Morgunblaðið - 19.04.1994, Síða 42

Morgunblaðið - 19.04.1994, Síða 42
42 MORGUNRLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994 Kríslján Knútur Jónasson - Minning Þegar fréttin um snjóflóðið í ifungudal barst mér til eyrna árla morguns þriðjudaginn 5. apríi, þá hvarflaði sú kvíðafulla hugsun að mér að hjónin sem þar höfðu lent í slysinu væru vinir mínir, þau hjónin Kristján Knútur Jónasson og Hans- ína Einarsdóttir. Svo oft ræddu þau hjón um bústaðinn sinn fagra í Skóginum í Tungudal og dvöldu tíð- um að hugurinn tengdi þau þessum náttúruhamförum ósjálfrátt. Nýjan bústaðinn vönduðu þau á allan veg, reyndar svo vel að hann var fyllilega hæfur til ársnotkunar. En eins og öll mannanna verk var hann ekki megnugur þess að snúa af sér nátt- úruöflin og hin napra staðreynd varð ekki umflúin — Kristján Knút- ur hafði verið kallaður til nýrra heimkynna handan móðunnar miklu, en kona hans sem veik var fyrir slasaðist alvarlega. Ætt og frændgarð Kristjáns munu aðrir mér hæfari menn rekja, en öllum sem hann þekktu var ljóst að þar fór borinn og barnfæddur ísfirðingur. Kristján leit þennan heim í fyrsta sinn þann 19. nóvem- ber 1934, sonur þeirra hjóna Jónu Petólínu Sigurðardóttur og Jónasar Guðjónssonar. Kristján stundaði ýmis störf frá unga aldri, bæði til sjós og lands, en hann var húsa- smíðameistari að mennt frá Iðnskól- anum á Isafirði. Kristján átti um margt fjölbreytt æviskeið. Sagnagleði og frábær frá- sagnagáfa hans, blönduð innileik og ómengaðri kímni bar vott um það. Margháttuð reynsla hans nýtt- ist honum líka á ýmsa lund í starfi. Hann var mikill áhugamaður um nánast alla mannlega hluti, en íþróttir og æskulýðsmál hygg ég að honum hafí staðið næst hjarta af áhugamálunum. Um það vitna störf 'Sans í Vestra, Knattspyrnufélagi ísafjarðar og víðar, að ógleymdum störfum hans í stjóm Knattspymu- sambands íslands. Pólitísk afskipti hans vom líka mikil, enda var hann alla tíð virkur og sannur jafnaðar- maður. Meðal trúnaðarstarfa á því sviði má nefna formennsku í Al- þýðuflokki ísafjarðar, og óteljandi önnur trúnaðarstörf á vegum flokksins. Hann var kosinn í bæjar- stjórn ísafjarðar 1978 og sat þar samfellt í þijú kjörtímabil, þar af tvö þau síðari sem forseti bæjar- stjórnar. Eldmóður Kristjáns lýsir sér ákaf- lega vel í því starfí sem hann sem hann sinnti um langt árabil, allt til ‘minstu stundar, þ.e. framkvæmda- stjórastarf Djúpbátsins. Barátta hans fyrir kaupum á bílaferjunni Fagranesi frá Noregi og nú undan- farin misseri fyrir byggingu feiju- bryggja á ísafirði og í Djúpinu, þrátt fyrir harða andstöðu manna í stjóm- kerfinu, sýndi og sannaði að þar fór baráttuglaður hugsjónamaður. Hann átti einkar auðvelt að hrífa menn með sér og sannfæringar- kraftur hans var einlægur. Kristjáni Knúti Jónassyni kynnt- ist ég í fyrstu fyrir réttum 12 ámm, þegar ég var að stíga mín fyrstu spor í sveitarstjómarmálum hér vestra. Kynnin hafa vaxið æ síðan og voru mér einkar ánægjuleg alla tíð. Ég átti þess kost að starfa tals- vert með honum á sviði sveitar- stjórnarmálanna, þar sem hann var ósinkur á að miðla af reynslu sinni til okkar, sem yngri vomm óháð pólitískum merkimiðum. Kynni okk- ar Kristjáns vora þó fyrst og