Morgunblaðið - 04.05.1994, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Island er
mitt annað
föðurland
„ÉG LÍT á ísland sem annað föð-
urland mitt,“ segir Kazuko Eno-
moto, prófessor í félagslegri þjón-
ustu við Otemon Gakuin háskól-
ann í Japan. Hún sérhæfir sig í
félagslegri þjónustu fyrir aldraða
og er hér á landi til þess að afla
upplýsing um öldrunarþjónustu
hérlendis. Þegar heim er komið
hyggst hún nota upplýsingarnar
til þess að gefa út bók þar sem
hún ber saman öldrunarþjónustu
hér á landi við slíka þjónustu í
Japan. Sérstakan áhuga hefur
hún á húsnæðismálum aldraðra.
Bókin byggir á ritgerð sem hún
skrifaði fyrir ári síðan þar sem
hún bar saraan löndin tvö. Þetta
er í annað skiptið sem Enomoto
kemur hingað til lands og á þess-
um tveimur árum hefur hún gefið
Öldrunarþjónustu Reykjavíkur-
borgar um 260 þúsund krónur til
að kaupa bækur og önnur rit um
öldrunarmál. Hún segist hafa haft
áhuga á íslandi alveg frá því hún
var Htil. Tilviljun hafí hins vegar
Morgunblaðið/Júlíus
KAZUKO Enomoto, prófessor, er að vinna að bók þar sem hún
ber saman öldrunarþjónustu á íslandi og í Japan.
ráðið því að leið hennar lá hingað
þegar hún kaus að beina rann-
sóknum sínum til íslands. Hún
segir að hér lifi fólk mjög lengi,
hér sé góð félagsleg þjónusta við
gamalt fólk sem sé svipuð því sem
gerist og gengur á hinum Norður-
löndunum. í Japan hafi hins vegar
mikið verið skrifað um öldrunar-
mál í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð og því hafi hún ákveðið að
bera saman þessi mál á íslandi
og í Japan. í þetta skipti dvelur
hún hér á landi í þrjá daga og
notar tímann til að heimsækja
elliheimili og þjónustuíbúðir aldr-
aðra. Henni finnast Islendingar
vera vingjarnlegir, loftið sé tært
hér, hér sé nóg af hreinu vatni
auk þess sem hér sé mjög fallegt.
„Mér líkar alltaf betur og betur
hér,“ segir hún „Hér er vel hugs-
að um mig og ég er mjög ham-
ingjusöm þegar ég er á Islandi."
Sala tóbakseftiiiíking-
ar kærð til lögreglu
FYRIRTÆKIÐ íslensk dreifing hf. hefur verið kært til lögreglu
vegna dreifíngar og sölu á sælgæti í sígarettueftirlíkingu sem sagt
var frá í Morgunblaðinu í gær. Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkur hafa rannsakað málið og þegar hefur verið farið fram á við
fyrirtækið að það stöðvi dreifingu á umræddu sælgæti og hefji inn-
köílun á því sem þegar er komið í verslanir.
Að sögn Ágústs Thorstensen, heil-
brigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur, er sala á umræddu
sælgæti skýlaust brot á 7. grein
tóbaksvamalaga sem fjallar um
bann við auglýsingum á tóbaki og
reykfærum. I 3. tölulið greinarinnar
segir: „Með auglýsingum er f lögum
þessum m.a. átt við hvers konar til-
kynningar til almennings, eftirlík-
ingar af tóbaksvarningi, skiiti og
svipaðan búnað, útstillingar og notk-
un tóbaksvöruheita og auðkenna."
Ágúst sagði að í framhaldi af
kærunni myndi heilbrigðiseftirlitið
reyna að fylgjast með því að fyrir-
mælum eftirlitsins um innköllun og
stöðvun á dreifingu yrði hlítt.
Varan stöðvuð í tolli
Gunnar Kristinsson, hjá innflutn-
ingseftirliti Hollustuverndar ríkisins,
sagði að fyrir hefði komið að hann
hefði orðið var við tóbakseftirlíking-
ar í tolli og þá færi varan ekki í
dreifingu. í þessu tilviki hefði hann
ekki verið látinn vita um vöruna og
hún hefði farið fram hjá honum,
enda kæmist hann ekki yfír að skoða
allt sælgæti sem færi inn í landið.
Þar að auki hefði í þessu tilviki ver-
ið mjög erfitt að koma auga á hina
óleyfilegu vöru vegna þess hvernig
henni var pakkað.
