Morgunblaðið - 04.05.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 9
FRÉTTIR
Hagsmunafélag hestaútflytjenda stofnað
Trúiiaðarbrestur
milli útflytjenda
og hrossabænda
Vilja upprunavottorðin í Búnaðarfélagið
Nýr doktor
íjarðfræði
BJÖRN S.
Harðarson
varði í desem-
ber sl. doktors-
ritgerð sína í
jarðfræði við
Háskólann í
Edinborg.
Andmælendur
voru dr. Maq'-
orie Wilson frá
Háskólanum í
Leeds og dr.
Gordon Biggar frá Edinborg-
arháskóla en leiðbeinendur
Björns höfðu verið þeir dr. God-
frey Fitton og Sigurður Stein-
þórsson, prófessor.
Ritgerðin fjallar í meginatrið-
um um berg- og jarðefnafræði
Snæfellsjökuls. Þar kemur m.a.
fram að þáttun kristalla og bráð-
ar ætti mestan þátt í myndun
bergsyrpu jökulsins, en þó eru
greinileg merki um að kviku-
blöndun hafi átt mikilvægan
þátt í þróunarferli bergsins . í
ritgerðinni eru færð rök fyrir því
að kenningar um misleitan ís-
lenskan möttulstrók fái staðist.
Bjöm er fæddur í Reykjavík
1958. Foreldrar hans eru Helga
Steffensen, brúðuleikari, og
Hörður Eiríksson, flugvélstjóri.
Eiginkona Björns er Kristveig
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, og eiga þau þrjú böm.
Bjöm starfar að rannsóknum við
Háskólann í Edinborg.
NÝSTOFNAÐ Hagsmunafélag
hestaútflytjenda hefur óskað eftir
því við búnaðarmálastjóra að út-
gáfa upprunavottorða fyrir hross
sem flutt eru úr landi verði tekin
af Félagi hrossabænda og Búnað-
arfélag Islands muni sjá um útgáf-
una.
Segir í bréfí til búnaðarmála-
stjóra að kominn sé upp trúnaðar-
brestur milli FH og hrossaútflytj-
enda. Um ástæður segir að FH
hafí ekki kynnt fyrir útflytjendum
framvarp til laga um útflutning
hrossa sem þeir telja að mörgu leyti
meingallað. Telja útflytjendur að
verði framvarpið samþykkt muni
FH innheimta gjald af útfluttum
hrossum og úthluta sjálfu sér eða
félagsmönnum í beinni samkeppni
við útflytjendur sem sjálfir og
styrkjalaust hafa unnið að upp-
byggingu viðskiptasambanda og
markaðs með hross, eins og segir
í bréfinu. Þá telur félagið ummæli
framkvæmdastjóra FH á fundi í
febrúar til þess fallin að rýra traust
þeirra á félaginu. En þar mun hann
hafa' látið að því liggja að útflytj-
endur héldu niðri markaðsverði
hesta til bænda og gefíð í skyn að
þeir væru óþarfa milliliðir sem
stæðu í vegi fyrir hrossabændum
sjálfum.
Þá er í bréfínu bent á að ein
ástæða þess að óskað er eftir að
BÍ yfírtaki útgáfu upprunavottorð-
anna sé sú að með útgáfunni hafl
FH aðgang að upplýsingum um
viðskiptavini hestaútflytjenda og
telja þeir eðlilegt að slíkar upplýs-
ingar séu í höndum hlutlausra að-
ila.
Þá hefur félagið einnig sent land-
búnaðarráðherra og landbúnaðar-
nefnd Alþingis bréf þar sem gerðar
era veigamiklar athugasemdir við
frumvarp til laga um útflutning
hrossa. Telja útflytjendur að ef lög-
in verði samþykkt óbreytt muni það
færa FH einokunarstöðu gagnvart
hestaútflytjendum.
Unnur opnar
ferðaskrifstofu
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur veitt Unni Guðjóns-
dóttur leyfi til reksturs ferðaskrifstofu. Unnur hefur
undanfarið farið með ferðamenn til Kína í samvinnu
við sænska ferðaskrifstofu.
Unnur sótti um ferðaskrifstofuleyfi í fyrra, en endan-
lega var ekki gengið frá leyfisveitingunni fyrr en í
fyrradag. Ragnhildur Hjaltadóttir lögfræðingur í sam-
gönguráðuneytinu sagði að Unnur hefði uppfyllt öll
skilyrði sem sett eru fyrir rekstri ferðaskrifstofu. Ragn-
hildur sagði að ráðuneytið teldi mjög mikilvægt að
allir sem hafí milligöngu um sölu ferða til annarra
landa hafi til þess formleg leyfi svo að þeir séu tryggð-
ir eins og farþegar ferðaskrifstofa.
Til að fá leyfi til að reka ferðaskrifstofu þarf urnsækj-
andi að leggja fram bankaábyrgð að lágmarki sex
milljónir króna.
UNNUR Guðjónsdóttir (t.v.) er hér með Lu Fenyan
aðstoðarráðherra og yfirmanni kínversku ferða-
skrifstofunnar, en hún kom hingað nýlega í boði
samgönguráðuneytisins.
SPEGILSJÓÐIR VÍB
Oryggi frá upphafi tilframtíðar
Þú þarft ekki endilega að kaupa spariskírteini ríkissjóðs til
þess að njóta öryggis og eignarskattsfrelsis. Mun minni
sveiflur eru á ávöxtun Sjóðs 5, auk þess sem viðskiptin eru
einfaldari og þægilegri.
• 15,6% RAUNÁVÖXTUN SL. 12 MÁN.
• ÁBYRGÐ RÍKISSJÓÐS
• EIGNARSKATTSFRELSI
• ÓKEYPIS VARSLA
Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingaf um Sjóðsbréf 5 í
afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma 91 - 60 89 00.
Jafnframt er hægt að kaupa Sjóðsbréf 5 í útibúum
Islandsbanka um allt land. Verið velkomin í VIB!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
I— Ármúla 13a, sími: 91 - 60 89 00. _I
SUMARFATNAÐUR
ALLAR STÆRÐIR
SILKIPILS, BLÚSSUR, PEYSUR,
JAKKAR, BOLIR, BUXUR,
GALLABUXUR.
5LACKY
KYUSO
PEISINN
Kirkjuhvoli • sími 20160
Þar sem
vandlátir
versla.
Eitt áreibanlegasta
spamaöarformið í
þrjá áratugi
í nærri þrjá áratugi hafa spariskírteini
ríkissjóbs verib ein öruggustu
veröbréfin á markaðnum. Og þau eru
alltaf jafn vinsæl sparnaðarleið enda fá
verðbréf sem standa þeim jafnfætis í
öryggi, arðsemi og sveigjanleika:
Þú getur komið í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og keypt spariskírteini
fyrir litlar sem stórar fjárhæbir í
almennri sölu.
Þú getur tekið þátt í mánaöarlegum
útboðum á spariskírteinum með
aðstoð starfsfólks
Þjónustumibstöðvarinnar.
Þú getur keypt spariskírteini í
mánabarlegri áskrift og þannig
sparað reglulega á afar
þægilegan hátt.
Gulltryggðu sparnaðinn með
spariskírteinum ríkissjóðs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040