fremst vegna starfa í stjóm Orkubús Vest- fjarða, en hann sat í stjórn fyrirtæk- isins frá árinu 1983 allt til dauða- dags, þar af lengst af sem aðalmað- ur í stjóm. I stjóm fyrirtækisins hafa menn haft gæfu tii þess að leysa lang flest mál með sameigin- legri niðurstöðu og þar er einlægur vilji fyrir því að gera öllum orku- kaupendum á veitusvæðinu jafn hátt undir höfði. Jafnaðarmanninum Kristjáni var þetta ljúf og eðlislæg málsmeðferð. Á ferðalögum okkar var hann skemmtilegur ferðafélagi og þá ekki síður kona hans, í þau skipti sem hún átti þess kost að ferðast með. Minning okkar allra um góðan dreng lifir. Störf hans á meðal okk- ar, sem við þekktum af einlægni, munu án efa auðvelda honum þá göngu sem hann hefur nú hafíð. Fyrir hönd Orkubús Vestíjarða færi ég konu hans, Hansínu Einarsdótt- ur, börnum, bamabömum og skyld- fólki innilegustu samúðarkveðjur. Eiríkur Finnur Greipsson, formaður sljórnar Orkubús Vestfjarða. Ég kveð nú minn góða stjórnar- formann Fjóröungssjúkrahússir.s á ísafírði, Kristján Jónasson, með ör- fáum orðum. Það er með miklum trega sem ég sest niður ti! þessa verks, því svo mjög fínnst mér ótrú- legt að hinn hógværi og glaði bar- áttumaður, með fangið fullt af hug- myndum og verkefnum sé genginn og komi ekki aftur. Það var fyrir tæpu ári að Krístján var skipaður stjórnarformaður FSÍ/HSÍ. Sú ákvörðun ráðherra að skipa einmitt þennan mann tii verk- efnisins var yfirveguð og gaf sann- arlega fyrirheit um að friðsamlegir tímar væm framundan í starfsemi stofnunarinnar. Á skömmum tíma mynduðust enda traust og góð tengsl á milli starfsmanna og Krist- jáns. Það var þvi ekki að undra að ég teldi mig talsverðan gæfumann Petrína Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 22. september 1906 Dáin 5. apríl 1994 Petrína Guðmundsdóttir fæddist á Meiribakka í Skálavík 22. septem- ber 1906, dóttir þeirra mætu hjóna, Kristínar Sigurðardóttur og manns hennar, Guðmundar Sigmundsson- ar, er þá voru búsett í Skálavík í Hólshreppi. Hún flytur með foreldr- um sínum til Bolungarvíkur, þá um ársgömul, og þar ólst hún upp á heimili foreldra sinna. Ég minnist frænku minnar best frá þeim ámm er hún var búsett í Bolungarvík, -bfeirra stunda er ég heimsótti hana og mann hennar, Arna Elíasson, á heimili þeirra þar. Síðan eru marg- ar ár fallnar til sjávar. Petrína var mikil dugnaðarkona alla sína tíð meðan heilsa hennar leyfði. Húri stundaði alla algenga vinnu er til féll í litlu sjávarplássi eins og Bolungarvík var á þeim - tíma. Þau Petrína og maður hennar, Árni Elíasson, gengu í hjónaband 9. nóvember 1933 og bjuggu sín hjúskaparár í Bolungarvík. Árni maður hennar var lengi starfandi bakari í Bolungarvík, en hin síðari ár vann hann við öll almenn störf. Þau hjón bæði, Petrína og Árni, voru mikið dugnaðarfólk og ég minnist þeirra beggja með mikilli virðingu. Árni lést hinn 22. mars 1977. Ég minnist marga ánægjustunda er ég átti þess kost að heimsækja þetta vinafólk mitt ti! Bolungarvík- ur. Á heimili þeirra var maður ávallt velkominn og naut þar hlýleika og vináttu. Með aldrinum hrakaði heilsu frænku minnar og hún fluttist til Reykjavíkur og var hin síðari ár á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykja- vík. Þar