Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1994
41
þau efni. Ræður hans á aðalfundum
Sambandsins og skýrslugjafir, sem
til eru í rituðum heimildum, eru til
fyrirmyndar. Varð hann þó þar að
þola samanburð við hæfustu ræðu-
menn hreyfingarinnar og vék ekki
um fet. Hann bar svipbragð beggja
foreldra sinna, en var þeim mun
hávaxnari, maður tígulegur á velli,
eins og þau Lúlú bæði, foringi sem
tekið var eftir, enda veit ég að hann
komst langt með málefni fyrirtækja
sinna á framkomunni og málatilbún-
aðinum, þótt hann legði ávallt öll
spil á borðið við gagnaðila.
Við áttum ekki samleið til enda,
sökum vanefnda samningsaðila
Sambandsins, sem ég taldi að gæti
leitt til vandkvæða síðar fyrir sam-
vinnuhreyfinguna, yrði ég áfram í
starfi þar, en hinu er heldur ekki
að leyna að okkur forstjóra greindi
á um leiðir og stefnu, sem drottinn
einn veit um hvort hefði leitt til ein-
hverrar annarrar niðurstöðu, en sú
sem nú er fengin um sinn. Það mun
aftur morgna og hygg ég að dómur
sögunnar um Guðjón verði á einn
veg, að þar hafi farið sannur mað-
ur, sem var sem Kári, „engum líkur“.
Vináttu okkar héldum við utan
dægurþrass og stóð hún traustum
rótum. Ég drúpi höfði við kistu vin-
ar míns og við Sigríður biðjum hon-
um fararheilla á óþekktum leiðum,
vitandi vits að þar eru m.a. foreldrar
og „vinir í varpa“ sem fagna honum
við „heimkomuna", — jafnframt sem
við þökkum fyrir allt á liðinni tíð, —
en flölskyldu hans biðjum við hjónin
styrks hins hæsta á dimmum dögum.
Aldin föðuramma hans, Ásgerður
Jensdóttir, flutti honum ljóð, sem
hékk yfir vinnustól hans heima, og
geri ég eftirfarandi ljóðlínur hennar
að mínum á þessari kveðjustund.
Ég sá þig vaxa vinur og verða góðan mann
og ávallt gegnum árin þinn yl og kærleik fann.
Ég bið þér alls hins besta, þú blessun fékkst í arf.
Guð á himnum gæti þín og göfgi allt þitt starf.
Kjartan P. Kjartansson
Þegar við nú kveðjum vin minn
Guðjón B. Ólafs'son, væri hægt að
fara mörgum fögrum orðum um líf
og óvenjulegan starfsferil þessa
manns.
Kynni okkar Guðjóns hófust vorið
1967, þegar ég hóf störf á skrifstofu
Sambandsins í London.
Miklir erfiðleikar voru þá í fisk-
sölumálum Sambandsins, og var
Guðjón beðinn að taka að sér starf
framkvæmdastjóra sjávarafurða-
deildar á miðju ári 1968. Áður en
Guðjón fór frá London hafði orðið
að samkomulagi okkar á milli að ég
kæmi til starfa hjá honum í sjávaraf-
urðadeild þá um haustið.
Stofnað var Félag sambandsfisk-
framleiðenda, og tókst Guðjóni á
örskömmum tíma að snúa vörn í
sókn. Minnist ég þessa tíma með
mikilli ánægju.
Starfsgleðin, sem Guðjóni var í
blóð borin, skapaði sérstakan starfs-
anda, sem erfitt er að lýsa með orð-
um.
Dvölin á íslandi var skemmri en
til stóð. Afkoma frystihúsanna var
undir því komin, að vel tækist til
með markaðssetningu afurðanna á
aðalmarkaðssvæðinu í Bandaríkj-
unum.
Sölufyrirlæki Sambandsfrysti-
húsanna hafði gengið illa að ná fót-
festu á þeim markaði. Það var hart
lagt að Guðjóni að taka að sér það
ábyrgðarmikla starf að koma hlutum
þar í lag. Það réð miklu um ákvörð-
un Guðjóns að Sambandið var í mikl-
um ábyrgðum fyrir skuldum fyrir-
tækisins og óvíst um framtíð þess,
ef illa færi.
Guðjón stjórnaði Iceland Products
Inc., en nafni fyrirtækisins var síðar
breytt í Iceland Seafood Corporation
árin 1975-1986.
