Morgunblaðið - 12.03.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
Starfsfólki fjölgað
hjá Skinnaiðnaði
STARFSFÓLKI Skinnaiðnaðar hf. verður fjölgað um 10 til 12 manns
á næstu dögum vegna mikillar vinnu sem framundan er. Um tíma-
bundna aukningu starfsfólks er að ræða fram á sumar.
Bjarni Jónasson framkvæmda-
stjóri Skinnaiðnaðar sagði að reikn-
að hefði verið með að tímabundið
yrði að bæta við fleira starfsfólki,
en talið að svo yrði ekki alveg strax.
„Jákvæð viðbrögð frá helstu kaup-
endum okkar og það að pantanir
frá þeim eru fyrr á ferðinni en búist
var við gerir það að verkum að við
þurfum að bæta við okkur starfs-
fólki á meðan við erum að taka
kúfínn af eftirspurninni," sagði
Bjarni.
Leitað verður til starfsfólks sem
áður vann hjá íslenskum skinnaiðn-
aði og ekki hefur farið í önnur störf
um þá vinnu sem í boði er nú og
því boðin vinna hjá Skinnaiðnaði
fram á sumar þegar aftur hægist
um.
Vantar hráefni
„Við höfum ekki nægt hráefni
til að halda uppi vinnslu allt árið
fyrir allt þetta fólk. Það er alveg
ljóst að ef við hefðum úr meira
hráefni að spila gætum við haft
fleira starfsfólk," sagði Bjarni.
Samdráttur í landbúnaði og eins
útflutningur á gærum síðastliðið
haust valda því að ekki er nægt
hráefni til að halda uppi fullri
vinnslu.
Nú vinna tæplega 120 manns hjá
Skinnaiðnaði en verða um 130 á
næstu mánuðum.
Hrafn drap mink
- Sami Hrafn drap ísbjörn fyrir nokkrum árum
Ólafsflrði.
HRAFN Ragnarsson skipstjóri á Arnari ÓF 3, frambyggðum dekk-
báti frá Ólafsfirði, fékk óskemmtilegan gest um borð í bátihn á
dögunum.
Það var minkur sem faldi sig und-
ir fiskikari og ekki varð vart við
hann fyrr en báturinn var kominn
út á sjó.
Ekki reyndist unnt að handsama
kvikindið og því hlóð Hrafn hagla-
byssu sína, minkurinn stökk í sjóinn
en Hrafn skaut hann á sundi við
bátshlið.
Hrafn er ekki óvanur óvæntum
uppákomum í sjóferðum. Fyrir all-
mörgum árum rakst hann á hvíta-
bjöm á sundi í minni Ólafsfjarðar,
skaut hann umsvifalaust og er björn-
inn nú ein helsta gersemin í Náttúru-
gripasafni Ólafsfjarðar.
- SB
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fullfermi af snjó
ÞAÐ hefur lítið fiskast að undanförnu, þýðir ekkert að reyna
að fara á trillunni út, segir Snorri Guðjónsson, sem var í óða
önn að moka snjónum úr bátnum sínum, ívari í Sandgerðisbót,
í gærdag. Snorri var á því að tilgangslaust væri að fara á sjó
fyrr en um næstu mánaðamót, þá færi hann að gefa sig.
Ólafsfjörð-
ur styður
við aldraða
Ólafsfirði.
UNDANFARIN misseri hefur
farið fram á vegum Ólafsfjarðar-
bæjar og Félags eldri borgara í
Ólafsfirði athugun á möguleikum
þess að félagið eignaðist þak yfir
höfuðið. Ýmsir möguleikar hafa
verið athugaðir. Nýbygging hef-
ur verið talin koma frekast til
greina en einnig hafa verið kann-
aðar hugsanlegar lausnir á hús-
næðisvanda félagsins, byggingu
í félagi við aðra aðila og mögu-
Ieikar á að nýta eldra húsnæði.
Niðurstaða er nú fengin í málinu
og Félagi eldri borgara hefur verið
úthlutað lóð á horni Hrannarbyggð-
ar og Bylgjubyggðar. Jafnframt
hefur verið undirritaður samningur
við Ólafsfjarðarbæ þar sem bærinn
skuldbindur sig til að leggja félag-
inu til fé á næstu fímmtán árum
til að standa undir kostnaði við
bygginguna.
Alútboð
Hugmyndin er að byggingar-
framkvæmdir hefjist á sumri kom-
anda og líklega verður um alútboð
á byggingunni að ræða; það er að
hönnun og bygging hússins og allur
frágangur verði boðið út í einu lagi.
Húsinu er ætlað að hýsa alla
félagsstarfsemi Félags eldri borg-
ara í Ólafsfírði, þar verður fundar-
salur og ýmis aðstaða til tóm-
stundastarfs og föndurs. Félagið
hefur starfað af miklum krafti und-
anfarin ár.
SB
Bæjarráð Akureyrar um atvinnumál málmiðnaðarmanna
Askorun um að hraða end-
urbótum dráttarbrautar
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar í fyrradag var lagt fram bréf
frá Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri þar sem skorað er á
bæjaryfirvöld að hraða ákvörðun um uppsetningu flotkvíar við
Slippstöðina-Odda.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kisi fer með í gönguferðir
KÖTTURINN Hróbjartur er sérlega hændur að eiganda sínum,
Sædísi Hrönn, sem er þriggja ára hnáta. Bregði hún sér af bæ má
telja víst að kisi fylgi á eftir og þannig varð það í gærdag þegar
Sædís fór í gönguferð með mömmu sinni, henni Sigríði. Hróbjartur
lét snjóinn ekki aftra sér frá því að fylgja mæðgunum.
