Morgunblaðið - 04.05.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIIMAR
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 25
Dauðans alvara
Á MORGUN er
haldinn reyklaus dag-
ur meðal annars til
að minna á að reyk-
ingar eru dauðans al-
vara. Fyrir tveimur
árum var vakin at-
hygli hér á forsíðu
Morgunblaðsins á
rannsókn, sem benti
til þess að um fimmt-
ungur íbúa í hinum
þróuðu löndum heims,
eða um 250 milljónir
manna, muni deyja af
völdum reykinga, þar
af um helmingur á
miðjum aldri. íslensk-
ar rannsóknir hafa
sýnt að reykingar eru einn helsti
skaðvaldur í heilsufari íslendinga.
Mikið af þessari vitneskju er hluti
af almennri þekkingu landsmanna,
en þótt nokkuð hafi dregið úr reyk-
ingum hér á landi verður því mið-
ur að viðurkenna að sóttin herjar
enn af fullum þunga.
Það er ólýsanleg harmsaga þeg-
ar ungmenni ánetjast reykingum.
Hvað þýður sá atburður? í mjög
mörgum tilvikum verður um svo
sterkan ávana að ræða að viðkom-
andi losnar aldrei úr viðjum hans
eða ekki fyrr en óbætanleg
skakkaföll hafa dunið yfir og mik-
ið sálarstríð. Nánast hefur verið
handsalaður samningur við tób-
aksiðnaðinn um dagleg fjárfram-
lög, daglegan skatt, sem í krafti
ávanans sterka nýtur forgangs
yfir flest annað í lífínu sem kostar
peninga. Þeir aðilar sem greiðsl-
urnar fá eru að stórum hluta fjöl-
þjóðleg stórgróðafyrirtæki, sem
einskis svífast við að afla sér nýrra
viðskiptavina, nýrra skattgreið-
enda. En skítt með peningana,
þótt þeir á einu ári geti numið á
annað hundrað þúsund króna. Al-
varlegra er ófrelsið og það víðtæka
heilsutjón sem af reykingum hlýst,
svo að ekki verður líkt við neinn
nema alvarlegar farsóttir í sögu
mannkyns á borð við
berkla og bólusótt.
Slíkri sjúkdómar eru
yfírleitt ekki hafðir í
flimtingum og ekki
umbornir með góðlát-
legri gamansemi eins
og oft vill verða í um-
fjöllun um reykingar.
Hér kemur fram ein
af mörgum þversögn-
um sem reykingum
tengjast: Einliver al-
varlegasti sjúkdóms-
valdur samtímans, en
nýtur þjóðfélagslegs
umburðarlyndis.
Ávani sem líkja má við
þrældóm og þeir sem
helst gangast undir hann er unga
fólkið, sem metur frelsið öllu ofar.
Tóbaksauglýsingar skapa hu-
grenningatengsl við hreysti, gott
útlit og æsku, og kynorkan ólgar
undir glæstu yfírborði. í reynd
stuðla reykingar að ótímabærri
hrörnun, nánast snemmkominni
öldrun með hrukkóttri húð, hnign-
un tanna og tannholds, hrörnunar-
sjúkdómum eins og lungnaþembu,
æðaþrengslum, hjartaáföllum og
heilablóðföllum, kynferðislegu
getuleysi löngu fyrir aldur fram.
Og reykingar hafa í líkamanum
þveröfug áhrif við þau sem fást
af reglulegri líkamsþjálfun.
íþróttaiðkun bætir blóðflæði um
vefí líkamans, bætir fítuhlutföll í
blóði þannig að náttúrulegt
varnarkerfi líkamans gegn æða-
kölkun eflist, dregur úr styrk
storkusameinda og klumpun blóð-
flagna, þannig að hætta á æða-
stíflum minnkar, m.a. í kransæð-
um. Reykingar hafa andstæð áhrif
á öllum sviðum. Þær herpa saman
æðar og trufla þannig eðlilegt
blóðflæði, breyta fitusamsetning-
unni í blóðinu þannig að náttúru-
legt varnarkerfi líkamans gegn
æðakölkun veikist, auka styrk
storkusameinda í blóði og
klumpunartilhneigingu blóð-
Reykingar eru einn
helsti skaðvaldur í
heilsufari Islendinga,
segir Guðmundur Þor-
geirsson yfirlæknir. Að
hans mati eru reykingar
dauðans alvara.
flagna, þannig að líkur á blóðsega-
myndun og æðastíflum stóreykst.
