Morgunblaðið - 26.05.1994, Síða 9

Morgunblaðið - 26.05.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 9 Erlendur kaupandi keypti upp sýningu Lýðs Sigurðssonar á Hótel Oðinsvéum Greiddi umyrðalaust uppsett verð FRÉTTIR LÝÐUR Sigurðsson ásamt einni myndanna sem sænski kaup- sýslumaðurinn og galleríseigandinn keypti. SÆNSKUR kaupsýslumaður og eigandi að listagalleríi í Malmö, hefur keypt upp meirihluta sýn- ingar Lýðs Sigurðssonar sem undanfarið hefur staðið yfir á Hótel Óðinsvéum. Lýður Sigurðsson starfar við leikmyndagerð hjá Þjóðleikhúsinu en er húsgagnasmiður að mennt, og hefur auk þess lagt stund á myndlistarnám hjá Hring Jóhann- essyni. Hann hefur haldið tvær einkasýningar, aðra á Kjarvals- stöðum 1987 og hina hjá Gallerí Borg árið 1991. Myndir Lýðs eru af súrrealískum toga og einkenn- ast af húmorískri sýn á tilveruna. Bjarni Árnason, eigandi Hótel Óðinsvéa, segir að kaupandinn, Karl Axel Lundgren, sem var í viðskiptaerindum hér, hafi skoðað sýninguna og beðið að því loknu um að hitta listamanninn. Hann grennslaðist fyrir um hvað væri sett upþ og borgaði það síðan umyrðalaust og keypti hann öll verkin nema tvö en annað þeirra var þegar selt. Svíinn á meðal annars myndir eftir Picasso og Salvador Dali og hefur Lýður eft- ir honum að alla tíð hafi hann hrifist mjög af súrrealisma. Vegna þessa dálætis hafi myndir Lýðs höfðað til hans. í opna skjöldu Lýður kveðst hafa verið afar varfærinn í viðskiptum sinum við kaupandann í fyrstu, þar sem til- boðið um að kaupa sýninguna hafi komið honum í opna skjöldu. „Það eru ýmis svik og prettir í gangi þannig að að mörgu er gæta. Eg var ekki ekki hvort að honum væri alvara. Hann sá hversu varkár ég var og sagði mér hvert ég gæti leitað til að afla upplýsinga um hann og starf-’ semi hans sem ég og gerði. Kaup- in voru síðan bundin fastmælum á næsta fundi okkar.“ En Lundgren lét ekki staðar numið með kaupunum. „Hann langar til að ég haldi sýningu á nýjum myndum eftir um eitt og hálft ár í sýningasal hans í Malmö og ér framkvæmdin á umræðu- stigi, enda vinnur maður ekki daglaunavinnu samhliða því að undirbúa sýningu,“ segir Lýður. Auk málverka hefur hann einnig verið að gera tilraunir með sér- staka gerð af húsgögnum, og er hver gripur eins og sambland af húsgagni og skúlptúr. „Hug- myndin er ekki ósvipuð því sem klippimyndir byggjast á, þ.e. hönnun annarra er raðað saman og sett í nýtt samhengi, svo að úr verði nýtt verk. Þannig bland- ast gömul, klassísk húsgögn og nýtísku hönnun, sem ég bæti síð- an í eigin hugmyndum og hlutum sem falla að forminu. Lundgren sá teikningar af þessum verkum og vildi líka fá þau á sýninguna. Þetta er spennandi fyrir mig, því að þessi smíði er nokkuð sem er búið að gerjast talsvert lengi, þó að hún sé tæpast komin á sýning- arstig. Þetta er ekki búið að vera mjög björgulegt seinustu tvö árin, en nú virðist loks vera að birta til,“ segir Lýður. Verk hans verða tekin niður á mánudag og send utan. OnwÁ GJAFVERÐI STÓRFELLD VERÐLÆKKUN Á næstunni kynnum við nýjar gerðir <2#**/»# kæliskápa. í sam- vinnu við<ÍÆ*AAg\ Danmörku bjóðum við því síðustu skápana af 1993 árgerðinni, og nokkrar fleiri gerðir, með verulegum afslætti, eins og sjá má hér að neðan: <S«tAM Ytri mál mm: Rými Itr. Verð Verð nú aðeins: gerð: H x B x D Kæl.+ Fr. áður m/afb. stgr. K-180 865x595x601 172+ 0 53.750 45.690 42.490 K-285 1265x595x601 274+ 0 56.980 49.980 46.480 K-395 1750x595x601 379+ 0 83.850 73.970 68.790 KF-185 1065x550x601 146+ 39 51.580 48.990 45.560 KF-232 1265x550x601 193+ 39 55.900 53.740 49.980 KF-263 1465x550x601 199+ 55 59.130 57.950 53.890 KF-250 1265x595x601 172+ 62 63.430 56.950 52.960 KF-355 1750x595x601 274+ 62 77.400 67.730 62.990 KF-344 1750x595x601 194+ 146 84.900 74.160 68.970 Dönsku QjRAj\t kæliskáparnir eru rómaðir fyrir glæsileika, styrk, sparneytni og hagkvæmni. Verðið hefur aldrei verið hagstæðara. Láttu því þetta kostaboð þér ekki úr greipum ganga! Veldu Qfzw - GÆÐANNA og VERÐSINS vegna. j=nnix fyrsta flokks frá VS' M M WI II Æ\k. HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 OERTZEN STÓRVIRKAR HÁÞRÝ STIDÆLUR FRÁOERTZEN® Getum boðið þýsku OERTZEN háþrýstidælurnar fyrir verktaka og aðra aðila, sem þurfa kraftmiklar dælur, t.d. til húsahreinsunar, skipahreinsunar og sandblásturs. Dælur og dælustöðvar fyrir sjávarútveginn. Sérstakar rörahreinsidælur sem losa og hreinsa úr stífluðum rörum. Guðrún Þórsdóttir fræðslufulltrúi Við styðjum D-fistann Guðmundur Gunnarsson arkitekt Nanna Norðfjörð flugfreyja T^TT XiMhMiiX 7TÍTÍT Sveinbjörn Jónsson verkfræðingur Jórunn Viðar Valgarðsdóttir læknanemi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.