Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994 27 Viðræður N-Kóreu og Bandaríkjanna um kjarnorkumál S-Kóreumenn varaðir við að spilla árangrinum Reuter Blóðugar fjölskyldudeilur ÓSÆTTI Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, við móður sína og bróður, kostaði blóðsúthellingar í gær, er lögregla skaut á stuðningsmenn bróðurins, drap einn og særði níu. _______ Deilur Benazir Bhutto við móður sína og bróður magnast Lögregla skýtur stuðn- ingsmenn Murtaz Bhutto Larkani, Karachi Pakistan. Reuter. The Daily Telegraph. EINN maður lét lífið og níu særð- ust í skotárás pakistönsku lög- reglunnar á stuðningsmenn Murtaza Bhutto, bróður Benazir Bhutto í Larkana gærmorgun. Deilur Benazir við bróður sinn og móður hafa stigmagnast, und- anfarna mánuði og náðu liá- marki í gær, en þá hefði Zulfikar Ali Bhutto, faðir Benazir, orðið 66 ára. Skaut lögregla á um 300 manns sem safnast höfðu saman við heimili Begum Nusrat, ekkju Ali Butthos, er fólkið hugðist fylgja henni að gröf hans. Eftir skotárásina líkti Nustrat Bhutto dóttur sinni við einræðis- herra og kvað hún Benazir ábyrga fyrir skotárásinni. Nusrat styður son sinn, Murtaza, gegn Benazir og eiginmanni hennar, Asif Ali Zardari, en Murtaza og Zardari eru hatursmenn. Nustrat hefur krafist þess að Benazir taki upp nafn eigin- manns síns eins og venja sé. Þá leggur bróðir hennar áherslu á að samkvæmt venjunni eigi sonur að taka við af föður, ekki dóttir. Ali Bhutto, var fyrsti lýðræðislega kjörni forsætisráðherra Pakistans en var steypt af stóli og hengdur árið 1979. Murtaza situr í fangelsi, sakaður um hryðjuverkastarfsemi. Nusrat, móðir hans, var formaður Þjóðar- flokks Pakistans en deilur mæðgn- anna vegna Murtaza urðu til þess að Benazir vék móður sinni úr embætti og tók sjálf við flokksfor- mennsku fyrir mánuði. Styður móð- irin son sinn en hann hyggst ná völdum í Þjóðarflokknum í Sind- héraði. Þrátt fyrir að Benazir hafi svipt móður sínar völdum, dugir hins vegar vatt til í barátturnni við mæðginin, fréttaskýrendur hafa bent á að því lengur sem fangavist Murtaza vari, því meiri líkur séu á því að hann verði álitinn píslarvott- Scoul. Reuter. STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu sögðu á þriðjudag of snemmt að ætla að samningar næðust á næstu dögum milli norður-kóreskra og bandarískra yfirvalda um kjarnorkueftirlit í N-Kóreu, þrátt fyr- ir að viðræðunum miðaði vissulega í rétta átt. Tóku N-Kóreumenn undir þetta; samningamenn ættu að gæta orða sinna allt þar til samningar væru í höfn. Þarlent dagblað hótaði hins vegar forseta S-Kóreu öllu illu í gær ef hann reyndi að spilla fyrir viðræðunum. --------------------------------- Kim Young-sam, forseti Suður- Kóreu, gagnrýndi í nýársávarpi sínu nágrannana í norðri fyrir að reyna að smíða kjarnorkusprengju. Dag- blað í Norður-Kóreu, Rodong Sin- mun, sagði að forsetinn virtist vera viti sínu fjær, hann svifist einskis til að reyna að skaða viðræður norð- anmanna við Bandaríkjamenn. „Svikarinn Kim Young-sam ætti að fara varlega og hafa í huga að svik- samleg ummæli hans í ársbyijun munu aðeins flýta fyrir dauða hans“, sagði blaðið. Gífuryrði af þessu tagi hafa verið algeng í samskiptasögu ríkjanna tveggja. Bandaríkjamenn sögðu á mánu- Japan senn aldur- hnignasta þjóðin •• * 9 Oldruðum fjölgar hratt á Islandi JAPAN verður aldurhnignasta samfélag heims árið 2025 en samkvæmt frétt /feuíers-frétta- stofunnar hefur af opinberri Yeo seg- ir af sér Luiidúnum. Routcr. TIM Yeo, aðstoðarumhverfis- ráðherra Bretlands, tilkynnti