Morgunblaðið - 04.05.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ1994 37
ATSKAKMOTI SJONVARPSSAL
Karpov tefldi
kappskák
o g hraðskák
SKAK
Ríkiss jónvarp
ATSKÁKMÓT
2. maí 1994.
ANATÓLÍ Karpov, heimsmeist-
ari Alþjóðaskáksambaridsins FIDE,
sótti Islendinga heim í byijun vik-
unnar og sigraði á sjónvarpsmóti í
Ríkissjónvarpinu þar sem tefldar
voru 25 mínútna skákir. Karpov
hlaut tvo og hálfan vinning af-
þremur mögulegum, missti aðeins
eitt jafntefli við Hannes Hlífar Stef-
ánsson, er þeir féllu báðir á tíma
eftir mikinn darraðardans. Helgi
Ólafsson hlaut einn og hálfan vinn-
ing, en Hannes og Margeir Péturs-
son hlutu einn vinning hvor.
Það var mjög athyglisvert hvernig
Karpov nýtti tíma sinn. I öllum
skákunum þremur notaði hann
mikinn tíma á byijunina og fyrri
hluta miðtaflsins. Aberandi var að
hann byggði skákir sínar upp hægt
og rólega og tefldi mjög vandað,
rétt eins og um venjulega tveggja
tíma kappskák væri að ræða. Mót-
herjar hans fengu þá svo sannar-
lega að fínna fyrir þunganum! Síð-
an virtist hann eiga mjög auðvelt
með að breyta yfir í algera hrað-
skák. íslensku keppendurnir not-
uðu tíma sinn miklu jafnar.
Hermann Gunnarsson var kynn-
ir, en Jón L. Árnason sá um skák-
skýringar með aðstoð gesta. Brydd-
að var upp á þeirri nýjung að hafa
geysihraðvirka tölvu til að stinga
upp á leikjum og kom það vel út.
Tölvan hindrar að skýrendurnir
vaði í villu og svíma um gang
mála þótt hlutirnir gerist hratt.
Stjórnandi útsendingar var Egill
Eðvarðsson.
Það er komin mikil reynsla á
stjórnun slíkra útsendinga hjá Rík-
issjónvarpinu. Eitt af því fáa sem
hægt var að setja út á var útsend-
ingartíminn, seint um kvöld, sem
hentar afar illa fyrir börn og ungl-
inga.
Fyrsta umferð:
Hannes-Karpov
Hannes tefldi byijunina afar
frumlega, en það heppnaðist vel.
Hann fékk biskupaparið og þokka-
lega stöðu út úr byijuninni auk
þess sem Karpov notaði mikinn
tíma. En Hannes fórnaði peði fyrir
ónógar bætur og stóð fljótlega uppi
með tapað tafl. í lokin sást einn
mesti darraðardans í manna minn-
um, Karpov var svo naumur á tíma
að hann gat ekki unnið.
Hvítt: Hannes Hlífar
Svart: Karpov
Caro-Kann vörn
1. e4 - c6 2. b3!? - d5 3. Bb2 -
dxe4 4. Re2 - Bf5 5. Rg3 -e6
6. Rc3 - Rf6 7. De2 - Da5 8.
Rxf5 - Dxf5 9. g3 - Bc5 10. Bg2
- Rbd7 11. Rxe4 - Be7 12. 0-0-0
- 0-0 13. Kbl - a5 14. Dd3 -
Kh8 15. g4? - Dxg4 16. Hhgl -
Df4 17. Bhl - Re5 18. De2 -
Rg6 19. Hg3 - a4 20. Hdgl -
axb3 21. axb3 - e5 22. Hh3 -
Df5 23. Hhg3 - Rd5 24. Rg5 -
Rdf4 25. Ddl - Bxg5 26. Hxg5
- Dh3 27. Be4 - f5 28. Hlg3 -
Dxh2 29. Bxf5 - Dxf2 30. Be4 -
Hf6 31. d3 - Re6 32. Hxg6!?
hxg6 33. Hh3+ - Kg8 34. Hhl -
Rd4 35. Hgl - Haf8 36. Bxd4 -
exd4? 37. Kb2 - Dh4 38. Bxg6
- Hf2 39. Be4 - H8f4 40. Hg6
- Hxe4 41. dxe4 - Dxe4 42. Hg3
- c5 43. Hd3 - b5 44. Kbl -
Kf7 45. Hg3 - g6 46. Hd3 - Kf6
47. Hg3 - c4 48. bxc4 - bxc4
49. Ha3 - d3
50. cxd3 - cxd3?
