Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994 13 Morgunblaðið/Árni Sæberg SAMKOMULA GINNSIGLAÐ Hér innsigla þeir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra íslands, og dr. William J. Perry, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, með handabandi það samkomulag um túlkun og framkvæmd varnarsamningsins til næstu tveggja ára, sem þeir og fulltrúar þeirra gerðu um hádegisbil í fyrradag. hrinda tillögum Bandaríkjamanna í fram- kvæmd, sem hefði jafngilt um 30% nið- urskurði herafla á Kelfavíkurflugvelli - það er að hermönnum hefði fækkað úr tæplega 3000 í 2100. Gagntillögur íslendinga Gagntillögur íslendinga voru fullmótaðar þann 15. ágúst síðastliðinn, en þær voru lagð- ar fram og kynntar Bandaríkjamönnum á viðræðufundinum í Washingtpn þann 23. ágúst. Eins og áður, miðuðu íslendingarnir við tvíhliða varnarsamning landanna frá því 1951: Fyrsta krafa íslendinga var sú að hér á landi yrðu „trúverðugar loftvarnir áfram tryggðar á grundvelli skuldbindinga varnar- samningsins." Gerð var krafa um að lágmarksfjöldi orr- ustuflugvéla yrði áfram á Kefiavíkurflug- velli. (Þær 12 F-15 vélar, sem hér hafa ver- ið, teljast hálf flugsveit, samkvæmt banda- rískri skilgreiningu. Um það mun hafa verið rætt, í sambandi við þessa kröfu íslendinga, að hér yrðu ekki færri en 4 til 6 slíkar vélar áfram, en formlega munu íslendingar aldrei hafa sett fram ákveðinn fjölda flugvéla, i kröfum sínum.) Þá gerðu íslendingar kröfu um að lág- marksfjöldi flugsveitaræfinga , með fullskip- aðri flugsveit, færi fram frá Keflavíkurflug- velli á ári hveiju. íslendingar kröfðust þess einnig að við- haldið yrði tæknibúnaði og aðstöðu á Kefla- víkurflugvelli, vegna starfrækslu og æfinga flugsveita. Þá var gerð krafa um að flug- björgunarsveitin (þyrlusveitin) yrði áfram starfrækt á Keflavíkurflugvelli. Þess var krafist að tryggt yrði að fullskip- uð orrustuflugsveit (24 orrustuþotur) yrði kvödd á vettvang til íslands, innan lágmarks- viðvörunartíma, ef þörf krefði, samkvæmt mati íslenskra stjórnvalda. Krafa var gerð um að flotastöðinni á Kefla- víkurflugvelli yrði viðhaldið áfram og hún starfrækt. Gerð var krafa um að ratsjárkerfinu yrði viðhaldið áfram og það starfrækt. Loks var gerð krafa um það af íslands hálfu, að æfingum liðsaukasveita (Northern Viking) yrði haldið áfram. Samkvæmt mínum upplýsingum er miðað við hernaðarhugtakið „Alert Detachment", þegar krafa er gerð um hér sé ávallt staðsett- ur lágmarksfjöldi orrustuflugvéla, en það felur eins og áður segir, í sér, að hér væru ávallt staðsettar 4 til 6 F-15 orrustuþotur. Samkomulagið Niðurstaða viðræðnanna, sem lauk með formlegri undirskrift varavarnarmálaráð- herra Bandaríkjanna og starfandi varnar- málaráðherra dr. Williams J. Perry, og Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, upp úr hádegi í fyrradag, er þessi: F-15C Eagle-orrustuþotum, sem staðsettar eru á Keflavíkurflugvelli, verður á næstu 12 mán- uðum fækkað úr 12 í 4; á Keflavíkurflug- velli verður áfram viðhaldið þeirri aðstöðu sem fyrir hendi er, til að halda úti orrustuþot- um; og flotaflugstöðin verður áfram starf- rækt. Jafnframt felur samkomulag aðila það í sér að 7 P-3C Orion kafbátaleitarflugvélar verða áfram á Keflavíkurflugvelli, ásamt Lockheed KC-135 R Hercules eldsneytis- birgðavél, Lockheed KC-130 Hercules björg- unarflugvél og P-3 Orion flutningavél, að ótöldum 4 Sikorsky HH-60 G björgunarþyrl- um. Þá er samkomulag um að íslenska ratsjár- kerfinu verður viðhaldið, að heræfingum „Norður-Víkings“ (North-Viking), sem fram fara annað hvert ár, verður framhaldið og að tvær af smærri deildum flotans hætti starfsemi, en það er sérstök hlustunarstöð, sem gengur undir heitinu SOS-US, þar sem 140 hermenn starfa og fjarskipta- og miðun- arstöð í Rockville þar sem 90 hermenn starfa. Sú síðari hættir strax í marsmánuði á þessu ári, en hin fyrri hættir í áföngum til ársins 1997. Auk