Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Morgunblaðið/Árni Sæberg í AÐALHL UTVERKUM Nú þegar niðurstaða er fengin um það hver verða umsvif varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli næstu tvö árin, má segja að í sameiginlegri niðurstöðu íslenskra og banda- rískra stjórnvalda Ieiki þessir tveir flugvélakostir aðalhlutverkin. 4 Sikorsky HH-60 G björgunarþyrlur bandaríska flughersins verða áfram staðsettar á Keflavíkurflugvelli og 12 F-15C Eagle-orrustuþotum bandaríska flughersins verður í áföngum á næstu 12 mánuðum fækkað í fjórar, sem þykir nægja til þess að héðan verði áfram stundaðar það sem aðilar nefna „trúverðugar loftvarnir". SKEYTIÐ SEMFEKK KERFIÐ TIL AÐ NÖTRA OGSKJÁLFA hafa verið áréttað af íslands hálfu, sam- kvæmt mínum upplýsingum, að varnarsamn- ingurinn frá 1951 væri grundvöllur allra við- ræðna. Næsti viðræðufundur nefndanna var ekki haldinn fyrr en 8. júní, 1993 og fór sá fund- ur fram í Reykjavík. Sá fundur var fyrsti fundur íslensku nefndarinnar með fulltrúum nýrrar ríkisstjórnar Bandaríkjanna, Clinton- stjórnarinnar. í kjöifar þess fundar var gefin út sameigin- leg yfirlýsing^ viðræðunefndanna, þar sem sagði m.a.: „ítarleg og gagnieg skoðana- skipti fóru fram um breytingar sem orðið hafa í alþjóðlegum öryggismálum, hvernig þær hafi leitt til aðlögunar í Bandaríkjunum og í liðskipan og varnarstefnu Atlantshafs- bandalagsins og hvaða áhrif þetta gæti fiaft á varnarstöðina á Keflavíkurflugvelli." Ennfremur sagði þar: „Bandarísku fulltrú- arnir áréttuðu eindregnar skuldbindingar Bandaríkjanna hvað varðar öryggi og varnir íslands og vilja bandarískra stjórnvalda til að eiga náið samráð við íslensk stjórnvöld um hugsanlega aðlögun í varnarliðinu á Keflavíkurfiugvelli. Báðir aðila ítrekuðu þær skuldbindingar sem felast í tvíhliða varnar- samningnum frá 1951 og þýðingu áframhald- andi náins öryggissamstarfs íslands og Bandaríkjanna, sem er báðum ríkjum gagn- legt.“ Samkvæmt þeim uppiýsingum sem ég hef aflað mér, taldi íslenska viðræðunefndin það mikilvægt að fá fulltrúa hinnar nýju ríkis- stjórnar Bills Clintons Bandaríkjaforseta einnig til þess að viðurkenna þýðingu og gildi tvíhliða varnarsamningsins. Líta má á þessa fyrstu fundi í september 1992 ogjúní 1993, sem undirbúningsviðræð- ur fyrir formlega viðræðufundi nefndanna, en þeir urðu þrír talsins, þar til lokalotan hófst. Fundarefnið var ávallt hið sama: Að- lögun í starfsemi varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Fyrsti formiegi fundurinn var haldinn í Reykjavík, þann 6. ágúst 1993, þar sem form- legar tillögur Bandaríkjamanna voru kynnt- ar, annar fundurinn var í Washington þann m ' * *' inga voru kynntar og þriðji fundurinn var haldinn með hléum í Washington 2., 3. og 5. nóvember síðastliðinn. Sameiginlegur ásetningur að ljúka viðræðunum í kjölfar fundarins í Washington í nóvem- ber sl. áttu sér engir formlegir fundir stað, en aðilar skiptust á skoðunum og með milli- göngu sendiráða landa sinna. Síðan í nóvem- berbyijun hafa aðilar skipst með óformlegum hætti á skoðunum, skilaboðum og tillögum. í tengslum við utanríkisráðherrafund Atl- antshafsbandalagsins í Brussel, sem haldinn var þapn 3. desember sl. ræddi utanríkisráð- herra íslands í tvígang við utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Warren Christopher, með óformlegum hætti. Hann átti jafnframt ýtar- legar, efnislegar viðræður við aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna fyrir evrópsk málefni, Stephen Auxman. Auxman gerði Christopher grein fyrir þeim viðræðum og í lok fundarins tjáði Christopher Jóni Baldvin að hann hefði þegar fengið fundargerð í hendur, af fundi hans með Auxman, og myndi í framhaldi þess, taka upp viðræður við viðeigandi hernaðaryfirvöld í Bandaríkj- unum. Auk þessa ræddi utanríkisráðherra, á ofan- greindum fundi, málið við framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Werner, og for- mann hermálanefndar NATO, Sir Richard Vincent. í framhaldi af þessum viðræðum bárust upplýsingar um, að bandarísk stjórnvöld myndu ekki lengur halda því til streitu, að hverfa með alla flugsveit sína héðan af landi þann 1. janúar sl. og því var í desemberlok ákveðið að William J. Perry, varavarnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, kæmi hingað til lands í ársbyijun 1994, þar sem stefnt yrði að því að ljúka samningaviðræðunum sem staðið hafa í hálft annað ár. Seinnihluta desembermánaðar varð svo ijóst að báðir aðilar höfðu hug á að ljúka þessum viðræðum, fyrir leiðtogafund NATO- ríkjanna sem fram fer í Brussel þann 10. januar næstkomandi. Niðurstaða þessa, ásamt þeirri staðreynd að Bandaríkjamenn höfðu horfið frá upphaf- iegum niðurskurðaráformum sínum hér á landi, varð því sú að ákveðið var nú laust fyrir áramótin að dr. William