Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 17
ERLENT
Jafnaðarmenn
reyna að stilla
saman strengi
Bonn. Reuter.
RUDOLF Scharping, formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins (SPD),
hvatti í gær flokksmenn til að leggja innanflokksdeilur til hliðar. Mestu
máli skipti að vinna sigur á Helmut Kohl kanslara í þingkosningunum
í haust. í gær kom út bók eftir Helmut Schmidt, fyrrum kanslara,
þar sem hann ráðleggur SPD hvernig vinna megi kosningarnar.
Harðar deilur hafa staðið um
stefnu SPD undanfamar vikur og
hafa ýmsir frammámenn í flokknum
gagnrýnt harðlega þá hógværu
kosningastefnu, sem Scharping hef-
ur kynnt. Vinstrimenn í flokknum
era ekki sáttir við yfirlýsingu hans
um að halda eigi óskertum hámarks-
hraða á hraðbrautum Þýskalands.
Þá hafa aðrir gagnrýnt leiðtoga-
hæfíleika hans og atvinnumála-
stefnu.
Einstakir hæfileikar
til að rífast
„Jafnaðarmannaflokkurinn hefur
einstaka hæfileika til að finna eitt-
hvað til að rífast um einmitt þegar
þeim gengur allt í haginn,“ sagði
Scharping í útvarpsviðtali.
í gær kom út bók eftir Helmut
Schmidt, fyrrum kanslara og leið-
toga SPD, sem heitir „Ár ákvarð-
anatöku" þar sem hann færir rök
fyrir því hvemig hægt sé að vinna
Kohl í kosningum. Schmidt hefur
lítið sem ekkert stutt SPD frá því
að hann lét af embætti fyrir tólf
áram. Er ástæða þess sögð vera
miklar annir vegna starfa hans hjá
vikuritinu Die Zeit og biturleiki
vegna þess, hvemig hann varð að
láta af störfum. SPD hefur tapað
þrennum kosningum síðan og aflaði
það Schmidt lítilla vinsælda innan
flokksins er hann sagði í viðtali við
holienska útvarpsstöð fyrir síðustu
kosningar að kanslaraefni jafnaðar-
manna, Oskar Lafontaine, myndi
tapa kosningunum og ætti það skilið.
Slúðurlína fall-
innar greifynju
Róm. The Daily Telegraph.
FYRRVERANDI greifynja á ítal-
íu, Marina Ripa di Meana, hefur
auglýst nýja símaþjónustu og lofar
að segja þeim sem hringja í tiltek-
ið númer frá einkalífi frægra
manna sem hún hefur kynnst,
þeirra á meðal er Silvio Berlusc-
oni, verðandi forsætisráðherra.
Þeir sem hringja í númerið
greiða 100 krónur fyrir niínútuna.
A meðal annarra þekktra manna
sem konan talar um era Giulio
Andreotti, sjöfaldur forsætisráð-
herra og bandaríski leikarinn Jack
Nicholson.
Greifynjutitillinn var dæmdur af
Ripa di Meana eftir að hún skildi
við fyrri eiginmann sinn, en hún
er nú gift Carlo Ripa di Meana,
sem átti sæti í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins. Hann er nú
leiðtogi Græningja og er ásamt
konu sinni í aðalhlutverki í met-
sölubókinni „Sængað hjá valdinu",
ágripi af lífinu á bak við tjöldin í
spilltum heimi ítalskra stjórnmála.
í sjónvarpsauglýsingu um þjón-
ustuna situr greifynjan fyrrverandi
bundin í stól með fæturna í djarfri
stellingu að hætti Sharon Stone í
„Ógnareðli“. Iturvaxinn maður
gengur að henni, hristir hana og
hrópar: „Nú er nóg komið! Hættu
að tala!“
„Nei!“ hrópar greifynjan fyrrver-
andi. „Ég skal aldrei láta þagga
niður í mér. Ég ætla að segja frá
öllu og nöfnin fylgja með.“
Knight í
varðhald
við heim-
RONNIE Knight, sextugur Breti
sem grunaður er um aðild að
mesta peningaráni Bretlands,
var í gær dæmdur í gæsluvarð-
hald í viku. Dómstóll í Lundúnum
hafnaði beiðni hans um að verða
leystur úr haldi gegn tryggingu
þar sem hætta var talin á að
hann myndi ekki mæta fyrir rétt.
Knight hefur verið ákærður fyr-
ir að hafa átt aðild að því að
ræna sex milljónum punda, jafn-
virði rúmra 107 milljóna króna,
úr peningabíl árið 1983. Hann
var í útlegð á Spáni í ellefu ár,
rak þar veitingahús og nætur-
klúbb, en sneri heim til að
hreinsa nafn sitt og heimsækja
aldraða móður sína, sem er sögð
fársjúk. Myndin var tekin þegar
Knight var fluttur í lögreglubíl
í dómshúsið.
