Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Togarinn Snorri Sturluson heldur til úthafsveiða Sjómenn eru áhugasam- ir að komast í skiprúm GRANDI hf. áætlar að senda togara sinn Snorra Sturluson á veiðar utan 200 mílna fiskveiði- lögsögunnar í febrúar. Skipið er kvótalaust og verður úrelt vegna kaupa fyrirtækisins á Þerney. Gert er ráð fyrir 10-11 mánaða úthaldi. Margir sjómenn vilja komast í skiprúm á Snorra. Grandi hf. hefur auglýst eftir skipstjóra á Snorra Sturluson og hafa margar umsóknir borist. Sig- urbjörn Svavarsson, útgerðarstjóri Granda hf., býst við að ráðið verði um helgina. Skipstjórinn mun síð- an ráða annan mannskap en Sig- urbjöm sagði að margir vildu ráða sig í skiprúm enda mikið atvinnu- leysi hjá sjómönnum í Reykjavík. 26-27 menn verða í áhöfn og með föstum afleysingamönnum fá 33-34 sjómenn störf við það. Þetta er hrein viðbót við starfsemi Granda hf. Eitt tekur við af öðru Áhöfn Snorra Sturlusonar flutti sig yfir á nýja skipið, Þemey RE, og kvótinn var einnig fluttur á nýja skipið. Ákveðið hefur verið að gera Snorra út á ókvótabundn- ar tegundir. Grandi hefur ákveðinn frest til að afskrá skipið. Vonast Sigurbjörn til að fá það skráð á íslenska skipaskrá án veiðileyfís í samræmi við nýjar reglur sem boðaðar eru í væntanlegu frum- varpi. Segir Sigurbjörn það mun hagkvæmara fyrir þjóðina, annars þurfi að skrá skipið erlendis og veiðireynslan komi þá öðrum þjóð- um til góða við úthlutun kvóta úr stofnum sem það sæki í. Snorri Sturluson verður á út- hafskarfa í 6-8 mánuði, síðan tek- ur eitt við af öðm, blálanga, grá- lúða og rækja við Nýfundnaland. Síðan verður skipið sent til veiða í Smugunni í Barentshafi, að sögn Sigurbjöms, ef þar verður físk að fá. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 43 ■r3 veður úrkoma léttskýjað Bergen 1 léttskýjað Helsinki 46 alskýjað Kaupmannahöfn 4 rigning Narssarssuaq 43 heiðskírt Nuuk 47 skýjað Ósló 42 snjókoma Stokkhólmur 1 skýjað Þórshöfn 3 skúr Algarve 15 skýjað Amsterdam 6 rigningog súid Barcelona 14 skýjað Beriín 6 alskýjað Chicago vantar Feneyjar 5 þokumóða Frankfurt 7 rigning Glasgow 3 rigning Hamborg 5 skýjað London 8 skúr LosAngeles 13 þokumóða Lúxemborg 5 rigning Madríd 7 aiskýjað Maiaga 15 léttskýjað Mallorca 14 féttskýjað Montreal 414 snjókoma NewYork 44 léttskýjað Orlando vantar París 8 rigning Madeira 16 skýjað Róm 16 léttskýjað Vín 10 léttskýjað Washington vantar Winnipeg 430 léttskýjað Snjórinn kominn íBláfjöIl SÍÐUSTU daga hafa skíðamenn fjölmennt í Bláfjöll að sögn Þor- steins Hjaltasonar fólkvangsvarðar og hefur myndast biðröð við lyft- urnar. „Með gætni hefur verið hægt að nota sér færið en við höfum þurft að ýta til snjónum efst í brekkunum," sagði hann. „Ef menn gá ekki að sér er alltaf hætt við að þeir lendi á steinum sem standa uppúr. Best er við stólalyftuna, þar er góður snjór.