppreisnarmönnum í gær viðræð- ur um kröfur þeirra en settu skil- yrði um að lýst yrði yfir vopna- hléi, bændur afhentu vopn sín og sprengiefni og létu fanga og gísla lausa. Fréttamenn Reuters- fréttastofunnar sögðu að herinn virtist vera að ná yfirhöndinni í flestum borgunum sem bænda- herinn tók á nýársdag. Pjöldi hermanna hefur verið send- ur til svæðisins og flugherinn réðst í gær á stöðvar uppreisnarmanna með vélbyssum og eldflaugum í E1 Corralito, skammt frá borginni San Cristobal de las Casas. Umræddar borgir eru í Chiapas- héraði og hreyfíng uppreisnar- manna, Þjóðfrelsisher Zapata, kenn- ir sig við fræga hetju úr átökum fyrr á öldinni. Smábændurnir eru flestir af þjóðerni Maya sem fyrr á öldum voru mikið veldi á þessum slóðum. Þeir eru bláfátækir og draga fram lífið á búhokri sem þeir óttast að verði í hættu vegna frí- verslunarbandalags Norður-Amer- íku, NAFTA. Mayamir saka stjórn- völd í Mexíkóborg um þjóðarmorð, krefjast þess að fá aftur jarðnæði sem stjórnvöld hafí tekið af þeim og hóta að berjast fram í rauðan dauðann. Opinber tala fallinna er 93 en embættismaður í borginni Tuxtla Gutierrez tjáði fréttamönnum að allt að 150 hermenn kynnu að hafa týnt lífí. Innanríkisráðuneytið sagði uppranalega að uppreisnarmenn hefðu tekið sex borgir en talan hef- ur síðan verið nokkuð á reiki; i gær sagðist stjómarherinn ráða lögum og lofum í fjórum borganna. Sjálfir segja leiðtogar bændahersins að þeir hafí aðeins hörfað til að endur- skipuleggja liðið, aftur verði hafin sókn. Rsutcr A vígvellinum ÍBÚI þorpsins Ocazingo í suðurhluta Mexíkó gengur framhjá líkum fjögurra uppreisnarmanna sem biðu bana í skotbardaga við stjórnarhermenn. Uppreisnarmennirnir hafa enn hluta þorpsins á valdi sínu. Gorbatsjov segir Zhírínovskíj frábæran leikara í stjórnmálum KGB bakhjarl þjóðernissinna? Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, síðasti forseti Sovétríkjanna, sagði í blaðavið- tali sem birt var á þriðjudag að þjóðernissinninn Vladímír Zhír- ínovskíj væri „frábær leikari á stjórnmálasviðinu" og nauðsynlegt væri að afhjúpa „leikstjórann" á bak við hann. Gorbatsjov kvaðst eitt sinn hafa fengið upplýsingar um að Zhír- ínovskíj hefði hafið afskipti af stjórnmálum með stuðningi örygg- islögreglunnar KGB. „En ég veit ekkert með vissu. Útiloka ég það? Gæti KGB búið til heilan flokk?“ sagði Gorbatsjov og svaraði ekki spurningunni. „Það er engum vafa undirorpið að einhveijir uppgötvuðu hæfileika hans og þeir ætla að nota þá í framtíðinni.“ Flokkur Zhírínovskíjs, Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn, kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1990 þegar for- seti sovéska þingsins bauð honum til viðræðna í Kreml með leiðtogum annarra smáflokka. Margir af and- stæðingum Gorbatsjovs á þessum tíma voru með vangaveltur um að KGB stæði á bak við flokkinn. Zhírínovskíj vakti fyrst verulega athygli ári síðar þegar hann bauð sig fram gegn Borís Jeltsín í for- setakosningum. Kosningabarátta hans þótti vel skipulögð og Zhír- ínovskíj virtist hafa meira fjármagn en hinir frambjóðendurnir. Zhírínovskíj hefur þegið boð þýska hægriöfgaflokksins, Þýska bandalagsins, um að sitja þing evr- ópskra hægriöfgaflokka í Köln í næsta mánuði. —---------------------------------------------------s Hjúkrunarfrœöingar Stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga laugardaginn 15. janúar 1994. Dagskrá:. Kl. 10—12 Borgarleikhúsió: Undirbúningur fyrir stofnfund. Tilgangur fund- arins er að skiptast á skoðunum um málefni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Kl. 14—17 Borgarleikhúsió: Stofnfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Dagskrá samkvæmt drögum að lögum hins nýja félags. Að stofn- fundi loknum verður móttaka á vegum Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Kl. 19.30 Hótel ísland: Hátíðarfagnaður. Þríréttaður kvöldverður. Skemmti- atriði á vegum hjúkrunarfræðinga. Dans. Verð kr. 3.500. Miðasala á skrifstofum Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga og Hjúkrunarfélags Islands. Stjórnir Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og Hjúkrunarfélags Islands. Bosnía og Króatía Lofa að und- irbúa frið- aráætlun Vín. