Morgunblaðið - 26.05.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.05.1994, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 -J3> ---—------------- + MORGUNBLAÐIÐ Upplýsingalína Sjálfstæðismanna 012094 MINNINGAR Hringdu núna áfram Reylcjavík 2> m ra i WHnUNfí fc/ 'tr ELFA-LVI Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. ELFA-OSO Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir 30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir frá 400-10.000 lítra. ELFA-VARMEBARONEN Hitatúba / rafketill 12kw, 230v. 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt að 1200kw. ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut- reyndurvið íslenskaraðstæður. HAGSTÆTT VERÐ OG /“/“ GREIÐSLUSKILMÁLAR. i" Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 - S 622901 og 622900 Hádegishlaðborö alla virka daga Kr. 750,- ■* % UJTtanfidí siroá |+i#*siií»ii;8ll 820' '..... "Q ra Vj&k a ntc—. Suður[anás6raut 14 * Sími 811 844 SIGBJORN ÞORÐARSON + Sigbjörn Þórð- arson var fædd- ur á Einarsstöðum, Stöðvarfirði, 27. júní 1915. Hann lést í Reykjavík 18. þessa mánaðar. Foreldrar hans voru Sólveig María Sigbjörnsdóttir, f. I Vík í Fáskrúðsfirði 12. janúar 1885, d. 20. júní 1954, og Þórður Magnússon, útvegsbóndi og hafnsögumaður á Einarsstöðum, Stöðvarfirði, f. þar 13. janúar 1875, d. 7. nóvember 1955. Systkini Sigbjörns voru Þor- steinn, f. 11. april 1907 (lát- inn), Unnur, f. 1. júlí 1909 (lát- in), Aðalheiður, f. 4. apríl 1910 (látin), Magnús, f. 16. júlí 1917, Jakobína, f. 28. október 1919, Rósa, f. 17. október 1922 (lát- in), Borghildur, f. 21. septem- ber 1926. Sigbjörg kvæntist árið 1959 Sigrúnu Hansen, f. 8. júlí 1911, d. 30. júlí 1993. Þau voru barnlaus. Sigbjörn lauk verslunarprófi frá Verslunar- skóla íslands. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju í dag. ELSKU bróðir. Göngunni er lokið og þú ert kominn á leiðarenda. Takmarkinu er náð. Þú ert kominn til hennar Rúnu þinnar, sem þú elskaðir og virtir að verðleikum, enda varstu sem vængbrotinn fugl eftir að hún fór. En þú varst ekki einn í heimin- um, þar sem þú áttir hann Halldór mág þinn að, sem tók þig strax að sér og hafði heima hjá sér þar til yfir lauk og hugsaði um þig með stakri prýði, og á hann heiður skil- ið fyrir það. Þér þótti alltaf svo vænt um Halldór, og hefðir hvergi annars staðar frekar vilja vera. Þið vorið listunnendur, og held ég að þið báðir hafið haft gott af þessari samveru ykkar. Eins ertu kominn til systkinanna og til foreldranna sem ævinlega báru hag þinn fyrir bijósti og höfðu oft miklar áhyggjur af þér, fyrst sem ungs heilsulítils drengs, og síð- ar sem sjómanns á hafi úti á mikl- um hættutímum, þegar sjómenn urðu alltaf að vera í viðbragðsstöðu og máttu ekki úr fötum fara vikum saman vegna stríðshættu. Þú bauðst þig fram ásamt fáum öðrum til að fara frá skipshlið á lítilli kænu, í vitlausu veðri, til að bjarga drukknandi mönnum úr sjó, þegar búið var að skjóta niður skip- ið þeirra. Ég veit þú fékkst heiðurs- skjal fyrir þetta afrek, en vildir aldrei um þetta tala, frekar en margt annað er gott þú gerðir. Þú varst trúaður, en flíkaðir aldrei til- fmningum þínum. Máltækið segin „Frændur eru frændum verstir." Því fer íjarri að það ætti við um þig. Þér þótti vænt _ um fólkið þitt og vildir því vel, þótt við hlýddum ekki alltaf þinum heilræð- MAITILBOÐ Píta m/buffi, frönskum og sósu Kr. 490.