andaðist hún og kvaddi sitt lífsskeið hinn 5. apríl síðastlið- inn. Jarðiífi hennar er lokið. Hún er ég var ráðinn að stofnuninni sl. sumar og fá bæði tækifæri til þess að starfa með mjög hæfu fagfólki á staðnum og einnig og ekki síður að fá að njóta samstarfs við jafn ágætan mann og Kristján, kynnast honum nánar og læra af reynslu hans og þekkingu á svo fjölmörgum sviðum. Kristján var maður heilinda. Hann tókst á við öll verkefni heils- hugar, vann þau af stökum dreng- skap og vakti jafnan yfír þeim mál- efnum sem honum voru falin þar til þau vom í höfn. Þetta geta þeir vitnað um sem starfað hafa með Kristjáni t.d. á vettvangi bæjar- og íþróttamála. Ósjaldan fékk ég upp- hringingu frá Kristjáni í miðjum erli dagsins. Hann var stöðugt að velta fyrir sér ýmsum atriðum sem snertu yfírstandandi framkvæmdir við stofnunina eða jafnvel að gefa gaum hagsmunum einstakra starfs- manna, þrátt fyrir eigin annir á ótal sviðum. Þann skamma tíma sem ég naut samstarfs við Kristján vom mörg og vandasöm mál í rekstri FSÍ/HSI til lykta leidd, vandamál sem erfitt hafði reynst að taka á og höfðu jafnvel legið óleyst í mörg ár. Framiag Kristjáns til allra verka einkenndist af virðingu og tillitssemi gagnvart samferðamönnum hans og niðurstaða Kristjáns í hveiju máli hafði alla jafna mildilegt en mál- efnalegt yfírbragð - hann var mannasættir. Því var ekkert undar- legt að hann naut virðingar og ein- lægrar aðdáunar þeirra sem mest unnu með honum og þekktu hann best. Aldrei heyrði ég Kristján hrósa sér af góðum lausnum, en hann var glaður þegar hverju máli var lokið. Það verkefni sem tók drýgstan hluta af starfskröftum Kristjáns sið- ustu misserin vom feijumálin við Djúp og uppbygging ferðamanna- þjónustu á svæðinu með Fagranesið sem virkan hlekk á því sviði. í bar- áttunni fyrir tilvist Djúpfeijunnar sem staðið hefur í nokkur ár hafa stuðningsmenn Kristjáns á stundum haft sig lítið í frammi. Hann gerði sjálfur ráð fyrir, að r.ú á næstu vik- um drægi til úrslita um það hvort af þeim byltingarkenndu áformum í samgöngum gæti orðið, að Isfírð- ingum og íbúum á norðanverðum Vestfjörðum opnaðist óhindmð leið allan ársins hring á bílum sínum út úr fjórðungnum. Kristján ætlaði að helga sig gjörsamlega því mikla verkefni að vinna þessu fylgi meðal ráðamanna á komandi mánuðum. Atvikin gerast hinsvegar svo að enginn sér fyrir. Það hvílir nú á okkur sem horfum á eftir manninum með hugsjónina að fylgja eftir áformum hans og ijúka þessu verki sem hann trúði svo mjög á og var sannfærður um að fólu í sér ótal möguleika, að treysta rekstur Fagranessins, byggja feijubryggjur og hlusta ekki á úrtöluraddir. Við kveðjum í dag mikinn dánu- mann, Kristján Knút Jónasson. Hér í þessu byggðarlagi lifði hann og hrærðist, lét sér fátt óviðkomandi, skilur eftir ljúfar minningar handa syni sínum, Kristni G. Ámasyni, en hann var einkabarn foreldra sinna. Það er ósk mín að framhaidslífíð veiti henni fyliingu eilífs lífs og þar megi hún næðis njóta með ástvinum sínum og vinum. Ágúst H. Pétursson. hafði skoðanir á flestu og víðtæka þekkingu á ótal málaflokkum. Krist- ján var að mínu viti skarpgreindur maður, minnugur og ótrúlega glöggur á tölur, svo oft