Morgunblaðið - 06.01.1994, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
51
Ja, livílík tröllatrygg-ð...
Frá Sigurði Guttormssyni:
Á því skeiði sögunnar þá er Bret-
ar höfðu hernumið land okkar, öllum
til hrellingar, kynntist ég Stefáni
Jónssyni, sem þá hafði gerst túlkur
hjá hernum úti í Vestmannaeyjum.
Þessi maður reyndist alveg einstakur
öðlingur og réttsýnni en almennt
gerist, og þar að auki skáld gott.
Seinna fluttist Stefán á höfuð-
borgarsvæðið þar sem hann, meðal
annars, gerðist þingmaður fyrir Al-
þýðubandalagið.
Á þingi flutti hann eitt sinn tillögu
þess efnis, að enginn skyldi njóta
mánaðarlauna, er næmu meira en
tvöföldum starfslaunum verka-
manns fyrir sama tímabil. Ekki náði
Bravó!
Frá Magnúsi BI. Jóhannssyni:
Til menntamálaráðherra íslands
og Sinfóníuhljómsveitar íslands,
það að flytja „Hetjulíf“, tónaljóð
Rikards Strauss, sannar hvers
megnug Sinfóníuhljómsveit íslands
er í raun og veru.
Það vill svo til að þetta verk er
eitt af því erfiðasta sem samið hef-
ur verið fyrir hljómsveit. Til þess
þarf stóra hljómsveit, hljómsveit í
háum gæðaflokki, þessvegna ætt-
um við að vera stolt yfir að eiga
stofnun sem Sinfóníuhljómsveit Is-
lands. Hún hefur þegar sannað til-
verurétt sinn, ekki aðeins með að
flytja Strauss, sem er að vísu þrek-
virki, heldur oft, oft áður.
Sem ég nú sit hér nú og hlusta
á Richard Strausss þá vona ég að
íslandi megi vera þeirrar auðnu
njótandi að eiga menningarstofnun
sem Sinfóníuhljómsveit Islands er.
Við erum rík, ég efast um að þjóðfé-
lag eins lítið og við erum geti stælt
sig af því að eiga sinfóníuhljóm-
sveit í þessum gæðaflokki, kannski
eru þetta stór orð, hinsvegar leyfi
mér að telja Sinfóníuhljómsveitina
með einni af þeim bestu, hefur þeg-
ar sannað gildi sitt.
Eg vil þessvegna á þessum ára-
mótum óska henni alls velfarnaðar
og verða þeirra gæfu að njóta þeirr-
ar listar sem hún hefur gefið okkur.
MAGNÚS BLÖNDAL
JÓHANNSSON.
þetta fram að ganga, en varð bara
að aðhiátursefni fyrir þá aurasjúku
sem aldrei fá nóg.
Raunar hefur margt breyst síðan
þetta var. En væri nú ekki tímabært
í kreppunni - þessum ættarkrank-
leika hins frjálsa framtaks - að fast-
setja með lögum, að engum mætti
ákveða hærri mánaðarlaun en sem
svaraði þrem hundruðum þúsunda,
í krónum talið, enda varla nokkur
fjölskylda svo þurftarfrek, að slíkt
nægði henni ekki til framfærslu.
Á orrustuvelli fjármálanna, þar
sem hver vinnufær mannvera berst
fyrir lífi sínu, er aðstaðan harla mis-
jöfn, enda leiðin til farsældar ekki
Frá Magnúsi Brynjólfssyni:
ÞAÐ er undarlegt hvað aumir geta
lagt sig lágt í gróðafíkn og lágkúru.
Gróðafíkn eiganda Sam-bíóanna og
Tölvulands (Sega-leikjatölvur), lýsti
sér vel er þessir menn stóðu fyrir
Aladdín-jólaballi á Hótel íslandi
mánudaginn 27. desember. Eigendur
þessara fyrirtækja voru hreinlega að
leika sér að jólagleði saklausra
barnssála með lymskulegum auglýs-
ingaáróðri og prangi. Öll börnin, full
eftirvæntingar og spariklædd, ásamt
foreldrum héldu að hér væri á ferð-
inni venjulegt jólaball með' því sem
fylgja ber, enda börnin búin að taka
þátt í litaleik Morgunblaðsinsr
Það er ástæða til að taka vel und-
ir ummæli móður, sem lét í sér heyra
í Velvakanda 31. desember og kvart-
aði yfir framkvæmd jólaballsins.
Um leið og komið var í anddyrið
voru aðgöngumiðar teknir af fólki
og afhentar límmiðamyndir af Aladd-
ín og félögum. Nær hefði verið að
afhenda númer til að draga um aug-
lýsta vinninga. I raun voru þetta
svik og prettir gagnvart þessum
stóra hóp, sem mætti á skemmt-
unina. Þegar til átti að taka kom í
ljós að ekkert bendir til að dregið
hafi verið um vinningana, sem voru
í boði. Fulltrúi Sam-bíóanna hafði
gert sér lítið fyrir og dregið út vinn-
ingana áður en skemmtunin byrjaði
og án þess að nokkur gesta sæi til.