Hiklaust kært
Að sögn Halldóru Bjarnadóttur,
formanns tóbaksvamanefndar, lét
innflytjandi nefndina ekki vita um
vöruna, enda hefði hún þá aldrei
farið í dreifingu. Halldóra sagði að
nefndin kærði hiklaust fyrir brot á
tóbaksvarnalögum og nefndi sem
dæmi sælgætisframleiðanda sém
seldi „Havana-vindla".
Rúmlega 17 þúsund manns kjósa til
sveitarsljórnar í fyrsta sinn
Um 186 þúsund
kjósendur 28. maí
í SVEITARSTJÓRNAKOSNINGUNUM í vor eiga 186.377 kjósend-
ur rétt á að kjósa, 93.409 konur og 92.968 karlar. Kjósendur eru
tæplega 9.000 fleiri en í kosningunum fyrir íjórum árum, en það
er tæplega 5% fjölgun. Þeir kjósendur sem fá að kjósa í fyrsta sinn
eru um 17.200. Nýir kjósendur eru um 9% kjósendahópsins.
Kosningarnar fara fram 28. maí
næstkomandi. í 14 sveitarfélögum
verður þó ekki kosið fyrr en 11.
júní. Þetta eru sveitahreppar og er
ástæða frestunar í flestum tilvikum
áð sauðburði er ekki lokið þegar
kosningarnar fara fram. Árið 1990
fengu 50 sveitarfélög að fresta
kosningum fram í júní.
Sú kjörskrá sem nú liggur fyrir,
en á henni eru 186.377 kjósendur,
kann að taka einhverjum breyting-
um fram að kosningum. Hægt er
að kæra fólk inn á og út af kjör-
skrá og tekur kjörstjórn þær kærur
til meðferðar. Hver kjósandi á
kosningarétt í því sveitarfélagi þar
sem hann á skráð lögheimili sam-
kvæmt íbúaskrá 5 vikum fyrir kjör-
dag, þ.e. 23. apríl. Kosningarétt
eiga allir sem eru orðnir 18 ára
þegar kosning fer fram, eru ís-
lenskir ríkisborgarar og eiga lög-
heimili á íslandi. Þeir sem hafa flutt
lögheimili sitt frá íslandi sam-
kvæmt Norðurlandasamningi um
almannaskráningu en hefðu sam-
kvæmt lögheimilislögum átt rétt til
þess að halda lögheimili á íslandi
(námsmenn og fleiri) og fullnægja
kosningaréttarskilyrðum að öðru
leyti eiga einnig kosningarétt. Enn
fremur eiga kosningarétt danskir,
fínnskir, norskir og sænskir ríkis-
borgarar, sem eru orðnir 18 ára
og eiga lögheimili á íslandi.
Kjósendum í Reykjavík
fjölgað um 4.000
í fjölmennasta sveitarfélaginu
Reykjavík eru 74.438 á kjörskrá
sem er um 4.000 fleiri kjósendur
en árið 1990. Kjósendur í Kópavogi
eru 12.059, 11.444 í Hafnarfírði
og 10.511 á Akureyri. Tvö fámenn-
ustu sveitarfélög landsins eru á
Vestfjörðum. í Ogurhreppi eru 25
á kjörskrá og í Snæfjallahreppi eru
kjósendur aðeins 8.
Kópavogsbær kaupir lóð Hagkaups, IKEA og BYKO á 80 milljónir króna
R Eh;K J A VT ÍC
Hætt við versl-
unarmiðstöð
í Smárahvammi
HAGKAUP, IKEA og BYKO eru hætt við fyrirhugaðar byggingar-
framkvæmdir í Smárahvammi í Kópavogi og hafa selt Kópavogsbæ
lóðina aftur á um 80 milljónir króna. Að sögn Sigurðar Gísla Pálma-
sonar, stjómarformanns Hofs hf., eignarhaldsfyrirtækis Hagkaups
og IKEA, er það tvennt sem veldur þessari ákvörðun. í fyrsta lagi
hafi tekist að finna hentugt framtíðarhúsnæði fyrir IKEA, auk
þess sem efnahagsástandið í landinu geri það að verkum, að ekki
sé grundvöllur fyrir slíkum stórframkvæmdum nú.
í verslunarmiðstöðinni í Smára-
hvammi vestan Reykjanesbrautar
ætluðu BYKO, Hagkaup og IKÉA
að vera með stórar verslanir og
einnig áttu að vera þar þjónustufyr-
irtæki og smærri verslanir. Fyrir-
hugað var að verslunarmiðstöðin
yrði allt að 30 þúsund fermetrar
að stærð. Svæði BYKO átti að vera
8.000 fermetrar, IKEA átti að fá
7.000 fermetra og markaður Hag-
kaups átti að vera 5.000 fermetrar.
