Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
49
Örniim, rauðbrystingurinn
og fuglaverndunarfélagið
Frá Sveini Guðmundssyni:
Á fimmtudagskvöldið 3. mars var
Stöð 2 með frétt um veg yfir Gils-
fjörð og þá hættu sem af slíkum
vegi gæti stafað.
Fuglaverndunarfélagið skrifar
upp á þá frétt og ræður tvo líffræð-
inga til þess að hafa þar forustu.
Þeir halda því fram að hér séu
um 270.000 rauðbrystingar, en það
eru fuglar af snípuætt (Callidris
canutus). Með fullri virðingu fyrir
líffræðingum þá held ég að rauð-
biystingar hafí aldrei verið taldir.
Rauðbrystingur er hánorrænn fugl
sem Þjóðverja og Danir reyndar
kalla íslandstítu sem stafar af þeim
misskilningi að á síðustu öld fengu
náttúrufræðingar þórshanaegg sem
þeir greindu og köllu íslandstítu.
Rauðbrystingar koma hér við þús-
undum saman á leið sinni á varp-
stöðvar og safna sér æti í fjörum.
Stóri rauðbrystingur, sem sumir
telja aðeins afbrigði af rauðbryst-
ingi, fer alla leið suður til Ástralíu.
Rauðbrystingurinn hefur hér við-
komu og fær æti. Ég þykist vita
að hann keppi við æðarungana um
þangdoppurnar, en vitað er að
stofnstærð hverrar tegundar fer
eftir því æti sem hún hefur. Hvenær
stofnstærðinni er náð fer eftir veðr-
áttu, sjúkdómum og ýmsum ytri
aðstæðum.
Nú fer æðarungadauði eftir
ýmsu, en ég hafði það fyrir reglu
að skoða inn í dauða unga og sjá
hvert æti þeirra væri. Hins vegar
hef ég ekki náð í neinn rauðbryst-
ing og skjóta kann ég ekki svo að
ég hef ekki getað aflað mér sýna.
Ég hef það fyrir satt að Rauði-
sandurinn sé óska paradís rauð-
brystinga og séu þeir þar með við-
komu í tugþúsunda tali.
Einn náttúrufræðingur sagði við
mig eitthvað á þá leið að ég væri
vart hæfur í náttúruvemdamefnd
hér fyrst ég væri ekki á sama máli
og þeir fyrir sunnan. Þá mundi ég
eftir því að svipuð setning var einu
sinni sögð við mig áður. I eðli mínu
er ég friðunarsinni og vil ekki ganga
of langt í þeim efnum að ganga á
hlut náttúrunnar um of. Ég var
fylgjandi rannsóknum og byggingu
þörungaverksmiðjunnar á Reykhól-
um. Hins vegar var ég ekki nógu
viss um að handsláttur myndi gefa
góða raun, vegna þess að þá væri
skorið eins neðarlega og hægt væri
sem gerði það að verkum að
þangdoppurnar gætu ekki vaxið að
neinu marki. Þá komu prammarnir
til sögunnar og kom þá í ljós að
vöxtur jókst hjá þanginu og þar af
leiðandi íjölgaði doppunum.
Ég var þá talinn óvinur framfara
hér á svæðinu. Reyndar man ég að
mér var sagt að best væri fyrir
mig að segja af mér.
Eg er sannfærður um það að
brúin yfir Gilsfjörð, þar sem hún á
að koma, gerir enga skaðlega rösk-
un fyrir rauðbrystinginn. Sú rök-
semdafærsla að það sé hægt að
koma fram við íbúa Reykhólahrepps
eins og meindýr í Jífríkinu höfðar
ekki til mín. Því færri sem við verð-
um því gætnari þurfa ráðamenn að
vera.
Amarvarp er ekki í hættu í Gils-
firði. Örn þolir nálægð umferðar
ef hann er látinn í friði.
Fyrir mörgum árum þegar öm
var að hefja varp hér á Miðhúsum,
var sendur fuglafræðingur er Agn-
ar Ingólfsson heitir og hann skoð-
aðPVarpið. Þegar ég bað hann um
skýrsluna sem hann hafði gert svar-
aði hann mér ekki og þegar ég hitti
hann næst sagði hann mér að sér
væri sagt að vinna sín væri trúnað-
armál við Menntamálaráðuneytið
og því hefði hann ekki getað sent
mér afrit af skýrslum. Éftir króka-
leiðum fékk ég skýrsluna og var
ekkert í henni sem ég ekki vissi.
