Morgunblaðið - 19.04.1994, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1994
Í
s
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓREY HANNESDÓTTIR
frá Norðfirði,
Háaleitisbraut 115,
sem lést 13. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 20. apríl kl. 13.30
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hjartavernd.
Gunnar Pétursson
Aðalsteinn Gunnarsson, Hildur Mósesdóttir,
Ólöf Helga Gunnarsdóttir
og barnabörn.
t
Fóstra mín og systir okkar,
JÚLÍA MARÍA HELGADÓTTIR,
lést á elliheimilinu Grund 6. apríl sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Starfsfólki á Grund er þakkað fyrir góða ummönnun.
Fyrir hönd vandamanna,
Gylfi Már Guðbergsson,
Andrea Helgadóttir, Dagmar Helgadóttir,
Ásta H. Kolbeins, Tryggvi Helgason,
Hjörtur B. Helgason, Sigurður M. Helgason.
Eiginmaður minn, +
JÓN V. HJALTALÍN,
frá Brokey,
Bókhlöðustig 10,
Stykkishólmi,
andaðist á heimili okkar þann 17. apríl.
Ingibjörg P. Hjaltalín.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐMUNDA Þ. ÞÓRARINSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Meistaravöllum 29,
lést á Grund sunnudaginn 17. apríl.
Jón Þórarinsson, Rósa Þorsteinsdóttir,
Hilmar Þórarinsson, Elínborg Salóme Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir og mágkona,
ÁGÚSTA GUÐLAUGSDÓTTIR,
Sólvangi,
Hafnarfirði,
áðurtil heimilis
á Frakkastfg 5, Reykjavik,
lést sunnudaginn 17. apríl.
Sveinn Bergsson, Randi Bergsson,
Guðrún Guðlaugsdóttir,
Þorbergur Guðlaugsson, Ólöf Guðmundsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
Stóragerði 14,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 16. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hilmar Adolfsson,
Gylfi Adolfsson,
Hiidigunnur Dixon,
Adolf Þráinsson
og aðrir ættingjar.
+
Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÁLL ÞÓRARINSSON,
Kirkjubraut 19,
Seltjarnarnesi,
andaðist laugardaginn 16. apríl.
Erla Ólafsdóttir,
Maria Jónsdóttir,
Ingibjörg Maria Pálsdóttir, Stefán A. Finnsson,
Ólafur Pálsson, Fjóla Haraldsdóttir,
Ásdís Pálsdóttir, Haukur Ásgeirsson,
Þórdfs Pálsdóttir, Ásmundur B. Gústafsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Bergþóra Steins-
dóttír — Minning
Fædd 17. febrúar 1912
Dáin 24. mars 1994
Enn minnir tíminn á sig, þetta
fyrirbæri sem fer svo hratt yfir.
Þegar dauðinn kveður dyra kemur
hann oftast að óvörum, þó ljóst
ætti að vera hvað klukkan slær.
Bergþóra Steindórsdóttir, móð-
ursystir mín, er fallin frá, nýlega
byijuð níunda áratuginn sinn í þess-
ar jarðvist. Þó kemur kallið á óvart.
Minningarnar þyrpast að. Efst er í
huga þakklæti í garð þessarar
kraftmiklu frænku. Gott var að eiga
athvarf hjá Bergþóru á námsárun-
um og hennar hjartahlýja eigin-
manni, Birni Kristjánssyni, en kær-
leikur og vinsemd var með Berg-
þóru og Helgu móður minni og
mikill samgangur milli heimila
þeirra.
Bergþóra fæddist á Neðra-Ási í
Hjaltadal og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum í stækkandi systkina-
hópi, en hún var þeirra elst. Foreldr-
ar hennar voru Soffía Jónsdóttir,
ættuð úr Eyjafirði, og Steinn Stef-
ánsson bóndi og kennari, Skagfirð-
ingur. Þau bjuggu flest sín búskap-
arár á Neðra-Asi, en áttu heimili
sitt á efri árum á Sauðárkróki. Alls
urðu systkinin sjö. Næst Bergþóru
komu tvíburar, Anna og Soffía.
Anna lést 1989, bjó í Garðinum,
en Soffía býr í Reykjavík. Helga
er næst í röðinni, býr í Keflavík,
þá Svanhildur sem býr á Neðra-
Ási. Tvíburarnir Björn og Kári
fæddust 1921. Björn lést 1980, bjó
í Njarðvík, en Kári býr á Sauðár-
króki.
Pálmi Guðnason,
Blönduósi — Minning
Fæddur 8. nóvember 1915
Dáinn 23. mars 1994
Pálmi var einn af fjórum sonum
hjónanna Guðna Sveinssonar og
Klemensínu Klemensdóttur. Guðni
var ættaður úr austanverðum
Skagafirði en faðir Klemensínu bjó
síðast í Grindavík. Pálmi var næst-
elstur bræðranna. Ingvi Sveinn
fæddist árið 1913 og var elstur.
