Morgunblaðið - 12.03.1994, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
Héraðsdómur um skatt á dagpeninga starfsmanns P&S á Austurlandi
Dagpeningar skattfijálsir
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur felldi í gær niður úrskurð yfir-
skattanefndar sem hafði meinað verkamanni hjá Pósti og síma
á Egilsstöðum að draga dagpeninga sem hann hafði fengið
greidda vegna vinnu fjarri heimili frá tekjum á skattframtali.
Maðurinn býr á Egilsstöðum en
vinnur á vegum Póst- og símamála-
stofnunar í báðum Múlasýslum og
A-Skaftafellssýslu.
Á árinu 1991 hafði maðurinn
fengið greiddar 314 þúsund krónur
í dagpeninga vegna vinnu utanbæj-
ar og fjarvista frá heimili á mat-
málstímum og á kvöldin. Skatt-
stjóri Austurlands hafnaði því að
maðurinn drægi dagpeningana frá
að fullu og hækkaði opinber gjöld
hans um sem nam 136 þúsund krón-
um.
Yfirskattanefnd staðfesti úr-
skurð skattstjóra en heimilaði þó
frádrátt að litlu leyti og stefndi
maðurinn þá ijármálaráðherra fýrir
dóm til að fá úrskurðinum hnekkt
þar sem hann taldi að sú skoðun
skattyfirvalda að allt umdæmis-
svæði Póst- og símamálastofn-
unarinnar á Austurlandi teldist
vinnustaður sinn fengi ekki staðist
en sú niðurstaða lá til grundvallar
því að honum var gert að greiða
skatt af greiðslum sem ætlaðar
hafi verið til að mæta kostnaði
vegna starfa fjarri heimili og
vinnustað.
í niðurstöðum Jóns L. Amalds
héraðsdómara er vísað til þess að
samkvæmt 40. grein stjómarskrár-
innar megi engan skatt leggja á
né breyta né af taka nema með
lögum. Skattalög séu íþyngjandi
fýrir borgarana og með hliðsjón af
því hafí almennt verið talið nauð-
synlegt, að skattalög væru ótvíræð
og beri löggjafa skylda til að bæta
úr óskýrleika í skattalögum en bera
hallann af því elia og að öllu jöfnu
verði að skýra vafa skattþegni til
ívilnunar.
Lýst er heimildum til að draga
frá tekjum útgjöld sem að hámarki
jafngildi móttekinni fjárhæð öku-
tækjastyrkja, dagpeninga eða hlið-
stæðra endurgreiðslna og segir að
þótt ljóst sé að slíkt skattafrádrátt-
arkerfí bjóði alltaf heim hættu á
misnotkun, verði ekki litið fram hjá
þeirri staðreynd, að kerfíð sé fyrir
hendi og hafí veitt borgurunum þá
ótvíræðu heimild til frádrattar sem
lög og reglugerð kveði á um. Niður-
staða málsins ráðist þó ekki af því
hvort vinnustaður mannsins verði
talinn vera höfuðstöðvar Pósts og
síma á Egilsstöðum eða Austur-
landsumdæmi allt enda mundi slíkt
leiða til þeirrar ósanngjömu niður-
stöðu að maðurinn yrði að greiða
skatta af greiðslum sem ætlaðar
séu til að mæta kostnaði vegna
starfa fjarri heimili og aðalstarfs-
stöð. Af því mundi einnig leiða að
væri allt landið umdæmi starfs-
manna, ætti hann ekki rétt á frá-
drætti á útgjöldum vegna ferða um
landið í þágu vinnuveitanda. Ekki
sé eðlilegt að neita manninum um
frádrátt sem aðrir launamenn njóti
vegna hliðstæðra tilefna, slíkt bijóti
í bága við jafnréttisreglur. Ekki
þyki rétt að láta skilgreiningu á
starfsumdæmi eða vinnustað alfarið
ráða umræddum frádrætti heldur
hljóti fjarlægð frá heimili einnig að
skipta máli í þessu sambandi.
