Morgunblaðið - 12.03.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
41
EINKABREF
Sviptingarnar í lífi Grace Kelly
Síðar í þessum mánuði verða
einkabréf leikkonunnar og síð-
ar furstynjunnar Grace Kelly seld
á uppboði í Los Angeles. Hér er
um að ræða bréf sem Grace sendi
fyrrum ritara og trúnaðarvini sínum
Prudy Wise á mörgum árum. Þótt
alkunna hafí verið að Grace hafi
ekki beinlínis verið engill, þá kemur
nú upp úr dúmum að leikkonan var
villtari en nokkurn óraði fyrir. í
bréfínu er sagt frá fjölda elskhuga
og þrotlausri baráttu við Bakkus.
Meðal þeirra sem tíndir eru til má
nefna Clarke Gable, Bing Crosby,
David Niven, Cary Grant og Gary
Cooper.
Til að mynda er ein frásögn frá
Afríku þar sem Grace og Gable voru
að vinna saman að kvikmynd. Segir
Grace frá því að hún og Gable hafí
lagt á sig þriggja stunda jeppaferð
til einhvers smáþorps til ýmissa út-
réttinga, en förin hafi verið erfíðari
heldur en þau höfðu ætlað. „Við
fengum ógeðslegan hádegisverð á
hóteli, en síðan fengum við okkur
unaðslegan sundsprett í vatninu. Við
voram bara á nærbuxunum og þetta
var meiri háttar eins og þú getur
ímyndað þér,“ ritar Grace. Auk þess
að nefna ofangreinda leikara sem
elskhuga sína, nefnir hún til tísku-
hönnuðinn Oleg Cassini sem hún
vildi ganga að eiga, aðeins þremur
áram áður en Reinier Mónakófursti
bað hennar. „Pabbi þoldi hann ekki,“
ritar Grace. Og hún greinir einnig
frá áður óþekktum manni að nafni
Don Richardson sem var giftur er
þau kynntust, en ætlaði að skilja
við konu sína til að geta verið með
Grace. „Hann kom í heimsókn og
hitti foreldra mína. Það var ömur-
legt. Þau þola hann alls ekki og
skilja ekki hvemig ég geti elskað
gyðing! Svo skilst mömmu allt í einu
að hann sé giftur og í þann mund
að skilja og bijálast alveg. Ég sagði
uðum við okkur öll upp fram að
næsta verkefni í Rómarborg," ritaði
Grace.
Heather Holmberg, fulltrúi hjá
Superior Auction Galleries, sem
hefur bréfin undir höndum segir
að ekki fari á milli mála við lestur
þeirra, að Grace hafi átt við áfengis-
vanda að stríða og stöðugt sé hún
ýmist að reyna að hætta alveg að
drekka eða að tempra drykkjuna.
Ungfrú Holmberg segir enn frem-
ur, að bréfín séu á annað hundrað
talsins og reiknað sé með því að
minnst 150.000 dollarar fáist fyrir
þau. „Það verða bókaforlögin sem
munu bítast um bitann ef að líkum
lætur,“ sagði Holmberg enn fremur.
Grace Kelly
gengur að
eiga Reinier
prins, fursta
af Mónakó.
henni að ég vissi þetta allt saman
og ég vissi hvað ég væri að gera,
en þetta hélt svona áfram heimsókn-
ina á enda.
Bakkus...
Margar línur lýsa glímunni við
Bakkus. Þar era orðin og orðatil-
tækin, að „detta í’ða“ og „þurrka
sig upp“ algeng. Hún segir t.d. frá
uppákomu er hún var að vinna með
Clarke Gable, James Garner og
Frank Sinatra í Úganda. Þau fengu
tíu daga leyfí og skelltu sér á
ströndina. „Þar voram við á hrika-
legu kampavínsfýlleríi og svo
nokkrum smærri fylleríum á meðan
við lukum við tökurnar. Svo þurrk-
ISLAND S VINUR
Víða leynast velvildarmenn
*
Islendingar eiga sér víða
vini og veivildarmenn,
fólk sem hrífst af land og
þjóð. Vaclav Havel, Tékk-
landsforseti er ekki sá eini í
heimalandi sínu, þar er að
minnsta kosti einn annar og
sá heitir dr. Richard Mayer,
tónskáld í borginni Brno. Á
undanfömum árum hefur
hann unnið ötullega að því
að kynna íslenska sögu og
menningu á heimaslóðum
sínum. Það hefur hann gert
á margvíslegan hátt, ekki þó
síst með þeim hætti að efna
til íslandskvölda þar sem
hann fær fleiri listamenn til
þess að túlka með sér land
og sögu í tónum, máli og
myndum, allt frá landnámst-
íð og til vorra daga.
Sem fyrr segir, er Mayer
tónskáld og ekki er óalgengt
að innblástur í verk hans
hafí verið sóttur til íslands.
W S'AI AS
or.
7Z----íTSSnSP-*-
Doktor Richard Mayer. Myndin tekin á ís-
landskvöldi í Bmo árið 1991.
Má nefna konsertsónötuna
„Reykjavík" fyrir víólu og
selló, en kveikjan að henni
eru ljóð Hannesar Péturs-
sonar ásamt sögu landnáms-
ins, ljóðaflokkurinn „Saga
norrænna nátta“, en kveikj-
an að henni er saga Gunn-
ars Gunnarssonar „Hvíti
Kristur“ og fantasíu fyrir
píanó, ísland, sem framflutt
var í Bandaríkjunum árið
1990. í smíðum er einnig
píanósónata sem helguð er
íslenskri náttúru, einkum
vötnunum sem heilla hann
mjög.
I sumar heldur landkynn-
ingarstarfið áfram, er dokt-
or Mayer minnist 50 ára
afmæli lýðveldisins sem veg-
legu íslandskvöldi þar sem
margir munu koma fram.
Þar verða m.a. flutt verk
eftir Atla Heimi Sveinsson.
•9-
klippiklipp
>=■
klippiklipp
1987
A1AA
mohom 0
r
Árið 1994 er ár
fjölskyldunnar.
Ef þú klippir út þessa
auglýsingu kemur
með hana á
Hard Rock kaupir
eina máltíð færðu
aðra fritt. sunnu(laga { mars
FJÖLSKYLDU
HLBOÐ
F R I M I Ð I
klippiklipp •__ ____ klippiklipp ____ '
Ef þú kaupir eina
færðu aðra frítt.
Drykkir
undanskyldir.
SÍMI 689888
klippiklipp
Til leigu
i lengri eóa skemmri tíma
HEILSÁRSHÚS Á FLJÓTSDALSHÉRAÐI.
Góó útivistarsvæði.
Nónari upplýsingar í síma 97-1 1020.
HU'
HÖFUM OPNHÐ NVJfl
OG GLFESILEGR VERSLUN
MAKE UP FOR EVER
BÝÐUR FJÖLBREYTT ÚRVAL í SNYRTIVÖRUM
FÖRÐUN • LITGREINING • PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
\J(aÍcÍ
'VtAb. aMaIÁ.
BORGARKRINGIUNNI
KRINGIUNNI 4-6 • 103 REYKJAVÍK
SÍMI 887575 • FAX 887590
p l**i
Metsölublad á hverjum degi!