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bosníu og Kró- atíu samþykktu í gær að „reyna af fremsta megni“ að undirbúa vopnahlésáætlun fyrir öll átaka- svæðin í Mið-Bosníu fyrir fund forseta ríkjanna í Bonn á laugar- dag. Þetta kom fram í sameiginlegri yfírlýsingu Haris Silajdzics, forsæt- isráðherra Bosníu, og Mates Granics, utanríkisráðherra Króatíu, eftir tveggja daga fund þeirra í Vín. Þar sagði að báðir aðilarnir myndu „hætta öllum hernaði og skapa skil- yrði fyrir varanlegt vopnahlé, tryggja öryggi borgaranna og gera ráðstafn- ir til að skapa gagnkvæmt traust.“ Á fundinum var nokkuð komið til móts við kröfur múslima um aðgang að sjó með samkomulagi um fríhafn- arsvæði í króatísku borginni Ploce við Adríahaf. Samningamennirnir voru einnig sammála um að deilur um landamæri ætti að leysa í samn- ingaviðræðum og „án valdbeitingar“. Thorvald Stoltenberg, sáttasemj- ari Sameinuðu þjóðanna, kvaðst vona að væntanlegt vopnahléssamkomu- Iag „endist lengur en þeir 69 vopna- hléssamningar sem gerðir hafa verið til þessa“. Friðarvið- ræðum frestað YITZHAK Rabin, forsætisráð- herra ísraels, tilkynnti í gær að friðarviðræðum ísraela og Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) yrði ekki haldið áfram í þessari viku, þar sem gildi þess sem undirritað hefði verið í Karíó væri enn óljóst. Áður hafði háttsettur maður innan PLO sagt mögulegt að viðræðurnar héldu áfram í gær. 100 skógareld- ar í S-Wales LÖGREGLA, her, slökkvilið og sjálfboðaliðar börðust í gær við yfir 100 skógarelda, sem log- uðu víðs vegar um Nýju Suður- Wales í Ástralíu. Talið er að brennuvargar hafi verið að verki í flestum tilfellum en nú þegar hafa þrír látið lífið og Ú’öldi fólks misst heimili sín. Holst í göngu- og talþjálfun JOHAN Jorgen Holst, utanrík- isráðherra Noregs, sér fram á langt sjúkraleyfi eftir slag, sem hann fékk fyrir um hálfum mánuði en álag hefur verið gíf- urlegt á Holst á árinu. í kjölfar slagsins hefur Holst átt í erfið- leikum með gang og að tjá sig og mun á næstu mánuðum sækja tal- og gönguþjálfun. Hann fylgist þó með störfum í ráðuneytinu, en fulltrúar þess ræða daglega við ráðherrann. Kúbverjar leita hælis FLUGVÉL á leið frá Kúbu til Jamaíka, lenti á Grand Cay- man-eyju í Karíbahafi í gær og báðust áhöfn og farþegar hæl- is. Kúbveijar voru í fimm manna áhöfn en farþegarnir, ellefu talsins, voru af öðru þjóð- erni. Engar frekari upplýsingar voru gefnar um fólkið í gær. Biðraðir fyrir bí? BRESKA biðraðamenningin má muna sinn fífil fegurri, að áliti breskra sálfræðinga. Kvartar Peter Collett við há- skólann í Oxford, yfir því að æ algengara sé að fólk troði sér fram fyrir í biðröðum, sem hafa þótt aðalsmerki bresks samfé- lags. Stal 1.200 nærbuxum JAPANSKA lögreglan hafði í gær hendur í hári manns á þrítugsaldri, sem hafði stolið um 1.200 nærbuxum skóla- stúlkna. Braust maðurinn inn í búningsklefa í um 300 skólum til að verða sér úti um buxur. Skólastúlkur í bláum skólabún- ingum og hvítum nærbuxum eru vinsælt. viðfangsefni í jap- anska klámiðnaðinum og hugð- ist þjófurinn selja buxurnar. Yfirborð sjáv- ar hækkar af mannavöldum RANNSÓKN bandarískra vís- indamanna hefur Jeitt í ljós að yfirborð^ sjávar hefur hækkað að þriðjungi til af mannavöld- um, sérstaklega áveitu. Segja vísindamenn við ríkisháskólann í Ohio að yfirborð sjávar hafi hækkað að meðaltali um 1,75 millimetra á þessari öld og þar af um 0,54 mm af mannavöld- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.