Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 17 Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogs Auknar framkvæmdir einkenna fjárhagsáætlun FJÁRHAGSÁÆTLUN Kópavogs fyrir árið 1994 verður afgreidd á fundi bæjarsljórnar í dag. í áætlun meirihlutans, Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks, er gert ráð fyrir að útsvar verði 8,4% og að sameiginleg- ar tekjur bæjarsjóðs verði 1.614 milljónir. Til framkvæmda er áætlað að verja rúmlega 1.127 milljónum og fer mest til fræðslumála, æsku- lýðs- og íþróttamála og til nýbygginga gatna. Áætlaður rekstrarkostn- aður er rúmlega 1.155 miiyónir árið 1994 en hann var rúmlega 1.119 árið 1993. Áætlað er að heildarvelta bæjarsjóðs verði um 2,8 milljarð- ar. „Það sem einkennir þessa fjárhagsáætlun eru auknar framkvæmd- ir,“ sagði Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs og efsti maður á Iista Sjálfstæðisflokksins. „Það er aðeins borð fyrir báru og til að auka ekki skattpíningu á bæj- arbúa er farin sú leið að lækka fast- eignaskatta um 20% miðað við árið 1993,“ sagði Gunnar. Fasteigna- skattar voru 0,46% árið 1993 en verða 0,375% árið 1994. Gjalddagar eru tíu á fyrstu tíu mánuðum ársins auk þess sem veittur er 5% stað- greiðsluafsláttur sem hefur í för með sér að fasteignaskattar verða lægstir í Kópavogi miðað við önnur bæjar- félög á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Gunnars. Heildarvelta bæjarfélagsins er rúmir 2,8 milljarðar, það eru sameig- iniegar tekjur, tekjur frá rekstri og gatnagerðargjöldum. Fjárhagsáætl- unin miðastvið 17.400 íbúa eða fjölg- un um 200 á árinu. Síðustu ár hefur aldursdreifing íbúanna breyst og er nú nokkuð jöfn en áður voru böm og eldra fólk í meirihluta. Sagði Gunnar að tvennt kæmi til. Ný íbúða- byggð auk þess sem ungt fólk sækt- ist í ríkara mæli eftir búsetu í eldri bæjarhlutum, sérstaklega þar sem lokið hefur verið við endurbyggingu gatna. Framkvæmdir „Það sem stendur upp úr í þessari fjárhagsáætlun eru áframhaldandi framkvæmdir í bæjarfélaginu,“ sagði Gunnar. Áætlaður kostnaður vegna þeirra er um 1.127 milljónir á árinu sem er heldur hærri upphæð en ver- ið hefur undanfarin ár. Til fræðslu- mála er áætlað að veija 236,5 millj., meðal annars 95 millj. til Matvæla- iðjuskólans og 70 millj. til fyrsta áfanga Smáraskóla sem er nýr grunnskóli. Til æskulýðs- og íþrótta- mála er áætlað að veija 212,2 millj. og ber þar hæst nýtt íþróttahús í Kópavogsdal, sem áætlað er að veija til 175 miHj. Til nýbygginga gatna er áætlað að veija 137,5 millj. og til endurbyggingar á eldri götum er gert ráð fyrir 116,7 millj. Til fram- kvæmda við holræsi verður varið 102 millj., til menningarmála er áætlað að veija 79 millj. og til félagsmála 63,2 millj. Þar af fara 53 millj. til tveggja leikskóla. Fjármögnun Áætlunin gerir ráð fyrir að fram- Ráðinn forstöðulækn- ir á kvennadeild UM ÁRAMÓTIN tók Reynir Tómas Geirsson við embætti grófessors í fæðinga- og kvensjúkdómafræði við læknadeild Háskóla íslands af Gunnlaugi Snædal, sem lét þá af störfum. Reynir Tómas mun jafn- framt taka við stöðu forstöðulæknis kvennadeildar Landspítalans, segir í frétt frá Háskólanum. fært sér þessa aðstöðu. Einnig má nefna að félagið hefur undanfarin ár styrkt fjölda einstaklinga og hljómsveita til útgáfu og ferðalaga erlendis. Þetta er starfsemi sem hljómlistarmenn geta verið stoltir af. Stjóm félagsins hefur því ávallt unnið innan þeirra marka sem lög segja til um. Þetta getur Pálmi að sjálfsögðu ekki vitað þar sem hann hefur ekki mætt á fundi hjá félag- inu í áratug og er svo farið um fleiri tónlistarmenn. Keðjan verður aldrei sterkari en veikasti hlekkur- inn. Þrátt fyrir ýmsa veika hlekki hefur Félag íslenskra hljómlistar- manna barist myndarlega fyrir bættum kjörum hljómlistarmanna og hefur starfsemi þess vakið at- hygli, hérlendis sem erlendis. Lokaorðin verða því til þeirra sem ekki vita betur. Kynnið ykkur þá starfsemi sem fer fram hjá FÍH, mætið á fundi og takið virkan þátt í mótun stefnumála hjá FÍH og myndum um leið samstöðp meðal hljómlistarmanna um kjarasamn- inga okkar. Gefið ekki vinnu ykkar í kynningarskyni eða á þeim nótum að um auglýsingar sé að ræða er þið komið fram í ljósvakamiðlum. Látum reynslu Pálma Gunnarsson- ar verða okkur víti til varnaðar og látum ekki troða á rétti okkar. Berum nægjanlega virðingu fyrir list okkar og stöðvum notkun hennar endurgjaldslaust. Snúum bökum saman og stönd- um vörð um réttindi okkar. Stjórn Félags íslenskra ■"'"HljómlistártWáihÁát.