Á þssum tíma tókst honum að
gera fyrirtækið að leiðandi afli í
sölu- og markaðsmálum freðfisks í
Bandaríkjunum.
Guðjón vakti athygli fyrir kjark-
mikla, fijálslega og örugga fram-
komu.
Á þessum tíma gegndi ég starfi
aðstoðarframkvæmdastjóra sjávar-
afurðadeildar Sambandsins og var
jafnframt sölustjóri. Voru samskipti
við Guðjón mikil og heimsóknir tíðar.
Líkt og í sjávarafurðadeildinni
mótaði starfsgleði Guðjóns andrúms-
loftið, sem ríkti í fyrirtækinu.
Það fór ekki framhjá neinum sem
starfaði að fisksölumálum á þessum
tíma, að Iceland Seafood Corporati-
on var skapandi fyrirtæki, sem var
í sókn. Guðjon hafði áunnið sér per-
sónulega og fyrirtækinu, sem hann
hafði byggt upp, mikillar virðingar.
Á ráðstefnum var Guðjón eftir-
sóttur ræðumaður, og var hlustað
með athygli á skoðanir hans og sjón-
armið.
Enn á ný urðu kaflaskil í lífi Guð-
jóns. Árið 1986 er hann ráðinn for-
stjóri Sambandsins. Guðjón gekk til
þess starfs með sama hugarfari og
þegar hann varð framkvæmdastjóri
sjávarafurðadeilar og Iceland
Products. Ekki var allt sem sýndist
í málefnum þess fyrirtækis. Guðjón
sagði mér fljótlega eftir að hann tók
við forstjórastarfinu, að sín stærstu
mistök í starfi hefðu verið að láta
ekki fara fram úttekt á Samband-
inu, áður en hann tók við.
Hvort það mat var rétt skal ósagt
látið, en eitt er víst: Ekki var allt
sem sýndist.
Guðjón var stjórnarformaður í Ice-
land Seafood Corporation eftir að
hann lét af starfi framkvæmda-
stjóra. Var hann ekki sáttur við
hvernig staðið var að rekstri þess
fyrirtækis og beitti sér fyrir því að
skipt yrði um framkvæmdastjóra. í
kjölfarið hófst mikil ófrægingarher-
ferð á hendur Guðjóni.
Það er öllum ljóst, sem til þekkja,
að það voru einstaklingar innan
Samvinnuhreyfingarinnar, sem fyrir
þessu stóðu.
Sambandið hafði orðið fyrir mikl-
um álitshnekki vegna „kaffibauna-
málsins" nokkru áður.
Hve miklum skaða samvinnumenn
ollu sínu eigin fyrirtæki með herferð-
inni á hendur Guðjóni getur enginn
dæmt um.
Árin sem Guðjón var forstjóri urðu
miklar breytingar á skipulagi og
rekstri Sambandsins. Þau ár voru
erfið rekstrarár. Töpuð útlán, röng
gengisskráning og háir vextir urðu
skuldugum fyrirtækjum þung byrði.
Endalokin þekkja allir. Árið 1991
var Guðjóni erfitt. Atburður, sem
átti sér stað í janúarmánuði, varð
honum mikið áfall, og minntist hann
þess oft við sína nánustu og trúnað-
arvini.
Um páska það sama ár er Guð-
jóni tjáð að hann sé haldinn alvarleg-
um sjúkdómi. Hann fékk tímabundið
Ieyfi frá störfum og notaði þann tíma
til að leita sér lækninga.
Að loknu leyfi tók Guðjón aftur
til starfa. í ágústmánuði sagði hann
sig úr stjórn Iceland Seafood Corp-
oration, þegar ekki var fallist á til-
lögur hans um breytingar. Guðjóni
mislíkaði mjög afstaða meðstjórnar-
manna sinna í því máli. „í þessu
máli veit ég að ég hef á réttu að
standa,“ sagði hann og bætti við:
,jTíminn mun kveða upp sinn dóm.
Ég vona bara að það verði þá ekki
of seint."
Þegar ég kveð Guðjón B. Ólafsson
er mér efst í huga þakklæti. Þakk-
læti fyrir aldarfjórðungssamstarf,
þar sem hann var minn yfirmaður,
fyrst á Lundúnaskrifstofu, síðan
sjávarafurðadeild, samstarf árin sem
hann var vestan hafs. Guðjón var
stjórnarformaður Útvegsfélags sam-
vinnumanna og Iceland Seafood Ltd,
en í þeim félögum gegndi ég fram-
kvæmdastjórastarfi.
