Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994
Kjarvalsstaðir
Sýning á verkum eftir
Magnús Kjartansson
Á KJARVALSSTÖÐUM opnar
sýning á verkum eftir Magnús
Kjartansson laugardaginn 8.
janúar kl. 16.
Magnús er fæddur í Reykjavík
árið 1949 og stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1969-1972 og við Konung-
legu dönsku akademíuna á árun-
um 1972-1975.
Magnús hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga á íslandi og víða um
heim og haldið einkasýningar í
Reykjavík og Stokkhólmi. Hann
er menntaður í Danmörku hjá ein-
um helsta fulltrúa fonnhyggju
módernismans á Norðurlöndum,
Richard Mortensen, og sáust þess
merki í þeim verkum er hann gerði
í upphafi.
í fréttatilkynningu frá Kjarvals-
stöðum segir m.a.: Magnús sýnir
ný verk sem fjalla um píslarsöguna
og má segja að hér sé nokkuð
afgerandi fráhvarf frá fyrri verk-
um hans og því vekja þessar mynd-
ir upp áleitnar spurningar um
myndmálið og forsendur þess. Þó
svo að Magnús grípi til nokkuð
hefðbundinna vinnubragða, þar
sem m.a. er lögð áhersla á vissa
eftirlíkingu af náttúrunni, rýfur
hann engu að síður tengsl mál-
verksins og náttúrunnar með því
ÍVAR Brynjólfsson opnar sýn-
ingu á ljósmyndum í Galleríi
Sævars Karls, Bankastræti 9, á
morgun, föstudaginn 7. janúar.
ívar er fæddur 1960 og stund-
aði nám við ljósmyndadeild San
Fransisco Art Institute (BFA) árin
að setja inn í myndirnar aðfengna
hluti eins og símtól eða blokk-
fiautu — hluti sem afmarka ekki
bara skilin milli málverksins og
náttúrunnar heldur hafa líka tákn-
ræna og formræna merkingu.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 10-18 og stendur til sunnu-
dagsins 13. febrúar.
1984-1988. Hann var ljósmyndari
Landsbókasafns íslands 1988-
1990 og er nú ljósmyndari Þjóð-
minjasafns Islands. Ivar hefur
haldið nokkrar einkasýningar.
Sýningin er opin á verslunar-
tíma á virkum dögum frá kl.
10-18.
Ljósmyndasýning í
Gallem Sævars Karls
2- 3 ára
3- 4 ára
5-6 ára
7-9 ára
Kennarar:
Sólry Jóbannádóltir
Ááta Ólafádóttir
VaJdLt Guðmundádóttir
Hrefna Hallgrlnuidótlir
Skemmtilegur dans,
þjáifun í líkams-
burði, skilningur á
tónlist, jafnvægis-
æfingar, léttar
fimleikaæfingar,
hreyfiþroski,
hollar teygjur og
nauðsynleg liðkun
líkamans.
13. vikna byrjenda-
og framhalds-
námskeið.
DANSSTÚDÍÓ
;óleyjar^_
- náöa frmf'm óesta/
Eiuyateigi 1
Simar 687701
og 687801
Börnin eiga
þaJ beáta okiluf
Egill Eðvarðsson
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Egill Eðvarðsson er einn þeirra
iistamanna sem ekki eru við eina
fjölina felldir í starfi sínu. Hann
er sennilega þekktastur fyrir þátt
sinn í framleiðslu fjölda leikinna
mynda, fræðsluþátta og skemmti-
efnis af ýmsu tagi sem einn reynd-
asti sjónvarpsmaður iandsins, en
hann hefur einnig getið sér gott
orð í gegnum árin á myndlistar-
sviðinu. A þeim vettvangi hefur
hann einnig unnið dijúgt starf, en
nú stendur yfir í afgreiðslusal
SPRON við Álfabakka í Mjódd
einkasýning á verkum listamanns-
ins. Síðast hélt hann slíka sýningu
hér á landi í listasalnum Nýhöfn
við Hafnarstræti fyrir tæpum
tveimur árum, og vakti þá nokkra
athygli fyrir sérstakiega „matarm-
ikla“ myndsýn.
Á sýningunni hér heldur Egill
að hluta til áfram á sömu braut.
