Morgunblaðið - 12.03.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C/LESBOK
59. tbl. 82. árg. LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Banja Luka í Bosníu
Líkt við
gyðinga-
hverfið
í Varsjá
Sar^jevo, Vín. Reuter.
BOSNÍU-Serbar hafa breytt
borginni Banja Luka, höfuðvígi
sínu í norðurhluta Bosníu, í
„hryllingssvæði“ fyrir múslima
og Króata, sem flykkjast í
höfuðstöðvar hjálparstofnunar
Sameinuðu þjóðanna í borginni
til að biðja um aðstoð við flýja
þaðan. Peter Kessler, talsmað-
ur Flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, líkti ástandinu
við gyðingahverfið í Varsjá í
síðari heimsstyrjöldinni.
„Ástandið á meðal múslima og
Króata í Banja Luka er hryllilegra
en á nokkru öðru svæði í Bosníu,“
sagði Kessler.
Fregnir herma að 11 manns hið
minnsta hafi beðið bana og átta
byggingar hrunið í flugskeyta-
árásum Serba á múslimaborgina
Maglaj í fyrrakvöld. Óttast er að
enn fleiri lík finnist í rústum bygg-
inganna. Kessler sagði að hartnær
19.000 íbúar Maglaj væru „ekkert
nema skinnið og beinin“ og liðu
miklar þjáningar.
Kessler sagði að ástandið væri
þó enn verra í Banja Luka. „Borg-
in er hryllingssvæði, eins og risa-
stórt gyðingahverfi í Varsjá.“
S---------------—
Morgunblaðið/Júlíus
Svartur föstudagur í umferðinni
SJÖ bílar áttu hlut að máli í árekstri sem varð í
Ártúnsbrekku í Reykjavík um miðjan dag í gær.
Menn úr tveimur bílanna voru fluttir á slysadeild
með bak- og hálsmeiðsli. Skömmu síðar ók 78 ára
gamall maður, sem grunaður er um ölvun, á fimm
bíla og stórskemmdi tvo þeiíra á leið sinni úr Faxa-
feni og um Skeiðarvog að Miklubraut. Þrennt hlaut
minniháttar meiðsli, að sögn lögreglu. „Þetta hefur
verið svartur föstudagur í umferðinni," sagði Guð-
mundur Einarsson, aðalvarðstjóri lögreglu, i sam-
tali við Morgunblaðið. Að auki áttu fimm bílar
aðild að tveimur árekstrum, sem urðu með fimm
mínútna millibili á Reykjanesbraut i Breiðholti síð-
degis og ekið var á þijá gangandi vegfarendur,
þeirra á meðal 2 ára dreng.
Sjá frétt á bls. 2
Rcuter
Mannvíg í Suður-Afríku
LUCAS Mangope, forseti Bophuthatswana, heimalands blökkumanna
í Suður-Afríku, féllst í gær á að falla frá þeirri ákvörðun sinni að snið-
ganga fyrirhugaðar þingkosningar í Suður-Afríku og banna kosninga-
baráttu og kjörfundi í heimalandinu. Þúsundir vopnaðra hvítra hægri-
öfgamanna gengu um götur Mmabatho, höfuðstaðar Bophuthatswana,
til að veija stjórn heimalandsins vegna mannskæðra óeirða á meðal
íbúa sem kröfðust þess að kosningarnar yrðu heimilaðar. Suður-afrísk-
ir stjórnarhermenn voru einnig sendir til borgarinnar og óttast var að
til átaka kæmi milli þeirra og hægriöfgamannanna. Hermaður frá
Bophuthatswana drap þtjá nýnasista í Mmabatho í gær og myndin var
tekin þegar einn þeirra bað sér vægðar. Andartaki síðar lá hann í valnum.
Andrej Kozyrev varar við vanmati á Rússum
Orlög Rússlands
að vera stórveldi
Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
ANDREJ Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, segir að „hættuleg
ímyndun11 sé þröskuldur á vegi bættra samskipta Rússa og Vesturveld-
anna, sú að Bandaríkin séu eina risaveldið í heiminum. „Sumir Vestur-
landamenn létu sig dreyma um að hægt yrði að koma á sainstarfi við
Rússa sem byggðist á forsendunni: Ef Rússar eru orðnir góðir ættu
þeir að fylgja okkur í einu og öllu,“ sagði Kozyrev í viðtali við dag-
blaðið Izvestíu í gær.
Ráðherrann mun eiga fund með
bandarískum starfsbróður sínum,
Warren Christopher, í Vladívostok á
mánudag og reyna að bæta sam-
skipti ríkjanna.
Kozyrev sagði að samstarf við
Vesturveldin myndi aldrei merkja að
Rússar hættu að gæta hagsmuna
sinna af hörku; Rússland myndi aldr-
ei sætta sig við annað en að komið
yrði fram við ríkið sem stórveldi,
hvað sem liði erfiðum tímum. „Það
eru örlög Rússlands að vera stór-
veldi,“ sagði Kozyrev. „Hættulegt
og árásargjarnt stórveldi undir stjórn
kommúnista eða þjóðernissinna, frið-
samlegt og blómstrandi undir lýð-
ræðisstjórn - en ávallt stórveldi."
Ráðherrann hélt í gær í skyndi-
heimsókn til ísraels og Alsírs og
sögðu talsmenn ráðuneytisins í
Moskvu að förin yrði „mjög mikilvæg
og örlagarík", ráðherrann myndi
færa fulltrúum ísraela og Palestínu-
manna sérstök skilaboð Borísar
Jeltsíns forseta.
Varað við minni framlögum til
hersins
Andrej Kokoshín, aðstoðarvarn-
armálaráðherra Rússlands, ræður í
viðtali við dagblaðið Sevodníja ein-
dregið frá því að fylgt verði eftir
áætlunum fjárlaga ársins 1994 um
niðurskurð á framlögum til varnar-
mála. Hann segir að í reynd verði
framlög lækkuð um 50%. Þetta merki
að fækka verði í hernum úr 2,5 millj-
ónum í 2,1 milljón og skjóta endur-
bótum á frest. „Það liggur í augum
uppi að með þessari stefnu munum
við missa stjórn á hermönnunum",
sagði ráðherrann. Einnig hefur verið
bent á að samdráttur í hergagna-
framleiðslu geti kostað milljónir
manna vinnuna.
Blaðið segir að Jeltsín hafi nýlega
tekið undir þessi sjónarmið og hvatt
til þess að allra ráða verði leitað við
fjárlagagerð til að halda uppi öflug-
um vörnum. Það hefur árum saman
verið martröð vestrænna ráðamanna
að rússneskir herflokkar, sumir með
kjarnorkuvopn undir höndum, gætu
hafið uppreisn vegna lélegra kjara.