Morgunblaðið - 04.05.1994, Síða 52
KORTIÐ
fyrirþig!
JMffgmifriiifei&í
AUtþitt
undir einu þaki
SJÓVÁUíMaLMENNAR
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 86
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Útflutn-
ingur ísaðs
þorsks hef-
- ur hrunið
ÚTFLUTNINGUR á ísuðum þorski
á fiskmarkað í Englandi í apríl var
fimmtungur af útflutningnum í
sama mánuði í fyrra, 140 tonn á
móti 685 tonnum, og kílóverðið er
7% lægra í sterlingspundum. Það
sem af er árinu hefur útflutningur
á ísuðum þorski til Englands dreg-
ist saman um 57%, í ár hafa verið
flutt út 1.170 tonn en 2.734 tonn
fyrstu fjóra mánuði ársins í fyrra.
Samdráttur í kjölfar verðlækkun-
ar hefur einnig orðið í öðrum teg-
undum og á öðrum mörkuðum.
Útflutningur á karfa til Þýskalands
___yar þriðjungi minni en í apríl í fyrra
og verðið 15% lægra í mörkum.
Útflutningur á ufsa til Þýskalands
dróst saman um 63% og verð lækk-
aði um 8%. 38% minna var flutt
út af ýsu til Englands en í apríl
1993 og verðið var 9% lægra.
■ 79% samdráttur/Bl
------♦ ♦ ♦---—
Landsleikur í Brasilíu
„Verður glfur-
leg upplifun“
ISLAND mætir Brasilíu í landsleik
í knattspyrnu í kvöld í fyrsta skipti.
„Það verður gífurleg upplifun að
spila við þjóð sem er tæknilega
besta knattspyrnuþjóð í heimi. Eg
get ekki neitað því að maður finnur
fyrir vissri eftirvæntingu I hópn-
um,“ sagði Arnór Guðjohnsen, fyr-
irliði, við Morgunblaðið í gær.
■ Ásgeir Elíasson/8
■ Mikil upplifun/49
Morgunblaðið/Sverrir
V orhreingeming
NÚ ER vor í lofti og menn farnir að huga að vorhreingerning-
um. Þessi gluggaþvottamaður var við störf í Bankastræti í gær.
Islensk efni gegn
krabbameini rann-
sökuð vestanhafs
BANDARÍSKA krabbameinsstofn-
unin, National Cancer Institute, mun
rannsaka þrettán ný efni sem hugs-
anlegt er talið að komi að gagni við
lækningu krabbameins og búin hafa
verið til í efnarannsóknarstofu
Raunvísindastofnunar Háskólans af
vinnuhópi sem dr. Jón K.F. Geirs-
son, dósent í lífrænni efnafræði,
hefur stýrt.
Eftir að íslensku vísindamennirnir
greindu frá efnum, sem búin hefðu
verið til við rannsóknir þeirra, í al-
þjóðlegu vísindatímariti óskaði
Bandaríska krabbameinsstofnunin
eftir að fá sýni af efninu til að
mæla virkni þess og jafnframt að
reyna efnið í tilraunastofu á ýmsum
tegundum krabbameinsfruma svo og
til að reyna virkni þess á HlV-smit-
aðar veirur og eiturefnaáhrif á lif-
andi verur.
Jafnframt fylgdi boð um að fara
yfir lista af öðrum efnum sem kynnu
að hafa verið smíðuð á Raunvísinda-
stofnun, en Bandaríska krabba-
meinsstofnunin hefur áratuga-
reynslu í slíkri leit að virkum efnum.
Dr. Jón K.F. Geirsson segir, að í
þessu boði felist viðurkenning á
starfi Raunvísindastofnunar og
starfsfólki hennar.
■ íslensk efnasmíði/27
F ornvagn fyrir SVR
VAGN af Studebaker gerð á leið 1, sem
var Njálsgata-Gunnarsbraut.
Ljósmynd/Sigurður Norðdahl
FORSVARSMENN
Strætisvagna Reykja-
víkur hf. hafa leitað til
borgarráðs um stuðn-
ing við að koma upp
gangfærum strætis-
vagni, fornvagni af
gerðinni Studebaker,
sömu gerðar og fyrstu
vagnar samnefnds
hlutafélags.
í erindi til borgarráðs
segir að hugmyndin að
fornvagni hafi kviknað
á 60 ára afmæli SVR
árið 1991 en erfiðlega
hafi gengið að hafa upp á vagni
af þessari gerð. Eftir mikla eftir-
grennslan hafi tekist í gegnum
Vestur-íslendinginn Snorra Aðal-
steinsson að hafa upp á slíkum
undirvagni. Snorri hafi um árabil
fengist við að endurbyggja gamla
vagna og hefur hann gert tilboð í
að byggja yfír umræddan vagn.