- Píta m/grænmeti, frönskum og sósu Kr. 450.- Hamborgari m/frönskum og sósu Kr. 400.- Gildir út maí Afsláttarkort gilda ekki sambandí viö tilboö. um, þætti þau stundum gamaldags. Það var oft spenna í lofti í gamla daga hjá yngstu kynslóðinni þegar von var á „Bjössa frænda" úr siglingu frá útlöndum. Það þurfti yfirleitt ekki að bíða boðanna. Bjössi og Rúna mættu fljót- lega, og þá með eitt- hvað fallegt og svo auðvitað sælgæti, sem fékkst bara í útlöndum. Já, það er margs að minnast þegar leiðir skilja. Bjössi minn, að lokum þakka ég þér samfylgdina og allt sem þú gerðir fyrir mig og mína. Guð geymi þig. Borghildur. Mig langar að setja á blað örfá minningarorð um Sigbjörn Þórðar- son, móðurbróður minn. Bjössi frændi og Rúna kona hans voru mjög barngóð og eru margar æsku- minningar mínar tengdar þeim hjónum. Ég minnist þess þegar ég var 11 ára að ég fékk að' fara með Bjössa „á ströndina", en þá var hann bátsmaður á m/s Dettifossi. Ég hafði nóg að gera í þessari ferð. í hverri höfn var leituð upp sund- laug og okkur Bjössa fannst nú ekki mikið varið í viðkomustaði sem ekki höfðu sundlaug. Síðan var far- ið með færið og rennt fyrir mar- hnúta og ufsa af bryggjunum. Einn- ig fékk ég að hjálpa Bjössa við ýmis létt störf um borð. Nokkrum árum síðar er hann var skipveiji á m/s Gullfossi bauð hann mér með sér á skíðavikuna á ísafirði. Það var feiknarlegt ævintýri fyrir mig að fara þessa ferð. Ekki ferðuð- umst við Bjössi einungis saman á sjónum, heldur á ég margar skemmtilegar minningar frá ferða- lögum akandi með Bjössa og Rúnu og þá sérstaklega til Víkur í Mýr- dal þar sem frændfólk okkar bjó. Börnin mín hafa aldrei átt afa, þeir voru báðir látnir áður en þau fæddust, og kom Bjössi í þeirra stað. Þegar dóttir mín var lítil kom Bjössi daglega þegar hann var í landi til að hitta hana. Hún naut þess líka að láta frænda hossa sér og kjassa. Því miður höfðum við búið svo langt frá honum Bjössa undanfarin ár að samgangurinn hefur minnkað mikið, en alltaf reyndum við að koma við hjá honum eða hitta hann þegar við vorum í bænum. Bjössi og Rúna höfðu mikinn heimsbrag yfir sér, þau unnu listum og ber heimili þeirra vott um það. Þau voru ástfangin eins og ungling- ar alveg til dauðadags Rúnu, en hún lést sl. sumar. Orðið „elskan" heyrðist oft þegar þau töluðu sam- an. Síðan Rúna lést hefur Bjössi ekki verið samur. Ekki hefur hann samt verið einn. Hann hefur haldið til hjá Halldóri Hansen, bróður Rúnu, sem hefur hugsað um hann og stytt honum stundirnar. Einnig hefur móðir mín sýnt honum mikla umhyggjusemi gegnum árin og hef- ur hann vel kunnað að meta það. Hann hefur verið sjúklingur í nokk- ur ár, en ekki hefur það aftrað honum frá því að sækja sundlaugar borgarinnar. Það hefur verið hans yndi síðan hann hætti sjómennsku fyrir nokkrum árum og marga kunningja eignaðist hann í laugun- um. Frá síðustu sundlaugarheim- sókn sinni fór hann í sjúkrabíl og lést hann morguninn eftir. Nú er komið að kveðjustund og veit ég að Bjössi kveður sáttur við allt og alla, en við munum sakna hans. Sólveig Helgadóttir. Sigbjörg Þórðarson, Bjössi frændi, lést að morgni miðviku- dagsins 18. maí, saddur lífdaga, á 79. aldursári sínu. Bjössi