stóð ég agndofa. Þetta harðbýla samfélag hér vestra ber svipmót afskipta Krist- jáns af sveitarstjómarmálum síð- ustu áratugi. Á þeim vettvangi vann hann af trúmennsku að lausn margra og stefnumarkandi verk- efna. Kristján var ambassador ísa- fjarðar og vestfírskra byggða nr. 1. Ég sendi þessum einlæga og elskulega samstarfsmanni mínum síðustu kveðjur með sámm söknuði og með ósk um friðsæld að ioknu góðu dagsverki sem lauk svo skyndi- lega og alltof fljótt. Fyrir hönd stjórnar Fjórðungs- sjúkrahússins og Heilsugæslustöðv- arinnar á ísafirði vil ég þakka hon- um öll hans góðu störf og við hjón- in sendum ekkjunni, Hansínu Ein- arsdóttur, og samheldinni fjölskyldu þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Guðjón S. Bijánsson. Þriðjudaginn 5. apríl sl. barst sú harmafregn, að mikið snjóflóð hefði faliið á ísafirði. Snjóflóðið féii á peri- ur þeirra Isfirðinga, skíðasvæðið á Seljalandsdal og sumarbústaða- byggðina í Tunguskógi. Hér er um að ræða eyðileggingu á unaðsreitum ísfírðinga, sem byggðir hafa verið upp á sl. áratugum og sett hafa mark sitt á bæinn og bæjarlífíð. Víst er, að tilfinningatjónið er mikið vegna þessa. Harmafregnin var ekki öll, því að í kjölfar fregnarinnar um snjóflóðið fylgdi, að manntjón hefði orðið og af völdum þess hefði látist Kristján Knútur Jónasson, fyrrver- andi forseti bæjarstjórnar. Vegna starfs míns, sem bæjar- stóri á ísafirði, kynntist ég Kristjáni náið, þar sem hann var bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Isafjarðar. Kristján setti stóran svip á bæjar- stjórn ísafjarðar þann tíma, sem hann sat í bæjarstjórn. Hann var leiðandi afl í málefnum bæjarins og mikill málafylgjumaður. Mörg voru málin Isafirði til heilla, sem aðrir trúðu, að ekki væri hægt að koma í framkvæmd, en hann kom málum í gegn, bæði í bæjarstjórn og í samn- ingaviðræðum við stjórnarráðið. Ég tel þetta iýsa eiginleikum Kristjáns vel. Með heiðarleika sínum, sannfær- ingarkrafti og þá hvernig hann flutti mál sitt, gat hann unnið fylgi við málstað sinn. Kristján var vinur alira og segja má, að hann hafí ekki deilt við menn um mismunandi skoðanir, heldur sannfært þá um, að skoðanir þeirra væru réttmætar en hans skoð- anir gengju lengra. Þannig stóðu aðilar yfirleitt sáttir upp frá borðum. Kristján hafði ákveðnar pólitískar skoðanir og var mikill alþýðuflokks- maður en aldrei mátti hann heyra illa talað um sína pólitísku andstæð- inga. Hann var boðinn og búinn að leysa vandamál annarra og gaf sér mikinn tíma í þau mál og félagsmál almennt. Af mörgum málum er að taka, sem eigna má Kristjáni í mál- efnum kaupstaðarins. Eitt af þeim málum stendur okkur nálægt í tíma er nýtt íþróttahús á Torfnesi. Mér er minnisstætt þegar ég kom til ísafjarðar sl. sumar og hitti þá Kristján, sem sýndi mér íþróttahúsið, sem þá var á lokastigi. Þar fór stoltur maður um og vissi með sjálfum sér, að búið væri að reisa hús, sem efla myndi íþróttamál kaupstaðarins, æsku hans og ekki hvað síst ísafjörð, sem menntabæ. Iþrótta- og æskulýðsmál voru Krist- jáni hugleikin. Kristján var mikill Vestfírðingur og barðist hart fyrir málefnum fjórð- ungsins. Hann hafði mikinn skilning og næmt auga fyrir málefnum Vest- fjarða. Það er