Hér getur að líta alls nítján olíu-
málverk, en á mörgum hverjum
eru ávextir jarðarinnar, sem og
matreiddir réttir af ýmsu tagi,
helsta myndefnið; titlar eins og
„Berjapasta" (nr. 3), Stjörnubúð-
ingur“ (nr. 18) og „Sólbeijaskyr"
(nr. 19) ættu að vera næg tiivísun
í þessi viðfangsefni.
En líkt og fyrr er það notkun
litarins og rýmisskipan sem lista-
maðurinn er að takast á við öðru
fremur. Egill notar óhikað við-
kvæma bleika og bláa liti í grunnu
rýminu, og skapar með þeim fljót-
andi yfirborðsímyndir á dökkum
bakgrunni, sem einangrar mynd-
efni oftast á a.fgerandi hátt; eftir
stendur flöktandi myndheimur,
sem gæti horfið hvenær sem væri.
Sú aðferð að láta litinn leka á stöku
stað í fletinum verður tii þess að
staðfesta þetta tímabundna eðli
verksins enn frekar.
Á stundum virðist einangrunin
eða biðin vera helsta viðfangsefni
listamannsins. Myndirnar „Hvíld"
(nr. 2) og „Fyrir langa löngu“ (nr.
14) tengjast þekktu myndefni í
þessum anda, hægindastólnum; sú
staðreynd að stóllinn er í báðum
tilvikum auður eykur síðan á þessa
tilfinningu. Ef til vill kemur þetta
hvergi sterkar fram á sýningunni
en í verkunum „Fangi" (nr. 10)
og „Beðið kvölds“ (nr. 11), þar sem
Egill Eðvarðsson
ómálga dýrin bíða örlaganna í
þeirri einangrun, sem listamaður-
inn hefur skapað þeim í þröngu
myndrýminu.
Egill hefur áður fundið sér við-
fangsefni í landslagsmyndum, og
svo er einnig hér. „Hljótt á heiði"
(nr. 9) er ein sterkasta mynd sýn-
ingarinnar; hinir dökku grænu og
bláu litir ná hér að loka algjörlega
þeim einangraða myndheimi, sem
íslenskt landslag getur svo oft ver-
ið í nálægð. Fleiri verk á sýning-
unni tengjast landslagi, þannig að
segja má að þar sé komið ánnað
heista viðfangsefni hennar, við hlið
hinna „matarmiklu" mynda.
Nokkrir þættir koma fyrir aftur
og aftur í verkunum, og hafa
greinilega táknrænt gildi fyrir
listamanninn. Bláber eru áberandi
í nokkrum verkanna, og landmæl-
ingastikur koma fram á nokkrum
stöðum; köflótt yfirborð í mynd-
fletinum gæti einnnig verði af-
mörkun af vissu tagi, án þess að
það komi markvisst fram.
Sýningin myndar ágæta heild,
en tvö stærstu verkin verða samt
utanveitu, og tengjast illa öðrum
viðfangsefnum listamannsins hér.
Hins vegat’ njóta myndirnar sín
ekki sem skyldi á þessum sýning-
arstað, þar sem aðgangur gesta
að þeim takmarkast af hlutverki
staðarins sem bankastofnunar;
málverk sem þessi þurfa hlut-
lausara, rúmþetra húsnæði til að
njóta sín til fulls.
Sýningin á verkum Egils Eð-
varðssonar í afgreiðsiusal SPRON
við Álfabakka í Mjódd stendur til
11. febrúar.
Til sölu einbýlishús í
Setbergshverfi, Hafnarf.
Fallegt einnar hæðar steinhús um 132 fm á góðum
stað við Lyngberg, byggt 1988. Stofa, 3 svefnherb. og
stór skáli. 52 fm vandaður tvöf. bílskúr. Stór og góð lóð.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
Olíufylltir rafmagnsofnar, á hjólum, í gamla stílnum.
1200-2500 W. Veggfestingar, sjálfvirk hitastýring.
Kynningarverð - póstsendum. Gerið verðsamanburð.
veröfrékr. 9.790,- vÍKUR-VAGNAR
Ufesa gæðavörur VERSLUN
komnar tilað vera JJfSSi,.