þess verður um fækkun hermanna að ræða, vegna fækkunar F-15 orrustuþotn- anna, þannig að samtals er áætlað að varnar- liðsmönnum fækki í áföngum um 380 til ársins 1997, í stað liðlega 900 eins og upphaf- legar tillögur Bandaríkjamanna frá því 6. ágúst sl. gerðu ráð fyrir. Áfram Norður-Víkingur Þrátt fyrir að staðhæft hafi verið að þrjár ástæður liggi til grundvallar þeirri breyttu afstöðu bandarískra stjórnvalda, sem sýnir sig í niðurstöðunni sem nú er fengin, er óhætt að fullyrða að fyrst og fremst ein ástæða er skýringin á lokaniðurstöðu viðræðnanna, en það er afstaða íslenskra stjórnvalda, sem allan tímann hafa staðfastlega haldið sig við, að varnarsamningurinn frá 1951 yrði upp- fylltur á þann veg að trúverðugar lágmarks- varnir í lofti sem á láði yrðu tryggðar. Auk þess hafði það örugglega áhrif að innan bandaríska stjórnkerfisins voru skiptar skoðanir um, með hvaða hætti standa skyldi að vörnum Islands, og voru talsmenn banda- ríska flughersins þeirrar skoðunar að hægt væri að tryggja varnir landsins, þótt flug- sveit 12 F-15C Eagle orrustuþotna yrði öll kölluð heim til Bandaríkjanna, en talsmenn bandaríska sjóhersins, sem rekur varnarstöð- ina í Keflavík, voru ekki sömu skoðunar, og hlutu a.m.k. einhvern pólitískan stuðning bandaríska utanríkismálaráðuneytisins í mál- flutningi sínum. Loks má geta þess að þingkosningarnar í Rússlandi í síðasta mánuði, þar sem þjóðern- issinninn Vladímír Zhírínovskíj hlaut mjög góða kosningu, eru sagðar hafa haft þau áhrif á bandarísk stjórnvöld, að ekki væri rétt að sinni að veikja á nokkurn hátt varnir Atlantshafsbandalagsríkja á Norður-Atlants- hafi. Aðdragandi Þann 31. mars 1992 flutti Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra skýrslu sína á Alþingi, þar sem fyrsta yfirlit um áform um viðræður við bandarísk stjórnvöld um til- högun og umfang varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli í ljósi breyttra aðstæðna var gefið. Ráðherrann boðaði í þessari ræðu sinni áform stjórnvalda um skipun nefndar, til þess að vinna skýrslu um endurskoðun og stefnu- mörkun. 23. júní 1992 var nefnd skipuð fulltrúum stjórnarflokkanna og embættismönnum, með erindisbréfum, til þess að sinna ofangreindum verkefnum. Þeir sem upphaflega voru skipað- ir í nefndina voru: Benedikt Gröndal, fyrrver- andi utanríkisráðherra, formaður, þingmenn- irnir Björn Bjarnason og Karl Steinar Guðna- son, Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Gunnar Pálsson, for- stöðumaður alþjóðadeildar utanríkisráðu- neytisins, og Róbert Trausti Árnason, for- stöðumaður varnarmáladeildar utanríkis- ráðuneytisins. Sú breyting varð á nefndinni, eftir að hún hóf störf, að Benedikt Gröndal hætti af heilsufarsástæðum og Þorsteinn Ingólfsson tók við formennsku nefndarinnar. Hlutverk að leggja mat á breyttar aðstæður Hlutverk nefndarinnar var að leggja mat á breyttar aðstæður í öryggismálum; að fjalla sérstaklega um tvíhliða varnarsamning ís- lands og Bandaríkjanna; að efna til viðræðna við fulltrúa utanríkis- og varnarmálaráðu- neytis Bandaríkjanna (svo og við sömu ráðu- neyti í Noregi og Bretlandi og við fulltrúa yfirstjórnar NATO í Brussel.) Skýrsla nefndarinnar var lögð fram þann 10. mars, 1993. Skýrslan var kynnt í utanrík- ismálanefnd Alþingis þann 15. mars sl. Umræður um efni skýrslunnar fóru fram á Alþingi þann 27. apríl 1993. Utanríkisráð- herra flutti skýrslu í aprílmánuði í fyrra, á Alþingi, þar sem hann lýsti því yfir að niður- stöður nefndarinnar yrðu hafðar til hliðsjónar við stefnumörkun um viðræður þær sem framundan væru. 16. apríl lýsti Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra 'þeirri von sinni að efnt yrði til umræðu um utanríkismál íslendinga, sem nú væru á tímamótum. Við sama tæki- færi sagði ráðherrann að meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar væri lýst í skýrslu hans og skýrslu viðræðunefndarinnar um öryggis- og