kaldhæðni örlaganna, að sá maður, sem veitti um tíma fomstu bæjarstjórn ísafjarðar og tók þar með forustu í uppbyggingu ör- yggismála kaupstaðarins, en Krist- ján lét þau mál mikið til sín taka, skuli farast af völdum snjóflóðs. En eins og fram hefur komið í fjölmiðl- um stendur ísafjörður framarlega, hvað varðar öryggismál í snjóflóða- vörnum. Náttúran er óútreiknanleg, en skv. fyrirliggjandi upplýsingum var ekki talin hætta á snjóflóðum á því svæði, sem sumarbústaðabyggð- in stóð á. Annað mál, sem Kristján lét taka til sín, voru samgöngumál. Hann var mikill baráttumaður fyrir bættum samgöngum í ísafjarðar- djúpi og sem framkvæmdastjóri Djúpbátsins stóð hann að kaupum á nýja Fagranesinu, en á dánardegi Kristjáns kom berlega í ljós þörfin fyrir þá samgöngubót í Isaíjarðar- djúpi. Kristján var hrókur alls fagnaðar á gleðistundum. Við slík tækifæri átti hann það til að gera grín að sjálfum sér frekar en öðrum. Til marks um vináttu Kristjáns og Hansínu var eftirtektarvert hversu marga vini þau hjón höfðu eignast í vinabæjum ísafjarðar og hvernig þau ræktuðu þann vinskap. Heimili þeirra hjóna stóð alltaf opið fyrir öllum og var mjög ánægjulegt að sækja þau heim. Börnin í næsta nágrenni kölluðu þau jafnvel afa og ömmu. ísfirðingar standa nú frammi fyr- ir miklu uppbyggingarstarfi. í anda Kristjáns og í minningu hans veit ég að ísfirðingar, sem þekkja orðið vel móður náttúru, munu nú með sameiginlegu átaki, eins og skíða- svæðið og sumarbústaðabyggðin voru reist á sínum tíma, hefja af krafti og óhikað uppbyggingu skíða- svæðis og sumarbústaðabyggðar í Tungudal. Kæra Hansína, við Olöf biðjum góðan guð að styrkja þig og fjöl- skyldu þína við fráfall góðs eigin- manns, föður og vinar. Við höfum ekki kynnst mörgum hjónum, sem hafa verið jafn samrýnd og vina- mörg og þið voruð. Minningar okkar um góðan dreng og fyrrverandi sam- starfsmann munu verða okkur hug- ijúfar. Haraldur L. Haraldsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Isafirði. Lok páskaviku á ísafirði voru hörmuleg. Náttúmhamfara þeirra sem yfir Isafjörð gengu verður minnst af komandi kynslóðum. sem þeirra verstu í manna minnum fyrr og síðar. Á yndislegum stað í Tunguskógi höfðu þau hjón Kristján og Hansína nýverið reist draumabústaðinn Sinn og lagt í hann alla sína alúð og smekkvísi. Þar undu þau sér allar stundir sem gáfust í faðmi fjölskyld- unnar, þangað komu börn og barna- börn, ættingjar og vinir og nutu góðra stunda með þeim hjónum. Þetta var einn af þeim bústöðum sem snjóflóðið mikla tók með sér ásamt öllum hinum og ísfirðingar allir sem einn standa eftir agndofa. Okkur langar með nokkrum orð- um að minnast okkar góða vinar, Kitta. Það er erfítt að hugsa sér og sætta sig við að hann skyldi hrifínn á brott með þessum hætti, hann sem var alltaf svo fullur af orku og áhuga á öllu því sem var að gerast í kringum hann og í bæjarlífinu. Kitti var mikill félagsmálamaður og var bæjarfulltrúi og forseti bæj- arstjórnar til margra ára og er nú skarð fyrir skildi hjá sámheijum hans. Hann var líka mikil! áhuga- maður um íþróttir og stundaði knattspyrnu af kappi á árum áður. Hann var líka liðtækur skákmaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.