Morgunblaðið - 12.03.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.03.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994 13 Bandalag íslenskra sérskólanema 15 ára eftir Sóleyju Veturliðadóttur Bandalag íslenskra sérskóla- nema var stofnað 10. nóvember 1979 og á Jm' 15 ára afmæli á þessu ári. BISN (eins og samtökin er kölluð) eru ópólitísk hagsmuna- samtök 3700 nemenda í 15 sérskól- um. Þeir eru: Fiskvinnsluskólinn, Fósturskólinn, Garðyrkjuskólinn, íþróttakennaraskólinn, Kennarahá- skólinn, Leiklistarskólinn, Mynd- lista- og handíðaskólinn, Samvinnu- háskólinn, Stýrimannaskólinn, Söngskólinn, Tónlistarskólinn, Tækniskólinn, Tölvuháskólinn, Vél- skólinn og Þroskaþjálfaskólinn. Skólarnir eru misstórir og starfsemi þeirra mjög misjöfn. Hlutverk BÍSN Skólarnir innan BÍSN eiga allir það sameiginlegt að námið sem í þeim er stundað er lánshæft og því á BÍSN fulltrúa í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Eitt af lykilhlutverkum BÍSN er að standa vörð um hagsmuni nemenda gagnvart LÍN og miðla upplýsing- um um lánamál til þeirra og með beinlínutengingu við tölvur Lána- sjóðsins, er hægt að veita náms- mönnum alla þjónustu á einum stað. BÍSN lætur einnig til sín taka í fleiri málefnum. Samtökin reka at- vinnu- og húsnæðismiðlun og er BÍSN fulltrúi sérskólanema gagn- vart stjórnvöldum í málum er snerta menntun og hagsmuni félags- manna. _ En BÍSN er ekki bara hagsmuna- samtök. Það er líka félagssamtök og starfar í samvinnu við nemenda- félög skólanna. BÍSN stundar ýmsa útgáfustarfsemi. Símaskrá BÍSN er kominn út í fjórða sinn. Frétta- bréf kemur út þrisvar til ijórum sinnum á ári og Málpípan, málgagn BÍSN kemur út einu sinni á ári á svipuðum tíma og Menningarvika BÍSN er haldin. Þetta er tilvalinn vettvangur fyrir nemendur sérskól- anna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þessi blöð fá nemendur send heim. Dótturfyrirtæki BÍSN er Bygg- ingarfélag námsinanna (BN). Lengi vel var það bara til sem stórar hug- myndir framtakssamra og bjart- sýnna nemenda, á pappírum og á bankabók en á síðasta ári var ráð- ist í að kaupa Hótel Höfða við Skip- holt 27, þar sem nú er rekinn nem- endagarður með um 35 herbergjum. í sumarleyfum skólanna er Höfði rekinn sem hótel. Á sama stað hef- ur BÍSN skrifstofu sína. Menningarvika BÍSN Ég minntist áðan á Menningar- viku BÍSN. Þar ætla ég aðeins að staldra við þar sem Menningarvikan er á næsta leyti 12. - 20. mars. Þetta er í fjórða sinn sem Menning- arvika er haldin. Tilgangurinn með því að halda Menningarviku er að vekja athygli á skólunum innan BÍSN og efla tengsl á milli nem- ■ í FRÉTT frá Dýrfiðingafélag- inu í Reykjavík segir „að félagið haldi árlegan kaffidag félagsins í Bústaðakirlqu sunnudaginn 13. mars. Hefst hann með messu í kirkj- unni kl. 14 og kaffiveitingar í sam- komusal kirkjunnar að lokinni messu. Allir velunnarar félagsins og Dýraíjarðar-eru velkomnir og þeir sem eru 70 ára og eldri eru sérstaklega boðnir. Þessi samkoma hefur tvíþættan tilgangs, sem er, að allur ágóði af kaffisölu rennur til byggingar aldraðra heima í Dýrafirði, sem félagið hefur safnað til á síðstu árum og í öðru lagi að styrkja samheldni þeirra Dýrfirð- inga sem flutt hafa að vestan á liðn- um árum“,- „Tilgangurinn með því að halda Menningar- viku er að vekja athygli á skólunum innan BISN og efla tengsl á milli nemenda í ólíku námi. Hver skóli hefur sína sérstöðu og sína sér- stöku menningu." enda í ólíku námi. Hver skóli hefur sína sérstöðu og sína sérstöku menningu. En með starfinu í BÍSN og með því að halda Menningarviku sem þessa, fínna nemendur skól- anna hugmyndum sínum sameigin- legan farveg. Þar sem þetta er af- mælisár BISN verður dagskrá Menningarviku mjög fjölbreytt. All- ir skólar BÍSN leggja sitt af mörk- um til að gera Menningarviku sem best úr garði. Öll vinna við skipu- lagningu og