Enda er kransæðastífla nánast
óþekkt meðal karla undir fertugu
og meðal kvenna undir fímmtugu
nema stórreykingar séu í sögunni.
Þetta er ófögur lýsing og boð-
skapurinn sjálfsagt óþægilegur
fyrir marga. Samt er svona frá-
sögn hjóm og hégómi hjá þeim
persónulega harmi sem tengist
þeim sjúkdómum sem reykingarn-
ar valda.
Á íslandi hefur margt verið vel
gert í andófi gegn þessum alvar-
lega sjúkdómsvaldi okkar tíma.
Sennilega rís þar hæst bann við
tóbaksauglýsingum, sem sett var
fyrir tveimur áratugum. íslenskir
fjölmiðlar mega þakka löggjafan-
um hátt og í hljóði fyrir að hafa
forðað þeim frá þátttöku í svo sið-
lausri iðju sem útbreiðsla tóbaks-
fíkninnar er. Tóbaksvarnarlögg-
jöfín frá 1985 var einnig spor í
rétta átt, en miklu betur má ef
duga skal. Von er til þess að næsta
þing muni samþykkja endurskoð-
uð tóbaksvarnarlög, afdráttar-
lausari og skýrari en þau sem í
gildi eru. Mikilvægast af öllu er
þó að draga úr líkum þess að ungt
fólk ánetjist reykingum og vegur
þar þyngst ábyrgð og-fordæmi
foreldra.
Höfundur er yfirlæknir á
bráðamóttökudeild Landspítalans.
Guðmundur
Þorgeirsson
Lögsaga Islands
og skyldur okkar
Eigum við með
fijálsu framtaki að
ganga svo nærri lífinu
í sjónum að sjávarút-
vegur heyri sögunni til?
Fiskifræðingar og
Hafrannsóknastofnun
leitast við að sótt sé í
fískinn af skynsemi.
Þeirra rannsóknir eru
miðaðar við að fiski-
stofnunum sé haldið í
horfinu og að hagv
kvæmni sé í fyrirrúmi.
Mig langar til að bera
fram eftirfarandi hug-
myndir.
Að ætlaður sé tími,
t.d. 'A mánuður á ári,
til hrognafijóvgunar um borð í öllum
fískiskipum og á ég við af öllum
tegundum fiska. Hvers vegna? Jú,
vegna þess að þeir fiskar sem við
höfum ekki áhuga á að nýta, verða
fóður fyrir þá fiska sem við sækj-
umst eftir. Til að stjórna fijóvgun-
inni um borð í fískiskipunum verði
Hafrannsóknastofnun og hennar liði
falið verkefnið.
Nú er það svo að fiskiskipin eru
mislangt frá landi og þá mætti nota
þijár þyrlur til að flytja hin fijóvg-
uðu hrogn til æskilegra uppeldis-
staða, t.d. á heppilegt sjávardýpi.
Fiskinn ætti að fara með í land
og án kvóta til vinnslu í landi, og
þá sérstaklega til þeirra staða sem
mest er þörfín, til að
auka vinnu, sem vissu-
lega er þörf á. Jafn-
framt og við ræktum
fisk í efnahagslögsög-
unni þá ætti að koma
með allt lífrænt sem á
dekk kemur að landi.
Og hvers vegna? Þessi
úrgangsefni ætti að
nota sem áburð á fok-
sanda og annars staðar
þar sem gróður er í
hættu. Á þennan hátt
gæti sjávarútvegur
veitt Landgræðslunni
lið við að efla starfsemi
sína.
Það er von mín að
Ætlaður verði tími til
hrognafrjóvgunar um
borð í öllum fiskiskip-
um, segir Sigurður
----------,--------------
Hilmar Olafsson, og á
við allar tegundir fiska.
þessum tillögum verði hrint í fram-
kvæmd, ekki seinna en nú þegar.
Höfundur er fv. vélasali.
Sigurður Hilmar
Ólafsson
ytot&ttuWUbíb
- kjarni málsins!
Elliðavatn
Silungapollur
í þriðja áfanga
lýðveldisgöngu
Ferðafélagsins er
gengin stysta leið
frá Elliðavatni að
Silungapolli.
