Morgunblaðið - 06.01.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
25
HELGARTILBODIN
GARÐAKAUP
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
laugardags
nautaframfíle.........739 kr. kg
svínaskinka...........912 kr. kg
klementínur............89 kr. kg
bacon, 24 sneiðar.............732 kr.
paprikuskrúfur 140 g......169 kr.
Súperkaffi.....500 g .....198 kr.
BÓNUS
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
laugardags
Bónuspítsa400g................249 kr.
Bónus majónes..500 ml....89 kr.
Hatting bruður.................69 kr.
4 SÖ-hamborgar með brauði og
sósu..........................260 kr
Busy Baker kökur 300 g....119 kr.
Bónus cola 0,51................49 kr
50 % afsláttur við kassa á Búrfells-
bjúgum. Minnt á framköllunarþjón-
ustu Bónus:
24myndir......................699 kr.
HAGKAUP
Tilboðin gilda 6.-12.jan.
Hrásalat frá Ágæti...350 g...79 kr.
þurrkr. lambalæri.....785 kr. kg
bökunarkartöflur.......59 kr. kg
Polcop-sultur 454 g............69 kr.
Malee-ananassneiðar42g...39 kr.
Maling-sveppir 425 g.......49 kr.
KJÖT & FISKUR
nautahakk.............580 kr. kg
nautagúllas............788 kr. kg
nautasnitsel...........895 kr. kg
krebinettur............298 kr. kg
F&A
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
miðvikudags
Moccana-skyndikaffi 100 gl62 kr.
To£fee.Crisp..48.stk..___1.521 kr.
LionBar48stk.............1.612 kr.
KitKat,48stk.............1.432 kr.
ferskjur, 850 g dós.........92 'kr.
FJARÐARKAUP
appelsínudjús 1 ltr.........75 kr.
appelsínur............ 69 kr. kg
klementínur............119 kr. kg
4 eldhúsrúllur.............159 kr.
lambahryggur...........598 kr. kg
lambalæri..............598 kr. kg
konfektísterta.............878 kr.
ávaxtafyllt lambal.....998 kr. kg
Fróðleikur um
kryddjurtir og bragðefni
SKESSUJURT er suðræn jurt, en hefur náð talsverðri útbreiðslu á
norðurslóðum og þá einnig smávegis hér á landi. Hún minnir nokkuð
á hvönn og er bragðsterk sólarjurt. Hún er víða ræktuð sem krydd-
jurt, en var áður alkunn lækningajurt og þótti duga vel til að hreinsa
meltingarveginn og auka matarlystina. Á Indlandi hefur hún um
aldaraðir verið árangursrík sóttvörn þegar kólera hefur geisað.
Skessujurtin er talsvert mikið notuð í ýmsa pottrétti, sósur og súpur.
kemur
Þetta
m.a. fram í nýút-
kominni bók eftir
Harald Teitsson,
matreiðslumeist-
ara, búsettan á
Dalvík. Bókin er
tæpar 100 blaðsíð-
ur og verður hún
fyrst og fremst seld
í matvöruverslun-
um. „Ég lít ekki
beinlínis á þetta
sem bók, heldur
umbúðir utan um
upplýsingar um krydd. Þetta er
uppflettirit þar sem nefndar eru um
140 tegundir af kryddum, krydd-
jurtum og bragðefnum og þeim eru
gerð skil eftir því sem efni standa
til,“ segir Haraldur, en ætla má að
margir kannist við Kryddkverið,
sem prentað var í 12.500 eintökum
fyrir tíu árum og seldist upp. Sú
kryddbók, sem nú er komin út, er
hins vegar mun ýtarlegri enda fjall-
að um meira en helmingi fleiri teg-
undir, „enda hefur orðið gífurleg
bylting á undanförnum árum í allri
matreiðslu og notkun á kryddum.