Fyrirtækin þrjú festu kaup á lóð-
inni í Smárahvammi árið 1988 og
var áætlað að verslunarmiðstöðin
yrði tekin í gagnið árið 1995.
Fengu hentugt
framtíðarhúsnæði fyrir IKEA
„Upphaflega var hugsunin bak
við þetta að koma IKEA fyrir í
framtíðarhúsnæði,“ segir Sigurður
Gísli. Fyrirtækið hafi síðan fengið
hentugt húsnæði fyrir verslunina í
Holtagörðum upp í hendumar. „Af
því að við vorum búnir að fínna
framtíðarhúsnæði fyrir IKEA var
ekki lengur sami áhugi á þessu,"
segir hann.
„Allar efnahagsaðstæður í þjóð-
félaginu hafa breyst það mikið að
við höfum ekki talið ráðlegt að fara
út í þessar framkvæmdir," segir
Sigurður Gísli. „Við erum þannig
gerðir að við Iögum okkur að kring-
umstæðum." Hann bendir á að of-
framboð sé á verslunarhúsnæði í
Reykjavík og ekki grundvöllur fyrir
að bæta við það.
Lóð sú í Smárahvammslandi
sem IKEA/Hagkaup/BYKO
hafa selt Kópavogsbæ
Kópavogsbær ýtti á
framkvæmdir
Einnig spilaði það inn í ákvörðun-
ina um að selja lóðina að Kópavogs-
bær hafí viljað að framkvæmdir
hæfust á lóðinni. Því hafi það orðið
úr að Kópavogsbær keypti lóðina.
Söluverð hennar var um 80 millj-
ónir króna og segir Sigurður að það
sé í raun og veru framreiknað kaup-
verð frá því að lóðin var keypt upp-
haflega.
T ry ggingayfirlæknir
Mælt með
þremur
læknum
TRYGGINGARÁÐ kaus á
fundi á mánudag milli átján
umsækjanda um stöðu trygg-
ingayfirlæknis og sjö um stöðu
tryggingalæknis, og hefur
skilað tillögum sínum til heil-
brigðis- og tryggingaráðherra.
Atkvæði féllu þannig að
Júlíus Valsson, settur tryg-
ingaýfírlæknir, fékk eitt at-
kvæði, Vilhjálmur Rafnsson,
yfirlæknir Vinnueftirlits ríkis-
ins, fékk tvö atkvæði, og um-
sækjandi sem óskar nafn-
leyndar, fékk tvö atkvæði. í
stöðu tryggingalæknis féllu
atkvæði þannig, að Júlíus
Valsson fékk fjögur atkvæði,
og læknir sem óskar nafn-
leyndar, fékk eitt atkvæði.
Allir hæfir
Stöðunefnd Landlæknis
taldi alla umsækjendur hæfa
á sínu tíma, en mælti sérstak-
lega með fímm umsækjendum
í stöðu tryggingayfirlæknis.
Samkvæmt lögum á forstjóri
Tryggingastofnunar einnig að
skila tillögum sínum til ráð-
herra, en ráðherra er ekki
bundinn af þeim tillögum sem
hann fær.
Braut í sér
tennur við
fall af hjóli
11 ÁRA telpa meiddist í and-
liti og braut nokkrar tennur
þegar hún féll af reiðhjóli á
Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær.
Telpan var ásamt stöllu
sinni að tvímenna á reiðhjóli
þegar þær misstu vald á hjól-
inu og skullu til jarðar.
Onnur telpan meiddist sýnu
meira en hin, auk þess að
meiðast í andliti og bijóta
tennur meiddist hún á hand-
legg, að sögn lögreglunnar í
Hafnarfírði.
Bifhjólaslys
í Sandgerði
TVÍTUGUR maður hlaut tals-
verð meiðsli í bifhjólaslysi í
Sandgerði síðdegis í gær.
Pilturinn missti vald á bif-
hjóli sínu á hafnarsvæðinu í
Sandgerði með þeim afleiðing-
um að hann rann undir kyrr-
stæðan vörubíl sem þar stóð.
Hann hlaut mikil meiðsli,
m.a. beinbrot og var fluttur á
Borgarspítalann í Reykjavík.
Að sögn lögreglu í Keflavík
var hann þó ekki talinn í bráðri
Iífshættu.