Ég fór svo næsta vor og sumar í
arnarhreiðrið stundum daglega og
alltaf tvisvar til þrisvar í viku. Það
sumar kom arnarparið upp tveimur
ungum. Öminn þolir vel návist
mannsins ef maðurinn vinnur traust
hans.
Díiaskarfur verpir hér og var til
nytja, en svo fór honum að fækka
og er hann látin alveg í friði á þess-
um bæ.
Kríunni fækkar, sennilega vegna
ætisskorts, henni gengur afar illa
að koma upp ungum, en hvort það
er vegna hins harða keppinautar
hennar hettumáfsins eða minnkandi
ætis veit ég ekki.
Þegar ég kom hér þá var það
hending að sjá álft, en nú em synd-
andi hér fyrir framan bæinn um
100 álftir á haustin. Þær láta sjáv-
arstraumana bera sig á milli staða.
Þegar ég kom hér þá var ekki
marhálmur en hann hefur aukist
ár frá ári. Hann á sinn þátt í fjölg-
un álftanna.
SVEINN GUÐMUNDSSON,
formaður Náttúruvemdamefndar
Reykhólahrepps.
Erfiðir tímar
Frá Eggert E. Laxdal:
Það eru erfíðir tímar, gjaldþrot
og atvinnuleysi, eitt hið versta böl,
sem hijáð getur mannssálina. Fólk
berst í bökkum við að greiða skuld-
ir sínar sem það hefur stofnað til
vegna húsnæðiskaupa. Matur er
óheyrilega dýr. Margir velta fyrir
sér hverri krónu sem þeir láta af
hendi. Ráðamenn þjóðarinnar lofa
lausnum frá þessum plágum, en þó
heldur kaupmátturinn áfram að
rýrna. Gamla og sjúka fólkið er
fyrst lagt á höggstokkinn, það má
helst ekki eiga neitt og engar tekj-
ur hafa. Erlendar skuldir hlaðast
upp, þannig að efnahagslegt frelsi
þjóðarinnar er í voða. Hvar endar
þetta, nema með allsheijar hmni
eins og gerðist í Færeyjum.
Færeyingar nutu þess að eiga
bakhjarl þar sem Danir vom, en
við Islendingar getum ekki vænst
neinnar utanaðkomandi hjálpar.
Umræðan heldur áfram
Þetta er svört skýrsla, segja sumir,
en þó ekki svartari en efni standa
til, því miður. Það er kominn tími
til þess að þjóðin taki sér í munn
orð séra Sigvalda í „Manni og konu“
er hann sagði: „Það er víst kominn
tími til þess að biðja Guð um að
hjálpa sér.“
EGGERT E. LAXDAL,
Fmmskógum 14,
Hveragerði.
LEIÐRETTINGAR
Nafnafölsun
Vegna greinar sem birtist í Bréfí
til blaðsins í gær, „Áskorun til
Stöðvar 2“, undirrituð af Önnu B.
Jónsdóttur, skal það tekið fram, að
hún kom hvergi nálægt skrifum
þessarar greinar. Anna er beðin
velvirðingar á þessu.
Morgunþlaðið harmar þetta og
skilur ekki hvað fyrir fólki vakir
sem falsar nöfn annarra undir skrif
Frá Haildóri Kristjánssyni:
Umræðuþáttur í Ríkissjónvarp-
inu 1. mars sl. var með þeim hætti
að ekki sæmir að taka honum þegj-
andi. Hann átti að vera um reynsl-
una af áfenga bjórnum eftir fijálsa
sölu í 5 ár.
Einhvern veginn hefur fólki skil-
ist að stjórnandi slíkra þátta ætti
að vera sem hlutlausastur en gæta
þess að sjónarmið viðmælenda
kæmu fram svo að nokkurs jafn-
vægis ríkti um meðmælendur og
mótmælendur.
Hér var stjómandinn ekki hlut-
laus. Hann lauk þættinum með því
að lesa pistil sem hann gat ekki
um höfund að og hefur sennilega
átt hann sjálfur. Sá pistill var allur
um ágæti nýrrar vínmenningar og
bættra drykkjusiða og vai* mynd-
band frá bjórhátíð eða októberfest
látið fylgja með. Með þessum flutn-
ingi var þættinum lokið. Viðmæl-
endur áttu þess engan kost að tjá
sig um þann boðskap.