50. - Db7+ vann strax.
51. Ha6+ - Kg5 52. Dgl+ - Hg2
53. Ha5+ - Kg4 54. Ddl+ - De2
55. Ha4+ - Kg3 56. Dcl - d2
57. Dc7+ - Kf2 58. Dc5+ - Kel
59. Da5 - Kfl 60. Hf4+ - Hf2
og hér féllu báðir á tíma á sama
sekúndubrotinu. Þegar mynd-
bandsupptaka er skoðuð með
haukfránum augum sést að Hannes
féll örskömmu áður. Úrskurður
dómara: jafntefli.
2. umferð: Karpov-Helgi
Helgi fékk það erfiða hlutskipti
að mæta Karpov með svörtu. Hann
tefldi byijunina nokkuð losaralega,
en Karpov lagði áherslu á að
treysta stöðuna. Skákin fékk síðan
snöggan endi, er 21. - Rd3? kost-
aði svart lið.
Hvítt: Karpov
Svart: Helgi Ólafsson
Enski leikurinn 1. c4 - e5 2. Rc3
- d6 3. g3 - g6 4. Bg2 - Bg7 5.
d3 - f5 6. e4 - Rf6 7. Rge2 -
0-0 8. 0-0 - c6 9. Khl - a5 10.
f4 - Ra6 11. Be3 - Be6 12. b3
- Dd7 13. Dd2 - Hae8 14. Hadl
- b5 15. exf5 - Bxf5 16. fxe5 -
Rg4!? 17. cxb5 - cxb5 18. Rd5 -
Rb4 19 Rxb4 - axb4 20. Bgl —
Rxe5 21. d4
21. - Rd3? 22. Hf3 - Bh6 23.
Dxh6 - Hxe2 24. Hdxd3 - Hc8
25. Hde3 - Hxa2 26. Hxf5 -
Hxg2 27. Kxg2 - Dxf5 28. Hf3
- Dd5 29. h4 - Da8 30. Df4 -
Dd5 31. Df6 - He8 32. Bf2 -
Hc8 33. Kh2 - He8 34. g4 - Hc8
35. Be3 og svartur gafst upp.
3. umferð: Margeir-Karpov
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Karpov
Enski leikurinn
1. c4 - e5 2. Rc3 - Rf6 3. Rf3
- Rc6 4. g3 - Bb4 5. Rd5 - Bc5
6. Bg2 - 0-0 7. 04) - d6 8. e3 -
Bg4 9. h3 - Bh5 10. d3 - Bb6
11. a3 - Rxd5 12. cxd5 - Re7
13. Db3 - Dd7 14. Rd2 - c6 15.
dxc6 - bxc6 16. Rc4 - Bc7 17.
Dc3 - a5 18. b3 - Hfb8 19. Bb2
- f6 20. Rd2 - d5 21. Hacl -
Bd6 22. e4 - Bf7 23. Dc2 - Be6
24. Kh2 - Ha6 25. Hal -Da7!
26. d4? - exd4 27. exd5 - cxd5
28. Rf3 - Bf5 29. Dd2 - d3 30.
Rh4?! - Be4 31. f3 - Hc6!? 32.
Hacl - Hxcl 33. Hxcl - Hxb3
34. fxe4 - Db8?!
Afar sterkt var 34. - Bxg3+! 35.
Kxg3 - Db8+ því 36. Df4 má svara
með 36. - d2+!
35. Rf5! - Rxf5 36. exf5 - Hxb2?
37. Dxd3 - h6 38. Dxd5+ - Kh7
39. Hc3
Hvítur hefur nú rétt úr kútnum
og var með betri tíma á klukkunni.
39. - Hbl 40. Df7 - Be5 41. Hd3
- Hb2 42. Dg6+ - Kh8 43. Hd7
- Dg8 44. He7 - Hxg2+! 45.