Slík framkvæmd er algjörlega siðlaus
öllum auðfundin. Flestir reyna þó
að þumlunga sig áfram eftir bestu
getu, aðrir vilja oft stytta sér leið í
trausti á notagildi kænskunnar. Ein-
staka leita þó skjóls í náðarfaðmi
einkavinavæðingarinnar.
Margur daglaunamaðurinn verður
að falla þungt á árar til þess að
geta framfleytt sér og sínu skyldu-
liði, því lítið þýðir að vonast eftir
yfirvinnu meðan stöðugt fleiri
vinnufúsum höndum er ýtt út í óviss-
una. Reyndar finnast enn meðal vor
svo kynngimögnuð ofurmenni, sem
ekki þurfa annað en segja: „Verði
yfirvinna" og þá verður yfirvinna.
Eins og er siglir fley framvindunn-
og ekki Sam-bíóunum til sóma.
Á meðan á ballinu stóð, var haldið
uppi miskunnarlausum og uppá-
þrengjandi áróðri fyrir Aladdín-bíó-
myndinni og Sega-leiktölvum, sem
kosta um 20 þúsund. Dagskráin var
rofin í tvígang til að neyða áróðurinn
að þátttakendum.
Það var einnig óskammfeilni af
sölumönnum Saga-tölvuleikja að
halda 6-8 tölvuskjám og börnunum
á miðju jólaballi, vitandi að það
myndi aðeins valda leiðindum og
hugarangri þeirra og ekki síst for-
eldranna þar sem jólagjafavertíðin
var nýliðin. Auk þess gátu þeir Sega-
tnenn sagt sér það sjálfir að einung-
is brot af 500 börnum fengju aðgang
að tölvuskjánum.
Börnin voru dregin á fölskum for-
sendum á sölusýningu en ekki jóla-
trésskemmtun.
Vonandi láta þeir Sam-bíómenn
sér þetta að kenningu verða.
Til að hnykkja í lokin á þessari
leiðindasamkomu stillti sölumaður
sér fyrir útganginn og seldi límmiða-
myndabækur, er við feðgar gengum
út. Það má segja að það hafi verið
leiður og sár drengur, sem gekk út
af svokölluðu „jólaballi" Sam-bíó-
anna. Jólaballið varð að harðri sölu-
herferð og greinilega var óheiðarlega
staðið að útdrætti vinninganna.
MAGNÚS BRYNJÖLFSSON,
Aflagranda 31,
Reykjavík.
Aladdín-jólaball
- Söluherferð
VELVAKANDI
HVAR ER NÁUNGA-
KÆRLEIKURINN?
ÉG VIL segja frá því hvað gerðist
á Þorláksmessu. Bróðir minn, sem
er um tvítugt, var nýkominn úr
aðgerð á báðum fótum og var í
gifsi á öðrum fæti og með umbúð-
ir á hinum og var á hækjum.
Hann fór í Apótek Garðabæjar
að kaupa verkjalyf en þegar hann
er nýkominn inn rennur hann í
bleytunni og dettur kylliflatur.
Apótekið var fullt af fóiki, en
enginn gat sýnt þá hjálpsemi að
aðstoða hann á fætur, svo hann
þurfti einn að drösla sér upp og
auðvitað varð hann mjög skelkað-
ur og farinn að skjálfa, bæði af
sársauka og hræðslu um að eitt-
hvað hefði skaddast I fótunum.
Allir viðstaddir létu sem þeir
tækju ekki eftir þessu og litu bara
undan. Sent betur fer skaddaðist
hann ekkert. En núna vitum við
bæði að íslendingar eru ekki eins
hjálpsamir og alltaf er sagt.
Ég tel að Hemmi Gunn sé bú-
inn að skemma fyrir hjálpsemi
Islendinga til að skemmta sér og
öðrum á kostnað annarra. Þetta
er fólgið í því að hlæja að fólki
sem réttir út hjálparhöndina. Mér
finnst að Hemmi Gunn ætti að
hætta þessum bjánaskap svo fólk
fari aðeins að hugsa um náung-
ann.
Ég ætla að enda á því að segja
að ég vona að fólkið sem var statt
í apótekinu breytist til batnaðar
og reyni að muna, að „það sem
þér viijið að aðrir nienn gjöri yður,
það skuluð þér og þeim gjöra“.
16 ára umhyggjusöm systir.
VERÐUGT
VERKEFNI
KONA hringdi til Velvakanda og
vildi koma því á framfæri til allra
þeirra sem hafa verið að sprengja
flugelda á gamlárskvöld, að taka
til hendinni og þrífa eftir sig tómu
hulstrin undan flugeidunum. Þau
liggja eins og hráviði út um allar
jarðir og henni finnst það verðugt
verkefni á Ári fjölskyldunnar, að
foreldrar kenni börnum sínum
hvernig á að ganga um í náttúr-
unni og víðar. Það er ekki nóg
að segja þeim að fara varlega
með eldinn á gamlárskvöld, þótt
það sé líka nauðsynlegt, heldur
verði einnig að kenna þeim að
hreinsa eftir sig umbúðirnar und-
an flugeldunum.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hvar er húfan mín?