Áfanginn verður
farinn sem stutt og
þægileg kvöld-
ganga miðviku-
dagskvöldið 4. maí
og er brottför frá
BSÍ, austanmegin,
kl. 20.00 en einnig
er hægt að taka rútu á leið-
inni. Ekið verður inn hjá Rauð-
hólum og er farið úr rútunum
skammt frá býlinu Elliðavatni.
Rauðhólar eru sem kunnugt er
friðlýstir gervigígar í Leita-
hrauni, en austurhólunum var
mikið spilit með malartöku.
Leitahraun er samkvæmt
nýjustu rannsóknum fleiri en
eit.t hraun og fylgjum við þeim
nokkurn hluta þessa áfanga og
þess næsta, en það er víða vel
gróið.
Leiðin liggur hjá Heimaás en
fljótlega er sveigt af aðalvegi
yfír á slóða út í Kirkjuhólma.
Þarna er farið á milli fallegra
tjarna og vatna, Hrauntúns- og
Kirkjuhólmatjarna og Hellu-
vatns. Á þessu vatnasvæði er
ríkt fuglalíf og er gaman að
ganga þarna um við fjölbreyttan
fuglasöng á vor-
kvöldi. Á hægri
hönd er girðing um
verndarsvæði
vatnslinda Vatns-
veitu Reykjavíkur
en þar fyrir innan
eru húsin á Jaðri.
Við komum ná-
lægt austasta hluta
Rauðhólanna og
förum þar yfir brú
á Suðurá er rennur
þarna í Helluvatn.
Þetta landsvæði er nefnt Hólm-
urinn og í honum er býlið Hólm-
ur sem er eign borgarinnar.
Gönguleiðin liggur með bökkum
Suðurár og nokkru austar er
aftur farið yfir ána og nú á
ævagamalli brú. Suðurá er síð-
an fylgt sunnanmegin í átt að
Silungapolli. Á leið okkar er
talsvert af sumarbústöðum og
þess skal einnig getið að á þriðja
áratugnum voru uppi hugmynd-
ir um lagningu járnbrautar á
þessum slóðum.
Göngunni lýkur við grá-
grýtishólinn Höfuðleðurshól hjá
Silungapolli, en húsin sem stóðu
þarna og Oddfellowreglan reisti
fyrir barnaheimili voru rifin árið
1984. Á göngunni er nauðsyn-
legt að vera í stígvélum eða í
góðum, vatnsvörðum skóm.
LÝÐVELDISGANGA
FERÐAFÉLAGS
ÍSLANDS
M. Bens, árg. '88, ek. 88 þús. km.,
topplúga, álfelgur, púðar, litað gler.
Dodge Ram, árg. '90, orginal innrétt-
aður ferðabíll m. öllu.
Toyota Landcruiser turbo diesel,
árg. '91. ek. 57 þús. km., gullsans.
V. 3.700.000,-.
MMC Galant GLSi, árg. '90, 4x4, ek.
40 þús. km. Hvítur.
Toyota Corolla XL Sedan, árg. '90,
ek. 75 þús. km. Vínrauð.
Bílasala Garðars
< '. *//////////' .y^/v'
Nóatúni 2 • 105 Reykjavík
Sími619615
Vantar nýlega bfla
á staðinn og skrá.
Mikil sala.
Nizzan Terrano, árg. '90, ek. 80 þús.
km., blár og grár. V. ca 1700 þús.
Vill sk. á dýrari 4ra dyra jeppa, allt
að 2,5 millj.
Honda Shadow, árg. '84, ek. 32 þús.
km. & Yamaha Virago, árg. '92, ek.
5 þús. km., gullmoli, o.fl. o.fl.
Vantar hjól á
staðinn. Mikil sala.
Toyota Carina E 2000 Classic, árg.
'93, ek. 17 þús. km., flöskugræn.
V. 1.800.000,-.
Nissan Sunny SLX, árg. '91, 4ra d„
ek. 55 þús. km„ hvítur. V. 850.000,-.
Volvo 240 GL Station, árg. '87, ek.
91 þús. km„ blár. V. 750.000,-.
Toyota Touring GLi, , árg. '92, ek.
50 þús. V. 1.350.000,-.
Toyota Corolla XL, árg. '92, 3ja dyra,
ek. 51 þús. km„ dökkblá.
-I-