Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 53

Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 53 BRÉF TIL BLAÐSINS AKRANES-TRAKTORINN árið 1918. Jón Sigmundsson undir stýri. Dagmæður - Dagvistarheimili Upphaf vélaaldarí íslenskum landbúnaði Frá Ásmundi Ólafssyni: ÞORKELL Hjaltason skrifar þarft bréf í Mbl. þann 8. maí sl. um nauðsyn þess að enduruppbyggja og varðveita fyrsta þúfnabanann sem kom til landsins árið 1921. Lítils misskilnings gætir í bréfi Þorkels, er hann kallar þúfnaban- ann „fyrstu raunhæfu vélina sem ruddi braut vélaaldar í íslenskum landbúnaði og jafnvel samgöngu- bótum líka.“ Sannleikurinn er sá að þremur árum áður, eða þann 12. ágúst árið 1918 kom fyrsti traktorinn til landsins, en kaupendur voru tveir áhugamenn um íslenskan landbúnað, þeir Þórður Ásmunds- son kaupmaður og útgerðarmaður og Bjarni Ólafsson, skipstjóri á Akranesi. Traktor þessi var af Avery gerð með steinolíumótor og tveimur strokkum flatliggjandi. Sjálf drátt- arvélin var 16 hestafla olíuvél, ca. 2'/2 smál. að þyngd, 1,5 m breið og 3,5 m löng. Vélin dró 3 plóga. Traktorinn, sem notaður var næstu árin á Akranesi og þá aðal- lega í Elínarhöfða var fyrsti vísir- inn að hinni stórfelldu ræktun, sem hófst á íslandi tæpum tíu árum eftir komu hans. Landbúnaðar- byltingin, sem hófst með tilkomu dráttarvélanna 1928 og 1929 kemur því í beinu framhaldi af því starfi sem hófst í ræktun á Akra- nesi í lok fyrri heimsstyijaldar. Jón Sigmundsson, bifvélavirki, sá er ók fyrsta Ford bílnum, er til landsins kom, setti vélina saman og kenndi Sveinbirni Oddssyni á Akranesi meðferð hennar. Sá næsti sem vann við vélina var Þorfinnur Hansson og síðast Júlíus Þórðarson. Þess má geta að Þórður Ás- mundsson var frumkvöðull á fleiri sviðum íslensks landbúnaðar sem mörkuðu spor í ræktunarmálum. M.a. keypti hann, ásamt Birni Lárussyni, bónda á Ósi í Skila- mannahreppi aðra af tveimur fyrstu skurðgröfunum sem hingað komu. Þær voru af gerðinni Priest- man Cub og komu til landsins árið 1942. Eirik Eylands, deildar- stjóri setti Akranesgröfuna saman í kolaporti Þórðar á Akranesi, en hjálparmaður hans var Karl Auð- unsson á Jaðri á Akranesi. Eirik vann fyrst með gröfunni þann 1. júní 1942 í Garðaflóa á Akranesi. Þá fór hann norður í Eyjafjörð og vann þar með hinni gi’öfunni fyrir neðan Munkaþverá þann 25. júní sama ár. Akranesgrafan er nú varðveitt í Þjóðminjasafni. Þórður Ásmundsson var einnig í fararbroddi á sviði sjávarútvegs á Akranesi. M.a. lét hann, ásamt Bjarna Ólafssyni á Litlateig, Lofti Loftssyni í Áðalbóli, Magnúsi Magnússyni á Söndum og Ólafi Guðmundssyni á Sunnuhvoli byggja fyrsta þiljaða vélbátinn á Akranesi, árið 1906. Báturinn var 12 tonn, smíðaður í Reykjavík og nefndur FRAM. (Helstu heimildir: Búvélar og ræktun eftir Árna G. Eylands. Útvarpserindi Þorvalds Steinason- ar „Dokað við á Elínarhöfða". Minningargreir, Péturs Ottesen um Þórð Ásmundsson og Saga Akraness eftir Ól. B. Björnsson). ÁSMUNDUR ÓLAFSSON, Jörundarholti 114, Akranesi. Frá Kristjönu Jacobsen: DAGMÆÐUR á landinu skipta hundruðum, skipta reyndar hundr- uðum í Reykjavík éinni. Þannig hefur það verið um árabil, a.m.k. þau sl. 20 ár sem ég hef starfað sem dagmóðir í borginni. Nú eru að koma kosningar, það fer varla framhjá neinum. Á að útrýma dagmæðrum? Frambjóðendur flokkanna kepp- ast við að lofa leikskólaplássum fyrir bömin, og að öll börn skuli fá leikskólapláss frá eins árs aldri, sem þýðir að dagmæður verða all- ar atvinnulausar. Dagmæður eru þær einu sem stunda barnagæslu að atvinnu og hafa ekki til þess neinn styrk, öll önnur barnagæsla er styrkt af borginni, en mismikið. Það þýðir að við dagmæður erum alls staðar í samkeppni við niðurgreidda barnagæsluj sem þýðir jafnframt, að það er ódýrara fyrir gifta for- eldra að hafa börn sín annars stað- ar í gæslu en hjá okkur, sökum niðurgreiðslna. Einstæðir foreldrar borga þó sama gjald til okkar og til annarra stofnana, þar sem borgarsjóður greiðir mismuninn hvað þá snertir. Giftir foreldrar sitji við sama borð Er ekki löngu tímabært að vekja athygli stjórnenda þessara mála á því að það kynni að vera allra hagur að styrkja gifta foreldra, sem eru með börn í vistun hjá dagmæðrum og geta hugsað sér að hafa börnin þar áfram af ýms- um ástæðum? Er ekki ráð að staldra við með byggingu nýrra dagvistarheimila, í bili a.m.k. Það ætti ekki að þurfa að reikna út fyrir neinn að það sparar borginni stórfé, auk þess að foreldrar barna, sem verið hafa hjá dagmæðrum og aldrei hafa notið neinna styrkja frá ríkinu við gæslu sinna barna, sætu loks við sama borð og aðrir hvað varðar kostnaðarhliðina. Á hinum Norðurlöndunum er stutt vel við bakið á dagmæðrum og þær viðurkenndur ágætis kost- ur við barnagæslu. Hér virðast flokkarnir hins vegar sammála um að útrýma þessari stétt og eru það mistök því fjölbreytni í barnagæslu hlýtur að teljast kostur, sem ætti að skoða betur. KRISTJANA JACOBSEN, dagmóðir. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Ábending til þín Frá Jóhannesi Svavarssyni: ÉG, SEM set saman þessar línur, er sjónskertur og starfa á bursta- gerð Blindrafélagsins. Að auki hefi ég gengið í hús og selt happdrættis- miða Blindrafélagsins og penna Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki. Sú reynsla, sem ég bý að, varðandi þessa sölumennsku, er kveikjan að þessu litla tilskrifi. í fyrsta lagi vil ég taka fram að ýmsir, sem ég býð happdrættismiða eða penna til kaups, taka mér ljúf- mannlega, ýmist kaupa eða af- þakka kurteislega. Alltof margir hraða sér á braut, án þess að virða mig svars, og enn aðrir afþakka kuldalega. Eigum við ekki öll að sýna hvert öðru hlýju og háttvísi? í annan stað vil ég benda fólki á það, sem margir gera sér ekki grein fyrir, að það getur látið taka sig út af happdrættisskrá, sem er unnin hjá Hagstofunni. Heppilegra er að þeir, sem standa fyrir happ- drættum, leiti fyrst samþykkis kaupenda áður en nöfn þeirra eru tekin á útsendingarskrár. Eða með öðrum orðum að fólk, sem vill styrkja ákveðið félag eða málstað, láti skrá sig hjá viðkomandi sem kaupendur miða. Með þessu væri hægt að komast hjá þeirri átroðslu og því ónæði, sem svo margir eru orðnir þreyttir á. JÓHANNESSVAVARSSON Hamrahlíð 35 Royal - fjölbreyttur skyndibúðingur Fimm bragðtegundir: Súkkulaði, jarðarberja, karamellu, vanillu og sítrónu. Auglýsing Meiriháttar Kolaportshelgi í Tollhúsinu Kolaportið opnar 1 Tollhúsinu: Metaðsókn fyrstu helgina Talið er að um 40.000 gestir hafí heimsótt. Kolaportið fyrstu helgina í Tollhúsinu og eru for- svarsmenn markaðstorgsins mjög ánægðir með þessar undir- tektir. Ekki spillti veðrið fyrir því sól og hiti var báða dagana og segja má að hafnarbakkinn og miðbærinn hafí iðað af mannlífí. „Við eigum eftir að breyta ýmsu hér í húsinu næstu vikurnar en okkur hefur greinilega tekist að flytja gömlu góðu Kolaports- stemmninguna með okkur“ segir Jens Ingólfsson framkvæmda- stjóri Kolaportsins. Ánægðir seljendur „Seljendur voru mjög ánægðir með söluna þessa fyrstu helgi og almennt búast menn við stóraukn- um viðskiptum á nýja staðnum. Það spillir líka ekki fyrir að við höfum nú getað lækkað básaverð- ið verulega og kostar nú venjuleg- ur sölubás ekki nema 2.500 kr.“ segir Jens. Um 200 seljendur komast fyrir í Tollhúsinu og er það talsverð fjölgun frá gömlu bílageymslunni. Meira vöruúrval „í Tollhúsinu er mun meira vöru- úrval en á gamla staðnum" segir Jens. „Þar höfum við uppfyllt ströngustu skilyrði heilbrigðiseft- irlitsins og í Kolaportinu er nú m.a. að fínna mesta úrval landsins af ferskum fiski og öðrum sjávar- afurðum. Á næstunni munu enn fleiri aðilar koma inn með nýjar vörur.“ Sunnlenskt, já takk! Nú um helgina verður fyrsta vöru- sýningin í Tollhúsinu undir nafn- inu „Sunnlenskt, já takk“ og munu þá tæplega eitt hundrað aðilar af Suðurlandi og frá Vest- mannaeyjum kynna framleiðslu og ferðaþjónustu í stórum hluta hússins en auk þess verður einnig venjulegt markaðstorg þessa helgi. Það er reyndar stefna Kolaportsins að fjölga slíkum sýn- ingum í framtíðinni og er undir- búningur hafinn að sumarsýningu seint í júní og sjávarútvegssýn- ingu í tengslum við Hafnardaga seinnihluta júlímánaðar. Kolaportið aðeins um helgar Fyrst um sinn mun Kolaportið aðeins verða opið um helgar, laug- ardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 11-17, en stefnan er að vera með sem fjölbreyttasta starfsemi í húsinu aðra daga vikunnar. „Þegar svona risasalur er fyrir hendi hér á besta stað í miðbæn- um með nóg af bílastæðum er ábyggilegt að ftjóir einstaklingar og félagasamtök muni fínna hin fjölbreyttustu not fyrir húsið“ segir Jens. „Hér er t.d. aðstaða fyrir mörg þúsund manna tón- leika, en einnig er mjög auðvelt að skipta húsinu í smærri einingar og hér viljum við gjarnan hafa samkomur af öllu tagi. Því meira líf í húsinu því betra“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.