ÞETTA eru ekki ræningjarnir þrír
að taka til hjá sér, heldur er ég
að leita að töskunni minni og ein-
hvetju af því sem var í henni.
Hún hvarf af skemmtistaðnum
22 á nýársnótt. Margt af því sem
var í henni var ekkert sem ég
þarf að fá aftur, en þó var þar
loðhúfa rússnesk, sem er mér afar
dýrmæt, og lyklakippa með öllum
lyklunum mínum á - og þá þarf
ég nauðsynlega. Þeir eru á plast-
spjaldi sem á stendur LA Gear.
Ef einhver heiðarleg manneskja
er með þessa hluti vil ég góðfús-
lega benda á óskilamunadeild lög-
reglunnar.
Sýndu nú smá jólaanda og
gerðu góðverk á nýju ári.
Anna
Gleraugu
STÚLKAN sem fann gleraugu í
Stóragerði á milli jóla og nýárs
er beðin að hringja í síma 34136.
Leikfimitaska o.fl.
ÞANN 22. desember hvarf leik-
fimitaska úr bílnum mínum í
Skeijafirðinum. Ef svo vildi til að
taskan hefði fundist einhvers
staðar, þætti mér vænt um að fá
hana aftur. Þetta er svört og gul
Búnaðarbankataska og í henni
voru skítug íþróttaföt, Nike-skór
og vasadiskó. Finnandi mætti
gjarnan hafa samband i síma
13323.
ar ekki neinn beggja skauta byr í
áttina til launajöfnuðar, enda eiga
þeir sem við stjórnvölinn standa víst
engan nothæfan leiðarstein.
Ofáir eru þeir fjármálajöffar, er
þiggja laun langt framyfir þúsund-
irnar þrjúhundruð. Reyndum við að
giska á hvað skrifstofustúlka, vel
þjálfuð, þyrfti að vinna marga mán-
uði til að ná launum þess ofurmenn-
is, sem olnbogað sig hefur upp í
efstu rim launastigans. Mætti víst
gera ráð fyrir að það tæki hana 7
til 9 mánuði. Þessa þraut er þó ekki
auðvelt að leysa þar eð starfslaun
slíkra gæðinga eru víst oftast eins
konar hernaðarleyndarmál.
Vildum við hins vegar reyna að
geta okkur til um hve marga mán-
uði afgreiðslustúlka í stórmarkaði
myndi þurfa að vinna til að ná mán-
aðarlaunum ofurmennisins. Væri þá
líklega best, til að ná sáttum, að slá
upp í För Gullivers til Putalands.
Ja, hvílík tröllatryggð við rang-
lætið.
SIGURÐUR GUTTORMSSON,
Kaplaskjólsvegi 49,
Reykjavík.
LÍF MITT fSBLÚM - CEVILLA RÚSIS
Lárus Þorieifsson Thorleifsson
KRIPALUJÓGA
Veriö velkomin á kynningu laugardaginn
8. janúar kl. 14.00.
Byrjendanámskeið hefjast 10. janúar.
Kennarar: Áslaug Höskuldsdóttir og
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
HERMANNASKOR
Ekta ensk framleiðsla.
Skinnfóðraðir.
Framleiðsla í hágæðaflokki.
Hagstætt verð.
Skjót afgreiðsla.
Hafið samband við:
K. Todnem AS,
Boks 843, Krossen,
4301 Sandnes, Noregur.
Sími +47 51 66 10 82
Telefax +47 51 66 76 17
tónlistapnam!
Skemmtilegt
SVEIGJANLEGUR SKÓLI. Fjölbreytt verkefnaval eftir
áhugasviði nemenda stuðlar að ánægjulegra tónlistarnámi.
Píanó • Orgel
Hljómborð • Ilarmonikka
Á miðsvetrarönn verður kennt á píanó, orgel, harmonikku
og hljómborð af öllum gerðum auk tónfræði og hljómfræði.
Einkatímar hóptímar
Kennsla fer að mestu fram í einkatlmum. Tónfræði,
hljómfræði og fyrirlestrar verða í hóptímum að hluta.
Nemendur á öllum aldri
Byrjendur, ungir sem gamlir, eru jafn velkomnir og þeir
sem eru lengra komnir í námi.
Innritun og upplýsingar
Innritun í síma 91- 678150 og í Hljóðfæraversluninni RÍN.
Roland hljóðfæri - gæðin segja til sín.
Nemendur skólans fá 10% staðgreiðsluafslátt af öllum vörum í
Hljóðfæraversluninni
fiin
FRAKKASTÍG 16,101 REYKJAVÍK, SÍM117692
HLJÓÐFÆRI í 50 ÁR
, J> ,
TONSKOLI
Guðmundur Haukur, kennari og hljómlistarmaður.
Hagaseli 15, Sími 91-678150