Á milli okkar Guðjóns ríkti alltaf
trúnaður og vinátta, sem aidrei verð-
ur fullþakkað af minni hálfu.
Guðjón var mikill gæfumaður í
sínu einkalífi. Hann var kvæntur
Guðlaugu Brynju Guðjónsdóttur og
eignuðust þau fimm börn, og eiga
eina tengdadóttur og tvö barnabörn.
Það voru margar ánægju- og gleði-
stundir, sem ég átti á heimili fjöl-
skyldunnar í Englandi, á Sunnuveg-
inum, í Bandaríkjunum og á Lauga-
rásveginum.
Elsku Lúlú, Guðjón Jens og Kim,
Bryndís, Brynja, Ása Björk og Ólaf-
ur Kjartan. Ykkar söknuður er mik-
ill. Við Guðrún vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
Minningin um elskulegan eigin-
mann, föður og tengdaföður verður
vonandi sorginni yfirsterkari þegar
frá líður. Ekki má gleyma afastrák-
unum tveimur. Samband Guðjóns
við dótturson sinn Ólaf Friðrik var
einstakt og ekki unni hann síður
Guðjóni Jens yngri. Minningin um
afa verður ykkur dýrmæt í framtíð-
inni.
Blessuð sé minning Guðjóns. Hvíli
hann í Guðs friði.
Ólafur Jónsson.
Fyrir tveimur árum hitti ég fyrr-
verandi sveitunga minn. Svo sem
gengur spurði ég um heilsufar. Hann
tjáði mér að hann væri með sama
sjúkdóm og Guðjón B. Ólafsson. En
þá, fyrir skömmu, hafði birst viðtal
við Guðjón í tímariti, þar sem hann
fjallaði um sjúkdón sinn af hispurs-
leysi hreinskilni.
Sveitungi minn bætti við með
karlmannlegri áherslu: „Læknavís-
indunum fleygir svo ört fram að við
sem höfum sýkst af þessum sjúk-
dómi munum, með tilkomu þeirrar
þróunar í höndum mikilhæfra lækna,
vinna bug á þessum sjúkdómi.“
Fyrir um hálfum mánuði var þess-
um vini mínum fylgt til grafar rúm-
lega sjötugum.
Þetta, sem hér hefur verið sagt,
kom upp í huga minn þegar ég hlýddi
á það í frétt ríkisútvarpsins að Guð-
jón B. Ólafsson væri látinn.
Það var einnig fyrir um það bil
tveimur árum að ég hitti Guðjón á
förnum vegi. Ég spurði hann líka
um heilsufar. Hann svaraði því með
sínum venjulega hressleika, að sér
liði vel. Við höfðum á orði að hittast
við hentugleika og spjalla saman.
Því miður varð aldrei af því. Þess
vegna er það að þetta stutta spjall
og handtak á förnum vegi urðu síð-
ustu samskipti okkar Guðjóns.
Ég kynntist Guðjóni fyrst þegar
hann tók við framkvæmdastjórn
sjávarafurðadeildar Sambandsins.
Þau kynni þróuðust fyrst og fremst
af viðskiptum hans sem fram-
kvæmdastjóra sjávarafurðadeildar-
innar og mín sem starfandi aðila við
framleiðslu sjávarafurða.
Samhliða því að framkvæmda-
stjórinn gætti ýtrustu reglna um
viðskiþti fór það ekkert á milli mála
þegar tímar liðu fram og kynnin
fóru að þróást að Guðjón hafði yfir
miklum mannkostum að búa. Um
þá þætti yrði of langt mál að fjalla
í þessum fáu minningarorðum.
En fyrir það að hafa átt tækifæri
til þess að kynnast viðskiptahæfi-
leikum og ekki síður mannkostum
Guðjóns, oftast á erfiðleikatímum,
vil ég við lát hans færa fram þakkir
og virðingu.
Iceland Seafood Corporation,
dótturfyrirtæki SÍS í Ameríku, var
komið í mjög alvarlega fjárhagslega
stöðu fyrir og uppúr 1970, svo alvar-
lega stöðu, að hún hafði keðjuverk-
andi áhrif á gengi fjölda fyrirtækja
hérlendis.