Dan Quayle boðar endur-
komu sína í stjórnmál
DAN Quayle, fyrrum varaforseti
Bandaríkjanna, er kominn fram á
sjónarsviðið á ný í bandarískum
stjórnmálum. Bandaríska dagblaðið
The Washington Post greinir frá því
að væntanleg sé bók frá Quayle þar
sem skýrt komi fram að hann hygg-
ist sækjast eftir embætti forseta
árið 1996.
Að sögn bandaríska dagblaðsins
hafa nokkrir valdir repúblíkanar
fengið eintök send af bók Quayle
en hún nefnist „Staðfesta" („Stand-
ing Firm“). Bókin kemur út í
Bandaríkjunum á morgun en við-
brögð ráðamanna innan Repúblík-
anaflokksins hafa verið néikvæð.
Quayle sem var varaforseti í tíð
George Bush (1988-1992) þótti með
afbrigðum seinheppinn í kosninga-
baráttunni 1988 og þóttu mörg
mismæla hans þess virði að þau
yrðu skjalfest. Um síðir varð það í
senn iðja og atvinna nokkurra
manna að safna
saman ummæl-
um hans og hefur
raunar verið full-
yrt að flest hafi
þau verið tilbún-
ingur einn. Engu
að síður vora
ýmsir þeirrar
hyggju vestra að
Quayle væri lítilla
sanda og sæva en
aðrir þeir sem með honum hafa
starfað hafa fullyrt að þar fari
maður hæfur og prýðilega vel gef-
inn. Að sögn The Washington Post
fjallar Quayle um ásakanir þessar
í sérstökum kafla sem ber yfir-
skriftina „Mistök, mismæli - og
þungavigt stjórnspekinnar".
í bók sinni segir Quayle að það
megi teljast með ólíkindum hversu
vanhæfir og andlausir menn hafi
safnast saman til að stjórna baráttu
George Bush fyrir endurkjöri árið
1992. Þessi kafli sem nefnist
„Hvernig tapa ber kosningum" þyk-
ir athyglisverður ekki síst fyrir þær
sakir að Quayle gerir grein fyrir
viðbrögðum sínum er ósigurinn
haustið 1992 lá fyrir. Kveðst vara-
forsetinn hafa ákveðið að hverfa
úr starfi með virðingarfullum hætti,
laus við biturð og reiði: „Mikilvægt
er hvernig menn haga sér á slíkum
stundum, sérstaklega ef þeir hafa
í hyggju að láta til sín taka á ný.“
Quayle fær ekki séð að Jack
Kemp, fyrram ráðherra sem talinn
er líklegur frambjóðandi fyrir repú-
blíkana 1996, sé maður vammlaus
og ágætur, þvert á móti hafi hann
brugðist Bush forseta. Varaforset-
inn fyrrverandi telur einnig ástæðu
til að fara niðrandi orðum um Ja-
mes Baker, sem var utanríkisráð-
herra í tíð Bush, og kveður hann
stækan eiednhagsmunasegar.
Dan Quayle
-1. á?wt.
Paysfgrð til 6ra?nlandt U. maí.
Flogið til Narsassarsuaq og haldið þaðan yfir
Eiríksfjörð til Brattahlíðar. M.a. verða skoðaðar
byggingarústir frá tímum Eiríks rauða og Leifs
heppna.
Staðgreiðsluverð á mann: 17.480 kr.
Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis,
bátsferð og fararstjórn.
Báðar ferðirnar miðast við næga þátttöku.
í þessari fróðlegu og skemmtilegu ferð
skoðum við m.a. slóðir íslendingasagna
við Þrándheimsfjörð meðan raktar verða
frásagnir úr Njálu, Grettis sögu,
Kjalnesingasögu, Heimskringlu og fleiri
fornritum. Við skoðum Niðaróssdómkirkju
og farin verður dagsferð á Stiklarstaði.
Staðgreiðsluverð: 51.815 kr. á mann ítvíbýli.
Innifalið: Flug, gisting í sex nætur m. morgunverði á Hotel
Throndheim, akstur til og frá flugvelli erlendis, skoðunarferðir og
aðgöngumiði á Stiklarstaðahátíð, fararstjórn, skattar og gjöld.
Félavar í ferðaklúbbnum „Kátír da?ar - kátt fólk“
fá 4000 kr. afilátt í þe«a ferð til þrándheiim!
& YVÚSÍ !
Sam vinnuterðir -Lanús ýn
Reykjavik: Austurstrætl 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðlr S. 91 - 6910 70 • Slmbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Hatnart|örðun Baejarhrauni 14 • S. 91 - 65 11 55 • Simbréf 91 - 655355
Kellavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 -13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 - 1 33 86 • Slmbréf 93 -111 95
Akureyrí: Ráðhústorgi 1 »S. 96 -,27200» Símbréf 96-1 10 35 Vestmannaeyjar Vestmannabraut 38 • S. 98-1 12 71 »Símbrét 98 - 1 27 92
0ATLA&*