Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 56
ttrgpunÞlftfrtfr
m
HEWLETT
PACKARD
HP Á fSLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, simi (91) 671000
Frá tnögulcika tii veruleika
MORGUNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
StMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTllÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 86
FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Erlendur
bankí tók
íslenskar
krónur
BANK of America í London samþykkti nýlega að taka við 40
milljónum í íslenskum krónum vegna viðskipta Fjárfestingarfé-
lagsins Skandia hf. Annaðist bankinn greiðslur í tengslum við
kaup Skandia á verðbréfum frá alþjóðlega verðbréfafyrirtækinu
Fidelity.
Erlendir bankar hafa hingað
til ekki átt viðskipti með íslensk-
ar krónur í neinum mæli eftir
því sem næst verður komist.
Nokkrir erlendir bankar munu
þó eiga reikninga í íslenskum
bönkum. Ekki liggja fyrir upp-
lýsingar um hvernig erlendi
bankinn hugðist ráðstafa krón-
unum eða hvort þær hafa skilað
sér aftur til íslands.
Sjábls. B1
Vestfirðingar hafa veitt 56% af þorskkvótanum
Möguleikar kannaðir á
netaveiðum í Smugunni
ÚTGERÐARMENN eru að athuga möguleikana á að senda báta sína
til netaveiða í Smugunni í Barentshafi í vor og salta aflann um borð.
Einar Oddur Kristjánsson, stjórnarformaður Iljálms hf. á Flateyri,
segir að margir útgerðarmenn séu að athuga hvað til bragðs eigi
að taka í vor þegar kvótinn verði búinn og komi Smugan og Flærnski
hatturinn þar til greina. Hjálmur hf. á tæplega 200 lesta bát sem
til greina kemur að senda til þessara veiða og gæti svo farið að 100
íslensk skip yrðu í Smugunni í sumar.
Skip skráð á Vestfjörðum hafa
veitt vel af þorski í vetur og hefur
gengið ört á þorskkvóta þeirra. Skip
í kjördæminu eru nú búin að veiða
liðlega 10 þúsund tonn af þorski á
fyrstu fj'órum mánuðum fiskveiðiárs-
ins og er það 56% af þeim þorsk-
Sólargangur lengist
Morgunblaðið/RAX
BJART og fallegt veður hefur verið suðvestanlands
það sem af er nýja árinu og sólargangurinn lengist
dag frá degi. í dag, á þrettánda degi jóla, verður
sólin 35 mínútum lengur á lofti en þegar dagur var
stystur, á vetrarsólstöðum, sem voru 21. desember.
Sólarupprás í Reykjavík í dag er klukkan 11.22 og
sólarlag verður klukkan 15.55.
kvóta sem þau hafa til ráðstöfunar
á árinu. Rúm 7.800 tonn eru eftir
fyrir þá átta mánuði sem eftir eru
af kvótaárinu. Að meðaltali á landinu
öllu er nú búið að veiða 37% þorsk-
kvótans og hefur gengið mun hraðar
á hann en í fyrra þegar 22% höfðu
veiðst á þessum tíma.
Kvótinn búinn á Flateyri
Ástandið er verst á Flateyri. Bát-
amir þar eru almennt búnir með
þorskkvótann. Hins vegar eiga tvö
stærstu skipin eftir af viðbótarkvóta
sem tekinn var á leigu fyrir áramót-
in. Einar Oddur segir að sá kvóti og
væntanlegur kvóti Hagræðingar-
sjóðs dugi til að fleyta skipunum
fram í steinbítsvertíð í febrúar. Hins
vegar viti menn ekki hvað til bragðs
eigi að taka í maí þegar steinbítsver-
tíðinni ljúki en þá verði fjórir mánuð-
ir eftir af fiskveiðiárinu.
Einar Oddur segir vitað að Norð-
menn og jafnvel Færeyingar hafi
veitt í net í Barentshafi en þeim
hafí gengið illa með línuveiðar. Því
sé verið að afla upplýsinga um þess-
ar veiðar og athuga möguleikana á
að senda stærri bátana á netaveiðar
þangað og hugsanlega einnig á
Flæmska hattinn. Gangi þetta eftir
er hugsanlegt að 100 íslensk skip
verði í Smugunni í sumar og segir
Einar Oddur að þá megi búast við
að eitthvað heyrist í Norðmönnum.
Sjá frétt um kvótann á miðopnu.
Flugleiðir semja við flugmenn um
lengri flugtíma og áfangaeftirlit
Hlutdeild flugmanna
í spamaði þýðir um
6% hærri útborgun
GENGIÐ hefur verið frá nýjum samningi milli Flugleiða og flug-
manna félagsins sem felur m.a. i sér lengri flugtíma flugmanna og
að þeir taki að sér áfangaeftirlit á vélum félagsins á flugvöllum
erlendis. Flugmenn fá á móti hlutdeild í þeim sparnaði sem verður
við þetta fyrirkomulag og getur þýtt rúmlega 6% hærri útborgun.
