Morgunblaðið - 19.04.1994, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1994
16500
DREGGJAR
DAGSIIMS
★Jf ★★
G.B. DV.
★★★★
Al. MBL.
★ ★★★
Eintak
★ ★★★
Pressan
Sýnd kl. 4.35,
Stórmyndin
FÍLADELFÍA
Tom Hanks hlaut Golden
Globe- og Óskarsverðlaunin
fyrir leik sinn í myndinni.
Að auki fékk lag Bruce
Springsteen, Streets OfPhiladelphia,
Oskar sem besta frumsamda lagið.
Leikstjóri: Jonathan Demme.
Sýnd í A-sal kl. 4.40,6.50,9 og 11.20.
Miðaverð 550 kr.
'kju'k Mbl. 'k'k'k Rúv. 'k'k'k DV.
Takið tiátt í spennandi kvikmyndagetraun á Stiörnubíð-línunni
í síma 991065. í verðlaun eru Fíladellía bolir, geislaplötur og
boðsmiðar á myndir Stjörnubíós. Verð kr. 39,90 mínutan.
MORÐGÁTA Á MANHATTAN
Nýjasta mynd Woody Allen.
Sýnd kl. 11.30. Miðav. kr. 400.
Presthjónin í Grundarfírði, Kristín Jóhannesdóttir og
^Sigurður Kr. Sigurðsson, sungu á Embluvökunni.
Embluvika í
Stykkishólmi
Stykkíshólmi.
KVENNASAMTÖKIN Embla i Stykkishólmi buðu bæj-
arbúum til sinnar árlegu Embluvöku og var um fjöl-
breytt efni að ræða. Vökunni stjórnaði formaður henn-
ar, Magndís Alexandersdóttir, sem bauð gesti velkomna.
Fyrsta atriði vökunnar var
einsöngur Dagnýjar Sigurð-
ardóttur sem er Hólmari og
hefur verið í söngnámi. Und-
irleikari hennar var Ingibjörg
Þorsteinsdóttir. Næst flutti
Rakel Olsen áhugaverðan
frásöguþátt er hún nefndi:
Frá Bessastöðum til Stykkis-
hólms en það voru nokkur
eftirminnileg atriði úr lífs-
sögu frú Þuríðar Kúld sem
hér á sínum tíma gerði garð-
inn frægan ásamt manni sínu
sr. Eiríki Kúld, prófasti. Þar
Ú eftir léku saman á flygil
og þverflautu Lana Beets og
David Enns en þau hafa
starfað hér að tónlistarmál-
um. Að lokum sungu saman
presthjónin í Grundarfirði,
Kristín Jóhannesdóttir og
Sigurður Kr. Sigurðsson, við
undirleik Friðriks Vignis
Stefánssonar.
Á eftir var síðan skoðuð
ljósmyndasýning Guðmundar
P. Ólafssonar og Flemmings
Nielsens í félagsheimili kirkj-
unnar en Embluvakan sjálf
var haldin í kirlqunni.
Forseti Emblu er nú Helga
Siguijónsdóttir. Þess má að
Iokum geta að hinni fjöl-
breyttu kvöldvöku var feiki-
lega vel tekið af þeim sem
hennar nutu.
- Árni.
WOÐLEIKHUSIÐ sími ll 200
Stóra sviðið kl. 20.00:
• GA UKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman.
3. sýn. fös. 22. apríl uppselt - 4. sýn. lau. 23. apríl örfá
sœti laus - 5. sýn. fös. 29. aprfl nokkur sæti laus - 6. sýn.
suri. 1. maí - 7. sýn. fös. 6. maí.
• GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Á morgun uppsett, - fim. 21. aprfl, uppselt, - sun. 24. apríl,
uppselt, - mið. 27. aprfl, uppselt, - fim. 28. apríl, uppselt,
- lau. 30. apríl, uppselt, - þri. 3. maí, uppselt, - fim. 5.
maí, uppselt, - lau. 7. maí, uppselt, - sun. 8. maí, nokkur
sæti laus, - miö. 11. maí, nokkur sæti iaus. Ósóttar pantan-
ir seldar daglega.
• SKILABOÐASKJÓÐAN ftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Fim. 21. aprfl (sumard. fyrsti) kl. 14, nokkur sæti laus -
sun. 24. aprfl kl. 14, nokkur sæti laus, - lau. 30. apríl kl.
14, örfá sæti laus, - mið. 4. maí kl. 17 - lau. 7. maí kl. 14.
• LISTDANSSKÓLI ÍSLANDS
Nemendasýning í kvöld kl. 20.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30:
• BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca
I kvöld, uppselt, síðasta sýning. Aukasýning þri. 26. aprfl.
Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt aö hleypa
gestum í salinn eftir að sýning er hafin.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti
símapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
tdrxna linan 996160 — greiöslukortaþjónusta.
Muniö hina gltesilegu þríggja rétta máltiö ásamt
dansleik.
LEIKHÚSKJALLARINN
- ÞAR SEM LÍFIÐ ER LIST -
■ OPINN fundur um hús-
næðismál verður haldinn á
vegum BSRB í kvöld kl.
20.30. Yfirskrift fundarins
er: Launin, lánin og sér-
eignastefna. Málshefjendur
eru Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir
alþingiskona, borgarstjóra-
efni Reykjavíkurframboðs-
irw, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sam-
bands ísjenskra sveitarfé-
laga, 2. maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,
Magnús Axelsson, formað-
ur Húseigendafélagsins, og
Jón Kjartansson frá Pálm-
holti, formaður Leigjenda-
samtakanna. Að loknum
stuttum framsöguerindum
verða umræður en stefnt er
að því að fundinum ljúki um
kl. 22.30.