Því voru kröfur mannsins teknar
til greina og ríkissjóður dæmdur til
að endurgreiða honum þá skatta
sem teknir höfðu verið af dagpen-
ingum hans.
30 millj-
ónirnar
skiptust
áfimm
AFMÆLISVINNINGUR
Happdrættis Háskóla Is-
lands, sem dreginn var út í
fyrrakvöld og kom á
trompmiða nr. 23594B, sem
var í eigu 5 einstaklinga, sem
eru vinnufélagar og hlutu
þeir því 30 milljónir króna.
Vinnufélagamir vilja ekki
láta nafna sinna getið, en að
auki áttu þeir númerin sitt-
hvoru megin og fengu þar af
leiðandi aukavinningana og því
samtals 30,5 milljónir. Hver
þeirra hlýtur því 6,1 milljón
króna, skipti þeir vinningsupp-
hæðinni jafnt á milli sín.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 12. MARZ
YFIRLÍT: Milli Islands og IMoregs er víðáttumikil 970 mb laegð sem hreyfist norð-
austur en 1.012 mb hæð yfir Grænlandi. Milli Labrador og Suður-Grænlands er
990 mb lægð á leið austnorðaustur og verður á Grænlandshafl á morgun.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Slydda með suöur-
ströndinni, él á vfð og dreif með norður- og austurströndinni en þurrt á Vestur-
landi. Frostlaust við suðurströndlna yfir daginn, annars 0 til 6 stiga frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFURÁSUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt og él norðanlands og austan
en snjókoma með köflum suðvestantil. Frost á bilinu 2 til 8 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Norðvestanstrekkingur með óljum aust-
ast á landinu. Norðaustanátt norðvestanlands en hæg suðaustanátt eða breytileg
átt sunnanlands. Él víða um land, slst þó suðaustantil. Áfram talsvert frost.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30. Svar-
sfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
O tík
Heiöskírt Léttskýjaö
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
& A
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrír Slydduél Él
* * *
* *
* *' *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
dig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í g®f)
Fært er um Hellisheiði og Þrengsli, einnig er færð góð um uppsveitir Árnessýslu.
Fært er um Snasfellsnes og Dali og til Reykhóla um Heydal, en Brattabrekka er
ófær. Á sunnanverðum Vestfjörðum er fært um Kleifaheiði og Hálfdán, en þar er
skafrénningur. Að norðanverðu er fært um Steingrfmsfjaröarheiöi og Djúp til Isa-
fjarðar, og fært er um Breiöadalshelði en Botnsheiði er ófær. Norðurleiðin er fær
til Siglufjarðar og Akureyrar, en skafrenningur er nyrðra. Norðan Akureyrar er
fært með ströndinni ailt til Vopnafjarðar, en þar er nokkur snjókoma og skafrenn-
ingur. Á Austfjörðum eru heiðar ófærar, en fært á láglendi, þarna er nokkur skaf-
renningur.
Upplýsingar um færð eru velttar hjá Vegaeftlrliti f síma 91-631500 og á grænni
linu, 98-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri +1 snjókoma Revkiavlk 0 skýjaS
Bergen 5 alskýjað
Helsinki 2 skýjað
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Narasarasuaq +12 skýjað
Nuuk +13 snjókoma
Ósló 4 léttskýjað
Stokkhólmur 6 alskýjað
Þórshöfn 5 haglél
Algarve 17 akýjað
Amsterdam 10 skýjað
Barcelona 15 þokumóða
Berlfn 10 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 9 skýjað
London 9 skýjað
LosAngetes 13 skýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Madríd 14 hálfskýjað
Malaga 16 skýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal +8 léttskýjað
NewYork 2 alskýjað
Orlando 6 létlskýjað
París 12 skýjað
Madeira 15 skýjað
Róm 15 þokumóða
Vín 12 léttskýjað
Waahlngton vantar
Winnipeg +8 alskýjað
IDAGkl. 12.00*
Heimlld: Veðurstofa ístands
* (Byggt á veðurepá k}. 18.30 í gær)
Hvað kostar smurþjónustan?