Einar Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, sagði að samn-
ingurinn fæli ekki í sér beina launa-
hækkun heldur væri um að ræða
hagræðingu sem kæmi bæði félag-
inu og flugmönnum til góða.
Merkilegur samningur
„Það sem breytist er annars veg-
ar það að hámarksflugtími á dag
Formlegar tillögur Bandaríkjamanna um niðurskurð á Keflavíkurflugvelli
Vildu kalla allar F-15 þot-
ur og 900 hermenn heim
TILLÖGUR þær sem Bandaríkjamenn lögðu
fram á fundi með íslensku viðræðunefnd-
inni hér í Reykjavík 6. ágúst sl. fólu m.a.
það í sér að allar 12 F-15C Eagle orrustuþot-
urnar sem hér hafa verið staðsettar yrðu
hinn 1. janúar 1994 kallaðar heim til Banda-
ríkjanna, ásamt 554 starfsmönnum banda-
ríska flughersins. Jafnframt lögðu Banda-
ríkjamenn til að þyrluflugbjörgunarsveitin
yrði kölluð heim til Bandaríkjanna, ásamt
100 starfsmönnum hennar. Samtals gerðu
tillögur Bandaríkjamanna ráð fyrir að Iið-
lega 900 varnarliðsmenn væru kvaddir heim
til Bandaríkjanna, eða um þriðjungur
varnarliðsmanna.
Fyrstu vísbendingu um áform bandarískra
hernaðaryfirvalda fengu íslensk stjórnvöld hinn
16. apríl sl. þegar þeim barst skeyti úr banda-
ríska utanríkisráðuneytinu, sem gaf stórfelldan
niðurskurð hér á landi sterklega til kynna.
Þessara upplýsinga aflaði Morgunblaðið úr
bandaríska stjórnkerfinu í Washington, þegar
í maíbyijun á liðnu ári.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var
það ófrávíkjanleg afstaða Bandaríkjamanna að
kalla allar F-15 þoturnar heim 1. janúar sl.
allt þar til óformlegar viðræður um framkvæmd
varnarsamningsins frá 1951, á æðri stjórnstig-
um, á milli íslenskra og bandarískra ráðamanna
höfðu farið fram. Með því er m.a. vísað til fund-
ar þeirra Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
og A1 Gore, varaforseta Bandaríkjanna, í Was-
hington 3. ágúst sl. og þess að utanríkisráðherr-
ar landanna, þeir Jón Baldvin Hannibalsson og
Warren Christopher, ræddust við í New York
28. september síðastliðinn. Þá ræddust þeir Jón
Baldvin og Warren Christopher í tvígang við á
nýjan leik 3. desember síðastliðinn í Brussel á
meðan á utanríkisráðherrafundi Atlantshafs-
bandalagsins stóð.
í framhaldi af þessum viðræðum bárust upp-
lýsingar um að bandarísk stjórnvöld myndu
ekki lengur halda því til streitu, að hverfa með
alla flugsveit sína héðan af landi 1. janúar sl.
og því var í desemberlok ákveðið að William
J. Perry, starfandi varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, kæmi hingað til lands í ársbyijun
1994.
Sjá „Skeytið sem fékk kerfið til að nötra
og skjálfa" á bls. 12-15.
lengist úr átta klukkustundum í níu
og hins vegar að flugmenn taka
að sér eftirlit með
vélunum á
ákvörðunarstöð-
um erlendis. Um
er að ræða eftirlit
sem hingað til
hefur verið keypt
af erlendum
tæknimönnum en
flugmenn geta
innt af hendi
einnig. Þetta
skapar ákveðna
hagræðingu og
henni deilir
flugfélagið með
ftugmönnunum.
Þetta er að mati
Flugleiða nokkuð
merkilegur
samningur og markar ákveðin tíma-
mót í samskiptum stéttarfélagsins
og flugfélagsins og erum við mjög
ánægðir með hann. Það er ekki
verið að tala um hærri laun fyrir
sömu vinnu en hins vegar getur
þetta þýtt rúmlega 6% hærri út-
borgun því þarna er verið að fara
inn á nýjar brautir í vinnunni."
Nýir möguleikar með EES
Ákvæðið um vinnutíma kemur á
góðum tíma því með gildistöku EES
skapast ýmsir nýir möguleikar í
flugi innan Evrópu og þá getur
skipt máli að hafa þennan auka
klukkutíma upp á að hlaupa. Einnig
koma þá sjaldnar upp þau tilfelli
að þurfa að flytja áhafnir milli landa
með tilheyrandi kostnaði," sagði
Einar.