frændi var móðurbróðir minn og einn af föstu punktum í tilverunni allt frá því ég man eftir mér, hann og Sigrún Hansen, kona hans, Sigrún frænka. Gilti þá einu þótt Bjössi væri farmaður á sigling- um um heimshöfin og væri lang- dvölum að heiman. Bjössi frændi var ævintýramaður í augum okkar systkinabarna hans. Hann var maðurinn sem kannaði ókunna stigu, jafnvel meðal blá- manna og villidýra. En svo var hann einn góðan veðurdag kominn heim, hlaðinn framandi varningi og við nutum góðs af. Stundum feng- um við að fara niður á bryggju þegar Bjössa var von, og fylgjast með landtökunni og ysnum og þysn- um sem fylgdu. Við störðum um borð þar til frændi okkar birtist. „Þama er Bjössi frændi," hrópuðum við eins og kraftaverk hefði orðið. Svo breyttumst við úr börnum í unglinga og þar með í girnilegan markhóp fyrir þá sem vilja nýta sér ósjálfstæði þessara ára. Skyndilega vissum við heilmargt um tískuföt og tónlist. Og nú var Bjössa frænda heldur betur að mæta. Bjössi frændi hafði nefnilega heilmargt að athuga við þróun lista, menningar og almenns smekks manna síðustu áratugina, jafnvel aldirnar — og lét ekki hanka sig á ódýrum frösum. Þótt við legðum mörg saman og berðumst fyrir heiðri Bítlanna og Rolling Stones kom allt fyrir ekki; org, útburðar- væl og spangól skyldi eftirlætistón- list okkar heita og dæmigerð ómenning. Svo setti Bjössi klassíska tónlist á fóninn sinn og hækkaði úr öllu valdi svo enginn mátti mæla og því síður heyra annað en sígilda tóna meistaranna. Lágfleygum bókmenntasmekk okkar svaraði Bjössi með því að fara með langa kafla úr Manfred eftir Byron eða Faust Goethes í glæsilegum þýðingum sem hann kunni auðvitað utan að svo sem meisturunum hæfði. Vildi þá verða fátt um varnir. Það er e.t.v. í því fólgin þversögn að slíkur fagurkeri sem Bjössi var skyldi gera sjómennsku að ævi- starfi sínu — og þó. Siglingarnar urðu honum leið til að nálgast er- lenda hámenningu, hljómleikahallir og bækur, enda eignaðist Bjössi fjölda erlendra vina sama sinnis á ferðum sínum um heiminn. Ýmsir myndu kalla Bjössa sér- lundaðan í meira lagi og er það að því leyti rétt að hann hafði ákveðn- ar skoðanir á flestum málum, oft harla ólíkar þeim sem meðal-jóninn slær um sig með. Það er hollt að kynnast slíku fólki, takast á við það um menn og málefni og hopa venju- lega af hólmi innan stundar, lítt sár en ákaflega móður. Bjössa frænda var ekkert að van- búnaði er hann lagði úr höfn síð- asta sinn. Heilsan var ekki svo góð sem vera skyldi og dauði Sigrúnar konu hans fyrir nokkrum mánuðum skildi eftir skarð sem enginn gat fyllt. Þótt Bjössi ætti enn góða að var hann þreyttur orðinn og að ýmsu leyti einmana og lífslöngunin þorrin að mestu. „Eitt sinn skal hver deyja,“ sagði hann við mig fyrir skömmu og taldi erindi sínu hér lokið. Þijú síðustu kvöld ævi sinnar sótti Bjössi tónleika sem honum hugnuðust vel. Þannig fylgdi eftir- lætisgrein hans honum síðasta spöl- inn. Blessuð sé minning Bjössa frænda míns. Þórður Helgason. Látinn er í Reykjavík heiðurs- maðurinn og sækempan Sigbjörn Þórðarson tæplega 79 ára gamall. Hann var kominn af austfirsku kjarnafólki enda var hann ætíð stoltur af uppruna sínum og ætt- erni. Ekki verða ættir Sigbjörns raktar f f € : i i c i f 9 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.