Kxg2 - Dd5+ 46. Kh2 - Dd2+
47. Khl - Del+ 48. Kh2
48. Kg2 - De2+ 49. - Khl -
De4+! 50. Kh2 - Bxg3+ hefði leitt
til sömu niðurstöðu. Þar sem
Karpov var nú byijaður á síðustu
mínútunni var við því að búast að
hann tæki þráskák, því tap á tíma
myndi kosta hann sigurinn á mót-
inu. 40. - De2+ 49. Khl - Del+
50. Kh2 - Bxg3+ 51. Dxg3 -
Dxe7 52. Dd3 - Dc7+ 53. Kg2 -
Kh7 54. a4? - Dc6+ 55. Kg3 -
Dxa4 56. Dd5 - Da3+ 57. Kg2
- a4 58. Df7 - Db2+ 59. Kf3 -
Db3+ 60. Dxb3 - axb3 og hvítur
gafst upp, því Karpov átti ennþá
u.þ.b. hálfa mínútu eftir.
Margeir Pétursson
Sjónvarpsþættir
um atvinnuleysi
Umbi fær
250 þúsund
kr.styrk
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt, að veita kvikmyndafé-
laginu Umba styrk að fjárhæð
250 þús. til gerðar sjónvarps-
þátta um félagsleg og sálræn
áhrif atvinnuleysis.
I tillögu atvinnumálanefnd-
ar Reykjavíkur, sem lögð var
fram í borgarráði, kemur fram
að styrkurinn er veittur af fjár-
veitingum nefndarinnar og
gegn því, að nefndin fái fimm
eintök af þáttaröðinni á mynd-
bandi til fijálsrar ráðstöfunar.
Jafnframt er lagt til, að borg-
arráð heimili, að af hálfu
borgarinnar verði fyrirtækinu
veitt sú faglega ráðgjöf við
þáttagerðina, sem það óskar
eftir.
Fuiidur um
atvinnumál
í sveitum
Miklaholtshreppur - Fræðslu-
og upplýsingafundur um at-
vinnumál í sveitum á Snæfells-
nesi var haldinn í Breiðabliki.
Atvinnumálafulltrúi Snæfells-
ness, Valgarð Halldórsson, og
Arnaldur Bjarnason, atvinnu-
málafulltrúi Stéttarsambands
bænda, undirbjuggu og boð-
uðu til þessa fundar.
Fjölbreytt dagskrá
NDagskrá fundarins var fjöl-
breytt og fyrirlesarar fluttu
mál sitt með ágætum og í
málfutningi þeirra kom margt
fróðlegt fram sem fundarmenn
kunnu vel að meta og lögðu
fram fyrirspurnir til hvers og
eins eftir að framsögu lauk.
Fjölmenni var á þessum fundi
og honum stjómaði formaður
héraðsnefndar, Magnús Stef-
ánsson.
Boðið var upp á léttan há-
degisverð og kaffi og kökur
síðdegis í boði Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins.
ATVINNU V M YSINGAR
Framhaldsskóli Vestfjarða
Skíðakennara
og frönskukennara
vantar
Laus er til umsóknar heil staða kennara í
skíðaþjálfun og þjálffræði við Framhalds-
skóla Vestfjarða á ísafirði. Til greina kemur
að sami aðili verði ráðinn þjálfari unglinga-
landsliðs á skíðum.
Laus er einnig hálf staða frönskukennara og
nokkur kennsla í vélritun, tölvufræði og félags-
fræði, svo og hlutastarf við heimavistargæslu.
Þá er 80% staða bókavarðar laus næsta
vetur vegna barnsburðarleyfis.
Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 1994.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
Nánari vitneskju veitir undirritaður í síma
94-4540 eða 94-4119.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir tveimur
hjúkrunarfræðingúm til fastra starfa sem
fyrst, eða eftir nánara samkomulagi, á kvöld-
og morgunvaktir.
í boði er gott húsnæði og góð launakjör.
Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra
í vs. 95-12329 og hs. 95-12920.
Sölumaður
Útgáfufyrirtæki vill ráða reglusaman og
hressan sölumann/konu við afgreiðslu- og
markaðsstörf með framtíðarstarf í huga.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og
hafa til að bera frumkvæði, metnað og vera
vanur þjónustu- og sölustörfum.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist auglýsinga-
deild Mbl., merktar: „Ú - 1234“, fyrir 10. maí.
Framkvæmdastjóri
Nautastöðvar
Laus er til umsóknar staða framkvæmda-
stjóra Nautastöðvar Búnaðarfélags íslands
á Hvanneyri.
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Umsóknir sendist til undirritaðs.
JónasJónsson,
Búnaðarfélag Islands,
Bændahöllinni,
pósthólf 7080, 127 Reykjavík.
Metsölublað á hverjum degi!