í gær að hann hygðist segja af sér. Var þrýst mjög á um af- sögn hans eftir að upp komst um framhjáhald hans, sem gat af sér barn á síðasta ári. Yeo neitaði að segja af sér allt fram á þriðjudag og naut stuðnings Johns Majors, forsætisráðherra. Hins vegar kröfðust fjölmörg flokkssystkina hans afsagnar, svo og flest bresku dagblöðin og lét Yeo í gær undan þrýstingnum. Framhjáhald Yeos með einum bæjarfulltrúa íhaldsflokksins, þótti sérlega óþægilegt fyrir flokkinn, sem hefur á síðstu mánuðum boðað afturhvarf til hinna gömlu gilda, og að lögð verði aukin áhersla á fjölskylduna. Þá þykir það ekki síður neyðarlegt að talið er að j barnið hafi komið undir á flokks- ' þingi íhaldsmanna árfð 1992. ; ur. Ber æ stærri hópur stuðnings- manna hans vott um það en þeir kröfðust í gær lausnar hans. dag að samningur um eftirlit í kjarn- orkustöðvum N-Kóreu gæti tekist í vikunni. Þeir hafa farið fyrir þeim þjóðum sem krefjast þess að N- Kóreumenn sýni fram á að sú full- yrðing þeirra að þeir framleiði ekki kjarnorkuvopn, sé rétt. Hafa þjóðirn- ar deilt um eftirlitið mánuðum sam- an án árangurs. Kim Il-sung, leiðtogi Norður- Kóreu sagði á laugardag að stjórn sín hefði fallist á sameiginlega yfir- lýsingu með Bandaríkjamönnum til að greiða fyrir lausn deilunnar. Skömmu síðar lagði n-kóreska ut- anríkisráðuneytið það til að eftirlits- mönnum yrði hleypt inn í kjarnorku- stöðvarnar, með því skilyrði að það yrði aðeins í eitt skipti. Stangast það á við ákvæði alþjóðasamkomulags um takmörkun kjarnorkuvopna, sem Norður-Kórea er aðili að, en þar er kveðið á um reglubundið eftirlit. hálfu verið reiknað út þar í landi að 25,8% landsmanna verði 65 ára eða eldri það ár. Lífslíkur Japana eru með því mesta sem þekkist en meðalævi japanska kvenna er 82 ár og karla 76 ár. Stjórnvöld hafa vissar áhyggjur áf þróuninni og velta því nú fyrir sér hvernig brugðist skuli við þeim auknu byrðum sem hún kemur til með að leggja á almanna- tryggingakerfið. Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var meðal almennings í Japan óttast 70% manna að þrátt fyrir efnahagsveldið verði ekki hægt að greiða lífeyri sem standi undir framfærslu og nægt framboð verði heldur ekki af elli- og hjúkrunar- heimilum á næstu öld. Létu 89% aðspurðra í ljós ótta um að þeir myndu ekki geta framfleytt sér eða sínum í ellinni. Samkvæmt útreikningum munu Þjóðverjar koma næstir Japönum hvað aldursskiptingu áhrærir árið 2025 en þá verða 23% þeirra 65 ára eða eldri. í þriðja sæti verða Bandaríkjamenn með 20% og 19% Breta verða 65 ára eða eldri það ár. íslendingar eldast hratt Samkvæmt framreikningum Hagstofu íslands um mannfjölda- þróun hér á landi er gert ráð fyrir að 17,4% þjóðarinnar verði 65 ára eða eldri árið 2020. Er það mikil hækkun frá árinu 1990 en þá var sama hlutfall 10,6%. • ■ 1 SPARIB ÞÚSUNDIR KRÓNA - ÖLL GÓLFEFNIÁ EINUM STAD DUKAR - FLÍSAR - PARKET - TEPPI - MOTTUR - AFGANGAR - TAKIfi MALIN MEfil \epo/ 50% T.d. Alpha lykkjuteppi Áður kr. 1.604,- m2 Wilton einlitt Áður kr. 4.430,- m2 nú kr. 3.100,- m2 nú kr. 1.195,- m2 T.d. 140x200 cm frá kr. 8.330, \\ís at 20-50% 25% T.d. Eik Struktur áður kr. 3.533,- m2 nú kr. 2.650,- m2 AFGANGAR MEÐ ALLT AÐ 70% AFSLÆTTI fcök at T.d. Forum á vegg áður kr. 2.282,- m2 nú kr. 1.483,- m2 T.d. Galleri Áður kr. 948,- m2 nú kr. 664,- m2 11 mánA OPIÐ VIRKA DAGA FRA KL. 9-18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16 18 mán. kredit raðgreiðslur TEPPABUÐIN ltelinMPI A MHCDP A I IT A P 40 I QC M194
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.