Morgunblaðið - 12.03.1994, Síða 37

Morgunblaðið - 12.03.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994 37 Valur Snorra- son — Minning Fæddur 15. nóvember 1936 Dáinn 7. mars 1994 Dans þótt seiði drós og svein, dýrast þreyð er jafnan valin. Verður leið mín ávallt ein inn til heiða, fremst í dalinn. Þar er dýrri sjón að sjá, sveit í nýrri mynd og fegri. Blærinn hlýrri heiðum frá, hugsun skýrri og unaðslegri. Þar í fjalla fógrum sal finn ég varla sorg né lúann. Heiðin kallar, hún því skal hug minn allan finna trúan. Lýkur þátt í þagnargeim, þrýtur máttur, hugur lúinn. Koldimm náttin komin heim kallar hátt: Er sagan búin? (Ólafur Sigfússon) Saga Vals vinar okkar er liðin, hann lést 7. mars eftir erfið veik- indi. Þó var lífsviljinn mikill sem ekki er að undra hjá ekki eldri manni, og allt var reynt og stórum áfanga náð þó ein aðgerð væri eftir enn. Valur var nýkominn heim, hress eft- ir rannsókn sem hann hafði farið í til Gautaborgar eftir hjartaskipti sem höfðu tekist vel þótt langt væri í góða heilsu eins og allir vissu sem best til þekktu. Valur og Stína eru æskuvinir okk- ar og var glaðst yfir hvetjum áfanga sem náðist. Eftir að Valur veiktist og gat ekki unnið, sótti hann í sveit- ina sem hann hafði kannski alltaf þráð. Henni kynntist hann sem drengur og var í sveit á sumrin eins og algengt var. Flaga í Vatnsdal varð fyrir valinu, og kannski ekki fyrir tilviljun eina, því þar hafði hann einmitt dvalið sem drengur og líkaði vel að eigin sögn. Og ekki voru þessi síðustu ár síðri, og nýtti hann krafta sína eins lengi og heilsa leyfði. Okk- ur er minnisstæð seinasta heimsókn til þeirra í Vatnsdalinn, en þar áttum við indælan sumardag með þeim eins og svo oft áður á heimili þeirra á Blönduósi, elskulegt viðmót og gest- risni. Þegar ég hitti Val á sjúkrahúsi úti í Gautaborg fyrir ári, rifjuðust upp fýrir mér öll gömlu góðu árin, þau liðu hjá eins og myndir. Ég sá dætur okkar litlar leika sér saman og hefur sá vinskapur haldist hjá þeim eins og okkur Stínu síðan við vorum litlar stelpur. Við glöddumst saman í góðra vina hópi, ferðuðumst saman og svo mætti lengi telja. Ég vék mér afsíðis og bað til Guðs, ég bað um betri heilsu fyrir Val og styrk fyrir Stínu vinkonu mína til að standa við hlið hans því ég vissi að miklir erfiðleikar voru framundan. Hann náði að lifa eitt ár í viðbót en nú er hans göngu lokið hér á meðal okkar. Betri vini en þau er ekki hægt að eiga, þau glöddust með okkur þegar vel gekk og hjálpuðu ef þess þurfti. Þau fylgd- ust með börnum okkar og barnaböm- um, og glöddu þau nú síðast er þau komu frá Gautaborg. Dóttur okkar sýndu þau hlýju og vináttu alla tíð og ekki síst þegar erfíðleikar voru hjá henni. Allt þetta var gert á hljóðlátan hátt sem ein- kenndi þau alla tíð. Fyrir þetta allt þökkum við Val. Stínu fáum við að hafa lengur hjá okkur. Við biðjum góðan Guð að blessa hana og alla ástvini þeirra. Drottinn blessi minningu Vals vin- ar okkar. Brynhildur og Sigtryggur. Valur er látinn. Fregnin kom okk- ur samstarfsfólki hans til margra ára á óvart. Við bárum þá von í bijósti eins og allir, að læknavísindunum tækist að vinna sigur á mjög alvar- legum sjúkdómi hans. Valur háði harða baráttu við lífshættulegan hjartasjúkdóm undanfarin fímm ár. Margsinnis á þessum tíma var hann við