Mikil vinna hefur
verið í Grímsey
Grímsey.
Jafnframt er skorað á bæjaryfír-
völd að hraða endurbótum á drátt-
arbraut Slippstöðvarinnar-Odda og
skapa þar með nú þegar störf fyrir
atvinnulausa málmiðnaðarmenn í
bænum.
Lögreglan á Dalvík
Bruggari
handtekinn
LÖGREGLAN á Dalvík handtók
í vikunni mann á Árskógsströnd
sem stóð að framleiðslu og sölu
á landa.
Sævar Ingason lögreglumaður á
Dalvík sagði að síðustu daga hefðu
lögreglunni borist til eyrna sögur
af landasölu í bænum sem síðan
leiddi til þess að maður þar var
handtekinn, en hann hafði séð um
söluna. Hjá honum fundust 5 lítrar
af landa.
Handtaka mannsins leiddi síðan
til J)ess að annar maður, búsettur
á Árskógsströnd, var handtekin og
vísaði hann á framleiðslustaðinn.
Þar fundust á milli 90 og 100 lítr-
ar af gambra sem hellt var niður
og hald var lagt á tæki sem notuð
voni til framleiðslunnar. Máljð telst
að fullu upplýst, að sögn Sævars.
Á fundi bæjarráðs kom fram að
skýrsla starfshóps um byggingu
flotkvíar á Akureyri muni liggja
fyrir innan fárra daga.
Á fundinum var einnig samþykkt
að ganga til samninga við Möl og
sand hf. um kaup á steinefni til
gatnagerðar á árinu 1994.
Fram kom á fundinum að ákveð-
ið hefur verið að bæjarráð tilnefni
fímm menn í samstarfsnefnd vegna
leikja sem fram fara á Akureyri í
Heimsmeistarakeppni í handknatt-
leik á næsta ári, HM-95. Bæjarráð
óskað eftir því að íþróttafélögin KA
og Þór tilnefndu sinn mann hvort
í nefndina og hafa þau þegar orðið
við því. Friðjón Jónsson verður full-
trúi KA og Benedikt Guðmundsson
frá Þór. Kosning þriggja fulltrúa
Akureyrarbæjar í nefndina var vís-
að til bæjarstjómar Akureyrar.
Á fundinum kom fram að bæjar-
ráð getur ekki orðið við erindi Val-
geirs Guðjónssonar um þátttöku
bæjarins í kostnaði við gerð sjón-
varpsþáttanna „Skandinavi" sem
sýna á í Bandaríkjunum.
MIKIL vinna hefur verið í Gríms-
ey að undanförnu. Vel hefur
fiskast og gæftir hafa verið góð-
ar.
í fiskverkun Sigurbjarnar, sem
sér um fískverkun fyrir Jón Ás-
bjömsson, hefur verið mikil vinna
að undanförnu en þar starfa nú um
sjö manns allan daginn og nokkrir
hluta úr degL Allur fískur er verk-
aður í salt.
Nú eru til í eynni á milli 12 og
13 tonn af saltfíski og sagði Garðar
Ólason hjá Sigurbirni að beðið væri
eftir útskipun og var jafnvel von á
að eitthvert skipa Eimskipafélags-
ins kæmi að og tæki fískinn. „Það
er nógur fískur og mikið að gera,
það em allir að vinna sem hægt er
á fá í vinnu,“ sagði Garðar.
HSH
Messur
■ AKUREYRARPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu kl. 10 f.h. á
morgun. Séra Gunnlaugur Garð-
arsson messar. Sunnudagaskóli
kl. 11. Hátíðarmessa í Akur-
eyrarkirkju kl. 14. Dr. Björn
Björnsson forstöðumaður
fræðsludeildar þjóðkirkjunnar
prédikar. Kórinn syngur allur í
athöfninni. Marta Halldórsdótt-
ir, sópran, syngur einsöng.
Helgistund verður á Hjúkrunar-
deildinni Seli kl. 17. Æskulýðsfé-
lagið er með fund í kapellunni
kl. 17. Biblíulestur í Safnaðar-
heimilinu á mánudagskvöld kl.
20.30. Haldið verður áfram með
lestur Postulasögunnar.
■GLERÁRPRESTAKALL: Bibl-
íulestur og bænastund í kirkj-
unni kl. 13 [ dag, laugardag.
Barnasamkoma kl. 11 á morgun.
Léttir söngvar, fræðsla og bæn-
ir. Messa kl. 14. Molasopi að
messu lokinni. Foreldrar ferm-
ingarbarna hvattir til að koma
með börnunum. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17.30.
■ HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Fjölskyldudagur barnakirkjunn-
ar, hist í íþróttahúsi Þelamerkur-
skóla kl. 13 í dag, laugardag.
Samkoma í umsjá unga fólksins
kl. 20.30 í kvöld. Barnakirkjan
kl. 11 á morgun. Vakningarsam-
koma, ræðumaður Vörður
Traustason, kl. 15.30 á morgun.
Æskulýðsfundur fyrir 9-12 ára á
miðvikudögum kl. 17.30 og
grunnfræðsla fyrir nýja kl. 20.30.
Biblíulestur og lofgjörðarstund
kl. 20 á föstudögum.