ESSO
olis
Bíll yfirfarinn 930 930 950 800
Olíusfa 840 768 550 400
Smurolía, 3,5 lítrar 668 952 790 1.001
ísvari, 1 lítri 145 120 145 -
Frostlögur, 1 lítri 142 190 160 -
SAMTALS 2.725 2.960 2.595 2.201
Munur á verði á
milli smurstöðva
nemur allt að 59%
MUNUR á hæsta og lægsta verði, sem er tilboðsverð, fyrir smurþjón-
ustu hjá fjórum smurstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, sem Morgun-
blaðið leitaði til, er rúm 59%. Einnig kemur fram að verðmunur
innbyrðis milli smurstöðva sem selja vörur frá olíufélögunum þrem-
ur sé rúm 14%. í samanburðinum er miðað við ákveðið grunngjald
fyrir að yfirfara fólksbíl, skipta um oliusíu, setja 3‘/2 Iítra af olíu á
vélina, bæta einum lítra af ísvara á rúðusprautu og einum lítra af
frostlegi á kælikerfið.
Leitað var til þriggja smurstöðva
sem selja vörur frá Esso, Olís og
Skeljungi og verð á smurþjónustu
borið saman við verð sambærilegrar
þjónustu hjá smurstöð Pennzoil-
umboðsins. Fram kemur að munur á
hæsta og lægsta verði milli smur-
stöðvanna þriggja innbyrðis er rúm
14%. Munurinn milli hæsta verðs,
sem er hjá Olís-smurstöðinni við
Vegmúla, og tilboðsverðs hjá
Pennzoil-umboði er rúm 59%. Til-
boðsverðið er 1.860 krónur fyrir til-
teknar bíltegundir, þrjár í hveijum
mánuði. Loks má geta að munur
milli hæsta verðs, sem er hjá Olís,
og fasta verðsins hjá Pennzoil er rúm
34%.
Gert er ráð fyrir í könnuninni að
um sé að ræða fólksbíl sem tekur
3‘/2 lítra af olíu og miðað er við
meðaldýra olíu. Einnig er miðað við
meðaldýrar olíusíur. Hjá Pennzoil-
umboðinu var miðað við tiltekna gerð
af olíu, svokallaða semi-synthetic.
Að sögn Ingvars Amar Karlssonar
hentar þessi olía fyrir flestar gerðir
bifreiða en hún sé hins vegar tals-
vert dýrari en við megi búast. Einnig
eru ísvari og frostlögur innifaldir í
verði smurstöðvar Pennzoil ef verið
er að bæta á, en Ingvar Örn segir
að ef skipt sé um annað hvort kosti
lítrinn af ísvara 40 krónur og lítrinn
af frostlegi 120 krónur. Þórður
Sveinsson, Gunnar Þór Sveinsson og
Jón Stefánsson hjá smurstöð Esso í
Hafnarstræti, smurstöð , OIís við
Vegmúla og smurstöð Skeljungs í
Skógarhlíð gáfu upp kostnað fyrir
áðurgreinda þjónustu.
------» ♦ ♦------
Sameigin-
legt fram-
boð reynt
á ísafirði
Isafirði.
■SAMTÖK um kvennalista buðu
Alþýðubandalagi, Alþýðufiokki og
Framsóknarflokki til viðræðna
um sameiginlegt framboð til bæj-
arsljórnarkosninganna í vor.
Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur
hafa tekið jákvætt undir viðræður,
en Framsóknarflokkur hafnaði eftir
að skoðanakönnun hafði farið fram
eftir því sem kemur fram í bréfi
þeirra til kvennanna.
Tveir fulltrúar frá hveijum hinna
flokkanna þriggja hafa ákveðið að
hittast í kvöld, föstudag, til að fara
yfir stöðuna. Flokkarnir eru komnir
mislangt á veg með uppstillingu en
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fyrir
nokkru birt sinn framboðslista.
Úlfar.