dauðans dyr, en vann ávallt sig- ur. En svo kom kallið skyndilega, þegar heilsa hans virtist vera að komast í jafnvægi. Þetta minnir okk- ur á, að dauðinn er óaðskiljanlegur hluti af lífínu. Valur var ráðsmaður á Héraðshæl- inu á Blönduósi í átján ár. En fýrir fímm árum þurfti hann að láta af störfum vegna heilsubrests. Við sam- starfsfólk hans minnumst hans sem góðs félaga, sem ávallt vann störf sín af dugnaði og samviskusemi. Þegar vinnustaðurinn er lítill, eins og sveitarfélagið sem við búum í, verða kynnin nánari. Við kynntumst áhugamálum Vals og fjölskyldu hans. Hann var mikill náttúruunn- andi og fjölskyldumaður. Hestar, sveitalífíð og fjölskyldan áttu hug hans allan. Samheldni fjölskyldunnar var aðdáunarverð, og sérstaklega eftirtektarverð í erfíðum veikindum hans, þegar hann þurfti að dvelja langdvölum erlendis fjarri heima- högunum. Stuðningur Kristínar, eiginkonu Vals, var mikill og honum ómetanlegur. Við samstarfsfólk Vals á sjúkra- húsinu og heilsugæslunni á Blöndu- ósi viljum þakka honum samfylgdina. Minningar okkar um góðan dreng munu lifa. Við viljum votta eiginkonu hans, Kristínu, aldraðri móður hans, Þóru, systkinum, börnum og bama- börnum, okkar dýpstu samúð. Böðvar Orn. Það var norðanhríð með skafrenn- ingi þegar vinur minn Valur Snorra- son lagði í sína hinstu ferð norður í heimahagana til að hvíla þar lúin bein eftir löng og erfíð veikindi. Þetta veðurlag, kveðja landsins, er í góðu samræmi við þær aðstæður sem við búum við hér á landi, og er því í eðli sínu hlý kveðja norðlægra slóða. Mér er ljúft að skrifa þessum vini okkar smá þakkarkveðju þó penna- latur sé. Ég kynntist þeim hjónunum Val Snorrasyni og Kristínu Ágústsdóttur þegar ég kom norður haustið 1962, nýtrúlofaður stúlku af staðnum og ráðinn til starfa sem rafvirki við Vélsmiðju Húnvetninga. Fljótlega kom í ljós að gott var að eiga þau hjón að vinum. Á Blöndu- ósi eins og víðar var lítið um hús- næði til leigu í þá daga og upphaf vináttu okkar má rekja til þess að þau leystu þennan vanda okkar með því að bjóða okkur pláss í nýju húsi sínu. Viðstaða okkar fyrir norðan reyndist styttri en stóð til í fyrstu, en vináttan við þau Val og Stínu hélt og áttum við margar góðar stundir saman. Þessar samveru- stundir geymast í minningunni og ylja upp tilveruna. Sumar stundir eru ógleymanlegar. Slík er helgin þegar Blönduóshreppur tók á móti stórum hópi Vestur- íslendinga sumarið 1978. Kona mín, Þórey, var í stjórn Þjóðræknisfélags- ins og vann hún fyrir hönd félagsins að þessari móttöku á móti Val sem skipulagði móttökurnar fyrir norðan. Þessi helgi reyndist frændum okkar að vestan dýrmæt minning um „gamla landið“ og var Val og Blöndu- óssbúum til mikils sóma. Undanfarin ár hafa verið Val og fjölskyldu hans erfíð. Hann átti við mikil veikindi að stríða, veikindi sem hann barðist við uns yfír lauk, styrkt- ur af konu sinni og fjölskyldu. Kæra Kristín. Við Þórey sendum þér og ykkur alúðarkveðjur og biðj- um guð að styrkja þig og fjölskyld- una. Ásgrímur Jónasson. Mig setti hljóðan þegar mér barst sú frétt að Valur bróðir minn væri látinn. Hann sem var búinn að beij- ast svo hetjulega við sín veikindi og allt virtist bjart framundan. Þá kom kallið. Mig Iangar að kveðja Val bróður með mínum fátæklegu orðum, sem öll standa föst þegar á þarf að halda. Ég þakka honum fyrir alla hjálpina sem hann veitti mér eftir að ég missti konu mína. Ég þakka honum allar samveru- stundirnar, allt frá því að við vorum litlir drengir í foreldrahúsum til full- orðinsára. Samstarfíð í rafvirkjun og skemmtilegu ferðimar sem við fórum saman og eru ógleymanlegar. Einnig þakka ég öll boðin á heim- ili hans og Kristínar konu hans. Þau voru alltaf bæði skemmtileg og glæsileg. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fýrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég vil biðja góðan Guð að styrkja mömmu, Kristínu, börnin, tengda- börnin og barnabörnin í þéirra sorg, sem er mikil. Ég veit að góðar minn- ingar um góðan mann hjálpa þeim. Elsku Valur. Ég sakna þín, en minningin lifir. Blessuð sé minning þín. Þinn bróðir, Sævar Snorrason. Minning Kristinn Sveins- son, Hólmavík Fæddur 15. febrúar 1901 Dáinn 4. mars 1994 Sé ég vegg og vörður rísa upp í móti. Styrk þarf til að standa, stikla á eggjagrjóti. Upp í bláu bergi blikar óskalindin. Blessun bíður þeirra sem brjótast upp á tindinn. (Davíð Stefánsson) Okkur langar til að minnast afa okkar, Kristins Sveinssonar, sem lést hinn 4. mars á sjúkrahúsinu á Hólmavík. Hann var eitt af alda- mótabörnunum sem kynntust vel erfíði og þrældómi sem við unga fólk- ið höfum aldrei þekkt. Afí lifði þær miklu breytingar sem áttu sér stað í samfélaginu, þar sem íslendingar stigu út úr moldarkofunum og inn í tækniöld. Afí fæddist og ólst upp á Kirkju- bóli í Staðardal í Steingrímsfirði. 15 ára fór hann til sjós og reri frá Bol- ungarvík og þrítugur hóf hann bú- skap á Kirkjubóli. Hann kvæntist Gunnlaugu Helgu Sigurðardóttur, f. 3.9.1901, d. 6.5.1991, frá Geirmund- arstöðum. Börn Kristins og Helgu eru Lilja, húsmóðir á Akureyri, bóndi í Brautarholti, Hrútafirði, Sigurður, vélvikjameistari í Reykjavík, Guð- mundur Trausti, látinn. Barnabörn Kristins eru 21 talsins og barna- bamaböm 31. Jafnframt því að vinna almenn bændastörf var afí póstur og vann oft mikið þrekvirki að vetri til og átti afi margar sögur frá þeim ferð- um. Afí var í stjórn Búnaðarfélags Hrófbergshrepps og í hreppsnefnd þar. Afí flutti til Hólmavíkur 1954 og starfaði við frystihúsið þar uns hann lét af störfum vegna aldurs. Afí var ákveðinn maður en með létta lund og ávallt stutt í brosið. Far þú í friði, afi minn, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þegar æviþrautin dvín, þegar lokast augun mín, þegar ég við sælli sól sé þinn dóms- og veldistól: Bjargið alda, borgin mín, byrg mig þá í skjóli þín. (M. Joch.) Helga, Ragnheiður, Lilja og Ásdís. Lára Gunnars- dóttir — Minning Fædd 17. júní 1934 Dáin 3. mars 1994 í dag verður jarðsungin frá Húsa- víkurkirkju mágkona mín, Lára Gunnarsdóttir. Hún var fædd á Flat- ey á Skjálfanda 17. júní 1934, dóttir hjónanna Kristínar Gísladóttur og Gunnars Gunnarssonar. Lára var alin upp í stórum systkinahópi sem þurfti snemma að vinna fyrir sér því föður sinn misstu þau á unga aldri. Mín fyrstu kynni af Láru vom árið 1952 þegar hún kom til Kópa- skers í vinnu og kynntist þar bróður mínum Þorsteini sem hún kvæntist ári síðar. Á fyrstu búskaparárum sínum bjuggu þau á heimili foreldra okkar, á meðan þau reistu eigið hús á Kópaskeri. Mér er afar minnis- stætt af hve miklum dugnaði og elju þau unnu saman