Stjórnandi þáttarins er ungur
maður, Gísli Marteinn Baldursson.
Hann hafði þarna til að mæla með
bjórnum Jón Magnússon lögfræð-
ing, Valborg Snævarr lögfræðing
og Björn Leifsson veitingamann.
Um frúna er það að segja að hún
virtist fátt vita um áfengismál en
sagðist hafa tilfínningu í þeim efn-
um og sú tilfínning væri mótuð úti
•fy; Heími. j Henni hnykkti við þegar
hún var minnt á að Alþingi hefði
samþykkt lög sem skipuðu fyrir um
það hvoru megin á götunni hún
væri frjáls að því að aka bíl sínum.
Véitingamaðurinn var ógætinn í
orði. Hann sagði að í sínum
heimabæ hefði verið bruggað í
þriðja hvetju húsi og skólabræður
sínir hefði legið brennivínsdauðir
um fermingu. Hann gat ekki um
hvað var bruggað en sennilega hef-
ur var verið um að ræða efni frá
versluninni Ámundi sem auglýsti á
sinni tíð 'efni í bjór og ýmsar vínteg-
undir.
Jón Magnússon var hinsvegar
viðmælandi og bar langt af frúnni
og vínsalanum. En stjórnandinn var
helsti áróðursmaður bjórsins í þætt-
inum. Honum tókst að taka hinum
fram.
Það kom ekkfert fram í þessum
efnum hvemig hin nýja vínmenning
og drykkjusiðir lýsa sér nú.
Því er nú spurt:
Em runnir upp nýir og betri dag-
ar þannig að færri aka ölvaðir?
Fækkar voðaverkum og ýmiss
konar óhæfu ölvaðra manna?
Fækkar þeim sem leita á náðir
meðferðarstofnana?
Minnkar nýliðum drykkjusjúkra?
Þetta á að ræða þegar meta skal
áhrifin af bjórnum og ástand áfeng-
ismála yfirleitt.
Þeirri umræðu er ekki lokið.
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
frá Kjrkjubóli.
Röng
myndbirting
í frétt Morgunblaðsins 9. mars
sl. um athuganir á eflingu atvinnu-
lífs í Stykkishólmi birtist röng mynd
með fréttinni. Morgunblaðið biður
hlutaðeigendur velvirðingar á þess-
um mistökum.
V eröbréfasj óöir
í frétt á viðskiptasíðu á miðviku-
dag um stærð verðbréfasjóða var
ranglega sagt að 1,6 milljarðar
hefði bæst við sjóðina frá áramótum
til ioka febrúarmánaðar. Þessi tala
átti einurígis við febrúarmánuð. Hið
rétta er að alls bættust við tæplega
2,6 milljarðar í verðbréfasjóði í jan-
úar og febrúar.
Laugavegur 33
ekki 22
í fréttatilkynningu í Morgunblað-
inu í gær á bts. 43 frá Efnalaug-
inni Glitru var rangt farið með
heimilisfang efnalaugarinnar en
það er Laugavegur 33. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
SfcweJ'Scancánaaia;
Ferðamannaíbúðir
í Kaupmannahöfn
Þægilegar ný uppgerðar íbúðir
í hjarta Kaupmannahafnar.
Verð á mann frá dkr. 143* á
dag.
Allar íbúðirnar eru búnar nýjum
og þægilegum húsgögnum.
Hafið samband við ferðaskrif-
stofuna ykkar eða
In Travel Scandinavia,
Sími 90 45 3312 3330.
Fax. 90 45 3312 3103.
*Verð á mann miðað viö 4 í íbúð í viku.
• Duplo
• Pappírsraðarar og hliðartæki
• Margar stærðir og gerðir
• Vönduð vara - gott verð
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33-105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
HEIUSðLIMUKUn
Á STURTBKLEFIIM
FAXAFEN 9 • SÍMI 91-677332
VEITINGAROG
112.-13. MARS
jgardag kl. 13:00 -18:00
unnudag kl. 13:00 -17:00
/ /
-r
DRAUGAHUS,
LUKKUHJÓL,
SPÁKONUR,
TRÚÐAR,
FURÐUVERUR,
LSLEGT FLEIRA.
.W' V* ÓUrVDTC
*
OKEYPIS
AÐGANGUR
• *»v • *"í*