framkvæmd Menning- arvikunnar er unnin af nemendum. Það verður gefíð út ljóða- og smá- sagnakver með ljóðum og smásög- um eftir nemendur skólanna. Hinir árlegu BÍSN leikar eru, þar sem keppni er á milli skóla í körfu, handbolta, fótbolta og blaki. Meðal dagskrárliða verða tón- leikar hjá Tónlistarskólanum, óperukvöld hjá Söngskólanum og allir listaskólamir (Tónlistar-, Söng-, Leiklistar- og Myndlista- og Sóley Veturliðadóttir handíðaskólinn) verða með SALI- kvöld þar sem ýmsar uppákomur af listrænum toga verða. Uppeldisskólarnir (Fóstur-, Þroskaþjálfa- og Kennaraháskól- inn) verða með málþing. Kynning- ardagur Stýrimannaskólans er ár- legur liður í Menningarviku, þar sem m.a. verður boðið upp á flot- gallasund og Sæbjörg, skip slysa- varnaskóla sjómanna, verður kynnt. Myndlistarsýning á vegum Mynd- lista- og handíðaskólans verður alla dagana á Höfða, nemendagarði. Einnig verður kynning á starfsemi listgreinanna í Kennaraháskólanum. Lokapunkturinn verður Fjöl- skyldudagur, þar sem fram koma kórar BÍSN skólanna, brúðuleikhús, mini-golf, og andlitsmálning fyrir þá hugrökku, ljóðaupplestur og margt fleira. Dagskráin verður aðallega á kvöldin til að gera sem flestum fært að mæta og er aðgangur ókeypis á alla dagskrárliði nema dansleikinn. Menningarvikan er öllum opin, ekki bara nemendum skólanna og er þar komið kjörið tækifæri til að gera sér glaðan dag, meðan beðið er eftir vorinu. Höfundur er nemandi í Þroskaþjálfaskóla Islands ogí miðstjóm BÍSN. LVUR , STORSYNING IKOLAPORTINU UM HELGINA ..auk skemmtilegs markaðstorgs 200 seljendal Á sérstöku sýningarsvæði í hluta Kolaportsins efnum við til spennandi stórsýningar meira en 30 aðila sem kynna fjölbreyttar nýjungar í tölvum hugbúnaði, og margvíslegum tæknibúnaði... Boöeind, Bókaútgáfan Aldamót, Bóksaia stúdenta, ET-blaðiö, Fjölnemar, ITI, Orion, Gagnabanki íslands, Goösögn, HKH, Heimilistæki, Kerfisþróun, Korn, Litaljós, Nýherji - Ambra, IBM, Lotus, Oz, Ráðhugbúnaður, Teikniþjónustan, Davis, Rapesco, A+K, TOK, Rögg, Símamarkaðurinn, Tæknibær, Gagnabankinn Villa, Tölvu- og viðskiptaþjónustan, Tölvuskóli Reykjavíkur og fleiri kynna meöal annars: TÖLVUR, FAX MÓTÖLD, DISKLINGA, SKANNA, SKJÁARMA, RYKHLÍFAR, SKJÁSÍUR, ORÐABÆKUR, TÖLVUBÆKUR, TÖLVUBLÖÐ, STÝRIKERFI, SKRÁNINGA- OG MÆLITÆKI, AÐVÖRUNARKERFI, GERVIHNATTA "FRIÐÞJÓF" (SÍMBOÐA), FORRITAPAKKA, GEISLADRIF OG DISKA, TÖLVU KARAOKE, HUÓMTÆKI, BÓKHALDSHUGBÚNAÐ, GREIÐSLUÁÆTLANAKERFI, FJÖLSKYLDUFORRIT, HUGBÚNAÐ FYRIR BÖRN, LAGER- OG SÖLUKERFI, LAUNAKERFI OG HÓTELKERFI, TÖLVUSKJÁVARPA, ALLT AÐ 50 METRA LÖNG KENNARAPRIK, SKRIFTÖFLU, MODEM, STÝRISPJÖLD OG ÖRGJÖRVA, GAGNABANKA, TÖLVUNÁMSKEIÐ, TÖLVUGRAFÍK og ótal margt fleira. MEÐAL SÉRSTAKRA SÝNINGARTILBOÐA: BOÐEIND verður með sérstök sýningartilboö á tölvum, fax/mótöldum, disklingum, skönnum, skjáörmum, lyklaboröaskúffum, verkfærasettum, rykhlífum, skjásíum, hreinsisettum o.fl. GAGNABANKIISLANDS býður forritapakka (40-90 forrit í pakka) á aöeins 1995 kr., formaöa disklinga 3.5" HD 1.44MB á 70 kr. og Compro geisladrif m. 3 diskum á 24.900 kr. STOLPA HUGBUNAÐUR meö 30% afslætti og heimilisbókhald Kerfisþróunar á aöeins 3.500 kr. Getraunaleikur meö vinningum aö heildarupphæö 224.100 kr. TOLVUSKOLI REYKJAVIKUR býöur 15% afslátt á námskeiöum og allar kennslubækur á frábæru kynningarverði. BOKSALA STUDENTA býöur tölvubækur frá 95 kr. og tölvublöö meö 20% afslætti. TÆKNIBÆR. Sérstök tilboðsverð á faxmótöldum, nýjum móöurboröum o.fl. Gagnabankinn Villa bíöur fritt félagsgjald fyrir viðskiptavini Ensk-íslensk ORÐABÓK ALDAMÓTA á aðeins 2900 kr. Frá KORN hf.iHeimilisbókhald og nýtt Greiösluáætlanakerfi. Tilboösverö: 11.690 kr. 30% afsláttur. RAÐHUGBUNAÐUR býöur alla hugbúnaöarpakka meö 40% afslætti. OPŒ) LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL.10-16 KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.