J. Perry, vara- varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem er starfandi varnarmálaráðherra um þessar mundir, kæmi hingað til Iands þegar upp úr áramótum, þar sem stefnt yrði að því að ljúka þeim viðræðum sem staðið hafa með hléum í háift annað ár. Perry kom ásamt fylgdar- liði til landsins á mánudagskvöld og strax að morgni 4. janúar áttu Perry og hans fylgdarlið viðræður við Jón Baldvin Hanni- balsson, utanríkisráðherra, og íslensku við- ræðunefndina. Perry gekk í kjölfar þess fund- ar á fund Davíðs Oddssonar, forsætisráð- herra. Auk þessara formlegu og óformlegu funda, hafa tvíhliða viðræður á óformlegum grunni farið fram á æðri stjórnstigum. Þann 3. ágúst síðastliðinn áttu þeir Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og A1 Gore, vara- forseti Bandaríkjanna, fund í Washington og utanríkisráðherrar landanna, þeir Jón Bald- vin Hannibalsson og Warren Christopher ræddust við í New York þann 28. september síðastliðinn. Þá ræddust þeir Jón Baldvin og Warren Christopher við á nýjan leik þann 3. desember síðastliðinn, eins og áður greinir. Bandaríkjamenn lögðu fram formlegar til- lögur sínar um breytingar á starfsháttum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, á fyrsta formlega viðræðufundinum, hér í Reykjavík, þann 6. ágúst sl. Níu dögum síðai\ eða þann 15. ágúst, 1993, voru gagntillögur íslendinga fullmótaðar, og voru þær lagðar fram á næsta fundi,' sem var í Washington, þann 23. ágúst. Þegar eftir að Bandaríkjamenn höfðu lagt fram tillögur sínar, á fundinum hér í Reykja- vík, snemma í ágústmánuði, óskuðu þeir eft- ir því að einstök efnisatriði viðræðnanna yrðu af beggja hálfu meðhöndluð sem „algjört trúnaðarmál" (A Matter of Total Confidence). Grunduðu þeir þá ósk sína á því mati sínu, að viðræðurnar yrðu vart til lykta leiddar í ljósi opinberrar umíjöllunar af hálfu meintra hagsmunaaðila og lýstu þeirri skoðun sinni að slík umfjöllun kynni að spilla samnings- stöðu og torvelda að aðilar gætu náð sameig- inlegri niðurstöðu. Við þetta tækifæri létu Bandaríkjamenn í ljós þá ósk, að reynt yrði að ljúka viðræðunum innan 30 daga, eða eigi síðar en fyrrihluta septembermánaðar. Eftir að viðræðunefnd íslands hafði kynnt gagntilboð sitt í Washington, þann 23. ájg- úst, og kom við svo búið aftur heim til Is- lands, án þess einu sinni að vísir að niður- stöðu í viðræðunum hefði fengist, gerðist hárla fátt, og ekkert heyrðist.frá Bandaríkja- mönnum, sem þó höfðu óskað eftir því að málinu yrði hraðað og niðurstaða fengist fyrrihluta septembermánaðar. íslensk stjórnvöld óánægð með drátt viðræðna Þann 18. október síðastliðinn var óánægja íslenskra-stjórnvalda með seinaganginn orðin það mikil, að starfandi sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi, Eugene Schmiel, var kallaður til fundar í utanríkisráðuneyti íslands, þar sem lýst var óánægju ísienskra stjórnvalda með þann drátt sem orðið hefði á því að leiða málið til lykta. í kjölfar þess, var svo ákveð- ið að efna til nýs samningafundar í Washing- ton, þann 2. nóvember, sem var fram haldið þar vestra, þann 3. og 5. nóvember, án þess að samkomulag tækist um fyrirliggjandi til- lögur beggja aðila um aðlögun í varnarliðinu á grundvelli varnarsamningsins. Samráð við utanríkismálanefnd Utanríkisráðherra gerði utanríkismála- nefnd grein fyrir fundi nefndanna í Reykja- vík frá 8. júní, þann 22. júní sl. Ráðherrann gaf nefndinni skýrslu um fundinn snemma í ágúst í Washington, þann 10. ágúst. Þann 18. október gerði ráðhérrann utanríkismála- nefnd grein fyrir stöðu viðræðnanna. Loks gerði ráðherrann þann 31. október sl. utan- ríkismálanefnd grein fyrir stöðu viðræðna í aðdraganda fundarins 2. nóvember. Utanríkisráðherra mun aldrei á þessum fundum með utanríkismálanefnd, hafa kynnt nefndinni efnislega, í hverju tillögur Banda- ríkjamanna fólust, né heldur í hveiju gagntil- lögur íslendinga fólust. Mun hann einatt hafa svarað gagnrýni nefndarmanna, svo og þingmönnum í utandagskrárumræðu um sama mál, að íslenska viðræðunefndin hefði undirgengist það, að ósk Bandaríkjamanna, að halda algjörum trúnaði um efnisatriði við- ræðnanna, þar til niðurstaða fengist í viðræð- um aðila. Meginmarkmið íslensku viðræðunefndarinnar Allar götur frá því að viðræður íslensku og bandarísku viðræðunefndanna hófust, hefur eftirfarandi verið sá grundvöllur sem Islendingarnir byggðu alla sína afstöðu á: Að allar áætlanir um aðlögun í framkvæmd tvíhliða varnarsamstarfs landanna, yrðu grundvallaðar á sameiginlegri skilgreiningu aðila á því hvað felist í „trúverðugum vörn- um“ eða eins og það hefur verið nefnt í við- ræðunum „Credible Defences". Að Wyggja trúverðugar varnir á íslandi, þar á meðal að hér verði ávallt loftvarnir, í einu eða öðru formi, þar með talin þyrlubjörg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.