að byggingu húss- ins. Á þessum árum þeirra á Kópa- ’skeri eignuðust þau sín fyrstu börn, Kristjönu 1954 og Ásgerði 1958. Heimili þeirra varð sem mitt annað heimili þar sem ég var þar daglegur heimagangur. Árið 1963 flytja þau til Húsavíkur þar sem þau eiga Áðalheiði 1967 og Jón Gunnar 1970. Sjálf flutti ég til Reykjavíkur en héldust þó enn sterk vina- og fjölskyldubönd. Margar ánægjulegar stundir höfum við og fjölskyldur okkar átt saman síðan. Varla hefur liðið það sumar að við höfum ekki farið norður og dvalið þá nokkra daga hjá Láru og Steina á Húsavík. Láru féll aldrei verki úr hendi og ber heimili þeirra hjóna þess glögg merki. Auk þess að vinna úti, lengst af á dagheimili, og sjá um heimilið þá pijónaði hún mikið, saumaði og heklaði að ógleymdu brauði, kleinum og öðru sem allt var heimabakað. Á sumrin átti garðræktin hug hennar allan enda er liann með þeim fal- legri sem maður sér, og áttu þau hjónin mörg handtökin þar saman. Eftir að Lára greindist með þann sjúkdóm sem hún barðist við síðast- liðin ár urðu ferðir hennar tíðar í læknismeðferð til Reykjavíkur og dvaldi hún þá á heimili mínu á með- an. Hún hafði ætíð eitthvað á pijón- unum þegar hún kom og var atorka hennar það mikil að hún smitaði út frá sér þannig að sjálf byijaði ég á einhverri pijónaflíkinni. Þó var sú flík ekki kláruð fyrr en Lára kom næst í bæinn en þá tók hún gjarnan við henni og kláraði hana jafnvel á einu kvöldi. Á þessum stundum sát- um við með pijónana og spjölluðum saman langt fram eftir nóttu. Þess- ara stunda okkar saman mun ég minnast með söknuði. Heilsu Láru hi'akaði mikið árið 1992 og lá hún á Landspítalanum í fimm mánuði samfleytt. Með einstök- um viljastyrk náði hún sér þannig að hún komst heim til Húsavíkur þar sem hún sinnti heimilisstörfum þó sjúkdómurinn hefði dregið úr henni mest allan þrótt. Hún sýndi mikið þrek og þolinmæði í veikindum sínum en síðustu tvær vikurnar lá hún á sjúkrahúsinu á Húsavík þar til yfir lauk. Kæra vinkona og mágkona. Ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur liðsinnt mér með gegnum árin. Ég og fjölskylda min vottum þér, Steini minn, börnum þínum og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúð. Hólmfríður Jónsdóttir. Það kemur að því að dauðinn knýr á dyr hjá okkur öllum, eftir misjafn- lega reynsluríka og mislanga ævi sem er einskonar skóli þar sem við á ýmsum ævistundumm þreytum próf. Þá skipta einkunnir ekki máli, heldur hvernig við bregðumst við og tökumst á við það sem fyrir okkur er lagt og miðlum til annarra reynslu okkar beint eða óbeint. Lára Gunn- arsdóttir hefir með harðri og kjark- mikilli baráttu sinni við illvígan sjúk- dóm sem bar hana ofurliði aðfara- nótt 2. mars kennt okkur hvers virði lífið er. Það er á stundum sem þessum sem minningar hrannast upp, minningar um sjóferð með þeim hjónum á æsku- slóðir Láru á Flatey á Skjálfanda, minningar um heimsóknir á hlýlegt og fallegt heimili þeirra Láru og Þorsteins á Fossvöllum 12. Ég kveð þig eftir stutt en ánægju- leg og lærdómsrík kynni. Megi minn- ingin um sterka, hugrakka konu varðveitast. í hugum okkar sem eftir lifum og verða okkur gott veganesti í lífinu. Ástvinum Láru vottum við okkar dýpstu samúð. Viðar, Guðrún, Linda og Guðmundur Hafsteinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.