Til þess að freista þess að koma
stöðu fyrirtækisins í viðunandi horf,
að ekki sé nú talað um að koma því
á sterkan grundvöll, þurfti mikið og
margvíslegt að koma til.
Guðjóni B. Ólafssyni var falin for-
stjórn þess mikla verks.
Á skömmum tíma tókst Guðjóni
að breyta þessu fyrirtæki úr því að
vera allt að því gjaldþrota og drag-
bítur í rekstri íslenskra sjávarút-
vegsfyrirtækja, sem voru í viðskipt-
um við Sambandið, í það að verða
lyftistöng þeirra.
Löngu fyrir lok forstjóratímabils
hans, 1986, hafði hann gert fyrir-
tækið fjárhagslega sterkt sam-
kvæmt bandarískum mælil^varða.
Ég læt þessi orð vegna 'andláts
Guðjóns B. Ólafssonar ekki verða
mikið fleiri.
Þegar að því kemur að sagnfræð-
ingar rita sögu SíS tel ég að þar
muni koma, fram fagleg skýring á
hæfni og mannkostum Guðjóns B.
Ólafssonar, sem eins af mikilhæf-
ustu persónuleikum sem starfað
hafa fyrir Samvinnuhreyfinguna á
íslandi.
Trú sveitunga míns á þróun
læknavísindanna hefur því miður
ekki ennþá náð nógu langt til þess
að ráða bót á sjúkdómi þeim sem
leiddi til dauða Guðjóns B. Ólafsson-
ar, aðeins 58 ára að aldri.
Ég votta eiginkonu Guðjóns, börn-
um þeirra og öðrum ættingjum djúpa
samúð við fráfall hans.
Þórarinn St. Sigurðsson.
Fleiri minningiirgreiniir um
Guðjón B. Ólnfsson bíða birting-
ar og munu birtnst í blaðinu
næstu daga.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og fósturfaðir,
HINRIK GUÐMUNDSSON,
ísafirði,
sem lést þann 30. desember, verður jarðsunginn frá ísafjarðar-
kapellu laugardaginn 8. janúar kl. 14.00.
Þórir G. Hinriksson, Árý Hinriksson,
Daði Hinriksson, Berta Guðmundsdóttir,
Arnar G. Hinriksson,
Kristín Þórisdóttir.
t
Elskuleg dóttir okkar, systir og barna-
barn,
HELGA
BERGÞÓRSDÓTTIR,
Logalandi 3,
(Skálatúni),
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 7. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu,
er bent á Skálatúnsheimilið.
Bergþór Guðjónsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Brynhildur Veigarsdóttir,
Guðmundur Orri Bergþórsson,
Guðjón Guðjónsson, Helga Bergþórsdóttir,
Guðmundur Bjarnason, Brynhildur Bjarnarson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HREFNA EYJÓLFSDÓTTIR,
Hellisgötu 29,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn
6. janúar, kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, eru vinsamlegast beðnir um
að láta Krabbameinsfélag íslands njóta þess.
Sæmundur Björnsson,
Eyjólfur Sæmundsson, Gerður Sigurðardóttir,
Gunnar Sæmundsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Sæmundur Sæmundsson, Þórey Ósk Sæmundsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSBJÖRN SKARPHÉÐINSSON,
Brennihlíð 7,
Sauðárkróki,
verður jarðsunginn í Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 8. janúar kl. 11.00.
Fjóla Guðbrandsdóttir,
Ásgeir Ásbjörnsson, Dröfn Guðmundsdóttir,
María Björk Ásbjarnardóttir, Stefán Guðjónsson,
Skarphéðinn Ásbjörnsson, Anna Dóra Garðarsdóttir,
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, Guðbjörg Bjarnadóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför systur okkar,
SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Víðilundi 20,
Akureyri.
Fyrir hönd vandamanna,
Helga Kristjánsdóttir,
Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Þóra Kristjánsdóttir,
Guðrún Kristjánsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRÍSTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Víðigerði,
síðast til heimilis f Bergholti 3d,
Biskupstungum.
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Ásbjörn Óiafsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
í dag verður Sparisjóður Hafnarfjarðar, Strand-
götu 8-10, lokaður á milli kl. 14.30 og 16.30 vegna
jarðarfarar HREFNU EYJÓLFSDÓTTUR.
Sparisjóður Hafnarfjarðar.