Þeir bræður fæddust báðir í Ból-
staðarhlíð þar sem foreldramir vom
vinnuhjú. Þriðji sonurinn, Rósberg
Snædal, fæddist árið 1919 í Kára-
hlíð á Laxárdal, en þangað höfðu
þau Guðni og Klemensína flutt árið
áður, og í Kárahlíð fæddist fjórði
sonurinn, Guðmundur Kristinn, árið
1923. Állir eru þessir bræður
gengnir til feðra sinna og var Pálmi
síðast kvaddur til fararinnar. Bræð-
umir lifðu sín bemskuár á Laxár-
dalnum sem um þær mundir var
fjölmenn sveit með á þriðja tug
byggðra býla, þó í dag séu aðeins
tvö eftir. Er dalurinn nú aðallega
notaður til hrossabeitar. Laxár-
dalurinn er ein af þeim sveitum
landsins sem á örlagarikan hátt
varð fyrir fiótta fólksins til þéttbýl-
isstaða, sem uxu ört á þessum
árum. Er þetta svo kunn saga að
ekki er bætandi við orðræðu þar
um. En Laxárdalurinn var leik- og
starfsvangur bræðranna fjögurra,
fyrst tíu ár í Kárahlíð, önnur tíu á
Vesturá og svo þriðja áratuginn í
Hvammi, þar framar í dalnum, en
árið 1948 yfirgáfu þau Guðni og
kona hans Laxárdalinn og fluttu til
Skagastrandar þar sem þau bjuggu
upp frá því.
Það varð hlutskipti Pálma að
fara að heiman tólf ára gamall.
Segir það sögu um fátækt foreldr-
anna og er varla annars að vænta
en skilnaðurinn við foreldrana hafi
haft mótandi áhrif á hinn unga
dreng þótt lítt ræddi Pálmi um það
frekar en aðra einkahagi sína.
í einfaldri og yfírlætislausri frá-
sögn lét Pálmi eftir sig greinargóða
lýsingu á lífshlaupi sínu frá því
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR STEINGRÍMSDÓTTIR,
Vi'ðimel 35,
Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 16. apríl.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, .
BERGMUNDUR STÍGSSON,
Vesturgötu 131,
Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness 14. apríl.
Jóna Björg Guðmundsdóttir,
Bergþóra Bergmundsdóttir, Guðmundur Ágústsson,
Þórir Bergmundsson, Guðriður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS INDRIÐASON
frá Briðjuholti,
Hlévangi,
Faxabraut 13,
Keflavík,
lést í Sjúkrahúsi Suðurnesja 18. apríl.
Rósa Sigurðardóttir,
Sigurður Jakob Magnússon, Kristborg Níelsdóttir,
Guðlaug Rósa Sigurðardóttir, Magnús Níels Sigurðsson.
Leið Bergþóru úr foreldrahúsum
lá til Reykjavíkur, eins og svo al- £
gengt var á þeim árum. Þar kynnt-
ist hún eiginmanni sínum, Birni
hann fór að heiman, fyrst að
Blöndudalshólum til Bjarna bónda
og kennara Jónassonar og konu
hans Önnu Siguijónsdóttur, og
barnaskóla sótti hann að Finns-
tungu. Var það á þeim árum sem
kennt var með farskólasniði. Urðu
vistir hans á nokkrum bæjum í
Bólstaðarhlíðarhreppi og víðar
austan Blöndu, en af og til var
hann heima á Laxárdalnum hjá for-
eldrum sínum. Haustið 1934 fór
Pálmi suður að Laugarvatni ásamt
sveitunga sínum Steingrími Björns-
syni frá Mjóadal og fleiri Húnvetn-
ingar voru þar á skólanum. Efni
skorti til þess að þeir félagar dveldu
nema einn vetur á Laugarvatni,
enda kreppan þá í hámarki og lítið
um skotsilfur ungs fólks frá fátæk-
um fjölskyldum. En námslöngun
þeirra var áleitin og haustið 1937
gerðust þeir nemendur í Samvinnu-
skólanum í Reykjavík og tóku þaðan
próf vorið eftir. Reyndist félags-
skapur þeirra Pálma og Steingríms
varanlegur og ekki tjaldað til
skamms tíma. Þar með var skóla-
göngunni lokið og við tók skóli lífs-
ins. Á Akureyri átti Pálmi heima
frá haustinu 1938 til ársins 1947
og vann þar ýmis störf. Um miðjan
fimmta áratug aldarinnar hófst
mikil ræktunar- og framfaraalda í
sveitum landsins. Réðst Pálmi þá
til Búnaðarsambands Austur-Hún-
vetninga sem vinnuvélastjóri, en var
á Akureyri að vetrinum þar til 1948
er hann flutti aðsetur sitt til for-
eldra sinna á Skagaströnd. Með
ræktunarstarfi sínu varð Pálmi
virkur þátttakandi í uppbyggingu
landbúnaðarins.
En þar kom að hann varð að
breyta vinnuháttum vegna bilunar
í baki. Stundaði hann eftir það fisk-
vinnslu ó Skagaströnd en var á
vetrum hjá Vélsmiðju Húnvetninga
og síðar hjá Vegagerð ríkisins á
Blönduósi. Kransæðasjúkdómur og
missir sjónar á öðru auga batt enda
á starfsferil Pálma um miðjan átt-
unda áratuginn. Frá árinu 1970
varð aðsetur hans alfarið á Blöndu-
ósi. Var heimilið, hátt á apnan ára-
í
$
í
(
i
(
(
(
(
<
(
i
(
i
(