R-listinn
Borgarafundur
um skólamál
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir efnir til opins borgara-
fundar í Réttarholtsskóla í kvöld kl. 20.30, og er yfir-
skrift fundarins Breyttir tímar-betri skóli. Fjallað verður
um spurningarnar hvað borgarbúar vilja í skólamálum
og hvernig nýr borgarsljóri eigi að beita sér í grunn-
skólamálum, leikskólamálum og þróun skólastarfs.
Gestir borgarafundarins
verða Unnur Halldórsdóttir,
formaður samtakanna Heim-
ili og skóli, Jón Torfí Jónas-
son dósent, Guðrún Ebba
Ólafsdóttir, formaður Kenn-
arafélags Reykjavíkur og
Kristjana Stefánsdóttir, leik-
skóiastjóri. Fundarstjóri
verður Sigurður Svavarsson,
ritstjóri.
NEMENDALEIKHUSIÐ
LINDARBÆ - SÍMI 21971
Sumargestir
eftir Maxím Gorkíj,
í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
12. sýning mið. 20. aprfl kl. 20.00.
Á myndinni má sjá börn í
ar Ness hf.
BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
Stóra svið kl. 20:
• GLEÐIGJAFARNIR eftir Neíl Simon.
með Árna Tryggvasyni og Bessa Bjarnasyni.
Þýðing og staðfærsla Gísli Riínar Jónsson.
Mið. 20/4, fáein sæti laus, fös. 22/4, örfá sæti laus, sun. 24/4,
fim. 28/4, lau. 30/4 uppselt, fim. 5/5.
• EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar
Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende. Lög og textar eftir
Egil Ólafsson.
Fim. 21/4, lau. 23/4, fös. 29/4, sun 1/5. Ath. sýningum lýkur
20. maf. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miða-
sölu. ATH. 2 miðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000.
Miðasalan er opin frá kl. 13-20 atla daga nema mánudaga.
Tekið á möti miðapöntunum f síma 680680 kl. 10-12 alla virka
daga.
Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin - tilvalin tækifærísgjöf.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Stykkishólmi að leik í nokkrum af leiktækjum Trésmiðjunn-
Trésmiðjan Nes
hf. haiinar leiktæki
Stykkishólmi.
TRESMIÐJAN Nes hf. í Stykkishólmi hefur undanfarin
ár verið að hanna ýmiskonar leiktæki fyrir skóla og barna-
heimili og hafa þau orðið mjög vinsæl og fengið góða
reynslu bæði hér, í Reykjavík og víðar.
Nú er það hugmynd ráða-
manna Trésmiðjunnar að
hefja frekari framleiðslu á
þessum leiktækjum ogjafnvel
að bæta inn nýjum hugmynd-
um og gefa með því sem flest-
um leikskólum og grunnskól-
um á landinu tækifæri til að
eignast slík leiktæki. Alls
staðar sem þessi tæki hafa
verið notuð hafa þau reynst
með afburðum vel, enda vand-
að til þeirra eftir bestu getu
og það má fullyrða að Tré-
smiðjan Nes hefur unnið sig
í álit í þessum efnum.
Þegar fréttaritari átti tal
við forráðamenn fyrirtækisins
kváðust þeir hafa möguleika
á því nú að taka á móti pönt-
unum sem yrðu þá unnar svo
fljótt sem hægt væri. Þeir
hafa einnig ritað nokkrum
sveitarfélögum og látið fylgja
með myndir af frarnleiðslunni.
- Árni.
Lauk doktors-
prófi í eðlisfræði
HAUKUR Arason varði sl.
haust doktorsritgerð í eðl-
isfræði við University of
Florida.
Ritgerðin ber heitið „Re-
normalization Group Analysis
of the Standard Model, the
Minimal Supersymmetric
Extension of the Standard
Model, and the Effective Acti-
on“. Ritgerðin fjallar um það
hvernig við sérstakar aðstæð-
ur er hægt að tengja saman
ýmsar stærðir í náttúrunni
svo sem massa og hleðslu fru-
meinda. Athyglisverðasta nið-
urstaða ritgerðarinnar er
forspá um massa toppkvark-
ans, ófundinnar öreindar sem
eðlisfræðingar telja að hljóti
að vera til.
Haukur Arason fæddisl í
Reykjavík 28. janúar 1962.
Hann iauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1981 og BS-prófí í eðlis-
fræði frá Háskóla íslands
1985. Að loknu námi hér
heima hélt Haukur til frekara
náms í Bandaríkjunum, fyrst
við Columbia University í
New York þar sem hann lauk
MA-prófi 1987 og síðan við
University of Florida þar sem
hann starfaði að rannsóknum
og kennslu frá árinu 1987 til
1993. Á þessum árum ritaði
Haukur ásamt samstarfs-
mönnum sínum fjórar greinar
í tímarit Bandaríska eðlis-
fræðifélagsins. Síðastliðið
haust hóf Haukur störf sem
deildarstjóri í eðlisfræði við
Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði.
Haukur er sonur Ara Jó-
sefssonar, ljóðskálds, og Sól-
veigar Hauksdóttur, hjúkr-
Dr. Haukur Arason
unarfræðings og kennara við
Fósturskóla íslands. Faðir
Hauks lést fyrir allmörgum
árum og ólst hann upp hjá
móður sinni og fósturföður,
Haraldi S. Blöndal, deildar-
stjóra við bókiðnadeild Iðn-
skólans í Reykjavík. Haukur
er kvæntur Gretu Guðnadótt-
ur, fiðluleikara í Sinfón-
íuhljómsveit íslands, og eiga
þau eina dóttur, Sólveigu.