Ætla má að vagninn fullbúinn og
hingað kominn muni kosta um 3,5
millj. íslenskar krónur.
^Bandarí kj astj órn sendi einn starfsmann Pentagon hingað til viðræðna
Stjórnvöldiun
er misboðið
ISLENSKUM stjórnvöldum er misboðið, að Bandaríkjastjórn skuli
hafa sent hingað til lands einn starfsmann bandaríska flughersins,
David Daley ofursta, til viðræðna við íslensk stjórnvöld. Þess var
i-»ivænst, að bandarísk viðræðunefnd með skýrt umboð til að ganga til
samninga við íslendinga um framtíðarfyrirkomulag þyrlubjörgunar-
sveitarinnar á Keflavíkurflugvelli kæmi hingað, enda höfðu slík áform
verið gefin til kynna af hálfu Bandaríkjamanna, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Þorkell
DAVID Daley ofursti í bandaríska flughernum kemur af fundi
með íslensku viðræðunefndinni í gærkveldi. Honum á hægri
hönd er David Wagner, viðskiptafulltrúi bandaríska sendiráðsins
í Reykjavík, og honum á vinstri hönd er næstráðandi varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli, Markulis ofursti.
Daley ofursti staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að afloknum
fundi í gærkveldi, sem hann og
starfsmenn varnarliðsins og sendi-
ráðs Bandaríkjanna hér í Reykjavík
áttu með íslenskum embættismönn-
um og yfírmönnum Landhelgis-
gæslunnar, að hann hefði ekki
umboð bandarískra stjórnvalda til
þess að ganga til samninga, heldur
væri hann hér til þess að gera grein
fyrir sölutæknilegum atriðum
bandaríska flughersins. „Ég kom
hingað til þess að bjóða fram tækni-
lega sérfræðiþekkingu mína, varð-
andi söluaðferðir Bandaríkjahers,"
sagði Daley ofurgti, sem er aðstoð-
arskrifstofustjóri í alþjóðadeild
bandaríska flughersins, í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins líta íslensk stjórnvöld
þannig á, að enn sé fyrirspurn ríkis-
stjórnar Islands frá því um miðjan
síðasta mánuð ósvarað. Stjórnvöld
óskuðu eftir því 15. apríl sl., að
bandarísk stjórnvöld svöruðu því
innan þriggja vikna, hvort þau
væru reiðubúin að ganga til samn-
inga við íslendinga um íslenska
verktöku við rekstur þyrlubjörgun-
arsveitar varnarliðsins, eins og dr.
William Perry, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, gaf til kynna að
væri mögulegt, er hann kom hingað
til lands í ársbyijun.
Dr. Gunnar Pálsson, formaður
íslensku viðræðunefndarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkveldi, að afloknum fundinum
með Bandaríkjamönnum, að þessi
fundur hefði fyrst og fremst verið
tæknilegs eðlis. „Það var talað um
hugsanlega kaupskilmála, hvernig
farið yrði að, ef ákveðið yrði af
okkar hálfu, að kaupa í gegnum
sölukerfi hersins,“ sagði Gunnar,
„en jafnframt var tekið fram, að
við hefðum ekki óskað eftir tilboð-
um formlega og ekkert tilboð hefði
borist. Við fórum í gegnum leikregl-
ur sem gilda myndu, ef efnt yrði
til samningaviðræðna við Banda-
ríkjamenn."
Gunnar upplýsti að Bandaríkja-
mennirnir myndu hitta sérfræðinga
Landhelgisgæslunnar að máli í dag,
en ekki væri ljóst hvort af frekari
fundahöldum yrði með íslenskum
embættismönnum, að þessu sinni.
Reykjavík
verði menn-
ingarborg
Evrópu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að sótt verði um, fyrir hönd
borgarinnar, að Reykjavík verði
menningarborg Evrópu árið
2000. Gert er ráð fyrir að undir-
búningur hefjist nú þegar með
þátttöku íslenskra stjómvalda.
I greinargerð borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks í borgarráði
kemur fram að gert er ráð fyrir
að kannaðir verði möguleikar
Reykjavíkur á því að hljóta þenn-
an eftirsóknarverða titil, en ráð-
herraráð Evrópusambandsins
velur „menningarborg Evrópu“
úr tilnefningum viðkomandi
ríkja.
Samstarf við ríkið
Ákvörðun um hvaða borgir
verða fyrir valinu eftir árið 1999
á að taka á næsta ári og skal
umsóknum skilað eigi síðar en
30. júní 1995. Fram kemur að
leitað verði eftir samstarfí við
ríkið eðli málsins samkvæmt.
Gert er ráð fyrir að nefnd skipuð
tveimur fulltrúum úr borgarráði
og einum frá ríkinu undirbúi
málið og skili áliti til borgarráðs.