“ Þijá daga í viku, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, eru lyftur í gangi frá kl. 10 að morgni til kl. 22. Aðra daga er opið frá kl. 10 til 18. Alþjóðleg siglinga- keppni verður í sumar SIGLINGASAMBAND íslands, samgönguráðuneytið og Reykjavíkur- borg hafa tekið höndum saman um að kanna möguleika á að halda árlega alþjóðlega siglingakeppni við ísland. Undirbúningsvinna er hafin, en stefnt er að því að keppnin verði haldin sem næst þjóðhá- tíðardeginum, 17. júní. Að sögn Þórhalls Jósepssonar aðstoðarmanns samgönguráðherra sem á sæti í nefndinni er hugmyndin sú, að Sigl- ingasambandið sjái um framkvæmd keppninnar með samvinnu Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytisins. Byijað verður á viðráðanlegri keppni en lögð áhersla á að þjálfa menn í að stjóma slíkri keppni eft- ir alþjóðlegum reglum með alþjóð- legum dómurum. Einnig er mark- miðið að útbúa kyningarefni fyrir sjónvarp til dreifingar erlendis og bjóða jafnvel blaðamönnum þekktra siglingatímarita til landsins. Verður þannig strax hafin markaðssetning erlendis. „Við vonum síðan að þetta hlaði utan á sig og umsvifin verði heilmikil eftir nokkur ár,“ sagði Þórhallur. 2-3 daga keppni Gert er ráð fyrir a.m.k. 2-3 daga keppni, þar sem siglt yrði frá Reykjavíkurhöfn til Vestmannaeyja og aftur til Reykjavíkur. Hugsan- lega verður einnig boðið upp á styttri siglingaleiðir fyrir minni skútur. „Ef horft er til lengri fram- tíðar er markmiðið að keppnin nái hringinn í kringum landið. Þegar hún hefur verið haldin nokkrum sinnum er hugsanlegt að hún hafí skapað sér nafn á erlendum vett- vangi og hingað komi þá þekktir siglingakappar," sagði Þórhallur og bætti við að þeim fylgdi að jafnaði bæði sjónvarpstökumenn og frétta- menn frá hinum ýmsu löndum. Sjá ennfremur „Framleiða 4-5 skútur ...“ bls. 2B viðskipta- blaði. Jólatrén hirt fólki að kostnaðarlausu NÆSTU daga munu starfsmenn Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðar og Kópavogs taka við jólatrjám frá íbúum og farga. í Garðabæ sér hjálparsveitin um að safna þeim saman og á Seltjarnarnesi er það íþróttafélagið Gerpla. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu. Á Seltjarnamesi verður tijánum safnað saman föstudaginn 7. janúar en í Reykjavík laugardaginn 8. jan- úar og í Garðabæ á laugardag og sunnudag. í Hafnarfirði og Kópa- vogi fer söfnunin fram mánudaginn 10. janúar. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að setja jólatrén framan við lóðar- mörk þar sem sést til þeirra. Engin söfnun er í Mosfellsbæ en samkvæmt upplýsingum frá áhaldahúsi bæjarins hafa íbúar á undanförnum árum lagt tré sín á 13. brennu sem bærinn stendur fyrir eða sjálfir komið þeim til Sorpu. Verð á eggjum hækkar VERÐ á eggjum hækkaði í gær, þrátt fyrir að um áramótin hafi kjarnfóðurgjald lækkað í 12,5% úr 25%. Bjarni Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Félags eggjaframleiðenda, segir að þrennt komi til, eggjabændur hafi frestað leyfilegri hækkun 1. september og hún komi til framkvæmda nú, nýr verðlagsgrundvöllur hafi ekki verið reiknaður út eftir niðurfellingu kjarnfóðurgjaldsins og um áramótin hafi endurgreiðslum til eggjabænda verið hætt. Heildsöluverð á einu kílói af eggjum er nú 300 kr., en var áður 275 og nemur hækkunin 9,41%. í Hagkaup fengust þær upplýsingar að egg hefðu hækkað í versluninni og kostar kílóið nú 359 kr. í stað 347 króna áður. Bjarni Stefán segir að á milli þess sem verðlagsgrundvöllur sé reiknaður út sé ekki hægt að breyta honum. Hins vegar sé hægt að geyma að setja breytingarnar sem á honum verða út í verðlagið í einhvern tíma. Það hafi verið gert 1. september. Hann segist búast við því að þegar nýr grund- völlur verði reiknaður út 1. mars muni verðið lækka eitthvað aftur, ef miðað er við að engar ytri að- stæður breytist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.