{’wmáí- óiol -Jori Tutíífi FíTfuuínnJHilmöilfl iblöF'l Reynir Tómas varð stúdent frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1966 og lauk prófi frá læknadeild Há- skóla íslands árið 1973. Hann gegndi stöðu heilsugæslu- og sjúkrahússlækn- is á ísafirði Reynir Tómas Geirsson kvæmdir verði fjármagnaðar með um 460 millj. rekstrarafgangi bæjarsjóðs og rúmlega 51,5 millj. sem er hlutur ríksins í þeim framkvæmdum sem unnið verður að á árinu auk gatna- gerðargjalda, A og B gjöld. „Framlag ríkisins er í hærra lagi miðað við fyrri ár,“ sagði Gunnar. „Við teljum að þegar hart er í ári þá sé mjög hagstætt fyrir bæjarfélag að ráðast í framkvæmdir ef það hefur fjárhags- legt bolmagn til þess. Verkin fást þá á hagstæðu verði auk þess sem auknar framkvæmdir skapa fleiri atvinnutækifæri og draga úr at- vinnuleysi en þar með aukast telqur bæjarsjóðs. Ef menn aftur fara að draga saman seglin og greiða skuld- ir þá verða litlar sem engar fram- kvæmdir, aukið atvinnuleysi og minni tekjur til bæjarsjóðs." Sagði hann það skoðun sjálfstæðismanna að þegar ástandið í þjóðfélaginu breyttist tii batnaðar og þennsla yrði í einkageiranum þá ættu ríki- og bær að draga úr framkvæmdum. Söfnum ekki skuldum „Við höfum haldið þeirri stefnu að safna ekki skuldum og við greið- um þær heldur ekki niður,“ sagði Gunnar. „Við notum allt það fjár- magn sem við höfum kost á til fram- kvæmda. Bæði til gatnagerða, leik- skóla, skóla, fræðslumála og menn- ingarmála." Sagði hann að gert væri ráð fyrir að mesta álag vegna fram- kvæmda við endurbyggingu eldri gatna yrði iokið árið 1995 og að þá yrði um leið ráðist í að greiða niður skuldir. „Við munum skuldbreyta afborgunum lána, eins og undanfarin ár, en við höfum verið að skuld- breyta óhagstæðum iánum með háum vöxtum í lán til langs tíma með lágum vöxtum," sagði Gunnar. „Hlutfall vaxta af lánum Kópa- vogsbæjar er með því lægsta sem þekkist í landinu. Þá er rekstrar- kostnaður bæjarins einn sá lægsti á landinu en honum hefur verið baldið nær óbreyttum milli ára í krónum Gunnar Birgisson talið, sem þýðir lækkun í raun. Þann- ig myndast rekstrarafgangur sem við veijum til framkvæmda. Jafn- framt eru skuldir óbreyttar í krónum talið milli ára og fara heldur lækk- andi en það hefur f för með sér að skuldir lækka sem hlutfall af skatt- tekjum bæjarins. Það ber ekki að kvíða framtíðinni fyrir bæjarfélag eða hvaða fyrirtæki sem er sem vel er rekið. Ef mikill afgangur er af rekstri þá er mönnum í lófa lagið að draga úr framkvæmdum á réttum tíma og greiða niður skuldir og það hratt. Sá tímapunktur er ekki enn runninn upp,“ sagði Gunnar Birgis- son. 1974- 75 og var aðstoðarlæknir á kvennadeild Landspítalans 1975- 77. Reynir Tómas var við framhaldsnám í fæðinga- og kven- sjúkdómafræði í Glasgow, London og Dundee í Bretlandi á árunum 1977-84. Hann varð kennari í sínu fagi við háskólann í Dundee í Skot- landi á árunum 1982-84, auk þess sem hann vann að rannsóknum á rúmmáli legs og fylgju sem leiddi til doktorsprófs frá Háskóla ís- lands árið 1986. Reynir Tómas réðst sem sér- fræðingur við kvennadeild Land- spítalans árið 1984 og varð dósent í fæðinga- og kvensjúkdómafræði við HÍ 1986. Hann hefur gegnt margs konar tninaðar- og nefndarstörfum á Landspítalanum, í Háskóla íslands og fyrir Samtök norrænna og ís- lenskra fæðinga- og kvensjúkdó- malækna. Hann hefur unnið, einn og með öðrum, að margháttuðum rannsóknum á sviði fæðinga- og kvensjúkdómafræði og birt fjölda greina um þau efni í fræðiritum. Eiginkona Reynis Tómasar er Steinunn J. Sveinsdóttir, meina- kríify 'Þtjii' Viltu auka þekkingu þínai öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í fjölmörgum greinum, fyrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri. Innritun á vorönn fer fram dagana 4.-6. jan. kl. 8.30-18.00 og 7. jan. kl. 8.30-16.00. í boði verða eftirfarandi áfangar: Bókfærsla Bókmenntir Danska Enska Farseðlaútgáfa íslenska Landafræði og saga íslands Líffræði Milliríkjaviðskipti Ritun Ritvinnsla Saga Skattabókhald Stærðfræði Stjórnun Sölu- og markaðsfræði Tölvubókhald Tölvufræði Tölvunotkun Verslunarréttur Vélritun Þjóðhagfræði Þýðingar Þýska IfiiíTlTill'ii Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman og Iáta mynda eftirtalin prófstig: • Próf af bókhaldsbraut • Próf af ferðamálabraut • Próf af skrifstofúbraut • Verslunarpróf • Stúdentspróf Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofú skólans, Ofanleiti 1. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS —I--------------------— ---------.IdM .A.l “.“smsib..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.