varnarmál. Fyrirhugaður niðurskurður kvisast út Skömmu eftir að Bill Clinton tók við völd- um sem Bandaríkjaforseti, í janúarmánuði síðastliðið ár, varð ljóst innan bandaríska stjórnkerfisins, að Bandaríkjamenn hygðu víða á niðurskurð hernaðarumsvifa sinna, og meðal annars á Keflavíkurflugvelli. Með nið- urskurði á sviði hermála var stefnt að því að draga stórlega úr halla fjárlaga Banda- ríkjamanna. Upphaf formlogra viðræðna við Banda- ríkjamenn var að frumkvæði íslendinga, og fyrsti undirbúningsfundur viðræðna var hald- inn í Washington í september 1992. Þann 11. september 1992 gáfu aðilar út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem báðir aðil- ar ítrekuðu: „áframhaldandi mikilvægi þess samstarfs sem byggist á varnarsamningnum frá 1951.“ Þar kom jafnframt fram vilji til að stuðla að því að tryggja öryggi samnings- aðila og Atlantshafsríkjanna allra og „að halda áfram varnarsamstarfinu báðum til hagsbóta, á grundvelli varnarsamvinnu og samráðs í anda varnarsamningsins frá 1951.“ I þessum fyrstu viðræðum mun það ávallt Tillögur Gagntillögur Bandaríkjamanna íslendinga MEGINATRIÐI tillagna Bandaríkja- manna 6. ágúst síðastliðinn voru: 57. orrustuflugsveitin (Fighters Squadron), 12 F-15 orrustuþotur flughers Bandaríkjanna (U.S. Air Force), hyrfi á brott frá íslandi frá ogmeð l.janúar 1994. Fjarskiptakerfi bandaríska sjóhersins (U.S. Navy), öðru nafni „SOSUS-System“, hætti starf- rækslu í áföngum á árunum 1994 til 1997. Þyrluflugbjörgunarsveitin (Search and Rescue Unit) yrði sömuleiðis á brott, en þó mun sú afstaða bandarískra stjórnvalda ekki hafa verið jafn ófrá- víkjanleg og brottflutningur orrustuflugsveitarinn- ar. Tillögur Bandaríkjamanna um brottflutning orr- ustuþotnanna 12 F-15 hefðu falið það í sér að 554 starfsmenn bandaríska flughersins hefðu horfið á ný til Bandaríkjanna frá Keflavíkurflugvelli, og um það bil 250 starfsmenn sjóhersins. Auk þess hefðu 100 varnarliðsstarfsmenn flugbjörgunar- sveitarinnar horfið á brott við það að allar orrustu- þoturnar væru kallaðar heim til Bandaríkjanna, þar sem án þeirra hefði þyrluflugbjörgunarsveit aldrei verið starfrækt á Islandi, samkvæmt reglum Bandaríkjahers. Samtals hefði því fækkað um rétt liðlega 900 hermenn á Keflavíkurflugvelli við það að hrinda tillögum Bandaríkjamanna í framkvæmd og því hefði Bandaríkjamönnum á Keflavíkurflug- velli fækkað um samtals 1.800 manns, hið minnsta, séu fjölskyldur varnarliðsmanna meðtaldar. GAGNTILLÖGUR íslendinga voru fullmótaðar 15. ágúst síðastliðinn, en þær voru lagðar fram og kynntar Bandaríkjamönnum á viðræðufund- inum í Washington 23. ágúst. Fyrsta krafa Islendinga var sú að hér á landi yrðu trúverðugar loft- varnir áfram tryggðar á grundvelli skuldbindinga varnarsamningsins. Gerð var krafa um að lágmarksfjöldi orrustuflug- véla yrði áfram á Keflavíkurflugvelli. Rætt var um að fjórar til sex F-15 orrustuvélar yrðu hér áfram, en formlega settu Islendingar aldrei fram tölu um ákveðinn fjölda flugvéla í kröfum sínum. Þá gerðu íslendingar kröfu um að lágmarks- fjöldi flugsveitaræfinga með fullskipaðri flugsveit færi fram frá Keflavíkurflugvelli á ári hverju. Islendingar kröfðust þess einnig að viðhaldið yrði tæknibúnaði og aðstöðu á Keflavíkurflugvelli, vegna starfrækslu og æfinga flugsveita. Þá var gerð krafa um að flugbjörgunarsveitin (þyrlusveit- in) yrði áfram starfrækt á Keflavíkurflugvelli. Þess var krafist að tryggt yrði að fullskipuð orrustuflugsveit (24 orrustuþotur) yrði kvödd á vettvang til íslands, innan lágmarksviðvörunar- tíma, ef þörf krefði, samkvæmt mati íslenskra stjórnvalda. Krafa var gerð um að flotastöðinni á Keflavíkur- flugvelli yrði viðhaldið áfram og hún starfrækt. Gerð var krafa um að ratsjárkerfinu yrði viðhald- ið áfram og það starfrækt. Loks var gerð krafa um það að æfingum liðsauka- sveita (Northern Viking) yrði haldið áfram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.