Það er hins vegar svo að þessi svo-
kölluðu austurlensku krydd eru
ákaflega mikið sömu kryddin og
við notum. Blöndunin er bara með
öðrum hætti og meðferðin og notk-
unin sömuleiðis öðruvísi en við eig-
um að venjast," segir Haraldur.
Kryddbókin kostar 780-790 kr.
I bókinni er fjallað um vín, áfengi
og líkjöra í matargerð, en vín er
mikið notað bragðefni í mat um
allan heim þó segja megi að Frakk-
ar, ítalir, Spánverjar, Pgrtúgalir og
Grikkir séu hvað duglegastir við
það. „Við matreiðslu með víni verð-
ur að viðhafa fyllstu aðgát. Við
hæga suðu á kjötrétti veldúr smá
skammtur af víni miklum breyting-
um á bragði og oft fjarri uppruna-
legu bragði vínsins. Vínandinn sýð-
ur fljótt upp og hverfur í gufunni."
Kryddbókin er uppflettirit, sem hefur að geyma
upplýsingar um einar 140 tegundir af kryddum,
kryddjurtum og bragðefnum.
Að lokum látum við fljóta með
fróðleik úr bókinni um þá heims-
þekktu kryddsósu Worcestershire-
sósu, sem eflaust er til á mörgum
heimilum. „Uppskriftin að henni
barst til Englands á fyrri hluta 19.
aldar frá Bengal. Það var fyrrum
landsstjóri Breta þar sem fékk lyfja-
verslun í Englandi í eigu tveggja
manna, Lea og Perrins, til að laga
fyrir sig sósuna eftir uppskrift sem
hann hafði haft með sér frá Ind-
landi. Sósan var löguð, en honum
líkaði hún ekki þegar til kom og
afþakkaði hana. Þetta gleymdist
síðan í nokkur ár en þá kom ílátið
með sósunni upp á yfirborðið og
reyndist sósan allt önnur og betri
eftir þessa löngu geymslu. Lyfsal-
arnir áttu enn uppskriftina og hófu
nú framleiðslu á sósunni og með
ótrúlegum hraða varð hún heims-
fræg. Hún er nú framleidd í öllum
heimshornum og þar á meðal í
Englandi hjá Lea & Perrins Ltd.
Worcestershiresósa er löguð úr
mörgum efnum, þar á meðal ediki,
soju, sírópi, pækli af söltuðum ansj-
ósum ásamt rauðum pipar, lauk og
hvítlauk eða samtals yfir 20 teg-
undum af hitabeltisávöxtum og
kryddi. Hún er ekki soðin heldur
lögð í bleyti og er síðan látin getj-
ast í eikarámum í langan tíma rétt
eins og í kjallara lyfsalanna forðum.
iilpS . ■. s:;s§tv'.j.
Kennsla kefst 6. janúar
Innritun nýrra nemenda
hafin ísíma 813730 og 79988
Fyrir dansarana
og ungt fólk.
Byrjenda og
framhaldsflokkar
barnaskóli
Fyrir börnin,
6-9 ára.
I-2svar I viku
dansflokkar
Fyrir unglingana.
Byrjenda og
framhaldsflokkar.
2-3svar í viku.
Fyrir byrjendur og
lengra komna.
Sýniskorn úr verkefnaskrá nemenáa
og clansflokka í gegn um árin:
ALL THAT JAZZ - MJALLHVÍT - STARLIGHT EXPRESS - RAUÐHETTA
ON YOUR TOES - TOMMI, JENNI OG VILLIKETTIRNIR - HÁRID
OLIVER TWIST - MARTRÖÐ - DRAUGABANAR - WEST SIDE STORY
ROCKY HORROR - KAREN - DJÁKNINN Á MYRKÁ - JAZZ-INN
KING OF THE ROAD - DICK TRACY - TAKE IT FROM THE TOP - EVITA
(r (r ? .... • __ TJ_______7.___•
-í Suðurveri og Hraunbergi
G/edifegt ór